Morgunblaðið - 07.09.1989, Page 54
54
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1989
KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
ÚRSLIT
HM-keppnin
1. RIÐILL:
Fj. leikja U J T Mörk Stig
RÚMENÍA 4 3 1 0 7: 1 7
DANMÖRK 4 2 2 0 11:3 6
GRIKKLAND 4 0 2 2 2: 11 2
BÚLGARÍA 4 0 1 3 2: 7 1
lEfsla liðið fer til Ílaiíu.
2. RIÐILL:
Svíþjóð - England....................OK)
Áliorfendur: 38.588.
Fj. leikja U J T Mörk Stig
ENGLAND 5 3 2 0 10:0 8
SVÍÞJÓÐ 4 2 2 0 4: 2 6
PÓLLAND 3 1 0 2 2:5 2
ALBANIA 4 0 0 4 1: 10 0
■Efsta liðið fer til Ítalíu.
3. RIÐILL:
Austurríki - Sovétríkin............0:0
Áhorfendur: 65.000.
ísland - A-Þýskaland...............0:3
- Matthias Sammer (55.), Rainer Enist (63.),
Thomas Doll (65.).
Áhorfendur: 7.124
Fj. leikja u j T Mörk Stig
SOVÉTRÍKIN 6 3 3 0 8: 2 9
AUSTURRÍKI 6 2 3 1 6: 6 7
TYRKLAND 5 2 1 2 8: 6 5
A-ÞÝSKAL. 6 2 1 3 7: 9 5
iSLAND 7 0 4 3 4: 10 4
■Tvö efstu liðin fara til Ítalíu
4. RIÐILL:
Finnland - Wales...................1:0
Mika Lipponen (50.)
Áhorfendur: 7.480
Fj. leikja U J T Mörk Stig
HOLLAND 4 2 2 0 3: 1 6
V-ÞÝSKAL. 4 1 3 0 5: 1 5
FINNLAND 4 1 1 2 3: 7 3
WALES 4 0 2 2 2: 4 2
■Efsta liðið fer til Ítalíu.
5. RIÐILL:
Noregur - Frakkland..................1:1
Rune Bratseth (84.) - Jean-Pierre Papin (40.
vítasp.).
Áhorfendun 8.564.
Júgóslavía- Skotland.................3:1
Srecko Jatanec (52.), Steve Nicol (58. - sjálfs-
mark), Gary Gillespie (59. - qálfsmark) -
Gordon Durie (37.)
Áhorfendur: 45.000
r Fj. leikja U J T Mörk Stig
SKOTLAND 6 4 1 1 11: 8 9
JÚGÓSLAVÍA 5 3 2 0 11:4 8
NOREGUR 5 2 1 2 8: 5 5
FRAKKLAND 6 1 3 2 5: 7 5
KÝPUR 6 O 1 5 5: 16 1
■Tvö efstu iiðin fara til Ítalíu.
6. RIÐLI:
1:2
Norman Whiteside (89.) - Kalman Kovacs
(13.), Gyorgy Bognar (44.)
Áhorfendur 8.000
Fj. leikja U J T Mörk Stig
SPÁNN 6 5 0 1 14: 1 10
ÍRLAND 6 3 2 1 5: 2 8
UNGVERJAL. 6 2 3 1 6: 6 7
N-ÍRLAND 7 2 1 4 6: 9 5
MALTA 7 0 2 5 3: 16 2
■Tvö efstu liðin fara til Ítalíu.
Morgunblaðið/Einar Falur
Hart barist! Hér sjást þeir Arnór Guðjohnsen, Viðar Þorkelsson, Guðmundur Torfason og Sævar Jónsson berjast um knöttinn við A-Þjóðvetja.
íslendingarendalega úr leik í baráttunni um
að komast í lokakeppni HM á Ítalíu
VONARNEISTI Islendinga um
að komast í lokakeppni heims-
meistaramótsins á Ítalíu á
næsta ári var endalega slökkt-
ur á Laugardalsvelli í gær. ís-
land, sem lék sinn slakasta
landsleik í langan tíma, beið
lægri hlut fyrir léttleikandi
Austur-Þjóðverjum sem gerðu
þrjú mörk á tíu mínútna kafla
í síðari hálfleik. Auk þess
brenndu gestirnir af vítaspyrnu
á síðustu mínútunni þannig að
sigur þeirra hefði getað verið
enn stærri. Þetta er stærsta
tap íslenska landsliðsins í und-
ankeppni HM síðan þeirtöp-
uðu fyrir sömu þjóð, 0:6, á
Laugardalsvelli 1987.
Fyrri hálfleikur var tilþrifalítill
að hálfu íslenska liðsins. Það
var aðeins Ásgeir Sigurvinsson sem
lék vel, reyndi að mata samheija
sína á góðum send-
ValurB. ingum auk þess að
Jónatansson reyna langskot.
skrilar Austur-Þjóðvetjar
voru meira með
knöttinn og áttu nokkiir langskot
sem hittu ekki íslenska markið.
