Morgunblaðið - 26.01.1990, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.01.1990, Blaðsíða 21
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990 21 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, StyrmirGunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Áfgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Markmið kjarasamninga Iþeim umræðum, sem að undanförnu hafa farið fram um nýja kjarasamninga á vinnumarkaðnum, virðast menn hafa verið sammála um meginmarkmið slíkra samn- inga, þ.e. að gera samninga, sem stuðli að því að verð- bólgan lækki verulega frá því, sem nú er. Stundum hefur verið talað um núlllausn í þessu sambandi og er þá átt við að samið verði um mjög lágar Jiauphækkanir. Nú er auðvitað öllum ljóst, að það verður mjög erfitt fyr- ir forystumenn verkalýðs- hreyfingarinnar að gera slíka samninga. Ástæðan er ein- faldlega sú, að kjaraskerðing- in hjá launafólki er orðin mjög mikil á síðustu 18 mánuðum eða svo. Þess vegna verður það ekki létt verk fyrir for- menn verkalýðsfélaganna að koma á félagsfundi með fé- lagsmönnum sínum og sann- færa þá um að skynsamlegt sé að gera nú samninga á lág- um_ nótum. Á hinn bóginn er hægt að færa sterk rök fyrir slíkri samningagerð. í fyrsta lagi vita launþegar af langri reynslu, að kjarasamningar, sem byggjast á kauphækkun- um, sem ekki er til fyrir, valda nýrri verðbólguöldu og að verðlag hækkar samstundis, þannig, að kauphækkunin er horfin nánast strax. Þess vegna m.a. er áreiðanlega hljómgrunnur fyrir því hjá launafólki að prófa nú annars' konar samninga og sjá, hvort þeir skila ekki betri árangri í raun. í annan stað mundi stórm- innkandi verðbólga þýða stór- lækkun vaxta og verðbóta af húsnæðislánum launþega. Veruleg lækkun nafnvaxta er ígildi mikillar kauphækkunar fyrir marga launamenn. í þriðja lagi er atvinnuástand ótryggt og augljóst, að veru- leg minnkun verðbólgu stuðl- ar að því, að atvinna aukist á ný. Þessi rök og fjölmörg önn- ur er hægt að færa fram fyr- ir því, að það sé skynsamlegt frá sjónarhóli verkalýðshreyf- ingarinnar að gera kjara- samning, sem byggir á núll- lausn. í ummælum talsmanna verkalýðsfélaganna síðustu daga hefur þess gætt nokkuð, að þeir telji óhjákvæmilegt, að ríkissjóður taki á sig um- talsverð útgjöld til þess að greiða fyrir kjarasamningum af þessu tagi. Hefur jafnvel verið talað um, að ríkissjóður yrði að taka á sig útgjöld, sem nemi allt að einum milljafði króna í þessu skyni. Hér er ástæða til að staldra við. Það hefur auðvitað enga þýðingu að gera kjarasamninga á lág- um nótum, ef þeir kosta í raun mun meira en samningurinn sjálfur segir til um, vegna kröfugerðar samningsaðila á hendur ríkisvaldinú. Þeir, sem samningana gera mega ekki vinna gegn markmiðum samninganna með óraunhæfri kröfugerð á hendur ríkisvald- inu. Þrátt fyrir gifurlegar skattahækkanir á undanförn-' um árum hefur ríkissjóður verið rekinn með miklum halla. Ein helzta ástæða þess er sú, að hveijum fjármála- ráðherranum á fætur öðrum, svo og Alþingi, hefur mis- tekizt að ná tökum á útgjalda- aukningunni frá ári til árs. Ef nú yrðu gerðir kjarasamn- ingar, sem byggðust á stór- felldum framlögum úr ríkis- sjóði, sem ekki er til fyrir, mundu slíkir samningar vinna gegn þeim markmiðum, sem að er stefnt. Þess vegna er það rétt afstaða hjá ríkis- stjórninni að hafna slíkum útgjöldum. Fari samningar út um þúf- ur af þessum ástæðum mun ^það skapa mikla óánægju meðal almennings. Nú er jarð- vegur fyrir kjarasamninga á