Morgunblaðið - 26.01.1990, Síða 1
56 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
21.tbl. 78. árg.
FOSTUDAGUR 26. JANUAR 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Azerbajdzhan:
Hóta Gorbatsjov
öðru Afeanistan
Moskvu. Reuter.
EINN af forystumönnum Þjóðfylkingarinnar í Azerbajdzhan sagði í
gær, að yrði „hernámsliðið" ekki á brott, yrði ekki komist iijá borgara-
styrjöld í landinu. Þá sagði hann, að engu skipti þótt azerskir kommún-
istar hefðu kosið sér nýjan formann því að flokkurinn ætti sér ekki
framar viðreisnar von. Armenar og Azerar hafa samið um vopnahlé
í átökum á landamærum Armeníu og sjálfstjórnarhéraðsins Nakítsje-
„Átökin halda áfram og verði
herinn ekki kallað burt mun bijótast
út skæruhernaður um allt landið.
Vilji Míkhaíl Gorbatsjov verða sér
úti um annað Afganistan þá finnur
hann það hér í Azerbajdzhan," sagði
Ekhtibar Mamedov, einn af forystu-
mönnum azersku Þjóðfylkingarinn-
Engin hætta
afVarsjár-
bandalaginu
London. Reuter.
Varsjárbandalagið er búið að
vera sem eiginlegur andstæðing-
ur vestrænna ríkja og kröfur
sumra Austur-Evrópuríkja um
brottflutning sovéska herliðsins
eru síðasti naglinn í líkkistuna.
Byltingarnar í Austur-Evrópu á
síðasta ári og lýðræðisþróunin, sem
þar er hafin, svipti í raun Varsjár-
• bandalagið titgangi sínum, sem var
að standa vörð um hið kommúníska
stjórnarfar. „Nú,“ segir John Cross,
aðstoðarframkvæmdastjóri Alþjóða-
herfræðistofnunarinnar í London
(IISS), „eru alls engar líkur á, að
nokkurt Austur-Evrópuríkjanna léti
Sovétmenn skipa sér fyrir verkum."
Á Vesturlöndum hefur þessari
þróun verið fagnað en innan Atlants-
hafsbandalagsins vilja menn þó ekki
sjá á bak Varsjárbandalaginu alveg
strax. Það er nefnilega eini eiginlegi
viðsemjandi NATO um afvopnun og
fækkun í herjum.
ar, á fréttamannafundi í Moskvu.
„Azerar munu berjast gegn her-
námsliðinu til síðasta manns.“
TASS-fréttastofan sagði í gær,
að leyniskyttur hefðu skotið á sov-
éska hermenn í Bakú og nágrenni
og á miðvikudag féll einn hermaður
og annar særðist. Alisheijarverkfall
er enn í borginni og einnig í
Gyandzha, annarri stærstu borg í
Azerbajdzhan.
Ayaz Mutalibov forsætisráðherra
var í gær kjörinn formaður komm-
únistaflokksins í Azerbajdzhan í
stað Abdul-Rakhmans Vezirovs en
talsmenn Þjóðfylkingarinnar sögðu,
að fyrir Azera skipti f lokkurinn engu
máli lengur.
Reuter
Barnsfæðingu
forsætisráðherra fagnað
Benazir Bhutto, forsætisráðherra Pakistans, ól í gær stúlkubarn á
sjúkrahúsi í Karachi, stærstu borg tandsins, og er þetta í fyrsta
sinn sem leiðtogi ríkisstjórnar fæðir barn á embættistíma sínum.
Stuðningsmenn Bhutto fögnuðu þessum tíðindum ákaft, dreifðu
sælgæti og dönsuðu eftir trumbuslætti á götum borgarinnar. Barn-
ið var tekið með keisaraskurði og heilsast mæðgunum vel.
Belgískt herlið í
V-Þýskalandi:
Brottflutning-
ur í samráði
við NATO-ríki
Brussel. Reuter.
GUY Coeme, varnarmálaráð-
herra Belgíu, sagði í gær, að
líklegt væri, að belgíska herliðið
í Vestur-Þýskalandi yrði kallað
heim en lagði síðan áherslu á, að
það yrði aðeins gert í samráði við
bandamenn Belga í Atlantshafs-
bandalaginu.
í viðtali við tvö belgísk dagblöð,
De Standaard og Le Soir, sagði
Coeme, að „vegna þróunar mála í
Evrópu er brottflutningur belgíska
herliðsins frá Vestur-Þýskalandi
' ekki ólíklegur" en í yfirlýsingu, sem
hann sendi belgískri fréttastofu
síðar í gær, sagði, að um brott-
flutning yrði ekki að ræða nema í
samráði við önnur NATO-ríki.
Mark Eyskens, utanríkisráðherra
Belgíu, sagði í gær um þetta mál,
að brottflutningur belgíska herliðs-
ins frá Vestur-Þýskalandi hefði
aldrei komið til umræðu í ríkis-
stjórn.
