Morgunblaðið - 26.01.1990, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 26.01.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990 29 Að feta nýjar slóðir Danson og Rossellini i gamanmyndinni Innan Qölskyldunnar. Teygt á flöl- skylduböndunum Kvikmyndir Amaldur Indriðason Innan fjölskyldunnar („Cous- ins“). Sýnd í Háskólabíói. Leik- sljóri: Joel Schumacher. Aðal- hlutverk: Ted Danson, Isabella Rossellini, Sean Young og Will- iam PetersenP Árið 1975 gerði franski leik- stjórinn Jean-Charles Tacchella eina vinsælustu mynd sem komið hefur frá Frakklandi, „Cousin, cousine", sýnd hér undir heitinu Frænka, frændi. Hún var tilnefnd til Óskarsverðlauna. Fjórtán árum seinna endurgerði Holly- wood myndina og afraksturinn er opnunarmyndin í nýjum og rúmgóðum sal Háskólabíós, fal- Iega sjarmerandi og hugljúf róm- antísk gamanmynd. Hollywood leitar gjarnan til Frakka eftir hugmyndum að ást- arsögum og Innan fjölskyldunnar er ein sem tekist hefur ágætlega að yfirfæra á sólríka kalíforníska vísu af leikstjóranum Joel Schumacher. Hún er mjög í gam- ansömum, mildum tón þótt þú rekir sjaldan upp hláturrokur, en það má vera að þú glottir með sjálfum þér mestallan tímann að ástarsamböndunum tveimur í myndinni og fólkinu í kringum þau. Annað er byggt á losta og er fulikomlega innihaldslaust en hitt er öllu alvarlegra, þrungið ást og djúpum tilfinningum en eins og tískan er í dag á vorum eyðnitímum („sex, lies and video- tape“, „When Harry Met Sally“) er kynlíf meira rætt en sýnt. í bakgrunni eru stórar fjöl- skyldur en myndin hefur upphaf og endi í giftingum. í einni gift- . ingunni hittast Larry (Ted Dan- son) og Maria (Isabella Rossell- ini) og kynnast þegar þau eru orðin ein eftir í veislunni af því að konan hans, Tish (Sean Yo- ung), og maðurinn hennar, Tom (William Petersen), skruppu frá að gamna sér dálítið saman. í hefndarskyni taka Larry og Mar- ia að hittast á laun en úr því verður innilegra vináttu- og ást- arsamband en þau reiknuðu með. Eitt það besta við myndina er leikarahópurinn, sérstaklega hin- ar gullfallegu Young og Rossell- ini, sem báðar fara á kostum, Young sem kynbomban Tish og Rossellini sem hin viðkvæma og innilega Maria. Danson hefur ekki áður verið betri í hlutverki danskénnarans Larrys, ró- mantískur og ljúfur og hinn ofsa- fengni Petersen er glimrandi sem hörkutól með samviskubit útaf kvennamálunum. Aukaleikara- hópurinn er einnig með mestum ágætum með hinum hressilega Lloyd Bridges í fararbroddi. 15 manns skipaðir í íslenska málnefiid MENNTAMÁLARÁÐHERRA hefiir skipað íslenska málnefhd, formann hennar og varaformann, til næstu fjögurra ára. Eftir- taldir eiga sæti í henni: eftir Jens í Kaldalóni Það geislar svo himinhvelfingin öll í byijun nýrra hljóma í þeirri kenningu Guðmundar J. Guð- mundssonar dagsbrúnarráðherra, að ef þið fallið fram og tilbiðjið mig, og þann eina og sanna boð- skap, að snúa nú allt í einu öllum kröfum launþega að því háleita hugsjónamarki „að næsta skref þarf síðan að verða það að ganga miklu lengra í niðurfærzluátt ef þetta á ekki allt að fara til andskot- ans, og fjöldi fólks sjái ekki útúr myrkviði skelfingarinnar". Ég segi bara ekkert annað, en mæltu heilastur Guðmundur minn og mætti betur fyrr hafa gert, en betra er seint en aldrei. Þessi mark- verði pistill Guðmundar birtist í dagblðinu Tímanum 16. des. sl. og tek ég heilshugar undir hvert orð er þar stendur, svo sem ég oft hér áður fyrr, margoft, hef fjallað um í blaðagreinum. Ég vildi bara benda sérfræðing- unum okkar, sem svo sig kalla, á að Iesa þessa grein og tileinka sér innihald hennar og innsæi í öllum þeim gerðum sem óumflýjanlegt er útí að fara til bjargar þeim hrelldu sálum sem í dag sjá fyrir engan endir á allri þeirri margslúngnu fábjánagerð í öllu formi, sem hér hefur þróast og viðgengist