Morgunblaðið - 26.01.1990, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 26.01.1990, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990 2& Utandagskrárumræða um Andramálið: Bótaábyrgð íslenskra stjómvalda hugsanleg Andri BA varð tilefiii utandagskrárumræðna í sameinuðu þingi í gær. Var þar haldið fram að heimild til kaupa skips- ins hefði verið samþykkt á Alþingi með blekking- um. - segir Guðmundur H. Garðarsson GUÐMUNDUR H. Garðarsson lét svo ummælt í utandagskrárumræðu í sameinuðu þingi í gær, að mistök íslenskra stjórnvalda varðandi veiði- og vinnsluheimildir Andra BA gætu hugsanlega leitt til bótaábyrgðar íslenskra stjórnvalda. Skúli Alexandersson sagði í sömu umræðu að ríkis- stjórnin hefði blekkt Alþingi til þess að samþykkja kaupin á skipinu. Það kom og fram hjá utanríkisráðherra, að samningur Islands og Banda- ríkjanna frá 1984 veiti Islendingum aðeins heimild til að sækja um kvóta í bandarískri landhelgi. Það var Skúli Alexandersson (Ab/Vl) sem hóf máls utandagskrár um málið. Kvað hann forsögu þessa máls mjög sérkennilega. Alþingi hefði veitt heimild til kaupa á skipi til úthafsveiða við Bandaríkjastrend- ur á grundvelli samnings íslands og Bandaríkjanna, en Bandaríkjamenn veittu skipinu hvorki heimild til veiða né vinnslu, enda væri hvorki ákvæði um slíkt í samningum ríkjanna né annars staðar. Skúli benti á að það hefði komið fram í þingræðu samgönguráðherra á sínum tíma, að skipinu væri ætlað að nýta veiðiheimildir samkvæmt samningi við Bandaríkin. „Það gekk mikið á á Alþingi svo að útgerðin gæti fengið skip; málið afgreitt með mjög miklu hraði.“ Skúli beindi þeirri fyrirspurn til samgönguráðherra á hvaða grundvelli hann hefði veitt heimild til kaupa á þessu skipi. Hann innti og utanríkisráðherra eftir skýr- ingu á samningnum við Bandaríkin og báða ráðherrana spurði hann hvort og þá hvaða ábyrgð stjómvöld bæru á þessu máli. Ráðuneytin mæltu með kaupunum leyti, styður eindregið að stuðlað verði að því að íslendingar nýti sér samningsbundin réttindi til að veiða í bandarískri fiskveiðilögsögu. Við teljum mikilvægt að úr því fáist skorið hvort hagkvæmt reynist að nýta þær heimildir sem samið var um og að áhugi íslendinga verði stað- festur. Því leggjum við til að skráning verði heimiluð enda sé tryggt að skipið verði notað eingöngu til vinnslu afla sem veiddur er utan íslenskrar lögsögu og verði ekki til aukningar á f iskiskipaf lota sem sæk- ir á okkar mið.“ Leyfið var veitt á grundvelli þess- ara umsókna og þar með lýkur af- skiptum samgönguráðuneytisins af þessu máli,“ sagði Steingrímur J. sí fistSl Einhliða gagnkvæmur samningur Jón Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra, sagði í ræðu sinni að samningur hefði verið gerður 1984 á milli Bandaríkjanna og ís- lands um gagnkvæmar veiðiheimildir landanna. „Samningurinn var þó ekki gagnkvæmur varðandi ísland.“ Jón sagði að utanríkisráðuneytið bæri ábyrgð á samningnum og um- sóknir í samræmi við efni hans yrðu að fara í gegnum utanríkisráðuneyt- ið. Sagði Jón að sem handhafi samn- ingsins bæri ráðuneytinu skylda til þess að aðstoða íslenska aðila í við- leitni þeirra gagnvart erlendum stjórnvöldum, þannig að samningn- um sé framfylgt. Skúli Alexandersson sagði að af umræðunni mætti ljóst vera að ráð- herrar hefðu haldið því fram að samningur landanna fæli í sér veiði- heimildir; a.m.k. vinnsluheimildir. „Það virðist því vera að íslensk stjórnvöld hafi misskilið samninginn, eða var verið að blekkja Alþingi? íslensk stjórnvöld eru fullkomlega ábyrg í þessu máli og verða að koma sér út úr þessari klípu.