lágum nótum. Fólk bindur nú þegar ákveðnar vonir við slíka samninga og þann árangur í efnahags- og atvinnumálum, sem fylgja mundi í kjölfar þeirra. Vonbrigðin yrðu gífur- leg, ef þær samningaviðræð- ur, sem nú standa yfir, rynnu út í sandinn. Þess vegna er sú' ábyrgð, sem á samninga- mönnum hvílir, mikil. Þeir mega ekki freistast til þess að hvika frá márkmiðum sínum með því að Ieggja út- gjöld á ríkissjóð, sem mundu stuðla að nýrri verðbólguöldu. AF INNLENDUM VETTVANGI ÞÓRHALLUR JÓSEPSSON Mengun vegna úrgangsolíu: Allri úrgangsolíu úr skip um ber að skila á land Ný endurvinnslustöð að taka til starfa SAMKVÆMT reglugerðum um mengunarvarnir er stranglega bannað að losa olíu í sjó við ísland. Þau ákvæði eru hvorki háð stærð skipa né gerð. Af því leiðir að alla olíu, sem losa þarf úr skipunum, ber að setja á land. Og þá þarf að vera aðstaða í landi til að koma olíunni fyrir. Einhver misbrestur virðist vera á að olíuúrgangi sé komið fyrir á viðeig- andi hátt, því að Siglingamálastofhun áætlar að allt að 1.600 tonn af úrgangsolíu fari í sjóinn hér við land árlega frá skipum. Við athugun Morgunblaðsins kom í ljós að yfirleitt er móttökuaðstaða í einhverri mynd í höfnum landsins. Olíufélögin taka við úrgangsoliu og Skeljungur hf. er I þann mund að taka í notkun endurvinnslustöð fyrir úrgangs- olíu. Helsta mengunarhættan vegna úrgangsolíu virðast vera tvíþætt, annars vegar vegna olíumengaðs kjölvatns minni skipa, hins vegar olíu- síur, sem eru gegnsósa af olíu þegar þeim er fleygt. Til eru reglur um sérstakan bún- að skipa til að koma í veg fyrir að úrgangsolía lendi í sjónum. Skipin eiga að hafa geyma fyrir olíuna, leiðslur og dælur til.að koma henni frá sér og sérstakar skiljur til að skilja olíu úr kjölvatninu. Sá hængur er á, að reglugerðin með þessum ákvæðum nær einungis til skipa yfir 400 brúttórúmlestum að stærð, 300 lestum ef um nýsmíði er að ræða. Þegar skipin eru minni, reynir því á að mennimir sjálfir gæti að olíumenguninni. Misjöfii aðstaða Aðstaða manna til að koma kjöl- vatni á land er misjöfn. í stærri höfnum er aðstaðan fyrir hendi, á höfuðborgarsvæðinu er hægt að fá soranum dælt upp á tankbíl, annars staðar verða menn að koma honum frá sér með þeim búnaði sem er í skipunum, ef hann er þá fyrir hendi. Ekki dugir alltaf að hafa aðstöðu í landi ef skipið er á sjó. Það getur hæglega gerst, að beinlínis verði að lensa, vegna þess að sjór er far- inn að standa hátt í skipinu. Sé ekki olíuskilja um borð, neyðast menn til að láta þá olíu sem farið hefur í kjölvatnið fara með, þegar dælt er upp úr kilinum. Móttökuaðstaða í landi virðist alls staðar vera einhver, þótt með misjöfnu 'lagi sé. Við athugun á nokkmm smærri höfnum kom í ljós, að væri ekki sérstök aðstaða, var alls staðar hægt að losa sig við úrgangsolíu í tunnur, sem umboðs- menn olíufélaganna sjá um. Tunnur og brúsar Hér skal tekið dæmi frá fimm sjávarplássum. J Ólafsvík eru tunn- ur á bryggjunum og hafa verið í nokkur ár. Stærri bátamir losa olí- una venjulega beint í tunnurnar. Trillukarlarnir koma með olíuna í plastbrúsum og setja venjulega í sorpkassa, þaðan fer sorpið og olían með á bæjarbálið svokallaða, eða sorpbrennsluna. „Það er góður andi í mönnum varðandi þetta mál. Sjái þeir olíubrák í höfninni eru þeir óðara famir að þefa uppi hvaðan mengunin kemur,“ segir fréttaritari Morgunblaðsins á staðnum. Á Tálknafirði er höfnin ákaflega viðkvæm fyrir allri mengun, segir fréttaritari. Höfnin er mjög lokuð og þar eru laxeldiskvíar. Svo