Morgunblaðið - 08.10.1989, Síða 31
H3HO] /K> y. M ÁjMffiflASV&lflMIVTA niOA IU7 ■ (kií
MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 31
Sovétmenn eignast
fyrsta einka-
snuðrarann
„ÉG skipti mér ekki af venjuleg-
um þjóðfélagsmálum," segir
Valentin Kosjakov. „Ég hef eng-
an áhuga á þeim. Glæpir eru
mitt eftirlæti."
Fyrsti einkasnuðrarinn í Sov-
étríkjunum beygir sig yfir gas-
logann á eldavélinni og kveikir sér
í sígarettu. Hann er þrítugur að
aldri, þrekvaxinn, stuttklipptur og
með gleraugu í stálumgjörð. Ljótt
ör teygir sig frá neðri vör og niður
á höku en hann segist ekki vilja
tala um það.
Kosjakov er ekkert að flíka
heimilisfanginu sínu. Hann féllst á
að hitta mig í einni útlendingab-
lokkinni í Moskvu og brá upp plast-
koi-tinu sínu þegar hann gekk fram
hjá einkennisklæddum verðinum
fyrir utan. Þvert yfir kortið er blá
lína — „til að koma í veg fyrir
eftirlíkingu“ — og á það er letrað
með hástöfum orðið ALEX. „Það
þýðir verndari á grísku,“ segir
Kosjakov.
Kosjakov var opinberlega skráð-
ur sem einkaspæjari í febrúar sí.
og í apríl hafði hann opnað útibú
í Moskvu. Það er ekki annað á
honum að heyra en sovéska lög-
reglan hafi orðið fegin að fá ein-
hveija hjálp í þessu starfi, sem
hingað til hefur ekki verið opið
hveijum sem er í ríkjum kommún-
ismans. „Það vita allir, segir hann,
„að við stuðlum að því að halda
uppi lögum og reglu í landinu.“
Ekki virðist heldur vanþörf á
því að margt virðist vera að fara
úr böndunum í þessu gamla lög-
regluríki. Giæpaalda ríður yfir Sov-
étríkin og nýjar tölur þar að lút-
andi, eftir hálfrar aldar þögn, sýna,
að morð og morðtilræði á árinu
1988 voru 14% fleiri en árið áður.
Voru alls 16.710. (Það ár voru
20.680 menn myrtir í Bandaríkjun-
um). Líkamsárásum ijölgaði um
32% og ránum um 43%. Astandið
hefur versnað á þessu ári og
skýrslur um glæpi eni 32% fleiri
en í fyrra.
Ekki er víst, að frjálsræðinu
hans Míkhaíls Gorbatsjovs sé um
að kenna hvernig ástandið er.
Kannski var það enn verra áður
en þá voru tölulegar upplýsingar
um það flokkaðar með ríkisleynd-
armálum.
Sovéskir lögreglumenn kvarta
undan því hátt og í hljóði, að bílarn-
ir, sem þeir hafa til umráða, séu
allt of kraftlitlir, talstöðvarnar of
veikar og þeir vilja fá
aukið svigním til að
beita byssunni. Á
síðustu fimm árum
hafa 30 lögreglu-
menn látist með vo-
veiflegum hætti í
Leníngrad og útför
eins þeirra í mars sl.
snerist upp í mótmæli
þar sem krafist var
meiri launa og betri
búnaðar. Kosjakov
fannst líka nóg komið
og hætti í lögregl-
unni.
„Ég byijaði í götu-
lögreglunni," sagði
hann og drap í siga-
rettunni á undirskál.
„Síðan var ég í rann-
sóknarlögreglunni í
Moskvu og vann mig
smám saman upp.
Þegar ég hætti var
ég með ákveðið svæði
á minni könnu og
starfslið."
Sérgrein Ko-
sjakovs var efna-
hagsglæpir: Mútur og
spilling, stuldur á
ríkiseigum og brask.
Braskarar kaupa
ódýrt og selja dýrt og
það er ólöglegt í Sovétríkjunum.
Spilltir yfirmenn eru með ýmsa
huldumenn á launaskrá og stinga
laununum í eigin vasa. „Hefurðu
aldrei heyrt um svona lagað?“ seg-
ir einkasnuðrarinn. „Annað kerfi,
aðrir glæpir.“
Kosjakov skildist brátt, að sov-
éska lögreglan gæti „ekki leyst
allan vandann. Það er ekki hægt
að beita aðferðinni maður á mann“.
Hann átti sér líka ýmsar óskir, se.m'*
lögreglan gat ekki uppfyllt. „Ég
vildi nota tölvur en það var ekki
hægt.“ Þar að auki sætti hann sig
ekki við að fá aðeins 24.000 ísl.
kr. í laun á mánuði.
