Morgunblaðið - 08.10.1989, Qupperneq 23
--
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
Sölumaður
ÞEIR sem kynnu að hafa áhuga á að spreyta sig í sölu-
mennsku í Frakklandi og hafa nokkra frönskukunnáttu ættu
að gefa auglýsingu í blaðinu í dag gaum. Stórt fyrirtæki í
útflutningi og framleiðslu á sjávarafurðum vill ráða sölu-
mann til starfa í Frakklandi. Viðkomandi þarf að heíja undir-
búningsstörf hér heima sem fyrst, en flytur til Frakklands
í desember.
Kennarastöður
FYRIRHUGAÐ er að ráða kennara í sagnfræði til kennslu
við heimspekideild Háskóla íslands. Kennslusvið hans verður
mannkynnssaga nýaldar og aðferðafræði sagnfræðinnar.
Tekið er fram í auglýsingu í dag að um ráðningu í sérstaka
tímabundna lektorsstöðu gæti orðið að ræða. Umsóknarfrest-
ur er til 1. nóvember. Þá er ennfremur auglýst eftir kennara
á sviði siðfræði svo og kennara til að kenna bókmennta-
fræði og samanburðarmálvísindi í þýsku.
*
Utvarpsmaður
RÍKISÚTVARPIÐ óskar eftir að ráða umsjónarmann með
morgunþætti á Rás 1. Áskilið er að viðkomandi hafi góða
þekkingu á sígildri tóniist og sé allvel að sér í straumum
og stefnum léttrar tónlistar. Þá er.reynsla í gerð útvarps-
þátta æskileg.
Sölustörf
MARKAÐS- og sölustörf eru laus hjá Álafossi hf. á Akur-
eyri eða í Reykjavík. Starfssviðið er markaðssetning og sala
á framleiðsluvörum fyrirtækisins erlendis og innanlands
þ.m.t. markaðsrannsóknir, söluáætlanir, þátttaka í vöruþró-
un, ásamt skipulagningu og framkvæmd sölu- og markaðsað-
gerðra. Ekki er krafist sérstakrar menntunar en er gerð
krafa til góðrar tungumálakunnáttu og reglusemi.
Atvinnuleyfi
TAKMÖRKUÐUM fjölda íslendinga býðst atvinnuleyfi
erlendis samkvæmt auglýsingu í blaðinu í dag. Þar segir
að vegna tengsla við erlenda aðila sé mögulegt að útvega
atvinnu, húsnæði, ráðgjöf um ijárfestingu og lagalegan rétt
innflytjenda.
Leigumarkaður!
MIKID af húsnæði er til leigu af ýmsum gerðum hjá
Leigumiðlun húseigenda t.d. fyrir verslanir, skrifstofur, verk-
stæði og lagerhúsnæði. Þá hefur eftirspurn eftir atvinnuhús-
næði stóraukist að undanförnu samkvæmt auglýsingu lei-
gumiðlunarinnar. Fyrirtækið tekur að sér margvíslega þjón-
ustu t.d. úttekt leiguhúsnæðis, útvegun leigutaka, auglýs-
ingar o.sv.frv.
SMÁAUGL ÝSINGAR
Myndakvöld
FYRSTA myndakvöld Ferðafélags íslands á þessu hausti
verður haldið á miðvikudaginn 11. október i Sóknarsalnúm,
Skipholti 50A og hefst kl. 20:30. Þátttakendur í gönguferð
um Jötunheima í Noregi munu segja frá ferðinni í máli og
myndum sem var á vegum Norska ferðafélagsins. í auglýs-
ingu segir að forvitnilegt sé að fræðast um gönguleiðir í
Noregi og aðstæður fyrir göngufólk.
Morgunblaoio/Svcmr
Frá fyrsta starfsmannafúndi vetrarins.Á myndinni eru talið frá vinstri: Katrín
Pálsdóttir, Auður Ragnarsdóttir, Gylfí Oskarsson, Þröstur Laxdal, Baldvin
Jónsson, Alda Halldórsdóttir, Selma Gunnarsdóttir, Stella Meyvantsdóttir, Gunn-
hildur Gestsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Agnes Þorleifsdóttir og Sigríður Páls-
dóttir.
Barnadeild Landakotsspítala:
Aukin símenntun með-
al forgangsverkefha
Neskaupstaður;
Skortur á
starfsfólki
ATVINNUÁSTAND hér hefur
verið gott það sem af er þessu ári
og bendir allt til að svo verði
áfram. Nægur fiskiskvóti er eftir
í byggðalaginu til að halda uppi
fullri vinnu út árið, auk þess sem
síldar- og loðnuvertíð að fara í
gang.
Hörgull hefur verið á starfskrafti
til fiskvinnslu og eru nú á milli
30-40 aðkomumenn starfandi hér í
þeirri grein. Meirihlutinn er útlend-
ingar og þá aðallega Svíar.
Þá hefur einnig vantað iðnaðar-
menn til starfa og hefur þurft að fá
utanbæjarmenn til að taka að sér
byggingarverkefni á staðnum. Vönt-
un á húsnæði er tilfinnanleg og hafa
margir sýnt áhuga á að flytja hingað-
á staðinn en húsnæðisskortur hefur
komið í veg fyrir það. Atvinnuástand
er sem sagt gott og má kannski segja
að of mikil vinna hafi verið og of
fáar hendur.