vill til að eigendur laxeldisins eru jafn- framt eigendur báta á staðnum og því ákaflega varkárir með alla meðferð olíu, þar sem mengun stofnar laxeldinu í hættu. Á Skagaströnd er tankur á bryggjunni og mikið notaður. Hafn- arvörður sér um tankinn og losun hans. Aðstaðan er notuð jafnt af heimabátum sem aðkomubátum, og fréttaritari veit til að þegar rækju- bátar frá Skagaströnd fara í aðrar hafnir nota þeir tanka sem þar em. Á Siglufirði em skipunum færðar tunnur þegar losa þarf olíuúrgang og þær síðan f luttar suður. A Raufarhöfn er sama aðferð notuð, en olían yfirleitt sett í sorp- brennsluofninn og brennd þar. „Þetta er oft mikið umstang, menn eru að koma með þetta til olíuaf- greiðslumannsins í smábrúsum margir hveijir,“ segir fréttaritari. Opinbert eftirlit Reglugerðirnar segja að olíufé- lögin skuli taka við úrgangsolíu, einnig að þar sem gert er við skip, til dæmis í slipp, skuli vera aðstaða til að taka við olíunni. Þá eru til reglur í samræmi við alþjóðlegar reglur um mengunarvarnir í höfun- um sem Alþjóða siglingamálastofn- unin setur, um að í stærri skipum skuli haldnar svokallaðar olíudag- bækur. Öll skip sem sigla til er- lendra hafna verða að hafa slíkar bækur. í þær er fært daglega hvaða olía er tekin um.borð, hvernig hún er notuð og hvað verður um úr- gangsolíu. I höfnum skoða eftirlits- menn bækurnar og geta séð, hvort á vantar að gerð sé grein fyrir ein- hveijum hluta olíunnar. Þegar úr- gangsolía er tekin á land, kvittar móttakandinn fyrir og þannig er vottað að þeirri olíu hafi ekki verið dælt í sjóinn. Menn frá Siglinga- málastofnun kanna dagbækur er- lendra skipa sem hingað koma. Yerðmætur úrgangur Þótt hér hafi verið rætt um úr- gangsolíu, er þó ekki að öllu leyti Sem betur fer hafa íslendingar sloppið við oliumengunarslys eins og það sem þessi mynd sýnir. En, margt smátt gerir eitt stórt og ef allri úrgangsolíu, sem áætlað er að far i árlega í sjóinn hér við land, væri safnað á einn stað yrði sá staður ekki ólíkur þessum. um úrgang að ræða, Talsverðan hluta má nota og það hefur verið gert um langan aldur. Hjá olíufélög- unum hefur úrgangsolía verið sett á setgeyma og eftir að föst óhrein- indi hafa sest á botninn og vatni hleypt undan er olíunni brennt, til dæmis í kyndistöðvum félaganna sjálfra. í úrgaingsolíunni eru því verðmæti. Einn aðili, Jón Ágústs- son, hefur um nokkurra ára skeið rekið eigið fyrirtæki til að safna saman úrgangsolíu og selt hana aftur. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að hann tæki bæði úr skipum og frá smurstöðvum og fer um Suðurnes, höfuðborgar- svæðið og allt til Borgarness. Til þess hefur hann tankbíl. í sumum tilvikum tekur hann gjald af þeim sem þarf að losna við olíuna fyrir þjónustuna sem hann veitir, en ekki þegar auðvelt er að ná oh'unni eins og þegar tekið er beint af vélum skipanna. Hann hóf þennan rekstur fyrir um fimm árum og seldi upp- haflega til fiskimjölsverksmiðja, sem notuðu olíuna til kyndingar. Síðan seldi hann til olíufélaganna, einkum OIís og Skeljungs. Hann segir umsvifin duga til að halda fyrirtækinu gangandi. Endurvinnslustöð Úrgangsolían er ágætt eldsneyti fyrir þar til gerða brennara í kyndi- stöðvum, eftir að vatn hefur verið skilið frá henni og gróf óhreinindi. Hún getur því skilað olíufélögunum til baka einhveijum kostnaði sem þau leggja út í við söfnun hennar. Hjá Skeljungi fengust þær upplýs- ingar, að fyrir nokkru hefði verið settur á laggirnar starfshópur til að leysa þann vanda sem