Morgunblaðið - 26.01.1990, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 26.01.1990, Blaðsíða 37
MÖRGUNBLAÐIÐ FÖSTUDÁGUR 26. JANÚAR 1990 37 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS (lí tfmna-i uvw 'U II Póstur og sími: ATHUGA- SEMD Vegna athugasemda um störf bréfburðarfólks í Kópvogi, einkum hvað varðar óveðursdagana 8.-9. janúar sl, vill Póstur og sími minna á eftirfarandi: Þeir dagar geta komið að vegna veðurs liggi póstútburður niðri. Ekki er talið ráðlegt að láta bera út póst nema aðstæður leyfi, hvorki að stofna lífi bréfburðarfólks í hættu né freista þess að koma pósti til skila þegar ólíklegt er að það takist. Dæmi eru um að bréf fjúki úr höndum bréfburðarfólks og einn- ig að þau verði svo gegnblaut að þau séu nánast ónýt. Enginn vill fá slíkan póst í hend- ur. Póstur var flokkaður í pósthús- inu í Kópavogi fyrrnefnda daga eins Ekki born^it |Relga Guðmundsdóttir-J hringdi: „Póstur var ekki borinn út IKópavogi óveðursdagana. Ég. I'afði samband við pósthúsið ojí ■ákk þær upplýsingar að ekkl fiætti rétt að iáta bera póstinn út' tar sem bréfin gætu fokið úr< föndum póstburðarfólksins. Égi rkomst hins vegar að því að póstuil Ivar borinn út í Reykjavík þessa' |daga. Hvers vegna var ekki hægt j I.i\ < tró’'.)....Iri ,J|’„„j.r7“ og venjulega og gátu þeir sem vildu sótt póstinn. í Reykjavík var póstur borinn út þessa daga þar sem því var komið við, en sums staðar varð að fresta útburði. Þar sem aðstæður eru svip- aðar og víða í Kópavogi reyndist erfitt að koma póstinum til skila og voru dæmi um að bréfburðarfólk sneri aftur í pósthúsið án þess að ná áfangastað og jafnvel með skaddaðar póstsendingar. Jóhann Hjálmarsson, blaðafulltrúi Pósts og síma ÚTIGANGSMENN Til Velvakanda. Mig langar til að vita hvort nokk- ur lifandi maður geti svarað þessu bréfi? Ég á ættingja sem er á átt- ræðisaldri og er mikill alkóhólisti. Vandamálið er líka að hann á hvergi heima. Þessi maður á íbúð en vegna drykkju er honum óheimilt að stíga fæti þar inn. Ég hygg að það séu lög fyrir því að svo sé. Hann hefur verið ótal sinnum á drykkjumanna- hælum sem eru nú ekki framtíðar- heimili. En sama daginn sem hann útskrifast þaðan þá á hann ekkert heimili. Hann byijar að fá sér flösku og er fullur í hálfan mánuð. Þá verður hann veikur í nokkra daga en byijar svo aftur að drekka. Oft fær hann að leggja sig hjá lögreglunni en vandamálin eru mörg. Hann kemur á öllum tímum sólarhringsins til ættingja, sem er orðið gamalt fólk, til að fá að borða og sofa. Svona gengur þetta ár eftir ár. Það er heit ósk mín að þessir gömlu útigangsmenn, sem eru oft lasnir, svangir og iskaldir, ættu sér samastað. Hlýjan bragga eða hús með dýnum til að sofa á og hrein- lætisaðstöðu. Einnig þyrfti þar að vera maður til að hugsa um stað- inn. Hvað á að gera í þessu vanda- máli? Þessi maður getur greitt fyrir húsaskjólið. Gömlu mennirnir þyrftu að vera sér saman. Þessi maður er Reykvíkingur, útigangs- maður á gangi i hvaða veðri sem er. Hann hefur ekki vit fyrir sér sjálfur en er hjálparþurfi. H.B. Þarft kynningarstarf Til Velvakanda. Fyrir skömmu var fjölmiðlarýnir Morgunblaðsins að senda sjón- varpsfréttamönnum tóninn vegna þess, að þeir höfðu skýrt frá fundi, er utanríkisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, hafði haldið í