Morgunblaðið - 06.09.1989, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDÆGUR .6., SEPTEMBER 1989
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
„Draumurinn er að kveðja
með sigurleik í Laugardal“
- segirÁsgeirSigurvinsson, sem léksinniyrsta landsleik tyrir sautján árum
ÁSGEIR Sigurvinsson, litrfkasti
knattspyrnumaður íslands,
leikur að öllum líkindum
kveðjulandsleik sinn gegn A-
Þjóðverjum á Laugardalsvellin-
x umídag. Stuttgart hefur sett
„rautt ljós“ á að hann leiki með
Islandi gegn Tyrklandi 23. sept-
ember, þar sem Stuttgart er
að leika gegn Bayern Miinchen
í Stuttgart sama kvöld. „Ég sé
ekki að neinar breytingar verði
á því hjá Stuttgart, að ég fái
mig lausan - þannig að kveðju-
stundin er runnin upp,“ sagði
Ásgeir Sigurvinsson, sem lék
sinn fyrsta landsleik fyrir sautj-
án árum - gegn Dönum á Laug-
ardalsvellinum 3. júlí 1972.
Leikurinn gegn A-Þjóðvetjum
verður mjög erfiður. A-Þjóð-
veijar, sem hafa verið í öldudal,
gera allt til að rífa sig upp úr hon-
um undir stjóm nýja þjálfarans,
Eduard Geyer.
„Við verðum að leika öruggan leik
og yfirvegað. Verðum að taka frum-
kvæðið og leika til sigurs. Eitt er
víst að við sættum okkur ekki við
jafntefli. Við munum selja okkur
dýrt og ætlum okkur ekkert nema
sigur. Við þurfum tvö stig til að
eiga möguleika á að komast í loka-
keppnina á Ítalíu. Við eigum harma
að hefna frá því að við töpuðum,
•■»0:2, í Austur-Berlín. Þar fengu
A-Þjóðverjar __ gefins fyrra mark
sitt,“ sagði Ásgeir, sem á aðeins
Island
Leikaðferð: 5-3-2
Markvörður:
Friðrik Friðriksson
Varnarmenn:
Guðni Bergsson
Gunnar Gíslason
Ágúst Már Jónsson
Sævar Jónsson
Viðar Þorkelsson
Miðvallarleikmenn:
Amór Guðjohnsen
Ásgeir Sigurvinsson
Omar Torfason
Framherjar:
Sigurður Grétarsson
Guðmundur Torfason
eina ósk - að kveðja í sigurleik á
heimavelli.
Mörg eftirminnileg atvik
Ásgeir sagði að hann ætti marg-
ar eftirminnilegar minningar frá
landsleikjum með íslandi á sautján
ámm. „Það er þó leiðinlegast að
ég hef ekki leikið nema fjörtíu og
fjóra landsleiki á þessum langa
tíma, eða rúmlega tvo leiki á ári.
Þegar ég hugsa til baka, þá vom
það mistök að vera ekki með hrein-
ar línur í samningum mínum um
að ég fengi mig lausa í landsleiki
þegar KSI óskaði eftir því, eins og
nú er komið í samninga hjá atvinnu-
knattspymumönnum.
Þegar maður rennur huganum
aftur til baka, þá skjótast margir
skemmtilegir félagar upp í hugann.
Sjáðu til - þegar ég lék minn fyrsta
leik Laugardalsvellinum, 17 ára, þá
lék ég með köppum eins og Jóhann-
esi Atlasyni, Elmari Geirssyni og
Hermanni Gunnarssyni.
Eftirminnilegasti landsleikurinn
sem ég hef leikið er án efa sigurleik-
urinn, 2:1, gegn A-Þjóðverjum í
Evrópukeppni landsliða, á Laugar-
dalsvellinum 1975. Leikurinn var
mjög góður og stemmningin ólýsan-
leg á vellinum. Þá gleymi ég seint
leiknum gegn Wales, 2:2, í Swansea
1981,“ sagði Ásgeir, sem skoraði
bæði mörk íslands í þessum sögu-
lega leik.
„Það hefur gaman að fylgjast með
þeim miklu breytingum sem hafa
orðið í sambandi við landsliðið.
