Morgunblaðið - 08.10.1989, Qupperneq 24
M a ppabkr
Æ&aW1W 1^1 N U UGLÝ. SING n Élillt IIHIWI
I
i
Ólafsvík
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið.
Upplýsingar í síma 91-83033.
fttKguitlFlfiMfe
Grafarvogur
Blaðberi óskast í Miðhús og nágrenni.
Upplýsingar í síma 91-83033.
Sendill
Óskum eftir að ráða strax sendil til starfa
allan daginn.
Þarf ekki að nota reiðhjól.
Æskilegur aldur 16-18 ára.
Hafnarhvoli v/ Tryggvagötu.
Sölumaður
Karl eða kona óskast til starfa hjá fasteigna-
sölu í miðborginni með áratuga reynslu að baki.
Framtíðaratvinna fyrir traustan og vel
menntaðan sölumann sem getur unnið
sjálfstætt.
Eiginhandarumsókn með upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf, sendist auglýs-
ingadeild Mbl. fyrir kl. 15.00 þriðjudaginn 10.
október merkt: „Framtíðaratvinna - 8131“.
Hjúkrunar
fræðingar
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsu-
gæslustöðvum eru lausar til umsóknar nú
þegar:
1. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu-
stöðina í Hólmavík.
2. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu-
stöðina í Neskaupstað.
3. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu-
stöðina í Ólafsvík.
4. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsu-
gæslustöðina á Djúpavogi.
5. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsu-
gæslustöðina á Fáskrúðsfirði og Stöðvar-
firði.
6. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsu-
gæslustöðina á ísafirði.
7. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsu-
gæslustöðina á Eyrarbakka og Stokkseyri
frá 1. október 1989 til eins árs að telja.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116,
150 Reykjavík.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
1. október 1989.
Sunnuhlíð
Kópavogsbraut 1 Sími 604100
Litla barnaheimilið
okkar bráðvantar fóstru eða manneskju með
aðra uppeldismenntun til að leysa forstöðu-
mann af u.þ.b. eitt ár.
Starfsmann í 60% starf. Vinnutími frá
11.45-16.15.
Starfsmann í afleysingar.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
604166.
Fasteignasala
Sölumaður óskast á fasteignasölu. Þarf að
hafa bíl til umráða.
Upplýsingar um menntun, aldur og fyrri störf
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 12. okt.
merktar: „M - 8063“.
cFiarfíúöíb
OERDliBtRGI I
Hálfsdagsstarf eftir
hádegi
Hárgreiðslusveinn/meistari óskast á hár-
snyrtistofu sem fyrst.
Upplýsingar í síma 641486 eftir kl. 19.00
Raf- og iðnrekstrar-
fræðingur
Raf- og iðnrekstrarfræðingur óskar eftir at-
vinnu strax.
Upplýsingar í síma 76083 eftir kl. 12.00.
ÁLAFOSB
Markaðs- og
sölustörf
Óskum að ráða markaðs- og sölufólk til
starfa hjá Álafossi hf. á Akureyri eða í
Reykjavík.
Starfssvið: Markaðssetning og sala á fram-
leiðsluvörum fyrirtækisins erlendis og innan-
lands, þ.m.t. markaðsrannsóknir, söluáætlan-
ir, þátttaka í vöruþróun, ásamt skipulagningu
og framkvæmd sölu- og markaðsaðgerða.
Álafoss hf. selur stærstan hluta framleiðslu
sinnar erlendis í harðri samkeppni við al-
þjóðlega framleiðendur. Við leitum því að
baráttuglöðu og metnaðargjörnu fólki, sem
hefur áhuga og tilfinningu fyrir fatnaði og
getur starfað sjálfstætt í harðri samkeppni.
Við setjum engin menntunarskilyrði, en krefj-
umst reglusemi, góðrar tungumálakunnáttu
í ensku, Norðurlandamáli og æskjum þýsku-
kunnáttu.
Störfin gera kröfu til mikilla ferðalaga erlendis.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okk-
ar, merktar: „Markaðsstörf Álafoss hf“, fyrir
18. október nk.
Hagvangur h f
Grensósvegi 13 Reykjavík Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Lögiærður fulltrúi
óskast til starfa nú þegar við opinbera stofn-
un í Reykjavík.
Um er að ræða fjölbreytt innheimtu- og lög-
fræðistörf. Laun eru samkvæmt launakerfi
opinberra starfsmanna. Viðkomandi þarf að
hafa bifreið til umráða. Greiddur er bifreiða-
styrkur.
Umsóknum ber að skila til auglýsingadeildar
Morgunblaðsins fyrir hádegi 10. október ’89
merktum: „Lögfræði-99“.
Skrifstofustarf
Stórt verslunarfyrirtæki vill ráða starfsmenn
til skrifstofustarfa. Starfssvið er m.a. fólgið
í uppgjöri, almennu bókhaldi, afstemmingum
og almennum skrifstofustörfum. Æskilegt
er að viðkomandi hafi menntun og reynslu
á þessum sviðum.
Umsækjendur sendi inn upplýsingar um
menntun og fyrri störf á auglýsingadeild
Morgunblaðsins merktar: „Framtíðarstarf-
8348“.
Móttökuritari
á læknastofur
Óskum eftir að ráða móttökuritara í hluta-
starf. Vinnutími frá kl. 13.00-17.00. Starfið
krefst samviskusemi og góðrar framkomu
auk vélritunarkunnáttu, helst með reynslu
af læknaritarastörfum.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf óskast sendar auglýsingadeild Mbl. fyr-
ir 12. október 1989 merktar: „Rösk - 9067“.
Yfirverkstjóri
/
Meðalstór prentsmiðja í borginni vill ráða
yfirverkstjóra til starfa. Starfið er laust strax
eða eftir nánara samkomulagi.
Leitað er að prentara, sem er vanur verk-
stjórn, hefur víðtæka þekkingu á prenttækni
og áhuga á tölvunotkun. Laun samningsatriði.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð
fást á skrifstofu okkar.
Umsóknarfrestur er til 13. okt. nk.
GijðntTónsson
RÁPC IÓF fr RÁÐN I NCAKNON LISTA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMl 62 13 22
LANDSPÍTALINN
Barnaspítali
Hringsins
Hjúkrunarfræðingar óskast nú þegar á al-
mennar barnadeildir. Góður aðlögunartími
með reyndum hjúkrunarfræðingi. Starfið er
mjög fjölbreytt og vinnuaðstaða mjög góð.
Unnið er þriðju hverja helgi og sveigjanlegur
vinnutími. Gott bókasafn og möguleiki á
símenntun.
Fóstrur og þroskaþjálfar óskast á Barna-
spítala Hringsins. Stöðurnar eru lausar til
umsóknar nú þegar eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar um ofangreind störf gefur Hertha
W. Jónsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í
síma 601033 eða 601000.
RÍKISSPÍTALAR
Reykjavík, 8. október 1989.