Nú segist Kosjakov hafa þetta
allt og fyrirtækið hans vísar engum
á bug. Það verndar samvinnufélög
fyrir fjárkúgurum, leigir út örygg-
isverði og lífverði og aflar upplýs-
inga fyrir lögmenn. „Við finnum
vitnin og leysum mál.“
í útibúinu í Moskvu eru 20 menn
á fullum launum og 50 í hluta-*
starfi „en ég ætla ekki að segja
þér hvað þeir eru margir í
Leníngrad“. Allir hafa þessir menn
starfað áður fyrir innanríkisráðu-
neytið eða KGB. Kosjakov semur
vel við sína fyrri yfirmenn og
starfsmennirnir hafa fengið leyfi
til að vera í einkennisbúningi.
Ef vel gengur ætlar Kosjakov
að opna útibú um gjörvallt landið,
frá Brest til Vladivostok. En hvað
kostar að ráða til sín einkasnuðr-
ara í Sovétríkjunum? „Ég hef ekki
heimild til segja frá því,“ segir
hann og er þar með rokinn. Kemur
strax aftur til að ná í regnhlífina
og muldrar um leið: „Ódýrara en
Pinkerton.“
-BARRY NEWMAN
AUGLYSINGAi
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu er skrifstofuherbergi á annarri hæð
í verslunar- og skrifstofuhúsi okkar á Skúla-
götu 63.
G.J. Fossberg, vélaverslun hf.,
sími 18560.
Skrifstofuhúsnæði
til leigu
90 fm bjart og gott skrifstofuhúsnæði á 3.
hæð við Bergstaðastræti er til leigu. Laust
fljótlega.
Upplýsingar í síma 623650.
Til leigu
nýlegt 300 fm skrifstofuhúsnæði á Suður-
landsbraut. Getur leigst í minni einingum,
eða allt að 25 fm.
80 fm skrifstofuhúsnæði við Síðumúla. Getur
leigst í tvennu lagi.
Upplýsingar í síma 83390.
Óskast til leigu
Vil taka á leigu 120-180 fm húsnæði undir
veitingarekstur í Reykjavík, helst í gamla
miðbænum.
Lysthafendur leggi inn upplýsingar á auglýs-
ingadeild Mbl., Aðalstræti 6, merktar:
„Veitingarekstur - 9913“ fyrir 16. október.
Skrifstofuhúsnæði óskast
100-150 fm skrifstofuhúsnæði óskast til
leigu í Reykjavík eða Hafnarfirði.
Upplýsingar um stærð, staðsetningu og
leigufjárhæð sendist auglýsingadeild Mbl.
fyrir 15. okt. nk. merkt: „Skrifstofuhúsnæði
- 9063“.
Atvinnuhúsnæði til leigu
Á Suðurlandsbraut 4 (á horni Suðurlands-
brautar og Hallarmúla) er til leigu:
Verslunarhúsnæði á jarðhæð.
Skrifstofuhúsnæði á 3. hæð.
Upplýsingar verða veittar á Verkfræðistof-
unni Ferli hf., Suðurlandsbraut 4, sími
688570.
Hjennsla
Vélritunarkennsla
Ný námskeið eru að hefjast.
Vélritunarskólinn, s. 28040.
Wélagslíf
□ MÍMIR 59891097 = 1 frl
I.O.O.F. 3 = 1711098 =.
I.O.O.F. 10 = 1711098Vz = 9.II
□ GIMLI 598909107 - 1
□ HELGAFELL 59891097 VI 2.
*Hjálpræðis-
herinn
0 Kirkjustræti 2
í dag kl. 14.00: Fjölskyldusam-
koma með ungbarnablessun.
Barnagospel syngur. Herkaffi.
Kl. 20.30: Hjálpræðissamkoma
i umsjá flokksforingjanna.
Mánudag kl. 16.00: Heimila-
samband fyrir konur.
Ath.: Flóamarkaður verður
þriðjudag og miðvikudag kl.
10.00-17.00. Mikið órval af góð-
um fatnaði.
Verið velkomin á Herinn.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 og 19533.
Myndakvöld
Fyrsta myndakvöld F.i. á þessu
hausti verður miðvikudaginn 11.
okt. í Sóknarsalnum, Skipholti
50a og hefst kl. 20.30.
Efni: Þátttakendur i gönguferð
um Jötunheima í Noregi segja
frá ferðinni í máli og myndum.
Þessi ferð var á vegum norska
ferðafélagsins.
1. Skipulagðar voru dagleiöir
milli sæluhúsa. Forvitnllegt verð-
ur að fræðast um gönguleiöir i
Noregi og aðstæður fyrir göngu-
fólk.
2. Birta á íslandi hefur vakið eft-
irtekt Ijósmyndarans og verður
spennandi að sjá landið með
hans augum.
