Morgunblaðið - 26.01.1990, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.01.1990, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990 Minning’: Ólafur Ásgeirsson sagnfræðingur Fæddur 5. september 1956 Dáinn 16. janúar 1990 Að hugsa um Ólaf Ásgeirsson í þátíð er býsna fj'arlægt. Hann stendur manni svo ljóslifandi fyrir hugskotssjónum; stór og stæðileg- ur, kraftmikill og hiklaus, stað- fastur og röggsamur, glaðlyndur, skrumlaus, einlægur og hugmynda- ríkur — góður félagi í leik og starfí. Nú er hann allur, aðeins 33 ára að aldri. Minningamar leita á hugann. Og stundimar með honum verður maður ævinlega þakklátur fyrir. Þær voru mikilvægar. Ólafur var óvenjulegur maður, þræddi ótroðnar slóðir. Hann settist á skólabekk í Garðyrkjuskóla ríkis- ins í Hveragerði og lauk þaðan prófi árið 1976. Ekki leið á löngu uns hann hóf sjálfstæðan rekstur á því sviði í Reykjavík. Að garðyrkju starfaði hann síðan ætíð ötullega. Þar naut hann sín vel, hafði „græna fingur“ og yndi af að skipuleggja garða — unun af að skapa. Jafn- hliða garðyrkjustörfunum hélt hann áfram námi, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1981 og innritaðist í sagnfræði við Háskóla íslands um haustið. Þrátt fyrir miklar annir sóttist hon- um sagnfræðinámið vel og lauk BA-prófi í þeirri grein vorið 1984. Og áfram hélt hann. Hugurinn hneigðist í æ ríkari mæli að sagn- fræðirannsóknum. Vorið 1988 brautskráðist hann síðan frá Há- skólanum með cand.mag.-próf í sagnfræði upp á vasann. Þá um haustið lagðist hann í víking til Skotlands með fjölskyldu sinni og hugði á frekara háskólanám og rannsóknir í Edinborg. Þangað átti hann hins vegar ekki afturkvæmt úr jólaleyfi hér heima 1988. Hann lést í Landspítalanum hinn 16. janú- ar sl. eftir erfið veikindi. Leiðir okkar Ólafs lágu saman í sagnfræðináminu við Háskólann. Þar myndaðist samheldinn hópur fólks sem bast traustum vináttu- böndum. í þessum hópi var Ólafur ákaflega mikilvægur. Hann geislaði af orku og hugmyndaauðgi og hafði unun af að ræða um landsins gagn og nauðsynjar, stjómmál á líðandi stund, alþjóðamál, sagnfræði, bók- menntir, heimspeki. Allt milli him- ins og jarðar. I hópnum vógu orð hans þungt og hann kenndi okkur hinum margt. Hvort sem var á kaffistofunni í Árnagarði í hléi milli kennslustunda eða í Norræna hús- inu á laugardagsmorgnum eftir fót- bolta var hann yfirleitt þungamiðja samræðnanna og bryddaði upp á umræðuefnum sem voru hvert öðru áhugaverðara. I kringum hann var aldrei ládeyða. Hann var eldhugi, talaði tæpitungulaust, kom til dyr- anna eins og hann var klæddur, var rökfastur og alltaf reiðubúinn til að skiptast á skoðunum og hug- myndum. Vitaskuld var hann ekki ætíð sammála því sem síðasti ræðu- maður sagði en hann virti skoðanir annarra. í sagnfræðináminu vakti Ólafur athygli fyrir brennheitan áhuga á fræðunum, áhuga sem smitaði aðra nemendur. Hann lét til sín taka í kennslustundum og varpaði iðulega nýju ljósi á þau viðfangsefni sem verið var að taka fyrir. Hann vildi sjá mál í víðu samhengi. Þröngu sjónarhornin voru honum lítt að skapi. í rannsóknum sínum lagði hann óhræddur á brattann, tókst á við goðsagnir, hefðir og venjur í túlkun á Islandssögunni. Áhuginn beindist einkum að sögu íslendinga á 20. öld og heildarþróun íslensks þjóðfélags. Greinar sem eftir hann liggja í blöðum og tímaritum um þjóðfélagsmál og sögu þjóðarinnar á þessari öld bera því glöggt vitni. Hann