Morgunblaðið - 03.12.1989, Síða 26

Morgunblaðið - 03.12.1989, Síða 26
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR söWcagur 3. DESEMBER 1989 Minning: Magnús G. Jóns- son, fi’önskukennari Af ást sinni á frönsku og franskri menningu hlaut Magnús viðurnefn- ið „franski" og það var hans sæmd- arheiti. Engum duldist ást hans á tungu Frakka og það var köllun hans að sá frönskum fræjum í frem- ur grýttan menntaskólasvörð. í því skyni hafði hann samið kennslubók sem ótalin þúsund íslenskra náms- manna hafa haft á milli handa og vonandi lesið sér til gagns. Magnús er mér minnisstæður þar sem hann er að skrifa einhverja málfræði á græna töflu, kannski donne — donnes — donne — donn- ons — donnez — donnent — og gerir þá hlé, snýr sér að bekknum og segir stundarhátt: „Ég er að gera það sem mér fínnst skemmti- legast — get ég verið þekktur fyrir að taka fyrir það Iaun?“ Maður hrökk hálfpartinn við, það er svo sjaldgæft að heyra fólk játa hlutskipti sínu ást sína. Þetta var veturinn 1967-68 og þá eins og nú gerðist sagan svo hratt að dagblöðin voru eins og „öldin okkar“. Forvitni Magnúsar um atburðarásina var mikil og sjálf- ur hafði hann tekið sér það bessa- leyfi að leggja niður þéringar við nemendur. Honum þótti líka full yfirlætisleg staða kennarans á upp- hækkuðum palli fyrir enda bakkjar- ins þar sem hann gnæfði yfir nem- endum og vildi breyta allri uppröðun í stofunni og láta borðin mynda hring þar sem allir væru jafnir og sameinaðir í ást á frönsku. Þetta skapaði töluvert brambolt í upphafi tíma og enda — en þetta var í maí ’68 á la Magnús Jónsson. Annað sem sýndi hug Magnúsar: honum þótti full bamalegt að hálffullorðið fólk þyrfti að biðja kennara leyfis til að víkja úr skólastofu í vissum erindagjörðum. Vildi hann að nem- endur færu fijálsir til þessara ferða. Fyrir kom að nemendur misnotuðu þetta traust og létu jafnvel ekki sjá sig það sem eftir lifði tímans. „Hann hefur fengið leyfi hjá Bessa,“ sagði Magnús þá vorkunnlátur. Kennsla Magnúsar var fjársjóður þeim sem vildu nota. En hugur unglinga er ófús til lærdóms á bók og varla fyrr en fólk er orðið öld- ungar að skilyrði skapast til að læra. Eins og nærri má geta hafði Magnús mikla ást á frönskum bók- menntum og eftirminnilegar um- ræður þegar talið barst að skáldum. Ég hygg að franska ljóðskáldið Paul Valéiy hafi verið kjörskáld Magnúsar og einu sinni þegar ein- hver sagði: „Ekki fmn ég púðrið í þessum Valéry" — svaraði Magnús af sinni alkunnu hógvæíð: „Það er ekki Valéry að kenna.“ Að menntaskóla loknum sleppti Magnús ekki hendinni af lærisvein- um sínum og hvar og hvenær sem fundum bar saman voru fagnaðar- fundir og vakandi forvitni Magnús- ar og umhyggja auðfundin. Mér var hann hollvinur þegar ég var að búa mig til námsdvalar í Frakklandi og hann snaraði öllum mínum pappír- um yfir á löggilda frönsku. Minnis- stæð er mér heimsókn heim til skjalaþýðandans. Magnús kom hlaupandi niður stigann með plögg- in og áttum við langt samtal um tíðina aftur og fram. En þegar ég tók upp veskið og hugðist borga, þaut Magnús eins og byssubrandur upp stigann aftur: „Nei, nei, nei — þú borgar þegar þú ert búinn að ljúka prófum!" Og nú þegar upp er staðið munu margir eiga þessum öðlingi skuld að gjalda. Pétur Gunnarsson