Morgunblaðið - 26.01.1990, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.01.1990, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUÐAGUR 26. JANÚAR 1990 12 Minning: Oddur Olafsson fyrrv. yfírlæknir Mig langar að kveðja fáeinum orð- um Odd Olafsson lækni og fyrrver- andi alþingismann, sem jarðsettur verður í dag. Þó kyr.ni okkar Odds yrðu ekki ýkja löng og tæp hálf öld skildi á milli í aldri og það bættist svo enn- fremur við að í okkar pólitísku af- skiptum rerum við yst á sitt hvort borðið, breytti það engu um að .það fór mætavel á með okkur þær stund- ir sem við ræddumst við og áttum saman. Oddur var reyndar maður þeirrar gerðar að ég hygg að fáum, ef nokkr- um, sem hann mætti á lífsleiðinni, hafi tekist annað en að láta sér líka vel við hann. Frá honum geislaði mannúð og hlýja, en um leið mikill viljastyrkur. Þessir eiginleikar voru hvarvetna að verki þegar litið er yfir lífsferil Odds og þau Grettistök höfð í huga sem hann lyfti í þágu sjúkra, aldraðra og öryrkja með sínu mikla ævistarfi. Ég hygg að ferill Odds sé næsta einstæður þrátt fyrir allt. Sjálfur var hann sem ungur maður sjúklingur og mun í raun hafa búið að því lengi síðan, en því er erfitt að trúa þegar ódrepandi dugnaður hans og þraut- seigja er höfð í huga að þar hafí farið maður öróttur af skæðum sjúk- dómi. Sögu Odds eru aðrir færari að rekja en ég, en saga hans er í raun um leið saga Vinnuheimilisins að Reykjalundi, saga Sambands íslenskra berklasjúklinga meirihlut- ann af þessari öld, saga Öryrkja- bandalags íslands frá stofnun þess og fleira mætti telja þar sem Oddur tók til hendinni. En yfirleitt voru störf hans einu og sama markinu brennd; þau voru helguð uppbygg- ingu og aðhlynningu í þágu þeirra sem sökum sjúkdóma, fötlunar eða af öðrum ástæðum eiga á brattann að sækja í lífinu. Þeir eru væntan- lega fleiri en nokkum grunar og miklu fleiri en gera sér þess grein sjálfir sem eiga honum mikið að þakka. Ófáir öryrkjar, sjúklingar og aldraðir hafa komist inn í húsnæði við hæfi, fengið þá umönnun sem þeir njóta, ekki síst fyrir eljusemi Odds. Ég átti því láni að fagna að kynn- ast Oddi og hafa samskipti við hann um nókkurt skeið vegna fjöskyldu- tengsla, þegar hann varð tengdafað- ir Kristínar systur minnar. Eg átti einnig við hann lítileg samskipti sem alþingismaður og er mér þar minnis- stæður sem endranær dugnaður hans þegar til meðferðar voru á Alþingi hagsmunamál þeirra sem hann var að vinna fyrir. Sérstaklega minnist ég þess þegar Öryrkjabandalagið sótti eftir að fá lögfesta heimild til í dag er til moldar borin Fanney Stefánsdóttir, ekkja Benedikts Sig- uijónssonar hæstaréttardómara. Fanney fæddist 9. desember 1905. Hún var ein af fimmtán bömum Guðbrands Þorsteinssonar, bónda á Loftssölum í Mýrdalshreppi, V.