úrgangs- olían skapaði. Skipulagt var mót- töku- og f lutningakerfi til að koma olíunni utan af landi til Reykjavíkur og síðan var ákveðið að koma á fót endurvinnslustöð fyrir þennan úr- gang. „Það var orðið mikið og vaxandi magn sem við þurftum að taka á móti og af þeim sökum var farið út í að setja upp skiljubúnað," segir Bjarni Snæbjörn Jónsson markaðs- stjóri Skeljungs. Hann segir að væntanlega verði þessi búnaður kominn í gagnið á næstu tveimur til þremur vikum. Olían verður sett á setgeymi og þaðan fer hún um kerfi leiðslna og geyma um skilju, sem skilur vatn, sjó og föst óhrein- indi úr henni. Eftir það hentar olían betur í kyndingar og verður að hluta notuð hjá félaginu sjálfu, en af- gangurinn seldur til brennslu í kyndistöðvum. í sumum stærri skipum er úr- gangssmurolía af vélum einnig end- umýtt. Þá er hún sett á sérstaka geyma í skipunum og síðan notuð sem eldsneyti á aðalvélina. Þetta er hægt á þeim skipum sem eru með vélar gerðar fyrir svartolíu- brennslu og er gert til dæmis á skipum Hraðffystistöðvarinnar í Reykjavík, Engey og Viðey, að sögn Birgis Berndsen yfirvélaeftirlits- manns Hraðfrystistöðvarinnar. „Við emm í mestum vandræðum með að losna við það sem ekki er olía, mold og drullu sem kemur úr þessari svartolíu sem við brennum," segir Birgir. Sá úrgangur er olíu- mengaður, en ekki hægt að brenna honum. Sömu sögu er að segja annars staðar, mestu vandkvæðin koma í ljós þegar föst óhreinindi eru eftir. Þau eru ávallt fyrir hendi í óhreinni olíu, til dæmis botnfall í tönkum, það sem skilst frá í skil- vindum og það sem kemur með kjölvatni úr skipum, svo að dæmi séu tekin. Ekki er fyrir hendi sér- stök aðstaða hér á landi til að taka við slíkum úrgangi og hefur hann meðal annars verið urðaður í sam- ráði við sorpeyðingaryfirvöld á Reykj avíkurs væðinu. Hugsanlega verður ráðin bót á þessu á næstunni, Morgunblaðinu er kunnugt um einn aðila sem kann- ar möguleika á að afla búnaðar til að taka við þessum fasta olíuúr- gangi, pakka honum og senda utan til eyðingar. Þessi aðili sagði í sam- tali að engin niðurstaða væri enn fengin, en meðal annars þarfnast hann samstarfs við öll olíufélögin til að þessi starfsemi geti orðið að veruleika. Olíusíur til vandræða Enn er ein mengunarleið sem olían getur farið eftir út í umhverf- ið og er til vandræða í sumum tilvik- um. Birgir Berndsen benti á, að einnota olíusíur eigi sér hvergi far- veg í því mengunarvarnakerfi sem komið hefur verið upp vegna skipa. Nokkrum sinnum á ári er skipt um síumar, þær eru gegnvættar olíu- og innihalda í sumum tilvikum ein- hvem olíudreitil að auki. Á skipavél- um tekur hver sía nokkra lítra og því getur verið um nokkur hundmð eða þúsund lítra að ræða á ári, sem fara eftir þessum farvegi út í um- hverfið, á landi eða sjó. Þá eru ótaldar olíusíurnar sem koma úr bílum og vinnuvélum og innihalda venjulega um hálfan lítra hver eða meira. Miðað við að í hveijum bíl sé skipt um síu tvisvar á ári, fer því talsvert magn af olíu út í um- hverfið eftir þessari leið, bílar á landinu eru um 140 þúsund. Tvær brotalamir Hér hefur athyglinni verið beint að þeim þáttum mengunarvarna, sem í flestum tilvikum er á valdi manna að fylgja fram. Mengunar- slys era annars eðlis og verða ekki rædd í þessari grein. Niðurstaða þeirra athugana sem gerðar voru vegna þessara skrifa er sú, að brotalamir mengunarvarna, hvað varðar mengun vegna úrgangsolíu; eru einkum tvær. Reglur vantar um búnað skipa undir 400 lestum til að halda til haga allri