Ágúst
Akureyri:
Á BARNADEILD Landakotsspítala hafa
starfsmenn sett sér markmið að því er varða
hina ýmsu þjónustu deildarinnar og í fram-
haldi af því gert starfsáætlun fyrir hvert
starfsár, sem er endurskoðuð árlega. Þessi
aðferð, að setja sér ákveðin markmið, var
upphaflega íramkvæmd 1984 að tilhlutan
Öldu Halldórsdóttur, hjúkrunarráðgjafa.
Nýlokið er fyrsta starfsmannafundi deildar-
innar á þessum vetri og hafa forgangsverk-
eftii fyrir næsta ár verið rædd.
Eitt af forgangsverkefnum vetr-
arins er að endurmeta bráða-
þjónustuna og að auka símenntun
starfsmanna deildarinnar. En um
50—60% innlagna barna er vegna
bráðaþjónustu. Telur starfsfólkið
að með aukinni sérhæfingu og
menntunarkröfum hafi þörfin fyrir
fag- og starfsþjálfun aukist. Eins
og áður er ætlunin að fá sérfræð-
inga innan hjúkrunar og læknis-
fræði til að hajda fyrirlestra ásamt
starfsþjálfun. Á vegum deildarinnar
er yfirstandandi hálfsmánaðar
námskeið í bráðaþjónustu barna,
sem er aðallega ætlað nýbyrjuðum
starfsmönnum. Er góð samvinna
um þetta innan deildarinnar, því
meira álag verður óhjákvæmilega á
það starfsfólk, sem ekki sækir nám-
skeiðið.
Með styrkri stoð Thorvaldsens-
félagsins er nú að takast að koma
upp betri aðstöðu fyrir foreldra á
deildinni. Þetta eykur að sögn
starfsfólksins möguleika á foreldra-
fræðslu og virkri þátttöku þeirra í
meðferð barnanna. Ætlunin er að
útbúa setustofu með hvíldaraðstöðu
fyrir foreldra.
sem þau geta leitað til með vanda-
mál sín. Einnig hefur barni og for-
eldrum verið boðið í heimsókn á
deildina til að kynnast starfseminni
og starfsfólki. Þar taka börnin
meðal annars þátt í leikmeðferð
fyrir aðgerðir. Er t.d. byijað að
þróa leikmeðferð í samvinnu við
hjúkrunarfræðinga og lækna á
svæfinga- og skurðdeild og jafn-
framt með meinatæknum þegar
teknar eru blóðprufur. Allt slíkt
starf stuðlar að því að síður þarf
að beita valdi þegar til alvörunnar
kemur. Er starfsfólkið sammála um
að þetta hafi gefist mjög vel og
greinilega dregið úr ótta barnanna
við sjúkrahúsdvölina. Er ætlunin
að taka heimsóknir fyrir dvöl aftur
upp í vetur, en þær hafa fallið nið-
ur um skeið. Telja starfsmenn að
það geti flýtt fyrir bata þegar börn-
in eru ekki hrædd. Við deildina
starfa bæði fóstrur og kennari.
Reynt er að hafa sjúkrahúsdvöl-
ina eins stutta og hægt er. Telur
starfsfólkið að það sé börnunum
fyrir bestu, og þá með þeim fyrir-
vara að foreldrar geti haft samband
við deildina eftir þörfum.
118 Akureyr-
ingar án vinnu
25 bæst við í október
Akureyri.
í LOK septembermánaðar voru
118 skráðir atvinnulausir á Akur-
eyri, en um mánaðamótin þar á
undan voru þeir 112. Atvinnulaus-
ir karlar voru 51 og konur 67. Á
sama tíina á síðasta ári voru at-
vinnulausir alls 51, eða jaftimargir
og atvinnulausir karlar eru nú.
Flestir þeirra sem við atvinnuleysi
búa eru verkafólk úr tveimur
verkalýðsfélögum, Einingu og Iðju.
Alls 20 karlar úr þessum tveimur
félögum er á atvinnuleysisskrá og
51 kona, eða alls 71.
Frá Félagi verslunar- og skrif-
stofufólks eru 22 skráðir atvinnu-
lausir, 7 karlar og 16 konur.
Nú þegar einungis eru liðnir örfá-
ir dagar af októbermánuði hafa 25
manns úr ýmsum félögum skráð sig
hjá Vinnumiðlunarskrifstofunni.
Grindavik;
Arvisst atvinnuleysi
Grindavík.
TÆPLEGA 1.000 atvinnuleysisdagar voru skráðir í Grindavík í sept-
ember sem jafiigildir því að 74 manns hafi verið án atvinnu.
Leikmeðferð gefur
góða raun
Á síðastliðnum árum hefur verið
lögð rík áhersla á að barnið og fjöl-
skyldan hafi sinn ákveðna hjúk-
runarfræðing, sjúkraliða og lækni,
Nú eru 62 manns á skrá og að
sögn Guðnýjar Guðbjartsdótt-
ur hjá atvinnumiðlun Grindavíkur
bætast daglega við nýir á skrá.
Flestir skráðir eru verkakonur eða
42 og 10 sjómenn. Að sögn Guðnýj-
ar er vonast til að úr rætist þegar
síld fer að berast á land, en síldveið-
ar mega bytja 8. október næstkom-
andi. Segja má þvi að ástandið í
atvinnumálum sé ekki gott en menn
vona að úr rætist. FÓ "