Kaffiveitngar i hléi. Allir vel-
komnir, félagar og aðrir. Að-
gangur kr. 200.-
Ferðafélag íslands.
;■ VEGURINN
V Kristiö samfélag
Þarabakka3
Kl. 11.00 samkoma. Barnakirkja.
Prédikarinn Tissa Weerasingha,
frá Sri Lanka, talar. Kl. 20.30
samkoma, Helga Zidermanis tal-
ar. Verið velkomin.
Vegurinn.
ISflj Útivist
Dagsferðir sunnudag-
inn 8. október
Landnámsgangan. 21. ferð. Ni
lokum við hringnum.
Þóroddsstaðir - Óseyrartangi.
Brottför kl. 10.30 frá Umferðar-
miðstöð - bensinsölu.
Hraun - Óseyrartangi. Samein-
ast morgungöngunni. Brottför
kl. 13.00 frá Umferðarmiðstöð -
bensinsölu. Fararstjóri: Einar
Egilsson. Takið þátt i síðustu
göngunni i landnámi Ingólfs. í lok
göngunnar verða veitt verðlaun
fyrirgóða þátttöku, göngumönn-
um boðið uppá landnámsnasl
og ýmsa þjóölega skemmtun.
Ath.: Skrifstofan Grófinni 1 er
opin frá kl. 12-18. Símar 14606
og 23732.
Sjáumst!
Útivist.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Félag austfirskra
kvenna
Fyrsti fundur vetrarins verður
mánudaginn 9. október kl. 20.00
á Hallveigarstöðum. Myndasýn-
ing frá Faereyjaferð.
Ferðafélagar velkomnir.
Félagskonur athugið breyttan
fundardag.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferðir Ferðafélagsins
sunnudaginn 8. okt.:
Kl. 10.30 Hengill (803 m).
Ekið í áttina að Sleggjubeins-
skarði og gengið þaðan. Verð
kr. 1.000,-.
Kl. 13.00 Hengladalir.
Ekið að Kolviðarhóli og gengið
upp Hellisskarð og sem leið liggur
i Hengladali. Komið til baka um
Sleggjubeinsskarð. Verð kr. 800,-.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin. Farmiðar við
bil. Fritt fyrir börn að 15 ára aidri.
Ath.: Fyrsta myndakvöldið
verður miðvikudaginn 11. okt.
kl. 20.30 í Sóknarsalnum, Skip-
holti 50a. Myndakvöld Ferðafé-
lagsins eru eins og fyrr, bæði til
fróöleiks og skemmtunar.
Ferðafélag islands.
ps
fomhjólp
i dag kl. 16.00 er almenn sam-
koma í Þribúðum, Hverfisgötu
42. Fjölbreyttur almennur söng-
ur. Barnagæsla. Vitnisburður.
Ræðumaður er Óli Ágústsson.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
V,--,7
KPUM & KFUK 1899-1889
90 ár fyriræsbu Ulands
KFUM og KFUK
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30 á Amtmannsstsig 2b. Boð-
ið til fagnaðar - Matt. 22, 1-14.
Upphafsorð: Sigriður Jóhanns-
dóttir. Ræöumaður: Séra Lárus
Halldórsson.
Allir velkomnir.
ÉSAMBAND ISLENZKRA
r kristniboðsfélaga
Kristniboðsfélag karla,
Reykjavík
Fundur verður mánudagskvöldið
9. október í kristaiboðssalnum,
Háaleitisbraut 58, 3. hæð.
Allir karlmenn velkomnir.
Stjórnin.
Skyggnilýsingafundur
Þórhallur Guðmundsson, miöill,
og sr. Sigurður Haukur Guðjóns-
son halda fund i Skútunni, Dals-
hrauni 15, Hafnarfirði, þriðju-
dáginn 10. okt. kl. 20.30.
Miðar seldir við innganginn.
Húsið opnað kl. 19.30.
Hvi'tasunnukirkjan
Keflavík
Almenn samkoma i dag kl.
16.00. Gestir frá Reykjavík tala.
Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almenn samkoma í dag kl.
16.30. Barnagæsla. Allir hjartan-
lega velkomnir.
Krossinn
Auðþrekku 2. 200 Kópavogur
Almenn samkoma í dag kl.
14.00. Allir velkomnit.
Flóamarkaður
veröur i sal Hjálpræðishersins,
Kirkjustræti 2, þriðjudag 10. og
miðvikudag 11. október. Opið
kl. 10.00-17.00 báða dagana.
Mikiö úrval af góðum fatnaði á
góðu verði.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Safnaðarsamkoma kl. 11.00.
Ræðumaður Einar J. Gíslason.
Almenn samkoma kl. 20.00.
Ræðumaður Garðar Ragnarsson.