Nýfermdur sá ég fyrst Magnús Guðjón Jónsson, Reykjavíkurmeist- ara í skák. Hann var grannur og fremur lágvaxinn, fíngerður og góðlegur. Hann talaði alúðlega við hvern mann. Gjörla mátti sjá að viðmælendur báru virðingu fyrir Magnúsi en ekki varð af sjón ráðið hvílíkur sá var er þar fór. — Nálæg- ur varð hann mér er hann kvæntist móðursystur minni skömmu síðar. Á heimili þeirra dvaldi Soffía amma mín sem ég var hændur að og því kom ég oft þangað. Ekki voru sam- skipti við húsbónda alltaf hlýleg þá af minni hálfu sökum þess að for- eldrar minir fólu Magnúsi að hafa eftirlit með menntaskólanámi sem hét að ég sinnti, áhugasnauður og mótþróahlaðinn. Eitt sinn er kæruleysi keyrði úr hófi var ég að kvöldlagi kvaddur heim til Magnúsar og gekk í stofu andstöðubrynjaður. „Við skulum taka nokkrar hraðskákir áður en að erindi kernur," sagði Magnús. Ég. fór halloka og hann sagði: „Þú veist til hvers þú komst, en ræðum það ekki að sinni.“ Ég hélt heim gjörsigraður. Rétt sálræn tök hins kyrrláta menntamanns höfðu náð fyrirhuguðum árangri. Síðar varð ég vitni að" viðlíka meistaratökum í örlagaskák varðandi lífsferil ungs manns, — var peð í höndum Magn- úsar er harin hindraði áformaðan afleik. Það sinn sem oftar vissu fáir hvað gott var gert. í fjallræð- unni er fyrir mælt að fremja ekki réttlæti fyrir mönnum „en þegar þú gefur ... þá viti vinstri hönd þin ekki hvað hægri hönd þín gjör- ir ...“ Þannig var lífsmáti Magnús- ar G. þá rösku fjóra áratugi sem ég þekkti hann. Magnús fæddist í Krísuvík í Gull- bringusýslu á vetrarmessu hins heilaga Þorláks, 23. desember 1908. Faðir hans, Jón Magnússon, búfræðingur, stórbóndi og um skeið fasteignasali, var kominn af valin- kunnum höfðingsbændaættum í Árnessýslu, sonur Magnúsar Andr- éssonar alþingismanns í Syðra- Langholti og Katrínar Eiríksdóttur af Reykjaætt. — Ingibjörg, móðir Magnúsar, var Sigurðardóttir Oddssonar í Gufunesi. Valgerður, kona Sigurðar, var dóttir Þorgríms prests í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd og sonardóttir Guðmundar Þor- . grímssonar hins fyrsta dómkirkju- prests í Reykjavík. Sigríður, kona Guðmundar, var sonardóttir Finns Jónssonar biskups, þess _er samdi hina miklu kirkjusögu íslands á latínu. Ekki verða hér taldir fleiri biskupar, prestar og fræðimenn í móðurætt Magnúsar en ættfróðir menn vita að þeir eru margir. Magnús Guðjón tók í arf frá for- feðrum sínum og mæðrum skarpar gáfur ásamt virðingu fyrir fraéði- mennsku og menntum. Hann hafði þann metnað að helga sig lífsstarfi sínu, frönskukennslu, af allri orku líkams og sálar og varð farsæll í störfum og einkalífi. — Að loknu glæsilegu stúdentsprófi hélt hann utan 19 ára gamall til náms í róm- önskum málum. Licence-és-lettres- prófi í frönsku og spönsku lauk hann við Sorbonne-háskóla í París 1933. Ritari var hann á ræðis- mannsskrifstofu Frakka í Reykjavík næstu átta ár. Á síðustu starfsárum þar hóf Magnús kennsluferil sinn sem aukakennari við Háskóla íslands og stundakenn- ari við Menntaskólann í Reykjavík. Fastur menntaskólakennari í frönsku varð hann 1942 og yfir- kennari 1958. Lausráðinn háskóla- kennari og síðar lektor í því tungu- máli var hann tæpan aldarfjórðung en skipaður dósent frá 1. janúar 1963 og gegndi því starfi til 