Morgunblaðið - 06.09.1989, Page 40
40
MORGUNfiLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. SEFDEMBER 1989
r/AflsbCjriy cujfovibab-"
Ég réði ekkert við hund-
inn, sem sá kött og elti
hann hingað inn ...
HÖGNI HREKKVÍSI
, ÚG ER HRÆDDUR UM AÐ fill) VERÐII? AÐ
AfHJÚPA Þl&/ HÖGMI •/'
Þesslr hringdu . . .
Heimskulegt
neyðarúrræði
G.Þ. hringdi:
„Stjórn sú er nú situr er ekki
óvinsæl af ástæðulausu. Matar-
skattar, ekknaskattar o. fl. virðast
ekki duga til að koma lagi á ríkis-
fjármálin og nú á að grípa til
þess að skattleggja sparifé lands-
manna. Enn er ráðist á garðinn
þar sem hann er lægstur því sjálf-
sagt er það fyrst og fremst eldra,
fólk sem á peninga á sparisjóð-
reikningum. Afleiðingin verður
auðvitað sú að það dregur úr
spamaði og fólk fer að eyða pen-
ingunum jafnóðum í stað þess að
láta ríkið hirða þá. Stjórnarherr-
arnir telja sig víst ekki þurfa á
innlendum fjármagnsmarkaði að
halda. Það er bara að taka erlend
lán og láta allt lafa fram að næstu
kosningum og lofa þá öllu fögru.
Ég hvert spariljáreigendur til að
láta til sín heyra og því það skipt-
ir miklu máli fyrir alla þjóðina að
einhveijir spari í þessu landi.“
Slæmir vegir
Erlendur hringdi:
„Vegirnir í Öskjuhlíðinni eru
mjög slæmir og brekkan fyrir ofan
Nauthólsvíkina má heita ókeyr-
andi. Þetta hefur versnað um all-
an helming í rigningunum undan-
farið. Er ekki tími til kominn að
taka þarna til hendinni og bæta
vegina.“
Ónóg löggæsla
Lesandi hringdi:
„Það er mikið lif i Miðbænum
á góðviðrisdögum en það hefur
líka sína skuggahliðar. Eg vinn í
Miðbænum og veit því vel hvað
ég er að segja. Það er mikið um
alls konar lýð sem heldur til á
bekkjunum og kemst gamalt fólk
ekki að fyrir þessu fólki sem sumt
hagar sér illa. Lögreglan sést
varla nema þegar kemur til vand-
ræða. Ég tel mikla þörf á því að
lögreglumenn sýni sig við og við
í göngugötunni þegar gott er veð-
ur og er sannfærður um að það
yrði til mikilla bóta. Þetta er held-
ur ekki góð iandkynning að svona
takmörkuð löggæsla sé á svo fjölf-
örnu torgi.“
Demantshringur
Demantshringur tapaðist á ■
fimmtudag í eða við Stúdíó Jóníu
og Ágústu Skeifuni 7 eða við
Reyinimel. Finnandi vinsamlegast
hafi samband við Ingu i síma
29577 eða 14728.
Hjól
Peugeot keppnishjól var tekið
fyrir utan biljarstofuna í Hamra-
borg í Kópavogi. Hjólið er 12 gíra
með svörtum gjörðum. Það var
læst og hefur verið borið í burtu.
Allir sem geta gefið upplýsingar
eru beðnir að hringja í síma
44223.
Bleikt Euro star telpuhjól
fannst við Hraunholtslæk í
Garðabæ fyrir nokkru. Upplýsing-
ar í síma 641455.
Armband
Gullarmband tapaðist í maílok
milli Kambasels og Fjarðarsels
eða við bílasölu í Skeifunni.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 77510 eftir kl. 19.
Fjallgönguskór
Fjallgönguskór tapaðist á leið
frá Gnúpveijahreppi að Skafta-
felli fyrir um það bil mánuði.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 23295.
Myndavél
Myndavél af gerðinni Canon AEl
tapaðist laugardaginn 19. ágúst.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 14660. Fundarlaun.