-Skaft., og konu hans, Elínar Björnsdóttur. Stefán Gíslason, hér- aðslæknir í Vík í Mýrdal, og seinni kona hans ættleiddu Fanneyju í bemsku. Hún ólst því upp sem emb- ættismannsdóttir í fámennu plássi. í þá daga fylgdu því bæði kostir og kvaðir, sem Fanneyju voru án efa ómeðvitaðir, en komu fram í fasi hennar, sem var krafa um sjálfsvirð- ingu og virðingu fyrir öðrum. Hún hafði jafnan sterkar taugar til æsku- stöðvanna, sem sýndi trygglyndi hennar. Það var sumarið 1935 að fundum okkar Fanneyjar Stefánsdóttur bar fyrst saman. Hún vann á skrifstofu reksturs á bókstafalottói og ég, ásamt fleiri mönnum, átti þátt í að stuðla að því samkomulagi sem síðar tókst milli íþróttahreyfingarinnar og Öryrkjabandalagsins um rekstur ís- lenskrar getspár. Þá var ekki að sjá að færi maður hátt á áttræðisaldri þar sem var Oddur Ólafsson sem lét hvorki ófærð né næturfundi aftra sér frá því að fylgjast með framgangi málsins og leggja sitt af mörkum. Mér var það ómæld ánægja að geta þá lítillega lagt honum lið og fann fyrir því síðan að Oddur mundi þá sem studdu hann í baráttunni fyrir þessum málum. Ég var á ferð í Grindavík fyrir nokkrum dögum og kom þá m.a. að Oddsbúð, sem svo er nefnd í virðing- arskyni við Odd V. Gislason og hans mikla framlag til sjóslysavama. Mér varð hugsað til þess, er ég frétti andlát Odds Ólafssonar, að hann átti fleira sameiginlegt með afa sínum en nafnið. Báðir hafa reist sér minnisvarða, sumpart huglæga, sumpart efnislega, með störfum sínum. Beggja orðstír af góðum verk- um mun lengi lifa þá sjálfa. Ég kveð þennan látna sæmdar- mann með virðingu og þakklæti og flyt fyrir hönd allra frá Gunnarsstöð- um samúðarkveðjur til Ragnheiðar, barna hennar og Odds og annarra aðstandenda. Steingrímur J. Sigfússon Hann Oddur okkar dó í morgun, var sagt við mig í símann, snemma fimmtudagsins 18. janúar. Mér varð svarafátt við þessa óvæntu helfrétt þar sem ég hafði haft samband við Reykjalund þar sem hann lá daginn áður, og þar var sagt að líðan Odds vinar mins, félaga og foringja Ólafssonar, væri batnandi, en þarna blasti við mér á andartaki tómarúm, stærra en mig hafði órað fyrir. Samstarf okkar Odds Ólafssonar hófst fyrir tæpum 40 árum þegar ég var valinn til trúnaðarstarfa hjá SIBS með landsfrægum afreks- og kraftaverkamönnum, þeim Oddi Ól- afssyni, Áma Einarssyni og Þórði Benediktssyni, í fylkingarbtjósti fyrir málefnum berklasjúklinga. Samtök berklasjúklinga höfðu ver- ið stofnuð á Vífilsstaðahæli í október 1938 af hópi berklasjúklinga, sem safnast höfðu saman til þessa stofn- fundar sem fulltrúar frá ýfirfullum berklahælunum, alls 27 sjúklingar með vafasamar batahorfur, en mikl- ar vonir um bjartari framtíð og trú á lífíð. Á þessum fundi var Oddur þá starfandi læknir og berklasjúklingur á Vífilsstöðum. Frá stofnfundi SÍBS hefst einnig glæsileg starfssaga Odds Ólafssonar Rafmagnsveitu Reykjavíkur, sem þá var til húsa í gömlu slökkvistöðinni við Tjamargötu, en ég vann á sömu skrifstofu við að loka fyrir rafmagn eða réttara sagt að rjúfa rafmagns- straum til heimilisnota hjá vanskila- fólki nokkra sumarmánuði. Ég var 16 ára, en Fanney rúmlega þrítug. Ég man hve mér fannst hún tiguleg og mikil reisn yfir henni, svo að í fyrstu þorði ég tæpast að ávarpa hana. Engum manni var ætlandi að vaða upp á dekk hjá henni. Auðvitað kom að því, að við tókum tal saman og þá komst ég að því hve ljúf og vel gefin kona hún var og gat verið spaugsöm. Tókst með okk- ur góður kunningsskapur, sem hald- ist hefur og jókst við að yngsti sonur hennar varð tengdasonur minn. Fanney Stefánsdóttir var mikil gæfukona. Árið 1946 giftist hún ágætum dreng, Benedikt Siguijóns- syni, dómsfulltrúa og síðar hæsta- þannig að sögur beggja