Vest- mannaeyjum. Sá fundur var haldinn til kynningar á EFTA-Efnahags- bandalagsmálum og hugsanlegum samningum þar að lútandi. Um þetta vil ég segja það, að mér finnst að þakka beri ráðherran- um þetta kynningarstarf. Þetta mál er nefnilega mjög mikilvægt, og því er nauðsyn, að fólk sé vel upplýst um helztu þætti þess. Þótt ég sé ekki í sama flokki og Jón Baldvin, finnst mér ástæða til þess að þakka honum það, sem hann hefur unnið vel. Úr mörgum áttum hefur nefnilega komið fram, að á þessu sviði hefur ráðherrann unnið mjög gott starf, einkum við að kynna málstað okkar. — Köpur- yrði fyrrnefnds fjölmiðlarýnis voru því vægast sagt óverðskulduð og óviðeigandi. Fréttamenn ættu því hiklaust að halda áfram að skýra frá þessu kynningarstarfi og öðru því, er að þessum málum lýtur. Anna Sigurðardóttir Vilji Guðs Kæri Velvakandi. Þau eru mörg gullkornin sem maður fær í hendur frá mörgu góðu fólki þegar eitthvað bjátar á og þörf er á góðum ráðleggingum. Þannig var, að einn daginn fyrir skömmu, stóð ég frammi fyrir erfiðri ákvörðun sem snerti óþyrmi- lega samvisku mína. Þess vegna leitaði ég ráða hjá góðum presti, eins og sannur kaþóliki. Eins og við mátti búast opnaði hann augu mín og sýndi mér það sem mér áður var hulið. Við spyijum oft spurninga eins og, hvað á ég að gjöra og hvað er rétt? Við þessum spurningum sagði prestur: „Þetta er einfalt. Horfðu ekki fyrst á vandamálin, en athugðu hvað Guð vill. Það sem Guð vill er ekki alltaf auðvelt, en það er rétt.“ Vilja Guðs getum við séð í Biblí- unni og því hvað kirkja hans kenn- ir. Það er því mikilvægt að fara fyrst og fremst eftir Guðs vilja, því hann er réttur og ber ávöxt gæfu og gleði eftir sáningu erfiðisins. Það er því eitt og annað sem á sig er leggjandi þó erfitt sé. Ef það er samkvælmt Guðs vilja, þá er það rétt og gott, þó ávöxturinn komi síðar í ljós. Einar Ingvi Magnússon Artalá lambakjötið Til Velvakanda. Lastaðu ekkert en lofaðu fátt en sé eitthvað fullkomið segðu það hátt. Ég minnist þess að hafa heyrt ofanritað haft eftir Jóhannesi Kjarval. Nú ætla ég að segja það hátt, hvers ég varð vísari nýlega. Ég keypti fyrir jólin í Kjötstöðinni í Glæsibæ frysta gæsalifur í boxi. Er ég opnaði boxið lá ofan á vott- orð frá héraðsdýralækni um að var- an væri heilbrigðisskoðuð. Í mínum áratuga búskap hef ég aidrei fundið slíkt og gladdi það mig mjög. Vonandi fá húsmæður að sjá fleiri slík vottorð. Hvernig væri að setja ártal á lambakjötið? Þuríður Gísladóttir Of mikið af rotvarn- arefiium Kæri velvakandi. Mig langar að vekja athygli fólks á því, hvað bakarar eru farnir að nota mikið af rotvarnarefnum í vörur sínar. Ég keypti vínarbrauð á sunnu- degi. Til þess að forvitnast um inni- haldið geymdi ég það dögum sam- an, og viti menn, eftir rúma viku var vínarbrauðið alveg eins og nýtt. Er þetta eðlilegt? Er ekki kominn tími til að hafa betra eftirlit með þessu. Og þó það séu settar reglur um þessi atriði, þá verður heilbrigðiseftirlitið að gera athuganir á vörum frá bökur- um reglulega, svo að reglunum sé fylgt. H.P. Athugasemd við ummæli Hver er tilgangurinn, Þorsteinn Már? eftirStefán Guðmundsson í blaðinu Frjáls verslun er viðtal við Þorstein Má Baldvinsson, fram- kvæmdastjóra Samheija hf. Akur- eyri, sem gefur mér tilefni til at- hugasemda. í nefndri grein ræðir Þorsteinn Már