1979. Var hann og dómtúlkur og löggiltur skjalaþýðandi í frönsku, spænsku og ítölsku. Félagsmálum ýmiss kon- ar sinnti hann einnig, ferðaðist tals- vert og var í fremstu röð íslenskra skákmanna uns hann hætti keppni 1949, þá landsliðsmaður. Magnús var ritari Alliance Francasise 1934-1965 og forseti þess félags 1965-1975. Hygg ég á engan hallað þótt sagt sé að Magnús G. hafi verið driffjöður í starfí þess merka menningarfélags í áratugi og hlaut hann að launum margvíslegan sóma af hálfu franskra menntamálayfir- 1 valda. Magnús samdi kennslubók í frönsku sem út kom 1950 og lengi var notuð í menntaskólum. Hún var endurprentuð nokkuð breytt 1960. Sama ár birtust eftir hann málabækur ísafoldar í frönsku og spænsku. Magnús samdi einnig kennslubréf í þeim málum fyrir bréfaskóla SÍS. Hann þýddi margar skákbækur á 6. áratugnum, meðal annars eftir Emanuel Lasker og Znosko-Borovsky. Þá voru fáar slíkar til á íslensku. Samtímis reis sú mikla skákbylgja sem enn er við lýði. Mikilvægar voru þær bækur á þeim tíma þótt úreltar séu nú. Hér sem víðar lagði Magnús grunn sem aðrir reistu á síðar hús eða hallir. 1967 kom út vandlega unnið rit hans um Frakkland í bókaflokknum Lönd og lýðir. Enn er óútgefið handrit er varðar franska hámenn- ingu sem Magnús bjó til prentunar fyrir skömmu. Ekki hirði ég að rekja fleiri störf Magnúsar G. þótt nokkur séu ónefnd. Magnús kvæntist 19. júní 1947 Jónu Kristínu Magnúsdóttur. Þau bjuggu fyrst á Grundarstíg 4 en keyptu árið 1950 tvær efri hæðir hins virðulega og söguríka húss Ijamargötu 40. Þar átti Magnús heimili til hinsta dags. Hjónabandið var farsælt. Þau Jóna Kristín vom samhent og starfaskipting þannig að bæði undu vel. Hún sá að mestu um veraldleg umsvif, jafnt heimilis- hald sem fjárreiður og fórst vel en Magnús sinnti hugðarefnum, lítt háður vafstri sem flestum reynist tímafrekt og_„stelur geði guma“. Magnús og Jona Kristín eignuðust tvo syni. Eldri er Magnús Sigurður, sálfræðingur. Hann stundaði nám, rannsóknir og kennslu áratug í Kaupmannahöfn, en hefur síðustu sex ár unnið í París, fyrst við mann- fræðastofnunina, Musée de 1’ homme en síðustu tvö ár sem gesta- prófessor við háskóla. Kona Magn- úsar er Ágústa Sveinbjörnsdóttir, arkitekt. Þau eiga tvö börn: Huldu Hlín og Magnús Davíð. Yngri son- urinn er Jón Ingólfur, doktor í stærðfræði frá Sorbonne og kenn- ari við verkfræðideild Háskóla ís- lands. Kona hans er Ellen Larsen, hjúkrunarfræðingur. Dætur þeirra em þiján Margrét, Kristín Soffía og Valgerður. Sameiginlega réttu Magnús og Jóna sonum sínum menntakyndil sem bera skal milli kynslóða. Þau hjón vom vinmörg og gestkvæmt á heimilinu. Jóna útbjó og bar fram veitingar af mik- illi rausn en Magnús sat í bóka- stofu — umkringdur vísum mönnum og öðmm námfúsum — ræddi, fræddi og fræddist. Ljóðlist var tíðrædd. Áhugaveröld Magnúsar var víðfeðm en íslensk kvæði honum kæmst — forn sem ný. Eddu- kvæði, vísur Indriða á Fjalli og ljóð eftir Sigfús Daðason eða Stefán Hörð gátu verið samtímis á dag- skrá. Ég var í heimsókn síðasta sunnu- dagskvöld sem Magnús lifði. Meðal gesta var hinn aldni spekingur og vísnasmiður Sigurkarl Stefánsson. Ungur vanrækti ég þá stærðfræði og frönsku sem þeir bám fram í kennslustundum en í gestaboði þessu var ég sæll