Víkverji skrifar
IMoskvu höfuðborg Sovétríkj-
anna er ástandið nú þannig,
að settar hafa verið reglur um það
í hvaða röð . almenningur má
kaupa nauðsynjar. Hafa
Moskvubúar forgang gagnvart
þeim sem búa utan höfuðborgar-
innar. í þessu felst að Moskvubú-
ar .einir mega kaupa fágætan
varning eins og skó, föt og sjón-
varpstæki. Stórverslanir verða
lokaðar almenningi í nokkrar
klukkustundir á viku hverri til að
gefa starfsmönnum í verksmiðjum
og stofnunum færi á að versla.
Svipaðar reglur hafa verið settar
í Eystrasaltslöndunum.
Ástæðan fyrir þessum skömmt-
unaraðgerðum er sú að þrátt fyrir
perestrojku Gorbatsjovs getur hið
miðstýrða sovéska kerfi ekki full-
naégt óskum almennings. Eystra-
saltsríkin og Moskva hafa haft
sérstöðu, þar hefur vöruframboð
verið meira en annars staðar.
Þangað streymir því fólk í leit að
öllu frá kjöti til ísskápa, sem hef-
ur einfaldlega horfið úr venjuleg-
um verslunum á landsbyggðinni.
Fréttaritari New York Times í
Moskvu telur, að hinar nýju
skömmtunarreglur muni enn auka
á óánægju almennings í sovésku
lýðveldunum.
xxx’
Víkveiji minnist frétta frá því
fyrr í sumar, þegar sovéskur
ráðherra var gerður út af örkinni
og sendur til London til að kaupa
þar meðal annars milljónir af
sokkabuxum. Var þetta um svipað
leyti og'Flugleiðir voru að semja
við flugfreyjur um þennan klæðn-
að, en sovéski ráðherrann hélt í
innkaupaferð til að unnt væri að
standa við loforð Gorbatsjovs til
námumanna sem voru í verkfalli.
Kröfðust þeir þess meðal annars
að fá sokkabuxur handa konum
sínum.
Á skömmtunartímunum hér var
eftirspurn eftir nælonsokkum svo
mikil, að kannski hefði verið unnt
að leysa vinnudeilur með því að
senda ráðherra til útlánda til að
kaupa slíkan varning handa kon-
um verkfallsmanna. Engum datt
það þó víst í hug, enda höfum við
sem betur fer aldrei kynnst
lífskjörum á borð við þau, sem
öreigar kommúnistaríkjanna eiga
að venjast.
xxx
Hér var nýlega á ferð einn
af foringjum jafnaðarmanna
í Vestur-Þýskalandi Oskar La-
fontaine og hafði þann böðskap
helst fram að færa, að bæta ætti
umhverfið og stytta vinnutímann.
Myndi flestur mannlegur vandi
leysast við það enda yrði með ein-
hveijum ráðum (opinberum
líklega) séð til þess, að menn not-
uðu frítímann til annars en að
glápa á sjónvarp. Víkveiji er síður
en svo á móti styttri vinnutíma
eða umhverfisvernd. Á hinn bóg-
inn skilur hann ekki, að í því fe-
list sú allsheijarlausn sem La-
fontaine gefur til kynna.
í blaðagrein þar sem Lafontaine
var nefndur við hlið þeirra Brandts
og Palme stóð þetta: „Er ekki
laust við að maður öfundist við
þá sem eiga eftir að taka þátt í
að reisa veröldina úr rústum
kapítalismans á næstu fimmtíu
árum eða svo.“ Ef þeir sem fá
ekki að versla í Moskvu og þurfa
að loka námum til að fá sokkabux-
ur svo að ekki sé talað um Pól-
veija eða aðrar þjóðir sem eru á
leið frá sósíalisma til kapítalisma
sæju þessi tilvitnuðu orð myndu
þeir líklega halda á þau hafi verið
rituð fyrir að minnsta kosti sjötíu
árum.
Skrifstofutækninám
Betra verð - einn um tölvu
Tölvuskóli íslands
S: 67 14 66