“ Hugsanleg bótaábyrgð Guðmundur H. Garðarsson' (S/Rvk) kvaðst vera sammála þeim skilningi Skúla að í umræðu á Al- þingi hefði verið út frá því gengið að samningur landanna tryggði veiðiheimildir. „Abyrgð ríkisstjómar- innar er mikil í þessu máli og er það krafa Alþingis að fá það upplýst á hvaða heimildum ráðherrar hefðu grundvallað sínar ákvarðanir." Taldi Guðmundur hugsanlegt að viðkom- andi fyrirtæki ætti bótakröfur á hendur ríkinu vegna þessa. Að lokum vakti Guðmundur sérstaka athygli á þeirri fullyrðingu eins stjórnarþing- manns að ríkisstjórnin hefði beitt Alþingi blekkingum. Jón Baldvin tók aftur til máls og tók það fram að umræddur ramma- samningur tryggði hvorki vinnslu-. r né veiðikvóta, heldur fæli samningur- inn í sér heimild til þess að sækja um kvóta. Gat Jón þess að lögfræði- legur ráðgjafi útgerðarfyrirtækisins hefði' varað fyrirtækið við því að tækist því ekki að nýta kvótann 1989, væri hætt við að ekki fengist úthlutun fyrir 1990. Fyrirtækinu var þetta allt ljóst og því er ekki hinn minnsti fótur fyrir ábyrgð stjórn- valda eða bótaábyrgð." Einnig gat Jón þess að einn aðili fyrirtækisins hefði sagt sig úr félaginu, vegna þess að hann taldi samninginn ekki - fela í sér neinar heimildir. „Þetta er ekki til að auðvelda rekstur málsins, heldur skaðar þetta hann.“ Brot ráðherra á jafiiréttislögum síðan 1976: Svavar Gestsson sá brotlegi í þremur tilvikum af fj órum JAFNRÉTTISRÁÐ hefiir fjórum sinnum frá því að það var sett á lág- girnar úrskurðað að ráðherrar hafi við stöðuveitingar brotið gegn ákvæðum jafnréttislaga. í þremur af þessum tilvikum hefur verið um að ræða stöðuveitingar í ráðuneyti Svavars Gestssonar. Þetta kom fram í svari félagsmálaráðherra við fyrirspurn Geirs H. Haarde (S/Rvk). Steingrímur J. Sigfússon sam- gönguráðherra greindi frá því að hann hefði á sínum tíma óskað um- sagna frá utanríkis- og sjávarútvegs- ráðuneytinu vegna leyfisveitingar- innar. Steingrímur las umsagnir ráðuneytanna. Umsögn sjávarút- vegsráðuneytisins var svohljóðandi: „Á árunum 1983 og 1984 lagði ráðuneytið í allverulegan kostnað til þess að koma á samningi milli ríkis- stjórna íslands og Bandaríkjanna um nýtingu fiskveiði- og fiskvinnslu- heimilda í bandarískri fiskveiðilög- sögu. Samningar tókust en því miður hafa íslensk skip ekki nýtt sér þá möguleika sem þessi samningur opn- aði eins og menn hafa gert sér vonir um. Síðastliðin tvö ár hafa nýir aðilar tekið málið upp að nýju og reynt að koma af stað útgerð verksmiðjuskips undan ströndum Alaska. Á síðasta ári fengu þessir aðilar úthlutað 40.000 tonna þorskkvóta af fiskveið- iráði Alaska. Þessa úthlutun reyndist ekki unnt að nýta þar eð áform um viðeigandi vinnsluskip brugðust. Nú hefur samsvarandi kvótaúthlutun verið endurnýjuð fyrir árið 1989 sem er síðasta gildisár fyrrgreinds rammasamnings. Sjávarútvegsráðu- neytið hefur veitt lítilsháttar styrk til þessa verkefnis, auk þess sem ráðuneytið hefur leitast við að að greiða fyrir framgangi þess, m.a. í samvinnu við sendiráð íslands í Was- hington. Ráðuneytið telur því mjög þýðing- armikið að íslendingar reyni að nýta sér þá möguleika sem þarna eru fyr- ir hendi með samstarfi við banda- ríska aðila og skapi sér þannig ein- hveija reynslusögu áður en samning- urinn gengur út og kemur til endur- skoðunar. Ráðuneytið mælir því ein- dregið með að flutt verði frumvarp um að heimilt verði að taka „AR- AMO“ á íslenska skipaskrá, enda fullnægi það þeim reglum, sem gera þarf til búnaðar skips.“ Ráðuneytið vill þó jafnframt leggja áherslu á, að skip þetta mun aldrei undir nokkrum kringumstæðum fá leyfi til að veiða eða til vinnslu sjáv- arafla í íslenskri fiskveiðilögsögu." Umsögn utanríkisráðuneytisins var svohljóðandi: „Utanríkisráðuneytið, fyrir sitt Fyrirspurn Geirs var svohljóðandi: „Til hvaða ráðstafana hyggst félags- málaráðherra, sem ráðherra jafnrétt- ismála, grípa í framhaldi af því að Jafnréttisráð hefur tvívegis á stutt- um tíma kveðið upp þann úrskurð að menntamálaráðherra hafi brotið ákvæði laga um jafna stöðu og jafn- an rétt kvenna og karla?