Morgunblaðið - 01.10.1989, Síða 8
8
M0RGUNJ3LAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 1. 0KTÓ3UP, 1989
T Tk \ er sunnudagur 1. október. Remigíusmessa. 274.
1 JJAu dagur ársins 1989. Nítjándi sd. eftir Trínitatis.
Árdegisflóð í Reykjavík kl. 6.57. Stórstreymi, flóðhæðin 3,83
m. Síðdegisflóð kl. 19.09. Sólarupprás í Rvík kl. 7.36 og
sólarlagkl. 18.57. Myrkurkl. 19.44. Sólin er í hádegisstað
íRvíkkl. 13.17 ogtunglið ísuðrikl. 14.19. (AlmanakHá-
skóla íslands).
Fyrst þér, sem eruð vondir, hafíð vit á að gefa börnum
yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðir yðar
á himnum gefa þeim góðar gjafir, sem biðja hann?
(Matt. 7,11.)
ÁRNAÐ HEILLA
Oára afinæli. Næstkom-1
0\J andi þriðjudag 3. októ-
ber er áttræður Hallgrímur
Sigurðsson, Suðurgötu
15-17 í Keflavík. Hann tekur
á móti gestum þann dag í
golfskálanum í Leiru milli kl.
20-23 á afmælisdaginn.
rr A ára afinæli. Á morgun,
I \/ mánudaginn 2. október
er sjötugur Leifur Svein-
björnsson bóndi í Hnausum
í Þingi. Kona hans er frú
Elna Thomsen. Hann hefur
unnið ýmis félagsstörf fyrir
sveit sína og er mikill áhuga-
maður um sauðfjárrækt og
hrossarækt.
FRÉTTIR/MANNAMÓT
ÞENNAN dag árið 1846 fór fram vígsla Latínuskól- ans í Reykjavík, síðar kallað- ur Menntaskólinn í Reykjavík og nú um árabil daglega kall- aður MR. Þennan dag árið 1891 tók til starfa Stýri- mannaskólinn í Reykjavík, síðar Sjómannaskólinn í Reykjavík. inn á haustinu nk. þriðjudags- kvöld 3. þ.m. í safnaðar- heimili kirkjunnar, fyrir fé- lagsmenn og gesti þeirra, kl. 20.30. Auk venjulegra fund- arstarfa verður kynnt notkun örbylgjuofna. Kaffiveitingar
KVENFÉL. Fjallkon- urnar í Breiðholti III. halda fund nk. þriðjudag í safnaðar- heimili Fella- og Hólakirkju. Tískusýning — dömu- og barnafatnaður. — Kaffiveit- ingar.
PRESTAR. halda hádegis- verðarfund á morgun, mánu- dag, kl. 12.00 í safnaðar- heimili Bústaðakirkju. KVENFÉL. Langholts- sóknar heldur fyrsta fund- SKIPIN
ÁRBÆJARSÓKN. Fé- lagsstarf eldri borgara. Næst- komandi miðvikudag, 4. októ- ber, verður farin skemmti- ferð: Reykjaneshringurinn. Lagt verður af stað frá kirkj- unni. Komið verður aftur í bæinn milli kl. 17 og 18. Þær Ásrún í s. 53103 eða Vilborg í s. 681406 gefanánari uppl.
REYKJAVÍKURHÖFN: í gær var Valur væntanlegur til hafnar. Þá fór togarinn Skagaröst til veiða. Á morg- un, mánudag, fer danska eft- irlitsskipið Ingolf út aftur. Kveður fyrir fullt og allt. Jón Finnsson er væntanlegur mánudag og Grandatogarinn Ottó N. Þorláksson kemur inn til löndunar á mánudag
KVENFÉL. Garðabæj- ar heldur fyrsta fund sinn á starfsárinu nk. þriðjudags- kvöld, 3. október kl. 19 í
KROSSGATAN
LÁRÉTT: — 1 kima, 5 ald-
an, 8 spilið, 9 falli, 11 ber
14 ætt, 15 niður, 16 korn,
17 for, 19 umgerð, 21 bæta,
22 mannleysan, 25 á húsi,
26 var óbétt, 27 hreyfingu.