Eina marktækifæri Islendinga í
fyrri hálfleik kom á síðustu mínútu
hálfleiksins. Ómar Torfason gaf þá
góða sendingu inn fyrir á Sigurð
Grétarsson sem sendi fyrir; mark-
vörðurinn sló knöttinn frá og'Viðar
náði frákastinu og átti hörkuskot
frá vítateig sem fór framhjá.
Þrjú mörk á 10 mínútum
íslendingar 'færðu sig framar á
völlinn fyrstu mínútur síðari hálf-
leiks og fengu þá þokkalegt færi
eftir góðan undirbúning Sigurðar,
en Austur-Þjóðveijar björguðu í
horn. En það kom á daginn að það
hentar íslenska Iiðinu einfaldlega
ekki að sækja því Austur-Þjóðverjar
refsuðu því með þremur mörkum á
tíu mínútna kafla og gerðu út um
ieikinn.
Fyrst skoraði Matthias Sammer
eftir frábæran undirbúning Thom-
asar Doll. Reiner Ernst bætti öðru
markinu við og var undarlegt mark.
„Þetta var mikið heppnismark.
Hann skaut í sjálfan sig og boltinn
snerist yfir mig. Ég hélt að hann
gæti ekki vippað yfir mig af þessu
færi en það gerir enginn ráð fyrir
svona skoti,“ sagði Friðrik Friðriks-
son, markvörður. Þriðja markið
kom aðeins tveimur mínútum síðar
og var besti leikmaður Austur-
Þjóðverja, Thomas Doll, þar að
verki. Hann lék á Ragnar Margeirs-
son í vítateignum og þrumaði knett-
inum upp í þaknetið úr þröngu
færi þar sem Friðrik náði aðeins
að blaka hendi í boltann.
Austur-Þjóðverjar réðu alfarið
gangi leiksins það sem eftir var,
létu boltann ganga á milli sín, enda
íslensku leikmennirnir búnir að játa
sig sigraða og voru hreinlega hætt-
ir. Doll fiskaði vítaspyrnu á síðustu
mínútu leiksins er brotið var gróf-
lega á honum innan vítateigs. Doll
tók spyrnuna sjálfur og þrumuskot
hans fór í stöng og þvert fyrir
markið.
Áhugaleysi
Baráttuviljinn, sem einkennt hef-
ur leik íslenska liðsins í síðustu
leikjum, var ekki til staðar í þessum
ieik. Áhugaleysi var algjört, sér-
staklega í seinni hálfleik og minnti
þessi leikur óneitanlega á 6:0- tapið
gegn Austur-Þjóðverjum 1987.
Leikmenn reyndu lítið að leika stutt
og einfallt spil, heldur voru meira
með háar sendingar sem erfitt var
að hemja á blautum vellinum. Eins
reyndu leikmenn of mikið að ieita
Ásgeir uppi þó svo að hans væri
vel gætt. Vörnin komst skammlaust
frá fyrri hálfleik, en var eins og
gatasigti í þeim síðari. Guðni Bergs-
son stóð þó fyrir sínu en mátti ekki
við margnum. Ásgeir var góður í
fyrri hálfleik en náði sér ekki strik
í þeim síðari frekar en aðrir. Arnór
virðist ekki vera kominn í toppæf-
ingu og týndist oft á miðjunni.
Ómar gerði fá mistök og vann vel.
Sigurður Grétarsson átti ágæta
ísland —
A-Þýskaland
O : 3
Laugardalsvöllur, undankeppni HM,
miðvikudaginn 6. september 1989.
Mörk A-Þjóðverja: Matthias Sammer
(55. mín.), Reincr Ernst (63. mín.) og
Thomas Doll (65. mín.).
Gult spjald: Sævar Jónsson (20. mín.),
Ágúst Már Jónsson (44. mín.), Sigurð-
ur Grétarsson (64. mín.), Reiner Ernst
(52. mín.).
Áhorfendur: 7.124.
Dómari: K. Cooper frá Wales og
dæmdi mjög vel.
Lið íslands: Friðrik Friðriksson, Gunn-
ar Gíslason, Ágúst Már Jónsson, Ómar
Torfason, Viðar Þorkelsson, Sævar
Jónsgon, Guðni Bergsson, Guðmundur
Torfason, Sigurður Grétarsson, Ásgeir
Sigurvinsson, Arnór Guðjohnsen,
(Ragnar Margeirsson vm. á 59. mín.).
Lið A-Þýskalands: Dirk Heyne, Ronld
Kreer, Dirk Steimann, Matthias Lindn-
er, Matthias Döslhner, Matthias Sam-
mer, Jörg Stubner, Burkhard Reich,
Ulf Kirsten, Reiner Ernst (Rico Stei-
mann vm. á 76. mín.), Thomas Doll.
spretti, en Guðmundur Torfason var
lítið með í leiknum.
Urslitin verða að teljast töluvert
áfall fyrir íslenska knattspyrnu. Við
sem höfum verið að gæla við þann
draum að ísland kæmist í loka-
keppni HM á Ítalíu getum nú farið
að finna okkur önnur hugðarefni.
Morgunblaöið/RAX
Asgeir Sigurvinsson var besti leikmaður íslenska liðsins.