eru svo ná- tengdar að þær verða eigi sagðar hvor í sínu lagi svo mark sé á takandi. Á 50 ára afmæli sambandsins hélt það sitt afmælisþing og af því tilefni var gefin út vegleg afmælis- bók sem fékk nafnið SÍBS-bókin með undirtitli 50 ár. Sannnefni bókarinn- ar hefði átt að vera „Óður til lífsins“ og verið nær sanni höfundum bókar- innar, Samtökum berklasjúklinga og Oddi Ólafssyni. Hálfrar aldar starfsemi Odds Ól- afssonar og SÍBS hefur verið óður til lífsins þar sem barist hefur verið fyrir að bæta dögum við líf þeirra sjúku og vanmegnugu með þeim glæsilega árangri sem við þekkjum með Reykjalundinn okkar og annarri starfsemi hliðstæðri. Sambandið var stofnað á kreppu- tímum þegar atvinnuleysi var land- lægt og viðvarandi á áratugnum og neyð blasti við á öllum sviðum. Auk atvinnuleysis var húsnæðisskortur þar sem fólk bjó í heilsuspillandi húsnæði og við matarskort. Við þessar aðstæður skyldi marg- ur ætla að kröfur berklasjúklinganna beindust að opinberum aðilum um styrki og aðstöð en það var ekki al- deilis hjá berklasjúklingunum, sem voru að stofna landssambönd sín við hinar erfiðustu aðstæður. Kröfur þeirra voru fram settar að sjálfsögðu á stefnuskránni, ekki til þess öpin- bera heldur til sjálfra sín um að styrkja hver annan til sjálfsbjargar enda var það fest í legur á fána sam- bandsins „að styrkja sjúka til sjálfs- bjargar" og sú áritun stendur enn. Það voru spakir menn sem að þessari stefnumörkun stóðu_ og efa ég ekki að Oddur okkar Ólafsson læknir með setu á stofnfundinum hafi þar átt hlut að máli. Óskabyr fengu hin nýstofnuðu samtök sjúklinganna með stuðning þjóðarinnar allrar að baki. Á fyrstu þingum SÍBS kom fljót- lega fram hugmyndin um að byggja brú frá hælunum til lífsins vegna þeirrar bitru reynslu sem berklasjúkl- ingamir fengu af ótímabærri útskrift frá hælunum án þess að tryggur bati væri fyrir hendi enda veiktust réttardómara. Var hjónaband þeirra báðum til mikillar blessunar enda voru þau mjög samhent. Þau eignuð- ust þrjá syni: Stefán kennari, f. 18. ágúst 1946, giftur Svandísi Magnús- dóttur, Guðmundur læknir, f. 4 apríl 1950, giftur Ingibjörgu Faaberg og margir fljótlega aftur vegna þess harðræðis sem beið þeirra með at- vinnuleysi, heilsuspillandi húsnæði og alhliða skorti í þeirri hörðu lífsbar- áttu, sem við tók utan hælisins. Stjórn SÍBS fór því fljótlega að leita fyrir sér um að byggja þessa brú frá hælunum til lífsins og fór að leita fyrir sér um landrými til byggingar endurhæfingarheimilis eða vinnuheimilis fyrir berklasjúkl- inga þar sem þeir gætu lært til starfa á ný við þær breyttu aðstæður sem sjúkdómurinn hafði valdið. Landið fannst að Reykjum í Mos- fellssveit en þar hafði verið sjúkrahús á stríðsárunum með mörgum braggabyggingum, sem töldust henta til þessa verkefnis. Aðeins 7 árum eftir stofnun SÍBS kom fyrsti vistmaðurinn frá berkla- hæli til Reykjalundar. Oddur Ölafs- son var ekki aðeins fyrsti yfirlæknir- inn heldur einnig framkvæmdastjóri og húsbóndi heimilisins. Ótaldir eru fundirnir í stjómum SÍBS og Reykjalundar sem haldnir voru á hinu stóra heimili húsbænd- anna, þeirra Odds Ólafssonar og Ragnheiðar Jóhannesdóttur, þar sem áætlanir voru teknar um framtíð og heill að takmarki samtakanna um að byggja