LÓÐRÉTT: — 2 húsdýr, 3
dugur, 4 steikjast, 5 forbýð-
ur, 6 aula, 7 keyri, 9 vitur,
10 blóm, 12 rannsakaði, 13
kroppaði, 18 elska, 20 2000,
21 rómversk tala, 23 fæði,
24 skammstöfun.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: - 1 stans, 5 smátt, 8 ækinu, 9 dugga, 11
angur, 14 pat, 15 grána, 16 auðum, 17 rýr, 19 örla, 21
egni» 22 eldingu, 25 dug, 26 ára, 27 Rán. ,
LÓÐRÉTT: - 2 tíu, 3 næg, 4 skapar, 5 snatar, 6 mun,
7 tau, 9 duggönd, 10 grátleg, 12 geðugur, 13 ramminn, 18
ýfir, 20 al, 21 eg, 23 dá, 24 Na.
Þú togar í línurnar Guðjón. Þetta verður að líta þannig út að það sé verið að bjarga bankanum
en ekki SÍS .. .
ÞETTA GERÐIST
1. október
forseti Egypta í stað Nassars.
Garðaholti og hefst fundurinn
með borðhaldi.
FÉL. eldri borgara í Goð-
heimum, Sigtúni 3, hefur opið
hús í dag, sunnudag, kl. 14.
Frjálst spil og tafl. Þá verður
dansað kl. 20.00.
KVENFÉL. Laugarnes-
sóknar heldur fyrsta fundinn
á haustinu í safnaðarheimili
kirkjunnar annað kvöld,
mánudag, kl. 20. Þar verður
vetrardagskráin rædd, upp-
lestur o.fl. Kaffiveitingar.
Fundurinn er öllum opinn.
FÉL. Svæðameðferð hefur
opið hús annað kvöld, mánu-
daginn 2. okt. í Súðarvogi 7.
Þar er Svæðameðferðarskóli
íslands til húsa. Gestir félags-
ins verða Helena Óskars-
dóttir skólastjóri og Rúnar
Sigurkarlsson. Hann mun
kynna lífrænt ræktað græn-
meti.
MOSFELLSBÆR. Tóm-
stundastarf aldraðra efnir til
skoðunarferðar á málverka-
sýningarnar á Kjarvalsstöð-
unum og Listasafni íslands
nk. þriðjudag, 3. okt. Lagt
verður af stað frá safnaðar-
heimilinu í Þverholti 3 kl.
13.30. Áður en haldið verður
heim aftur verður drukkið
kaffi á Hótel Borg.
KVENFÉL. Kópavogs held-
ur félagsfund nk. þriðjudags-
kvöld kl. 20.30 í félagsheimili
bæjarins. Gestur fundarins
verður Orn Svavarsson, sem
kynna mun heilsu- og snyrti-
vörur.
J.C. Reykjavík heldur fund
nk. þriðjudagskvöld á Lauga-
vegi 178 kl. 20. Fundurinn
er öllum opinn.
KVENFÉL. Keflavíkur
heldur fund annað kvöld,
mánudagskvöldið í Kirkju-
lundi kl. 20.30. Þar verður
rætt um fyrirhugaða Fær-
eyjaferð. Kaffiveitingar.
KVENFÉL. Seljasóknar
heldur fyrsta fundinn á haust-
inu á þriðjudagskvöldið nk.
kl. 20.30 í Kirkjumiðstöðinni.
Félagsstjórnin hefur sent öll-
um félögum sínum dagskrá
vetrarstarfsins.
ITC-deildin Irpa heldur al-
mennan kynningarfund nk.
þriðjudag í Brautarholti 30
kl. 20.30. Þessi mánuður er
kynningarmánuður þessara
alþjóðlegu samtaka og fólki
gefinn kostur á að kynnast
starfinu. Fundurinn er öllum
opinn. Nánari uppl. veita þær
Krístín s. 74884, Vilhjálmur
s. 78996 eða Hjördís s.
28996.
NORÐURBRÚN 1. Félags-
starf aldraðra. Á morgun
mánudag hefst starfið kl. 9:
útskurður og hornavinna.
Lestur framhaldssögunnar kl.
10. Klukkan 13: bókaútlán,
fótaaðgerð, leikfimi, hannyrð-
ir og leirmunagerð. Enska
fyrir byijendur kl. 14 og fyrir
framhaldsflokk í ensku kl.
15.15. Kaffitími er kl. 15.
D.C. Appolló-klúbburinn í
Rvík heldur fund nk. þriðju-
dagskvöld fyrir félagsmenn
og gesti í Farfuglaheimilinu
við Sundlaugaveg.
E YFIRÐIN G AFÉL. í
Reykjavík heldur árlegan
kaffidag og kökubasar í Átt-
hagasal Hótel Sögu í dag,
sunnudag kl. 14. Það eru
konurnar í félaginu sem
standa fyrir bakkelsis-bas-
arnum.