þiggjandi í við- ræðum um ljóðagerð — grein sem ég hef í háskólapróf en þeir ekki. Frá báðum streymdi djúp lotning. Er ég kvaddi fylgdi Magnús mér til dyra og sagði: „og mundu Jón að „Sáuð þið hana systur mína“ er mitt eftirlætiskvæði". Magnús var að búa sig á fmmsýningu á Tosku er hann hneig niður nokkmm kvöld- um síðar og lést tæpum sólarhring síðar. Við hæfí var hvemig andlát Magnúsar bar að og ævilok sam- kvæm ferli hans öllum. Hann var vökull og virkur fram á síðustu stund. Gott er að eiga minningu um slíkan mann. Jón Böðvarsson Mig langar til að minnast Magn- úsar G. Jónssonar örfáum orðum. Magnús var kvæntur móðursystur minni, Jónu Kristínu Magnúsdóttur, og eignuðust þau tvo syni; Magnús Sigurð og Jón Ingólf. Það er erfitt að lýsa slíkum önd- vegismannni eins og Magnús var. Háttvís, prúður, virðulegur og hvers manns hugljúfi var hann öllum þeim sem kynntust honum. Þó svo að Magnús væri mjög önnum kafinn maður gaf hann sér alltaf tíma til að heilsa upp á okkur þegar við komum í heimsókn. Hann vann mikið við þýðingar úr frönsku, ítölsku og spönsku eftir að hann hætti kennslu, enda var hann lög- giltur skjalaþýðandi í öllum þessum tungumálum. Magnús var ekki að flíka því hve menntaður hann var og kom eins fram við alla, hvort sem um var að ræða böm eða fullorðna. Barna- bömin voru honum mikils virði og hann sagði oft skemmtilegar sögur af þeim og hló dátt. Hann var mjög skemmtilegur maður og með af- brigðum fróður. Það var alveg sama um hvað maður ræddi við hann, maður fór alltaf fróðari af fundi hans en ella, og fordómalaust lagði hann mat á það sem rætt var um. Hann talaði aldrei illa um náung- ann, en reyndi hins vegar að bera í bætifláka fyrir þann sem minna mátti sín. Síðasta skiptið sem ég sá hann var í afmæli konunnar hans þann 14. nóvember, aðeins þremur dög- um áður en hann veiktist. Vinir og ættingjar komu saman í síðdegis á heimili þeirra hjóna í Tjamargötu 40, en Jóna og Magnús voru mikið fyrir að halda saman ættingjum og vinum. Þau hjónin voru mjög sam- rýnd og samband þeirra var hjart- fólgið og hlýtt. Þess nutum við frændsystkini Jónu Kristínar frá - unga aldri og vomm alltaf velkom- in á heimili þeirra hjóna. Magnúsi buðust margar virðing- arstöður í þjóðfélaginu, en hann var ekki framagjarn maður en kaus þess í stað einfaldleikann og kær- leikann. Jóna, Maggi, Jón, Gústa, Ellen og barnabömin eiga nú um sárt að binda. Ég bið Guð að vemda fjöl- skylduna og vona að þau fái styrk til að standa saman eftir fráfall Magnúsar eins og hingað til. En sársaukinn er mikill og minningin um Magnús gleymist ekki. Fyrir hönd íjölskyldu minnar þakka ég samfylgdina. Valborg SofBa Böðvarsdóttir t Ástkær eiginmaður minn, INGVAR BALDVINSSON, Heiðargerði 17, Vogum, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði þriðjudaginn 5. desember ki. 13.30. Þeir sem vilja minnast hans láti Hjartavernd njóta þess. Fyrir hönd aðstandenda Jóhanna V. Jóhannsdóttir. t Maðurinn minn og faðir okkar, KNUD A. KAABER, Hæðargarði 7, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju nk. þriðjudag, 5. desember, kl. 13.30. Jóni'na Ásgeirsdóttir, Guðrún Elín Kaaber, Ásgeir Kaaber, Eva Kaaber, Kári Kaaber, Birgir Kaaber.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.