Bandaríska öidungadeiidin:
Umdeild ákvörðun um kín-
verska námsmenn staðfest
Vantaði aðeins fjögnr atkvæði til að neitunarvaldi Bush yrði hnekkt
Washington. Reuter.
VIÐ atkvæðagreiðslu í öldunga-
deild Bandaríkjaþings í gær
vantaði fjögur atkvæði til að
hnekkja neitunarvaldi George
Bush Bandaríkjaforseta, er hann
Reuter
Ofsaveðurí Vestur-Evrópu
Mikið fárviðri gekk yfir England og vestanvert meginlandið í gær og
var vitað um 29 manns að minnsta kosti, sem týnt höfðu lífi. Áttu
mörg skip í erfiðleikum suður af Englandi og á Ermarsundi en mynd-
in er af fiskiskipi, sem komið var upp í kletta á Frakklandsströnd.
Sjá „Tugir bíða
á bls. 18
beitti gegn frumvarpi um land-
vistarleyfi kínverskra náms-
manna. Fulltrúadeildin hafði áð-
ur ómerkt neitunarvald forsetans
og í gær hafði talsmaður
kínverska utanríkisráðuneytisins
uppi stór orð um afleiðingar þess
fyrir samskipti ríkjanna ef niður-
staðan yrði sú sama í öldunga-
deildinni.
Frumvarpið var samþykkt á þingi
í nóvembermánuði en það kveður á
um að kínverskum námsmönnum
skuli heimilað að dvelja áfram í
Bandaríkjunum er dvalarleyfi
þeirra þar rennur út, óttist þeir að
sæta ofsóknum í heimalandi sínu.
Þingmenn Demókrataflokksins,
sem hefur meirihluta í báðum þing-
deildum, lögðu frumvarpið frani í
þeim tilgangi að vernda kínverska
námsmenn í Bandaríkjunum en
stjórnvöld í Kína hafa skorið upp
herör gegn leiðtogum námsmanna
er stóðu fyrir mótmælunum á Torgi
hins himneska friðar á síðasta ári
sem lyktaði með miklu blóðbaði.
Bush forseti beitti neitunarvaldi
gegn frumvarpinu en hann hefur,
leynt og ljóst, beitt sér fyrir auknum
samkiptum við Kínveija og sætt
gagnrýni sökum þess í Banda-
ríkjunum. Þá ákvörðun sína að beita
neitunarvaldi rökstuddi forsetinn
með tilvísun til þess að aukin ein-
angrun Kínverja á alþjóðavettvangi
myndi einungis verða til að tefja
fyrir umbótum í lýðræðisátt. Þess-
ari röksemdarfærslu höfnuðu þing-
menn fulltrúadeildarinnar og
hnekktu neitunarvaldi forsetans
með 2A hlutum atkvæða. Lengi þótti
líklegt, að öldungadeildin gerði slíkt
hið sama og því þykir niðurstaðan
verulegur sigur fyrir hann.
Við atkvæðagreiðsluna í gær
vildu 62 hnekkja neitunarvaldi for-
setans en 37 voru á móti og vant-
aði því fjögur atkvæði upp á aukinn
meirihluta, sem þurfti til. Sögðu
repúblikanar, að fyrir andstæðing-
um forsetans hefði aðeins vakað
að koma höggi á hann en demó-
kratar svöruðu og sögðu, að frum-
varpið snerist um mannréttindi og
væri um leið áfellisdómur yfir af-
stöðu Bush til stjórnvalda í Kína.
Evrópubandalagið:
Aðgangur að fiskimiðum
fyrir aðgang að markaði
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
JAN P. Syse, forsætisráðherra Noregs, átti í gær viðræður við
fúlltrúa úr framkvæindastjórn Evrópubandalagsins (EB) í Brussel
um samskipti Noregs og EB. Samkvæmt heimildum í Brussel
lagði Manuel Marin, sem fer með sjávarútvegsmál innan fram-
kvæmdastjórnarinnar, áherslu á, að bandalagið væri ekki tilbúið
til að hverfa frá þeirri reglu, að fyrir aðgang að mörkuðum EB
fyrir sjávarafurðir fengi bandalagið veiðiheimildir fyrir fiskveiði-
flota aðildarríkjanna.
Heimildir Morgunblaðsins
herma, að Marin hafi lýst því yfir,
að við væntanlega endurskoðun
fiskveiðistefnunnar árið 1992
væri þess alls ekki að vænta, að
frá þessari reglu yrði horfið enda
væri hún einn af hornsteinum
hinnar sameiginlegu fiskveiði-
stefnu. Norðmenn hafa af þessu
nokkrar áhyggjur vegna versn-
andi ástands fiskstofna í norskri
fiskveiðilögsögu en þeir hafa á
liðnum árum gert samninga við
EB á grundvelli þessarar reglu.
Syse sagði, að á fundinum hefði
verið rætt m.a. um samningavið-
ræður EFTA og EB um sameigin-
legt evrópskt efnahagssvæði og
um mögulega aðild Norðmanna
að gjaldeyrissamstarfi EB.