“ Geir fylgdi fyrirspurn sinni úr hlaði og sagði hann í upphafi ræðu sinnar að núverandi félagsmálaráðherra væri kunnur baráttumaður fyrir jafn- rétti. Núverandi menntamálaráð- herra væri hins vegar sá ráðamaður sem oftast hefði brotið gegn jafnrétt- islögum. „Er það sérlega athyglis- vert í ljósi þess að þar er á ferð fyrr- verandi formaður þess flokks sem hvað hæst hefurtalað um jafnrétti." Geir benti á að í tíð sinni sem heilbrigðisráðherra hefði Svavar Gestsson verið talinn af Jafnréttis- ráði hafa brotið ákvæði jafnréttis- laga, er hann úthlutaði lyfsöluleyfi á Dalvík. „Þáverandi þingmaður Jó- hanna Sigurðardóttir gekk þá vask- lega fram og gagnrýndi ráðherrann harkalega." Nú væri þáverandi heil- brigðisráðherra menntamálaráð- herra og hefði hann afrekað það á stuttum ferli að fá á sig tvo úr- skurði Jafnréttisráðs um brot á jafn- réttislögum. Fyrri úrskurðurinn hefði verið vegna veitingu embættis skóla- stjóra við einn grunnskóla í Reykjavík og sá síðari vegna veitingu starfs yfirkennara við grunnskóla í Hafnarfirði. „Hver eru viðbrögð æðsta manns jafnréttismála við síendurteknum brotum menntamála- ráðherra?" í svari Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra kom fram að Jafnréttisráð væri sjálfstæð stofnun og ekki væri um að ræða neina málskotsheimild til ráðherra eða heimild ráðherra til að grípa inn í mál. Einu áhrif ráðherra fælust í mótun framkvæmdaáætlunar jafn- réttismála. Jóhanna greindi frá því að frá því að lögin um Jafnréttisráð hefðu ver- ið sett 1976 hefðu fjórir úrskurðir gengið í Jafnréttisráði um brot ráð- herra á jafnréttislögum við embætti- sveitingu. Fyrsta tilvikið var við veit- ingu lyfsöluleyfis á Daivík, en þá var Svavar Gestsson heilbrigðisráðherra. Annað tilvikið var skipan í lektors- stöðu í heimspekideild Háskóla ís- lands, en þá var Sverrir Hermanns- son menntamálaráðherra. Þriðja til- vikið var setning í stöðu skólastjóra við Ölduselsskóla og fjórða tilvikið skipan í stöðu yfirkennara í Víði- staðaskóla. í báðum tilvikum var um að ræða embættisfærslur núverandi menntamálaráðherra. Jóhanna sagði að í síðarnefndum tveimur málum hefðu engar óskir komið fram frá Jafnréttisráði um aðgerðir af hálfu ráðuneytisins, né hefðu þeir sem kært hefðu embættis- færslurnar viljað fylgja málum sínum eftir fyrir dómstólum. Ráðherra gerði grein fyrir því að verið væri að vinna að frumvarpi til nýrra jafnréttislaga. Þar væri gert ráð fyrir sérstakri kærunefnd og samkvæmt frumvarpinu yrði vinnu- veitandi að sanna að hann hefði ekki brotið gegn jafnréttislögum, teldi aðili á sér brotið. Geir H. Haarde taldi svar ráðherra formlega og lagalega rétt og eðli- legt; hér væri hins vegar meiri spum- ing um pólitíska hlið málsins. Félags- málaráðherra væri kunnur fyrir það að gi’ípa til ýmissa úrræða til að ná sínu fram eða þegar sér væri mis- boðið. Sagðist Geir „harma það að Jóhanna ætli að sitja þegjandi í ríkis- stjórninni með manni sem marg- brýtur jafnréttislög“. Svavar Gestsson menntamála- ráðherra sagði að Jafnréttisráð hefði í úrskurðum sínum farið inn á nýjar brautir, þar sem neitað hofð\_ verið að taka tillit til annarra að- stæðna. „Ef maður les úrskurði Jafn- réttisráðs sér maður að úrskurðirnir eru ekki byggðir á sömu meginfor- sendum og úrskurðir um aðra aðila.“ Svavar taldi og rétt að litið væri á heildarstöðuna í viðkomandi stétt; jafnræði væri með kynjum í yfir- kennarastétt og konur væru í sífelldri sókn í skólastjórastétt. Birgir ísleifur Gunnarsson (S/Rvk) taldi þessa lögskýringu menntamálaráðherra mjög sérkenni- lega; ef staða kvenna væri þokkaleg í viðkomandi starfsstétt, þá mætti brjóta lögin. Birgir kvaðst hafa orðið fyrir vonbrigðum með svar félags- málaráðherra, sem hefði ekkert verið nema lestur úr lögum; annað héfði verið upp á teningnum þegar hún hafi verið óbreyttur þingmaður. Sólveig Pétursdóttir (S/Rvk) átaldi menntamálaráðherra fyrir að gefa slæmt fordæmi, þar sem hann ætti að heita æðsti maður jafnréttis- fræðslu í grunnskólum landsins. GEIR H. HAARDE: Jafnréttismálaráðheri a situr þegjandi undir lögbrotum mennta- málaráðherra. JÓHANNA SIGURÐ- ARDÓITIR: Get ekki beitt mér í ein- stökum málum sem stríða gegn jafnréttislög- um. SVAVAR GESTSSON: Úrskurðir Jafnréttis- ráðs rangir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.