brú frá hælunum til lífsins, sem að var stefnt frá upphafi. Þegar starfsemi Reykjalundar hófst í apríl 1945 var um algjöra nýlundu að ræða í nágrannalöndum okkar, m.a. á Norðurlöndum, og barst hróður starfseminnar á Reykja- lundi vítt um heim og til slíkrar fyrir- myndar að skoðun Reykjalundar var ofarlega á blaði á óskalista erlendra ferðamanna, sem vildu skoða Gull- foss, Geysi, Þingvelli og einnig Rey- kjalund þannig að hróður landsins var ekki síst fyrir tilverknað SÍBS og Reykjalundar undir forystu og stjóm Odds Ólafssonar enda hefur hann hlotið margvíslegar viðurkenn- ingar fyrir störf sín, m.a. riddara- kross Dannebrogsorðunnar, fálka- krossa og gullmerki SÍBS sem sam- bandið hefur verið mjör spart á að veita en það fékk hann þegar hann var kjörinn formaður SÍBS á síðasta þingi í tilefni afmælisins. Þetta er saga SÍBS og um leið glæst saga Odds Ólafssonar, sem við nú kveðjum í dag. Landssamtök berklasjúklinga hafa starfað á Norðurlöndunum öllum og er danska sambandið þeirra elst eða yfir 80 ára gamalt, en hin yngri. T.d. hélt sænska sambandið veglegt þing á síðasta ári þegar það fagnaði 50 ára afmæli sínu og litlu eldri eru þau finnsku og norsku. Hróður Reykjalundar barst að sjálfsögðu til nágrannalandanna og sendu þau fulltrúa sína til að heilsa upp á bróðursambandið á íslandi og til að kynnast þeirri merku starf- semi, sem þar fór fram á Reykja- lundi. Að þeirri kynningu lokinni ákváðu samböndin að heiðra það íslenska með því að stofna samband Norður- landanna á íslandi. Var sambandið síðan stofnað með þátttöku allra landanna á Reykjalundi íjúní 1948. Ég átti því láni að fagna, að velj- Sigurjón tannlæknir, f. 14. ágúst 1951, giftur Snædísi, dóttur undirrit- aðs. Barnabömin eru 9. Siguijón stundar nú framhaldsnám í fyrir- byggjandi tannlækningum við há- skóla í Birmingham, Alabama, Bandaríkjunum. Veit ég að honum og Snædísi fellur þungt að geta ekki verið við útför Fanneyjar. Benedikt Sigurjónsson var mikill afkastamaður, sem aldrei féll verk úr hendi, hvort heldur hann var full- trúi í Borgardómi Reykjavíkur eða í fyrirsvari einnar þekktustu lög- mannsstofu landsins og þá í Hæsta- rétti. Hann var hamhleypa til verka og skeytti lítt um launin. Því varð vinnudagur hans langur, iðulega langt fram á kvöld. I því sambandi dettur mér í hug er ég hlustaði á útvarpsviðtal við sjómannskonu á síðasta þorra, er sú kona hélt því fram, að sjómannskon- ur væru hamingjusamastar giftra kvenna, m.a. af því þær hefðu mátu- lega mikið af körlum sínum að segja. Mér finnst Fanney að vissu leyti hafa staðið í sömu sporum, nema hvað karlinn kom þó heim, þó ekki væri fyrr en undir miðnætti, en það er þó mikill munur. Heimilishaldið og uppeldi sonanna þriggja hvíldi því mjög á herðum ast sem fulltrúi SÍBS ásamt Oddi Ólafssyni í stjóm Berklavarnasam- bands Norðurlanda 1956, en fulltrúa- fundir þeirra samtaka eru haldnir á tveggja ára bili til skiptis á Norður- löndunum. Ég tel það lán okkar hjónanna að hafa haft tækifæri til þess að ferð- ast með þeim hjónum Oddi Ólafssyni og Ragnheiði Jóhannesdóttur sl. 30 ár til funda á Norðurlöndunum því ljúfari og tillitssamari ferðafélaga er vart hægt að hugsa sér en þau sóma- hjón, sem jafnframt fórnuðu sínum þægindum fyrir