ritaði m.a. um Ólaf Friðriks- son og „anarkismann" (Ný saga 1987), um Jón Baldvinsson og hlut- verk hans í Alþýðuflokknum og íslenskum stjómmálum á árunum milli stríða (Sagnir 1985 og 1986) og jafnframt um lýðveldisstofnun- ina og afstöðu „lögskilnaðar- manna“ til hennar (Sagnir 1983). Sjálfstæð vinnubrögð, kenningar, tiigátur og hugmyndasmíð ein- kenndu yfirleitt skrif hans. Á því sviði var hann völundur. Hæfileikar Ólafs Ásgeirssonar sem sagnfræðings komu greinilega ,í ljós er bók hans, Iðnbylting hugar- farsins. Átök um atvinnuþróun á íslandi 1900-1940, kom út árið 1988 hjá Menningarsjóði. Bókin vakti mikla athygli fyrir nýja og ferska sýn á íslenska þjóðfélags- þróun á 20. öld og djarfhuga túlkun á henni. I ritinu fjallar hann um og greinir þau átök sem urðu í íslensku samfélagi er sveitamenn- ingin og „gamla samfélagið“ varð að þoka fýrir hinu „nýja samfélagi" þéttbýlis og iðnvæðingar. Hann vildi kanna hugmyndir landsmanna um iðjumenninguna í víðasta skiln- ingi, þá menningu sem iðnbyltingin skapaði, og hvemig þeir töldu mögulegt að temja þau sterku öfl sem knúðu hana áfram. Togstreita þéttbýlis og sveita var honum hug- stæð og hann vildi ýta til hliðar hugtökum eins og „hægri“ og „vinstri", taldi þau villa mönnum sýn og löngu úrelt. Hann vildi horfa á samfélagsþróunina frá nýjum sjónarhóli. Skapa nýja sögu. Og honum tókst vel upp. Ekki aðeins með því að gæða frásögn sína lífi og fanga lesandann, heldur miklu fremur vegna þess _að rannsóknin varpar nýju ljósi á íslandssöguna. í ritdómi um bókina í einu dag- blaðanna sagði prófessor í hagfræði m.a. að rit Ölafs ætti það „sameig- inlegt með öðrum snilldarverkum að hún fær lesandann til að sjá í nýju Ijósi fyrirbæri sem hann taldi sig þekkja ... Vel má vera að fróð- ir menn sjái annmarka á einhveiju sem þar er ritað og vafalaust mun þessi nýstárlega bók vekja deilur, en hún er skrifuð af meiri snilld, hugmyndaauðgi og víðsýni en flest- ir íslenskir höfundar ráða yfir.“ Og í sérfræðitímariti sagnfræðinga sagði m.a. að bók Ólafs hefði „þá ótvíræðu kosti að bera að þar er viðfangsefnið sett fram með djörf- um og ögrandi hætti sem hvetur til áframhaldandi athugana og skoðanaskipta á sviði sögurann- sókna. Árangurinn er metnaðarfullt verk sem vekur margar áleitnar spumingar.“ Þeir sem ætla sér að reyna að skilja og skoða íslenska þjóðfélagsþróun á 20. öld geta ekki gengið framhjá þessari bók. Hún er og verður órækur vitnisburður þess hversu frjór sagnfræðingur Ólafur Ásgeirsson var. Hann var boðberi nýrra strauma í íslenskri sagnfræði og fór ótroðnar slóðir í rannsóknum sínum. í Edinborg hugðist hann leggja grunn að frek- ari könnun á sögu Islendinga á 20. öld, takast á við þjóðfélagsþróunina frá 1940. Miðað við þær hugmynd- ir sem hann hafði á pijónunum er enginn vafi að sú rannsókn hefði ekki verið síðri en þær sem þegar voru komnar frá honum. Hann hefði getað sagt þjóð sinni margt. Við hana vildi hann tala. Hann vildi að sagnfræðingar tækju virkan þátt í þjóðfélagsumræðunni og lagði sitt af mörkum til þess að svo mætti verða. Auk þess að sinna sagnfræði með rannsóknum og skrifum lagði hann fræðigreininni lið á ýmsan annan hátt. Hann var virkur í félagsstarfí sagnfræðinema við Háskólann, sat tvö ár í ritstjórn tímaritsins Sagnir sem nemendur þar standa að, átti þátt í að hleypa nýju sagnfræði- tímariti af stokkunum árið 1987, Nýrri sögu, sem Sögufélag gefur út, og