Morgunblaðið - 01.10.1989, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 01.10.1989, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1989 7 Þjóðminjasafiiið: Tækniráðgjafi ráðinn til að undirbúa endurbæturnar BYGGINGANEFND Þjóðminja- safnsins hyggst á næstunni ráða tækniráðgjafa til að annast und- irbúning á væntanlegum endur- bótum á safnhúsinu við Suður- götu og setja saman áreiðanlega kostnaðaráætlun. Júlíus Sólnes formaður nefndarinnar tjáði Morgunblaðinu að vonast sé til að hægt verði að hefjast handa við byggingu á nýjum inngangi í húsið og að klæða það að utan næsta sumar. það verður mikið verk að gera allar þær lagfæringar sem nauðsynlegar eru og hefur verið áætlað að það muni kosta samtals hátt í hálfan milljarð króna,“ sagði hann. I greinargerð byggingarnefndar- innar frá 1988 segir meðal annars að nauðsynlegt sé að einangra hús- ið að nýju að utan og klæða það vandaðri klæðningu. Gluggaskipan þarf að endurskoða og gera endur- bætur á hitunar- og loftræstikerfi. Einnig þarf að breyta herbergja- skipan og fyrirkomulagi í sýningar- sölum, endurnýja gólfefni og mála húsið að innan, bæta hljómburð auk smærri viðgerða. Þá er talið nausynlegt að byggja viðbyggingar við núverandi safnhús meðal annars fyrir nýjan inngang þar sem yrði stigi og lyfta, fata- hengi og snyrtingar og neyðarút- gangur. Einnig þarf að bæta við bílastæðum og talin er þörf á nýrri byggingu hið bráðasta fyrir geymsl- ur og verkstæði safnsins og í ná- inni framtíð einnig á nýjum skrif- stofum og vinnustofum. Júlíus sagði að mjög brýnt væri að hefjast handa við að klæða húsið að utan því það væri mjög illa farið og lægi undir skemmdum. „Við stefnum að því að dreifa þessum framkvæmdum á tvö ár aðallega vegna þess að við vitum að fjárveitingar verða naumar. En Júlíus Sólnes hag- stofuráðherra: Starfsmað- ur ráðinn í sérverkeftii Von á fleirum til að sjá um um- hverfísmál JÚLÍUS Sólnes, ráðherra Hag- stofunnar, segist nú þegar hafa tekið við yfírumsjón umhverfís- mála fyrir hönd ríkisstjórnarinn- - ar, en félagsmálaráðherra hafí áður haft það verkefiii á hendi. „Það má eiginlega segja það,“ sagði Júlíus í samtali við Morgun- blaðið, er hann var spurður hvort hann væri strax farinn að vinna sem umhverfísráðherra. Aætlað hefur verið að stofiia nýtt um- hverfismálaráðuneyti um ára- mót, sem Júlíus taki þá við. Júlíus sagðist vera búinn að fá ritara á skrifstofuna til sín og einnig væri reiknað með einum eða fleiri starfsmönnum von bráðar til þess að halda utan um umhverfis- málin. „Nú ,eru umhverfismálin strax að flytjast yfir til mín úr öðr- um ráðuneytum. Hingað til hefur félagsmálaráðuneytið haft umsjón með umhverfismálunum fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, en um leið og ég kem hér til er það í mínu erindis- bréfi að ég taki við því strax. Héð- an í frá má því segja að öll um- hverfismál séu komin inn á þessa skrifstofu hjá mér,“ sagði Júlíus. Hann sagði að gífurleg alþjóðasam- skipti fylgdu því að sjá um um- hverfismálin, í uppsiglingu væru alls kyns samningar, sem fil dæmis væri verið að gera milli Norður- landa, EFTA-ríkja og EB-ríkja. Jú-' líus sagðist vera búinn að setja sig í samband við alla umhverfisráð- herra Norðurlandanna til þess að tilkynna þeim þessa breytingu. Páll Líndal hefur nú verið ráðinn sem starfsmaður á skrifstofu hag- stofuráðherra. Páll er fyrrverandi borgarlögmaður og starfar sem deildarstjóri í iðnaðarráðuneytinu. „Hann er bara lánaður hingað í ákveðin verkefni," sagði Júlíus. „Hann heldur sínu deildarstjóra- starfi en munurinn er sá að í stað þess að bókfæra launin hans í gegn um iðnaðarráðuneytið eru þau bók- færð í gegn um Hagstofuna. Hann mun fyrst og fremst vinna að þeim stjórnkerfisbreytingum, sem fyrir- hugaðar eru, en mun að sjálfsögðu einnig tengjast öðrum störfum hér.“ Kæru samstarfsaðilar: Fararstjórar, hótelstarfs- fólk, bílstjórar og aðrir þeir sem unnu með okkur í sumar. Síðastliðið sumar sló öll met í fjökla þeirra ferðamanna sem nutu þjónustu innanlandsdeildar Samvinnuferða- Landsýnar. í öllu annríkinu komumst við að því, sem okkur hefur reyndar lengi grunað, að starfsfólk sem tengist ferða- mannaþjónustunni hér á landi er hreintút sagt frábært. Við viljum sýna þennan hug okkar í verki með því að bjóða öllum þeim sem við áttum samstarf við í sumar í ferð til MALLORCA á sérstökum vildarkjörum ef þátttaka næst. Þetta eru 8 dagar sem munu líða í dýrlegum fagnaði með Irábæru fólki á góðum hótelum í notalegu veðri og ekki spillir að þessi ferð er sett upp sérstaklega fyrir ykkur. Brottfarardagur er 17. október. Nánari upplýsingar er að fá í símum 691070 og 691010. Með kærri þökk fýrir frábært samstarf, f.h. starfsfólks innanlandsdeildar Samvinnuferða-Landsýnar, 0 • © vlld.UA. / Samvinnuferdir - Landsýn Austurstræti 12 • »91 -69-10-10 • Hótel Sogu viö Hagatorg •» 91 -62-22-77 Suöurlandsbraut 18 S 91 -68-91 -91 • Akureyri: Skipagötu 14 • S 96-2-72 00

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.