Breytingar sem hafa verið mark-
visst í rétta átt og nálgast það sem
gerist í atvinnumennskunni. Hér
áður fyrr fóru leikmenn með því
hugarfari í leiki að tapa með sem
minnstum mun, en nú mæta menn
til að vinna sigra."
„Erum að nálgast kynslóða-
skipti"
„Þeir leikmenn, sem hafa leikið
með landsliðinu undanfarin ár, eru
að hverfa á braut. Kynslóðaskipti
eru í sjónmáli. Það tekur alltaf
smátíma til að skóia menn til. Við
þurfum ekkert að kvíða framtíð-
inni. Margir góðir ungir leikmenn
hafa verið að banka á dymar. Leik-
menn sem eiga eftir að fara út í
Bjij endanámskeið
4ra mánaða námskeið hefst hjá
karatedeild Stjörnunnar, Garðabæ,
þriðjudag kl. 18.40-19.30,
fimmtudag kl. 18.40-19.30
í íþróttahúsinu Ásgarði, Garðabæ.
Ókeypis kynningaræfingar fimmtudaginn 7. sept. og
þriðjudaginn 12. sept. kl. 18.40. Allir velkomnir.
Aðalþjálfari er Karl Pirttinen, 1. DAN, frá Svíþjóð.
Allar upplýsingar á æfingatíma í síma 53066.
Morgunblaðiö/BAR
Ásgeir Sigurvinsson og Siegfried Held, landsliðsþjálfari íslands, kveðja
báðir íslenska landsliðið á Laugardalsvellinum í kvöld. Þeir hafa báðir verið
þýðingarmiklir hlekkir í landsliðskeðjunni.
atvinnumennsku og halda merki
íslands á lofti.
Vandamálið verður alltaf hvað
leikmenn okkar leika í mörgum
löndum. Við eigum erfiðara með
að kalla landslið okkar saman held-
ur en aðrar þjóðir. Þess vegna er
þjálfari landsliðsins ekki eins mikil-
vægur og hjá öðmm þjóðum. Þjálf-
ari landsliðsins hefur lítinn tíma til
að undirbúa liðið fyrir leiki. Þjálfar-
ar annara þjóða fá aftur á móti
góðan tíma til undirbúnings. Leikj-
um er frestað til að þjálfarinn geti
kallað leikmenn sína saman - til
að þeir kynnist betur og fái góðan
tíma til að fara yfir leikkerfi og spá
í spilin.
Þetta er nokkuð sem ekki er
hægt að bjóða íslenskum landsliðs-
þjálfara upp á - þegar stór hópur
leikmanna kemur að utan og
leiktímabilið á íslandi er stutt og
því erfitt að fresta leikjum," sagði
Ásgeir.
Ásgeir mun hætta að leika með
Stuttgart eftir þetta keppnistíma-
bil. „Það er nær 90% ömggt að ég
legg skóna á hilluna. Það getur þó
orðið breyting á. Ef ég verð í góðri
æfingu og fæ freistandi tilboð, er
aldrei að vita nema ég slái til og
leiki knattspymu eitt keppnistíma-
bil til viðbótar,“ sagði Ásgeir.
„Islandsban-
inn“ ekki með
Andreas Thom kinnbeinsbrotnaði á æfingu
Andreas Thom, markaskorar-
inn mikli sem oft hefur verið
nefndur „íslandsbaninn“, verður
illa íjarri góðu gamni í leiknum í
dag. Hann kinnbeinsbrotnaði á
landsliðsæfmgu i Austur-Þýska-
landi á mánudaginn og tekur því
ekki þátt í leiknum.
Fjarvera Thom er mikið áfall
fyrir Austur-Þjóðvetja þar sem
hann hefur verið mesti marka-
skorari liðsins og þá sérstaklega
gegn íslendingum. Hann gerði
bæði mörk Austur-Þýskalands í
2:0-sigri á íslendingum í undan-
keppni EM 1986 og þrennu í 6:0-
sigri á Laugardalsvelli í sömu
keppni 1987. Thom gerði síðan
bæði mörkin í 2:0-sigri í fyrri leik
liðanna í Austur-Berlín í október
í fyrra. Hann hefur því alls skorað
sjö af tíu mörkum Austur-Þjóð-
vetja gegn íslendingum síðust
þrjú árin.