átti sæti í fyrstu ritstjórn þess, kenndi sögu við Fjölbrauta- skólann í Breiðholti skamma hríð, flutti erindi á vegum Sagnfræðinga- félags íslands, sótti sagnfræðiráð- stefnur heima og erlendis og var óhræddur að taka til máls ef því var að skipta. Raunar var með ólík- indum hvað hann komst yfir sam- hliða garðyrkjustörfunum. Ólafur Ásgeirsson var fæddur 5. september 1956 í Reykjavík, son- ur hjónanna Ásgeirs Olsen og Unn- ar Ólafsdóttur, og var þriðji í röð fimm systkina. Ur foreldrahúsum hefur hann fengið gott veganesti, um það vitna mannkostir hans, dugnaður og stefnufesta. Hann var kvæntur Ragnheiði Guðjónsdóttur, fóstru í Reykjavfk, og eignuðust þau tvö böm, Baldur, f. 1982, og Guð- jón Þór, f. 1987. Fjölskylda hans hefur misst meira en hægt ér að tjá eða túlka með orðum. Henni færi ég innilegustu samúðarkveðj- ur, sem og öðrum vinum og vanda- mönnum. Minningarnar um Ólaf Ásgeirs- son eru margar og allar góðar. Þær geymi ég vel og vandlega í huga mínum og þakka forlögunum fyrir að hafa kynnst honum. Það er sárt að sjá á eftir slíkum mannkosta- manni, manni sem átti framtíðina fyrir sér og mikils var af vænst. Góðum vini. Eggert Þór Bernharðsson Mig langar að minnast Ólafs Ásgeirssonar nokkrum orðum, en ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að vinna hjá honum i garðyrkjunni tvö síðustu sumrin áður en hann hélt utan ásamt fjölskyldu sinni til áframhaldandi náms í sagnfræði. Snemma vors 1987 hugðist ég leita mér að sumarvinnu en ætlaði alls ekki í garðyrkju þar sem ég hafði reynt það áður og taldi mig fullsaddan á því. Að lokum fór þó svo að ég sótti um vinnu hjá Óla vegna þess hve mágur minn talaði vel um hann, en hann hafði verið hjá honum sumarið á undan. Ég átti ekki eftir að iðrast þeirrar ákvörðunar og sumrin mín hjá Óla urðu tvö eins og áður sagði og það þriðja hefði væntanlega bæst við ef hann hefði ekki farið utan. í vinnunni var mikið talað og margt rætt án þess að það bitnaði á vinnuafköstum og því fékk ég að kynnast honum vel og aldrei fór svo að mér leiddist í vinnunni eða lang- aði ekki í hana að morgni, jáfnvel þótt veðurspáin væri afleit. Við ræddum þjóðfélagsmál, innlend og erlend í víðasta skilningi þess orðs, söguna auðvitað af sömu vídd og margt fleira. Alls staðar var Óli vel heima og ekkert sem frá honum kom var vanhugsað enda tel ég hann í hópi minna bestu kennara þótt hann hafi ekki litið á sig sem slíkan enda fátítt að nemendur þiggi af kennara sínum laun. Sú söguþekking t.a.m. sem ég bý yfir er miklu fremur frá honum komin heldur en kennurum mínum úr menntaskóla. Víðsýni hans var mik- il og gerði honum kleift að tengja söguna og sjá hvar orsök og afleið- ing lágu og aldrei var kímnin langt undan þegar því var að skipta, án þess að umræðan færðist á lægra plan. Það fyrsta sem ég tók eftir í fari Óla og trúi að hafi verið nokk- uð einkennandi fyrir hann var hversu ríka réttlætiskennd hann hafði. Það kom stöðugt fram, bæði í því sem hann sagði og því hvern- ig hann vann, hvernig hann kom fram við viðskiptavini sína og okkur sem unnum með honum. Hann kaus að hafa aðeins tvo til þijá starfs- menn af því að hann vildi sjálfur vinna verkin í stað þess að standa í-snatti milli staða eins og vill verða þegar menn eru með marga í vinnu. Hann kaus sjálfur að vera með í því sem hann hafði tekið að sér. Við vissum alltaf nákvæmlega hvar við höfðum hann og hann stóð allt- af við það sem