úrgangsolíu sem til fellur um borð, en þær munu vera í smíðum. Þetta þýðir að stærsti hluti bátaflotans er að þessu leyti seldur undir hirðusemi þeirra manna, sem umgangast skip- in og stjórna þeim. Þá á olían sér farveg út í umhverfið með olíusíum, sem falla til í tugþúsundatali á hveiju ári. ítarlegar reglur um búnað eru um stærri fiskiskip, öll farskip og olíuskip yfir 155 lesta stærð. Olíu- dagbækur gefa yfirvöldum mögu- leika á að fylgjast með innlendum sem erlendum skipum. Olíufélögin taka við úrgangsolíu og endurnýta. Enginn veit með vissu hve mikil úrgangsolía fer í sjóinn hér við land, Siglingamálastofnun giskar á um 1.600 tonn. Erfitt er að henda reið- ur á hve mikið ætti að falla til og hve mikið skilar sér af olíunni. Ástæðurnar eru meðal annars að mikill hluti þess sem safnað er sam- an er vatnsblandað, misjafnlega langur tími er milli endumýjunar vélaolíu í bátum, einhveiju er brennt um borð og fleira mætti telja. Hvort sem reglur gilda eða ekki um sérstakan búnað skipa eða mannvirkja í landi, stendur þó sú regla óhögguð, að stranglega er ‘bannað að losa olíu í sjó hér við land. Af þeim sökum getur í reynd enginn skotið sér undan ábyrgð í þeim efnum, með því að vitna í að reglur vanti um dælur og skiljur. Thatcher býð- ur til viðræðna eftir EyjólfKonráð Jónsson Forsætisráðherra Breta hefur nú í fyrsta skipti boðið íslendingum til viðræðna um Hatton-Rockall-svæð- ið en fram að þessu höfum við allt- af þurft að sækja á um þær. Margr- et Thatcher segir í lok svarbréfs síns til Steingríms Hermannssonar: „ ... við eram mjög fús (very will- ing) að halda áfram viðræðum milli Bretlands og íslenskra sérfræðinga í lögum, sem byijuðu fyrir nokkram árum. Ef þér erað því sammála að þetta gæti verið gagnlegt til að færast nær viðfangsefninu mundi sendiherra yðar ef til vill setja sig í samband við breska utanríkisráðu- neytið. Yðar einlæg, Margret Thatcher.“ Vinsamlegra gat boð þetta varla verið. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra getur verið ánægður með þennan árangur af bréfaskipt- um sínum við forsætisráðherra Breta og orðsendingum sem hann hefur sent, enda er málið nú komið í æskilegan farveg eftir langa og stranga baráttu. Að sjálfsögðu halda Bretar enn við kröfur sínar um eignarrétt í svæðinu nákvæmlega á sama hátt og við og Danir fyrir hönd Færey- inga. Það er fyrst með viðræðum á borð við þær sem nú er boðið upp á sem vænta má að menn geti ver- ið um það „sammála að þetta gæti verið gagnlegt til að færast nær viðfangsefninu (agree that this would be a useful approach)." Hitt er líka skiljanlegt að Bretar telji óþægilegan tíma nú til að hefja fjögurra ríkja viðræður þar sem írar hafa alltaf verið tregir til að ræða við okkur, enda réttur þeirra til svæðisins hæpnastur, en Bretar sömdu við þá í fyrra um að fram- lengja skiptilínu, svokallaða jafn- lengdarlínu, milli landanna út á svæðið, við kátlegar yfirlýsingar breska utanríkisráðherrans sem áhugamenn minnast. En fyrir um það bil hálfum öðram áratug höfðu Irar og Bretar samið um að gerðar- dómur skyldi fjalla um þau mál. Frá því var sem sagt horfið góðu heilli og þessum þröskuldi rutt úr vegi, enda bentum við í sendinefnd íslands á hafréttarráðstefnunni á að hæg væra okkur heimatökin að semja við Færeyinga um gerðardóm um sama svæðið! Hins er líka að geta að ótal ótal úrræði eru til önnur en fjögurra ríkja viðræður. En a þær bentum við vegna þess að merkur breskur fræðimaður, dr. Clive Symmons prófessor, hafði lokið athyglisverðri grein sinni um málið með því að leggja til að efnt yrði til fjórhliða viðræðna. Besta úrræðið er sjálfsagt það sem Bretar stinga upp á, enda ljóst að íslendingar og Færeyingar hafa fulla samstöðu, og írar velja þá síðar hvort þeir koma til viðræðna. Önnur úrræði era m.a. gerðardóm- ur, meðferð fyrir einhveijum al- Eyjólfur Konráð Jónsson „Er málið nú komið í æskilegan farveg eftir langa og stranga bar- áttu.