látin ganga beint og krókalaust útí opinn dauðann. Mér ofbauð, eftir að hafa lesið heila opnu í Morgunblaðinu eftir viðskiptaráðherrann okkar, þar sem haldið er fram að vextir séu ekki verðbólguhvetjandi, og fyrst þurfi verðbólgan að lækka áður en vextir geti lækkað, en raunar voru öll skrifin svo þvoglukennd, að ömur- legt var yfir að fara. En mér of- bauð þó ennþá meira þegar ég sá í blaðagrein eftir seðlabankastjór- ann okkar, þar sem hann heldur Jens í Kaldalóni því fram að afkoma fyrirtækjanna okkar á íslandi sé ekki of háum vöxtum að kenna, heldur því að þau eigi svo lítið af eigin fé í rekstrin- um. Og þarna var hann kominn lif- andi á lægið, eins og gamalt orð- tæki hljóðar. En eigum við þá að láta úr eigin vasa fjármuni í fyrir- tæki, sem fyrirtækið getur enga vexti borgað af. Er þá ekki fýsi- legra fyrir þá sem peninga ættu að leggja þá inná bankareikning og taka þaðan af þeim vextina sem tekjur, fyrir svo utan hitt, að slíkur maður sem seðlabankastjórinn ætti að hafa hugboð um það, að á Is- landi búa ekki margir slíkir auðkýf- ingar að geti snarað út einu togara- verði, hvað þá verkunarstöð og öðru tilheyrandi, og ekki síður hitt að fyrirtækið sem átti 100 milljónir í eiginfjárstöðu tapaði af því 75 millj- ónum á einu ári, þurfti aumingja kallinn að fá eitthvað að láni í stað- inn. En það ætti ekki að þurfa nánd- ar nærri jafn greindan mann og seðlabankastjórinn er, til að vita það, að vextir eru einn sá dýrasti þáttur til gjalda í öllum atvinnu- rekstri hér á landi og þar að auki ætti enginn maður á landinu að vera svo vitlaus, að vita það ekki, að það nær engri átt að þurfa að borga allt uppí hálfa milljón í vexti og verðbætur af aðeins einni lítilli milljón, eða 50 milljónir af 100 milljónum, og þaðan af betur í dráttarvexti, eða ekki langt síðan var 600 þúsund. Verðbætur eru heldur ekkert annað en vaxtakostn- aður, það er sama hvað það heitir, sem reksturinn verður að borga og á hann er lagt til frádráttar tekjum hans. Það eru ekki heldur síður snarvit- lausir menn, sem halda sig geta látið nokkurn mann trúa því, að það þurfi 4.000 manna hóp í ekki stærra landi en hér er, til þess að með- höndla peningamál þjóðarinnar, og þar af 200 manna hóp, eða allt að því í seðlabankanum einum saman, sem ekki átti að þurfa nema 5 menn í því starfi þá er til hans var stofnað, að talið var. En væru þrír hóparnir réttaðir í þremur réttum, bankamenn í einni, sjómenn í ann- arri, og svo bændur í hinni þriðju, þá mætti, þá er út væri talið, ná- kvæmlega jafnstór hópur vera í hverri rétt. En hver er þjóðarfram- leiðslan í bankamannahópnum sam- anborið við síðartöldu hópana tvo, þótt ekki þyki mikið til þeirra koma. Nei, mínir kæru: þarna er þjóðarvit- leysan og plágan í öllu sínu veldi uppmáluð á svo stóra mynd, að ekki nokkur lifandi maður sér nánd- ar nærri út fyrir hana. Hitt er svo líka annað mál, að ekki nokkur maður eða fyrirtæki hafa nokkru sinni gert umbjóðend- um sínum meiri bölvun en verka- lýðsforingjarnir, með því sýknt og heilagt að beijast fyrir eilífum kauphækkunum í verðlausri krónu- tölu, sem ekki síður sýknt og heil- agt hefur svo verið af þeim stolið í öllu formi, og pressast við að gera að engu, í stað þess að pressa á um stöðugleika á verðlagi, vöxtum og öðru því er til nauðþurftar kref- ur. Ekki bara á einum hlut, eins og bílnum forðum, sem deilt var sem meðaltali sem kaupauka á þjóð- ina alla, en þó vitandi vits, að miklu meira en helmingur landsmanna naut engrar hagsældar á bílainn- flutningnum öllum. Það er heldur ekki í kot vísað hjá verkalýðsforingjunum, að ráð- ast á garðinn þar sem hann var, að þeirra mati — hæstur, eða hvað — sem sé bændurna í vor í mjólkur- verkfallinu og svo með haustinu, að bændurnir gætu svosem misst agnarlítinn spón úr askinum sínum, þótt fóðurbætistonnið