hann sagði og lét okkur sem unnum hjá honum vita hvaða verkefni lægju fyrir jafnóðum og hann tók þau að sér. Óli hafði ákveðnar skoðanir sem hann átti auðvelt með að rökstyðja án nokk- urs ofstækis og bera greinar sem hann skrifaði þess glöggt vitni. Ég kveð mann sem skildi mikinn auð eftir í hjörtum okkar sem þekktum hann og varð stór þáttur í okkar sögu. Ragnheiði konu hans, sonum og fjölskyldunni allri votta ég mína dýpstu samúð. Hugur minn er hjá ykkur. Erlendur Helgason Sumarið 1985 var haldið í Stutt- gart í Vestur-Þýskalandi heimsþing sagnfræðinga. Annar okkar var þá við nám í Þýskalandi og hélt til móts við íslensku fulltrúana. í þeim hópi gat þá að líta nýtt andlit, ung- an sagnfræðing, sem við nánari eftirgrennslan var sagður „maður- inn sem leysir vanda sjávarútvegs- ins þrisvar á dag“. Seinna kom í ljós að þessi orð áttu ekki alls kost- ar við rök að styðjast því að það var miklu fremur landbúnaðurinn en sjávarútvegurinn sem átti hug hans allan. Ólafur Ásgeirsson leit ekki á sög- una sem dauða fortíð heldur lifandi nútíð. Áhugi hans á sagnfræði var svo samofin áhuga hans á þjóð- félagsmálum að tíminn rann saman í eina órofa heild. Þegar hann ræddi um sögu og samtíð þá urðu Jón Sigurðsson, Jónas Jónsson frá Hriflu og Steingrímur J. Sigfússon allir samtímamenn. Ólafur var óragur við að mynda sér skoðanir og hélt þeim ákaft á lofti. Rökræð- ur voru hans ær og kýr. Hann var oft fastur fyrir, oftar en ekki til að stríða eða ögra viðmælendum sínum. Stundum komu hugmyndir hans þeim í opna skjöldu og þá glotti Ólafur eða hló við. Hann var fijór í hugsun og gaf sig allan að hugðarefnum sínum. Þessir eigin- leikar koma berlega í ljós í ritverk- um hans, ekki síst í bókinni „Iðn- bylting hugarfarsins". Genginn er góður drengur og félagi, langt fyrir aldur fram. Við þökkum fyrir góð og skemmtileg kynni. Fjölskyldu hans sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi minning hans lifa lengi. Gunnar Þór Bjarnason Sveinn Agnarsson í dag verður Ólafur Ásgeirsson sagnfræðingur og garðyrkjumaður jarðsunginn frá Langholtskirkju. Mér hnykkti við þegar mér bárust þær fréttir 16. þessa mánaðar að hann hefði látist fyrr um daginn á Landspítalanum. Ef til vill var það óraunsæi að búast við því að honum yrði langra lífdaga auðið eftir að hafa barist undanfarið ár við þann sjúkdóm sem Iagði hann að lokum að velli. Samt heldur maður alltaf í vonina, hversu veik sem hún er. Ólafur vár menntaður garðyrkju- maður. Eftir skyldunám fór hann í Garðyrkjuskóla ríkisins í Hvera- gerði og lauk þaðan prófí 1976, tvítugur að aldri. Síðan innritaðist hann í öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð og brautskráðist þaðan 1981 með stúdentspróf. Eftir það hóf hann nám í sagnfræði. Lauk hann BA-prófi 1984 og cand.mag.-prófi vorið_ 1988. Sam- hliða námi sínu vann Ólafur öll árin við garðyrkjustörf. Við Ólafur kynntumst fyrir nokkrum árum í gegnum nám okk- ar í sagnfræði við Háskóla íslands. Einkum kynntist ég honum þó eftir að ég kom inn í hóp nokkurra há- skólastúdenta, aðallega sagnfræði- nema, er léku fótbolta saman um hveija helgi. Þessi hópur hefur haldið vel saman og góður félags- skapur myndast innan hans. Það er því stórt skarð í hópi okkar við fráfall Ólafs, sem var hrókur alls fagnaðar meðal okkar. Haustið 1988 fór hann með fjöl- skyldu sinni út til Edinborgar til að hefja doktorsnám í sagnfræði. Örlögm gripu þá