“ þjóðadómi, dómstólnum í Haag, dómi á vegum SÞ eða eftir reglum hafréttarsáttmálans — eða það sem æskilegast og skemmtilegast væri, að semja á síðara stigi um sátta- nefnd eins og við seinni lausn Jan Mayen-málsins 1981 um sameign að hafsbotninum. Það úrræði vakti t.d. mikla athygli á merkri ráð- stefnu í London í júlímánuði í fyrra þar sem Islendingar kynntu þá lausn og málið allt fyrir fræðimönn- um víða aðjír veröldinni. Höfundur er einn nfþingmönnum Sjálfstæðisflokksins í Reykja vík. Stefáni Herði Grímssyni veitt Islensku bókmenntaverðlaunin ÍSLENSKU bókmennta- verðlaunin, sem voru veitt í fyrsta skipti í gær, komu í hlut Steíans Harðar Grímssonar skálds fyrir ljóðabók hans Yfír heiðan morgun. Stefán Hörður sagði við blaðamann Morg- unblaðsins skömmu eftir úthlutunina á Kjarvalsstöð- um í gær, að hann hefði ekki mikið um þetta að segja. Og þegar hann var spurður hvort hann væri ánægður með verðlaunin sagði hann: „Mér fínnst þetta ágætt, en ekki fyrir hönd félaga minna.“ Það var forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, sem afhenti Stefáni Herði verð- launin eftir að hafa Iesið upp bréf frá dómnefndinni, þar sem hún skýrði frá niðurstöðu sinni. Fimm voru í dómnefnd: Snorri Jónsson fulltrúi Alþýðusam- bands Islands, Einar Bjarnason tilnefndur af Bandalagi starfs- manna ríkis og bæja, Pétur Gunnarsson frá Rithöfunda- sambandi íslands, Ástráður Eysteinsson, sem tilnefndur var í dómnefnd af embætti for- seta og Gylfi Þ. Gíslasson, for- maður nefndarinnar, fyrir hönd Morgunblaðið/RAX Vigdís Finnbogadóttir aflienti Stefáni Herði Grímssyni rithöfundi Islensku bókmenntaverðlaunin. í bak- sýn er Hamrahlíðarkórinn, en hann söng við afhendinguna. Félags íslenskra bókaút- gefnada. „Dómnefndin var sammála um valið,“ var það eina sem formaðurinn vildi láta hafa eftir sér um niðurstöðu nefndarinnar. Jón Karlsson, formaður Fé- lags íslenskra bókaútgefenda, sagði í ávarpi sínu til gesta áður en verðlaunin voru afhent að tilgangur íslensku bók- menntaverðlaunanna væri styrkja stöðu íslenskra bóka, efla vandaða bókaútgáfu, auka umfjöllun um bókmenntir í fjöl- miðlum og hvetja almenna les- endur til umræðna um bók- menntir. Tilkynnt var um að tíu bæk- ur hefðu verið tilnefndar til íslensku bókmenntaverðlaun- anna á 100 ára afmælishátið Félags íslenskra bókaútgef- enda þann 5. desember síðast- liðinn. Fyrir utan ljóðabók Stef- áns Harðar Grímssonar, Yfir heiðan morgun" sem hlaut verðlaunin, voru tilnefndar skáldsaga yigdísar Grímsdótt- ur Ég heiti ísbjörg - ég ér ljón, Fransí biskví eftir Elínu Pálma- dóttur, Fyrirheitna landið eftir Einar Kárason, Götuvísa gyð- ingsins eftir Einar Heimisson, íslensk orðsifjabók eftir Ásgeir Blöndal Magnússon, Náttvíg eftir Thor Vilhjálmsson, Nú eru aðrir tímar eftir Ingibjörgu Haraldsdóttir, Snorri á Húsa- felli eftir Þórunni Valdimars- dóttur og Undir eldfjalli eftir Svövu Jakobsdóttur. Til íslensku bókmenntaverð- launanna var veitt fjárhæð að upphæð einni milljón íslenskra króna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.