„Það er gott vera laus við
Andreas Thom. Hann hefur verið
sálrænn refsivöndur, enda skorað
mörk í hvetjum leik gegn okkur.
Það þýðir þó ekkert að fagna fyr-
irfram því það kemur maður í
manns stað því Austur-Þjóðverjar
eiga marga góða knattspyrnu-
menn,“ sagði Ásgeir Sigurvins-
son.
Friðrik Friðriksson
Bjarni
meiddur
Friðrik Friðriksson
verður í markinu
Bjarni Sigurðsson tognaði í nára
á landsliðsæfingu á mánudags-
kvöldið og í gær kom í ljós að hann
getur ekki leikið með í dag. Friðrik
Friðriksson, B 1919, kemur inn í
bytjunarliðið í hans stað. Guðmund-
ur Hreiðarsson, Víkingi, verður
varamarkvörður.
Fj.leikja u J T Mörk Stig
SOVÉTRÍKIN 5 3 2 0 8: 2 8
AUSTURRÍKI 5 2 2 1 6: 6 6
TYRKLAND 5 2 1 2 8: 6 5
ÍSLAND 6 0 4 2 4: 7 4
A-ÞÝSKAL. 5 1 1 3 4: 9 3
„Erfiður
leikur“
- segir Siegfried Held
Siegfried Held, stjórnar íslenska
landsliðinu í síðasta sinn í dag.
Hvernig leggst leikurinn í hann?
„Þetta verður mjög erfiður leikur.
Austur-Þjóðveijar eru með betra lið
en staða þeirra í riðlinum segir til
um. Við verðum að ná upp svipuðum
leik og; hér heima gegn Austurríki
til að eiga von um að ná hagstæðum
úrslitum," sagði Held í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
■ KSÍ hefur ákveðið að kveðja
Siegfried Held, landsliðsþjálfara
og þakka honum gott samstarf -
í hófi eftir landsleikinn gegn A-
Þjóðveijum.
■ VEÐBANKAR í Svíþjóð telja
líklegra að ísland vinni sigur heldur
en A-Þýskaland og er staðan þann-
ig: 1: 2,25. X: 2,60. 2: 2,40. Eins
og sést á þessu eru talið ólíklegast
að um jafntefli verði í landsleiknum.
A-Þýskaland
Leikaðferð: 4-4-2
Markvörður:
Dirk Heyne.
Varnarmenn:
Dirk Stahmann, Ronald Kreer,
Burkhard Reich og Mathias
Linder
Miðvallarleikmenn:
Matthias Döschner, Matthias
Sammer, Rainer Ernst og Jörg
Stubner
Framheijar:
Ulf Kirsten og Thomas Doll.
Verðum að vinna í Reykjavík“
99
Austur-Þjóðvetjar leika í dag
sinn fyrsta landsleik undir
stjórn hins nýja þjálfara, Eduard
Geyer. Hann þjálfar einnig Dynamo
Dresden, en tók við Iandsliðinu af
Manfred Zapf í vor eftir slakt gegni
austur-þýska liðsins í undankeppn-
inni. Geyer hefur stjórnað liðinu í
einum æfingaleik gegn Búlgaríu á
heimavelli í águst og endaði hann
með jafntefli, 1:1.
„Möguleikar okkar liggja í því
að vinna alla leikina sem eftir eru
í riðlinum. Við spilum því til sigurs
gegn Islendingum. Þetta verður
erfiður leikur og við erum án nok-
kurra lykilmanna," sagði Geyer,
eftir æfingu liðsins á Laugardals-
velli i gær. Hann sagði að völlurinn
vær ágætur en vonaði að veðrið
yrði betra, en það hellirigndi meðan
á æfingunni stóð.
Austur-Þjóðveijar hafa aðeins
unnið einn leik í riðlinum, gegn ís-
lendingum ytra í október í fyrra,
2:0. Þeir hafa síðan tapað tvívegis
gegn Tyrkjum, einu sinni fyrir Sov-
étmönnum og gert jafntefli við
Austurríki, 1:1, í maí.