Morgunblaðið - 08.10.1989, Page 14

Morgunblaðið - 08.10.1989, Page 14
flaaorao .8 fluoAaunyiua GiaAjanuDflOM ' MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER SI eftir Kristínu Marju Baldursdóttur /mynd Þorkell Þorkelsson. í MUSTERI listdansins er nú andrúmsloftið þungt og menn ekki á eitt sáttir um hvort fersku lofti hafi verið ætlað þar inn. Þjóðleikhússtjóri fór þess á leit við Hlíf Svavarsdóttur að hún skrifaði ekki undir nýjan ráðningarsamning sem Iistdansstjóri Þjóðleikhússins. Sjálf hafði hún komist að sömu niðurstöðu því tillögur hennar um breytingar á íslenska dansflokknum féllu ekki í góðan jarðveg. Aftur á móti fannst mönnum full ástæða til að veita henni bjartsýnisverðlaun Bröstes sl. september sem viðurkenningu fyrir störf hennar og listrænan árangur. að er athyglis- vert fyrir leik- mann að horfa listdansara vinna húsverk, sjá hvernig þessi óvinsælu störf verða að , fágaðri athöfn í höndum hans. Allar hreyfingar agaðar og hnitmiðaðar og það lifnar næstum yfir hollensk- um stólum og bollapörum við þessa mjúku meðferð. — Hefurðu nógu breitt bak til að taka þeirri gagmýni sem þú hefur fengið? spyr ég Hlíf meðan hún lýk- ur morgunverkunum. „Ég er vön að taka á móti gusun- um,“ segir hún og hlær við. — Hafa listdansarar mikinn sjálfsaga? „Það fallega við dansinn er það, að hann miðlar. En hann krefst þess að dansarinn sé í stöðugri endur- þjálfun, reyni jafnvel að fara yfir sín líkamlegu takmörk. Ef dansari hefur ekki sjálfsaga þá ber vinna hans engan árangur. Agi er .ekki skerðing á frelsi eins og margir halda. Agi er opnun, ekki lokun.“ Hlíf kom frá Hollandi fyrir rúmum tveimur árum ásamt ‘ eiginmanni sínum og þremur börnum eftir 17 ára dvöl þar ytra. Eftir heimkomuna var hún beðin um að taka starf list- dansstjóra að sér og gegndi því starfi þar til nú, en hefur ekki hug á að starfa þar lengur við núverandi aðstæður. Ég spyr hana hvernig það hafi verið að koma frá Hollandi þar sem gróska ríkir í listdansi og taka við starfi listdansstjóra hér. „Þetta var í fyrsta sinn sem ég gegndi ábyrgðarstöðu, og ég gerði mér ekki grein fyrir því hvernig stofnun Þjóðleikhúsið er. Eðli hennar felur í sér afturhald. Það var erfitt að kyngja því að vera ráðin í stöðu þar sem allt traust er sett á mann Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson MI8TÖK MÉV VORIJ AÐ VERA E14141KRÖEEHARDARI. SEGIR HLIF 8VAVAR8DÓTTIR FVRRVERAJVDILISTDAJVSST JÓRIÞ JÓÐLEIKHLSSIJVS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.