okkur ferðafélag- ana. Ósögð er saga Odds að hinum al- mennu öiyrkjamálum og afreksverk- um hans fyrir Öryrkjabandalag ís- lands sem hann stofnaði og veitti forystu í áraraðir, nú heiðursforseti þeirra samtaka en væntanlega mun annar tíunda þau afreksverk en und- irritaður. Og hér er komið að ferðalokum þar sem þakka ber af heilum hug samfylgdina og leiðsögnina þessa löngu vegferð okkar sem aldrei bar skugga á. Ragnheiði Jóhannesdóttur og bömum þeirra og öllum afkom- endum þeirra hjóna flytjum við hjón- in innilegustu samúðarkveðjur við fráfall vinar okkar allra, sem sárt er saknað í samtökum okkar og þeim stóra hópi skjólstæðinga Odds Ólafs- sonar, sem nú hafa misst sinn góða vin og velunnara. Kjartan Guðnason, formaður stjórnar Reykjalundar. Með Oddi Ólafssyni er horfinn sá læknir, sem átt hefur mest frum- kvæði að endurhæfingu sjúkra og fatlaðra hér á landi. Tvö verkefni sem hvort um sig eru ærið Iífsstarf ber hæst í huga undirritaðs, annars vegar stofnun Vinnuheimilisins að Reykjalundi og hins vegar bygging íbúða fyrir öryrkja. Frumkvæði til slíkra verka og þróunar þeirra kem- ur ekki nema frá þeim sem samein- ar miklar hugsjónir, læknisfræðilega reynslu, félagsþroska og viðskipta- vit. Allt þetta hafði Oddur í ríkum mæli ásamt víðsýni, sveigjanleika og samningslipurð, sem gerði honum mögulegt að breyta áherslum eftir því sem sigrar unnust og tímar breyttust. Frá unga aldri hef ég alltaf litið til Odds sem kraftaverkamanns í íslenskum heilbrigðismálum, sem ekkert var ómögulegt, aðeins mis- erfitt. Með fordæmi sínu og þægileg- um samtölum hefur hann vísað veg- inn okkur, sem yngri erum og notið höfum þeirra forréttinda að vinna með honum. Oddur var velunnari allra, sem á einhvern hátt urðu undir í lífsbarátt- unni. Fyrst beindi hann kröftum sínum eðlilega að því að aðstoða berklasjúklinga. Þegar þeirra þörf minnkaði, beindi hann augum sínum að öðrum, sem hann taldi hafa mesta þörf. Þar á meðal voru geðsjúkling- ar. Varð Oddur fyrstur íslenskra lækna til þess að samhæfa þjónustu við geðveika annarri heilbrigðis- Fanneyjar og fórst henni það vel úr hendi. Þá sómdi hún sér vel er hún stóð við hlið eiginmanns síns, þegar hann sem dómsforseti Hæstaréttar Islands kom fram sem einn af hand- höfum forsetavalds og alla tíð. Fanney var hamingjusöm kona og átti ekki hvað minnstan þátt í því hve ljúf bönd voru á milli hennar og sonanna þriggja og tengdadætranna, þegar þær komu til, hún var stolt af þeim. Síðustu jól dvaldist ég hjá þeim Siguijóni og Snædísi í Birmingham. Skruppum við þá m.a. suður á Flórídaskaga, sem er um 1000 km akstur frá heimili þeirra. Þegar við lögðum upp, sagði Siguijón við börn- in þijú, Sylgju, Hörpu og Benedikt Þorra, að það væri nú gaman að afi skyldi vera með. Þá sagði Benedikt Þorri, sem er sex ára, upp úr eins manns hljóði: „Best væri ef ömmurn- ar væru líka og Benedikt afi, þó hann sé engill.“ Fanney og Benedikt voru hin dæ- migerðu góðu íslensku' amma og afi og Fanney ekki síst meðan hún hélt heilsu sinni, en síðustu árin var heilsa hennar þrotin og sú hvíld sem dauð- inn er því kærkomin að loknu heilla- dijúgum ævistarfi. Gunnlaugur Þórðarson Fanney Stefáns- dóttir - Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.