FRÍKIRKJAN Hafiiarfirði.
Kvenfélagið heldur fyrsta
fundinn á haustinu í Góð-
templarahúsinu kl. 20.30 nk.
þriðjudagskvöld. Rætt verður
um vetrarstarfið, snyrtivöru-
kynning, upplestur og kaffi-
veitingar.
ÁTTHAGASAMTÖK Hér-
aðsmanna efna til ferðar í
Munaðarnes helgina 13.-15.
okt. Nánari uppl. og skrán-
ingu þátttakenda annast:
Eiríkur Eiríksson s. 622248
og Þorvaldur Jónsson s.
52612 eftir kl. 18.
ERLENDIS:
1800: Spánveijar láta Lous-
iana af hendi við Bandaríkin.
1802: Amiens-ófriðurinn;
bráðabirgðaundirritun fer
fram.
1838: Fyrsti ófriður Breta
gegn Afghönum.
1887: Balúkistan sameinað
Indlandi.
1895: Fjöldamorð á Rúmen-
um í Konstantínópel.
1918: Bretar og arabar taka
Damaskus herskildi.
1923: Misheppnuð herbylting
í Þýskalandi. — Suður-
Rhódesía fær sjálfstjórn.
1927: Griðasáttmáli Rússa og
Persa undirritaður.
1928: Fyrsta sovézka fimm
ára áætlunin.
1936: Uppreisparmenn á
Spáni skipa Franco þjóðhöfð-
ingja.
1938:Þ Þýskt herlið sækir inn
í súdetahéruð Tékkóslóvakíu.
1949: Kínverska alþýðulýð-
veldið stofnað.
1960: Nígería fær sjálfstæði.
1965: Byltingartilraun í Ind-
ónesíu.
1970: Anwar Sadat verður
1974: Watergate-réttarhöldin
hefjast í Bandaríkjunum.
1979: Sjötíu og fimm ára
yfirráðum Bandaríkjamanna
á Panamaeiði lýkur.
HÉRLENDIS:
1548: Dómsbréf klerka gegn
Daða í Snóksdal.
1786: Hvarf síra Odds Gísla-
sonar í Miklabæ.
1846: Latínuskólinn í
Reykjavík vígður.
1874: Kvennaskólinn í
Reykjavík tekur til starfa.
1880: Möðruvallaskólinn tek-
ur til starfa.
1891: Stýrimannaskólinn í
Reykjavík tekur til starfa.
1904: Iðnskólinn í Reykjavík
stofnaður.
1904: Amtmannsembættin
bæði og stiftsyfirvöld lögð
niður.
1909: Björn Kristjánsson og
Björn Sigurðsson skipaðir
bankastjórar í stað Tryggva
Gunnarssonar.
1934: Stúdentagarðurinn tek-
ur til starfa.
1945: Bandaríkjamenn óska
eftir afnotum af Keflavíkur-
flugvelli til 99 ára.
ORÐABÓKIIM
Það er á hreinu
Síðast var minnzt á orðalag-
ið að hafa e-ð á hreina. Lo.
hreinn er vissulega góð og
gild íslenzka. Hins vegar er
enginn efi á-, að orðasam-
bandið á hreinu hefur borizt
til okkar úr dönsku og um
alllangt skeið verið notað
með ýmsum tilbrigðum.
Engu að síður er ástæðu-
laust að láta það útrýma
öðru eldra og íslenzkulegra
orðalagi. Engin dæmi hef
ég fundið í orðabókum um
orðalagið að hafa allt eða
e-ð á hreinu. Samt er það
vel þekkt í þeirri merkingu
að hafa allt öruggt og
tryggt, t.d. í viðskiptum. I
OH er rúmlega aldargamalt
dæmi um orðalagið að vera
allt á hreinu. Þar er talað
um, að fjárhagslega væri
allt á hreinu milli Jakobs
og félagsins. Frá síðustu
áratugum eru svo dæmi eins
og að vera (eða vera ekki)
á því hreina um e-ð = að
vera e-ð alveg ljóst (eða
ekki ljóst). — Einna mest
dönskubragð mun þykja af
orðalaginu hreint út, enda
hefur það beina samsvörun
í dönsku, Danir segja: rent
ud sagt, en við hreint út
sagt. A góðri íslenzku heitir
þetta íhreinskilni sagt. Eins
segja menn oft e-ð hreint
út, en þar fer betur að nota
orðalagið að segja e-ð ber-
um orðum eða hispurslaust.
- JAJ.