hafi hækkað úr 17 þúsund kr. tonnið 1987 í 40 þús. kr. tonnið á sl. ári. Áburðurinn um 30%, eða áburðurinn sem fékkst fyrir 200 þúsund kr. 1987 kostaði 260 þúsund 1989. Varahlutir í vél- arnar í þeim dúr, að einn öxull í sláttuþyrlu, sem keypt var sumarið 1987 spánný af nálinni á 65 þúsund kostaði 43 þúsund núna í sumar, eða rétt um '7saf öllu vélarverðinu 1987. Já, þarna fannst þessum bles- suðum öðlingum bitastætt í að bera niður, í baráttu sinni við að reyna að seðja svangan maga þeirra sem lítið höfðu, og þar væri að finna sterkasta bandið til að toga í sér til liðveizlu í erfiðum þrautum bar- áttunnar fyrir betra lífi. En hver skyldi borga 33 milljónir í vextina af 90 milljón króna verzlunarhúsinu í höfuðborginni, ætli að leggjast ekki eitthvað af því á vöruna sem aumingja kaupmaðurinn er að reyna að basla við að selja sér til lífsframfæris, ha, eða hvað? En mínir elskulegu verkalýðs- foringjar, ég veit þið viljið öllum vel, en haf ið stundum tekið skakkan pól í hæðina, en það er mannsefni í þeim sem kunna að rétta áttavit- ann og síðan sigla hið rétta strik að ljómandi landi. Höfundur er bóndi á Bæjum í Snæfjullahreppi. Formaður Kristján Árnason, dósent, tilnefndur af Heimspeki- deild Háskóla Islands, varaform- aður Gunnlaugur Ingólfsson, orða- bókarritstjóri, tilnefndur af Orða- bók Háskólans, Jónas Kristjáns- son, forstöðumaður, tilnefndur af Háskólaráði, Þórhallur Vilmund- arson, prófessor, tilnefndur af Örnefnanefnd, Indriði Gíslason, prófessor, tilnefndur af Kennara- háskóla íslands, Árni Böðvarsson, málfarsráðunautur, tilnefndur af Ríkisútvarpinu, Árni Ibsen, leik- listarráðunautur, tilnefndur af Þjóðleikhúsinu, Arnhildur Arn- aldsdóttir, verkefnisstjóri, tilnefnd af Staðlaráði íslands, Guðrún Egil- son, kennari, tilnefnd af Samtök- um móðurmálskennara, Eyvindur Eiríksson, rithöfundur, tilnefndur af Rithöfundasambandi íslands, Gísli J. Ástþórsson, blaðamaður, tilnefndur af Blaðamannafélagi Islands, Guðrún Kvaran, orða- bókarritstjóri, tilnefnd af Hag- þenki, Álfheiður Kjartansdóttir, þýðandi, skipuð af menntamála- ráðherra án tilnefningar, Heimir Pálsson, útgáfustjóri, skipaður af menntamálaráðherra án tilnefn- ingar, og Sigrún Helgadóttir, rei- knifræðingur, skipuð af mennta- málaráðherra án tilnefningar. Nefndarmönnum fjölgar nú úr 5 í 15. Markmiðið með fjölgun í nefndinni er að efla tengsl milli nefndarinnar og ýmissa stofnana sem hafa mikil áhrif á daglegt mál og tengjast málrækt og mál- vernd. Einnig starfar nú 5 manna stjóm innan málnefndarinnar og hefur forustu fyrir starfsemi henn- ar. Stjórnin beitir sér fyrir einstök- um málræktarverkefnum og ann- ast í umboði nefndarinnar og í samvinnu við málstöðina af- greiðslu þeirra mála sem nefndinni berast, segir í frétt frá mennta- málaráðuneytinu. t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, MARGRÉT ÞORLÁKSDÓTTIR, Selsvöllum 3, Grindavík, verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 27. janúar kl. 14.00. Jóhannes Jónsson, Þorlákur Guðmundsson, Álfhildur Jónsdóttir, Kristjana Jóhannesdóttir, Sigvaldi Jónsson, Valgerður Jóhannesdóttir, Pétur Sverrisson, Jón Ingi Jóhannesson Sigurveig Steinþórsdóttir og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, FJÓLMUNDAR KARLSSONAR Guð blessi ykkur öll. Steinunn Helga Traustadóttir, Trausti Bergland, Ásdís Sveinbjörnsdóttir, Fjólmundur Bergland, Sigrún Kristjánsdóttir, Kristín Rut Bergland, Sigurður Kristjánsson, Valbjörg Bergland, Gunnlaugur Steingrímsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eigin- konu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, LOVÍSU JÚLÍUSDÓTTUR. Þórarinn Sigurgeirsson, Júlíus Þórarinsson, María Þórarinsdóttir, Örn Þorsteinsson, Sigurgeir Þórarinsson, Charlotta Ingadóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.