um togarakaup til Sauðárkróks og segir m.a. „Auðvit- að getur maður ekkert ýtt frá sér þeirri hugsun að svona aðilar ætli sér ekki að borga reikningana að lokum og treysta á áframhaldandi forsjá hins opinbera." Þessi ummæli þín um Fiskiðju Sauðárkróks hf. eru atvinnurógur, settur fram af óskiljanlegum hvöt- um og af ótrúlega lítilli þekkingu á sjávarútvegi nágranna þinna. Fisk- iðja Sauðárkróks hf. var stofnuð árið 1955 og hefur alla tíð staðið í skilum við viðskiptaaðila sína. Vegna orða þinna er rétt að það komi skýrt fram að Fiskiðja Sauðár- króks hf. er ekki og hefur ekki verið í vanskilum hjá Byggðastofn- un. Af þeimn sökum er augljóst að Byggðastofnun hefur aldrei tapað fjármunum vegna viðskipta við Fiskiðju Sauðárkróks hf. Fiskiðja Sauðárkróks hf. og sjáv- arútvegsfyrirtæki í meirihlutaeigu hennar vega mjög þungt í atvinnu- málum á Sauðárkróki og eru reynd- ar einn aðalburðarás'atvinnulífs við Skagafjörð með um 140 starfs- menn. Það er rétt sem kemur fram í grein þinni að Fiskiðja Sauðárkróks hf. fékk lán hjá Byggðastofnun „Fiskiðja Sauðárkróks hf. er ekki og hefur ekki verið í vanskilum hjá Byggðastofiiun. Af þeim sökum er augljóst að Byggðastofhun hef- ur aldrei tapað fjár- munum vegna viðskipta við Fiskiðju Sauðár- króks hf.“ þegar hún keypti togara á sl. ári, m.a. til að treysta rekstrarstöðu fyrirtækisins og efla atvinnulíf við Skagafjörð. Það eru engar fréttir að Byggðastofnun láni útgerðarað- ilum vegna kaupa á skipum, m.a. hvíla lán frá þeirri stofnun á skipum í umsján Samheija hf. og á síðasta fundi Byggðastofnunar, sem hald- inn var á Akureyri, var samþykkt lán til útgerðaraðila á Norðurlandi eystra til kaupa á skipi sem Sam- herji hf. var að selja. Ég gæti haft þetta lengra en læt þetta nægja, Þorsteinn Már. Ég harma ummæli þín, dylgjur og at- vinnuróg um atvinnufyrirtæki á Sauðárkróki, ummæli sem eru þér ekki sæmandi og á þeim ættir þú að biðjast afsökunar. Ég óska ykkur hjá Samheija hf. áframhaldandi velgengni. Höfiindur er alþingismaður í Norðurlandskjördæmi vestra. Aðalfundur Tennisklúbbs Víkings verður haldinn í félagsmiðstöðinni Bústöðum miðvikudaginn 31. janúar nk. kl. 18.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Hraðlestramámskeið Vilt þú margfalda lestrarhraða þinn? Vilt þú lesa meira af fagurbókmenntum? Vilt þú hafa betri tíma til að sinna áhugamálunum? Vilt þú auðvelda þér námið með auknum lestrar- hraða og bættri námstækni? Svarir þú játandi, skaltu skrá þig á næsta hraðlestr- arnámskeið. t Næsta námskeið, sem laust er á, hefst miðvikudaginn 7. febrúar nk. Skráning öll kvöld frá kl. 20-22 í síma 641091. HR A OLESTR ARSKfiLINII m frnÚCXJL 1.77560 HÚSGAGNAMIÐLUN H.F. - SMIÐJUVEGUR 6C - 200 KÓPAVOGUR MIKIÐ URVAL AF HUSGOGNUM O.FL. Á HREINT ÓTRÚLEGU VERÐI KOMIÐ SJÁIÐ OG SANNFÆRIST IBOÐIERU 3 MÖGULEIKAR: I.Umboðssala 2.Staðgreiðsla 3.Vöruskipti VIÐ KOMUM OG VERÐMETUM Á STAÐNUM Hljómflutningstæki, videoupp- tökuvélar, sjónvörp, videotæki, tölvur, farsímar, þvottavélar, þurrkarar, ísskápar, frystikistur, eldavélar, örbylgjuofnar, sófa- sett, hillusamstæður, rúm, hljóð- færi ofl. ofl. Verslunln ei opin virka daga frá kl. 10.00 - 19.00 Laugard. frá kl. 10.00 - 14.00. Magnús Jóhannsson, forstjóri. Guðlaugur Laufdal, verslunarstjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.