skyndilega í taum- ana. I jólaleyfinu komu hann og fjölskyldan upp til íslands og áttu þau ekki afturkvæmt til Edinborg- ar. Kom þá í ljós sá sjúkdómur sem hann átti við að stríða uns yfir lauk. Þrátt fyrir það var Ólafur ekki á því að gefast upp og mætti nokkrum sinnum á æfingar síðastliðið sumar. Mér vefst tunga um tönn þegar ég hugsa um á hvern hátt hægt er að lýsa skapgerð Ólafs og per- sónu. Mér finnst að honum hafi verið svo margt vel gefið og kynnin við hann hafi auðgað þær mann- eskjur sem mættu honum á lífsleið- inni. Að upplagi var Ólafur kapp- samur við það seni hann tók sér fyrir hendur og áhugasamur. Öll hans handverk einkenndust af þessu, bæði í garðyrkjunni og í fræðunum. Þjóðfélagsmál í víðum skilningi áttu hug Olafs; hann hugsaði, tal- aði og skrifaði um þau af ástríðu. Einmitt þess vegna var svo skemmtilegt og lærdómsríkt að hlusta á skoðanir hans og rök fýrir þeim. Hann hafði sterka pólitíska sannfæringu og það efldi áhuga hans á stjómmálum og samfélags- málefnum okkar tíma. Lestur hans og kynni af ritum hugsuða og rit- höfunda af vinstri væng stjórn- málanna dýpkuðu ennfremur skiln- ing hans á þessum málum. Hann var vel heima í kenningum sósíal- ista af ýmsu tagi allt frá Marx og Engels, sem og anarkista eða stjómleysingja eins og Krapotkins fursta. Ekkert lýsir Ólafí betur en að segja að hann hafi verið fullkomin andstæða þess fræðimanns sem ein- angrar sig í fræðunum. Það var í andstöðu við eðli hans og upplag. Sterk sannfæring hans í þjóðfélags- málum kom auk þess í veg fyrir að hann gæti það samvisku sinnar vegna. Sagnfræðin var fyrir honum tæki til að varpa ljósi á samfélag okkar tíma, uppbyggingu þess, eðli og tilurð. Hann hafði áhuga á sagn- fræði nútímans vegna, en ekki for- tíðarinnar. Hann vildi skilja samtíð sína betur og sagnfræðin var hon- um leið til þess. Ólafur lét samt ekki pólitíska sannfæringu sína leiða sig á villigötur i rannsóknum sínum, í þeim efnum hafði hann í heiðri ströngustu reglur sagnfræð- innar. Þegar Ólafur byijaði sagnfræði- nám hafði hann fjölbreytilegri reynslu og víðari sjóndeildarhring en flestir sem koma beint úr skóla. Ég hygg að það sé ástæðan fyrir því hve frjór og frumlegur sagn- fræðingur Ólafur var. Upplag hans og hugðarefni stuðluðu einnig að því. í sagnfræðinni naut skarp- skyggni Ólafs og analýtísk hugsun sín til fulls þegar hann krufði heim- ildir sínar og lagði fram túlkun sína. Það eru stór orð en ég leyfí mér að fullyrða að hann var einhver frumlegasti og frjóasti sagnfræð- ingur sem við áttum um þessar mundir. Hann hafði kapp og áhuga á að gera góða hluti svo íslensk sagnfræði hefur misst mikils. Sem betur fer eigum við góða sagnfræð- inga, sem með elju og dugnaði munu eija í víngarði fræðanna. En frumleiki og fijó hugsun er viss náðargáfa sem lestur og iðni getur ekki fært manni. Þessir kostir Ólafs komu þeim mun betur í ljós að hann hafði ríka þörf fyrir að tjá sig um hugðarefni sín og skoðanir, fá gagnrýni og vekja viðbrögð. Honum var ekkert ijær en að lúra á skoðunum í sagn- fræðilegum álitaefnum og pukrast með þær. Hann var stundum harð- orður um þá sem vildu „helga“ sér svið innan sögunnar í stað þess að bjóða aðra velkomna til samvinnu og skoðanaskipta í fræðunum. Stærsta verk Ólafs á sviði sagn- fræðinnar var cand.mag.-ritgerð hans sem kom út árið 1988 undir heitinu Iðnbylting hugarfarsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.