Morgunblaðið - 26.01.1990, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990
3
Ráðherrar hafa fjórum sinnum
brotið jafiiréttislögin:
Svavar Gestsson
brotlegur þrisvar
AF þeim fjórum úrskurðum sem
Jafnréttisráð hefiir fellt yfir ráð-
herrum um brot á jafnréttislög-
um við embættisveitingar, varða
þrír Svavar Gestsson, núverandi
menntamálaráðherra. Þetta
kom fram í svari Jóhönnu Sig-
urðardóttur félagsmálaráð-
Loðnuskip-
in mokveiða
LOÐNUSKIPIN hafa mokveitt
að undanförnu. Frá miðnætti til
klukkan 16.30 í gær, fimmtudag,
höfðu 19 íslensk skip tilkynnt
samtals 12.190 tonna afla.
Skipin lönduðu flest á Aust-
fjarðahöfnum, enda töluvert þróar-
rými þar eftir brælur fyrr í vik-
unni. Einnig var landað í Eyjum,
Grindavík og Njarðvík.
Slysum
borð í Tý
SLYS varð við varðskipið
Tý í mynni Eskifjarðar í
gær, þar sem það lá við
akkerisfestar skammt frá
bænum. Skipveiji brotnaði
illa á handlegg.
Slysið varð með þeim hætti
að vír slitnaði þegar verið var
að sjósetja gúmbát með þeim
afleiðingum að báturinn féll
úr um sex metra hæð í sjóinn.
Fjórir menn voru um borð
í bátnum þegar hann féll, þar
af tveir kafarar, sem hugðust
kafa að bógskrúfu skipsins
vegna viðhalds. Annar kafar-
inn féll ofan á bátsmann, sem
var í skut bátsins, með þeim.
afleiðingum að hann hand-
leggsbrotnaði.
herra við fyrirspum Geirs H.
Haarde í sameinuðu þingi i gær.
Jafnréttisráð var sett á laggirn-
ar árið 1976. Á þeim tíma hefur
ráðið úrskurðað fjórar embættis-
eða starfsveitingar ráðherra brjóta
í bága við jafnréttislög.
Fyrsta tilvikið var veiting lyf-
söluleyfis á Dalvík, en þar var
Svavar Gestsson, sem þá var heil-
brigðis- ráðherra, talinn hafa brot-
ið jafnréttislögin.
Annað tilvikið var skipan í lekt-
orsstöðu við heimspekideild Há-
skóla íslands, en þá var Sverrir
Hermannsson, þáverandi mennta-
málaráðherra, talinn hafa brotið
gegn jafnréttislögum.
Þriðja málið varðaði setningu í
starf skólastjóra við Ölduselsskóla
og fjórða málið varðaði skipan yf ir-
kennara við Víðistaðaskóla. í bæði
skiptin braut Svavar Gestsson,
núverandi menntamálaráðherra,
lögin um jafnrétti kynjanna, að
mati Jafnréttisráðs.
Sjá umræður á þingsíðu bls. 25.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Eldhús íbúðarhússins er gjörónýtt. Reynir Valgeirsson er á
innfelldu myndinni.
„Það var
ekkiannað
að gera en
forða sér“
Selfossi.
„Það var ekkert vit í öðru en að
koma sér út og loka ‘hurðum,“
sagði Reynir Valgeirsson pípu-
lagningameistari, eigandi íbúðar-
hússins Hjarðarholti 5 á Selfossi,
en hús hans skemmdist mikið af
eldi og reyk aðfaranótt 25. janúar.
Eldurinn kom upp í húsinu um
tvöleytið um nóttina. Reynir og 18
ára sonur hans, Valgeir, voru heima.
Reynir var ekki sofnaður og segist
hafa fundið reykjarlykt. Er hann
kannaði málið og opnaði dyrnar úr
svefnherbergisálmu hússins inn í
stofuna var þar allt fullt af reyk og
bál logaði upp af uppþvottavélinni
og eldavélinni í eldhúsinu. Hann
sagði þá syni sínum að hringja í lög-
regluna. A meðan hljóp Reynir út í
bílskúr eftir slökkvitæki, en það virk-
aði ekki þegar á reyndi. „Ég held
ég hefði ráðið við þetta ef tækið
hefði verið í lagi, en þegar það brást
var ekki annað að gera en forða
sér,“ sagði Reynir. Slökkviliðið kom
á vettvang tíu mínútum síðar og réð
niðurlögum eldsins.
— Sig. Jóns.
Andri I fær ekki sérstakan þorskvinnslukvóta:
Niðurstaðan er meiri von-
brigði en nokkur orð fá lýst
Athugað hvort kolavinnsla getur haldið útgerðinni á
floti, segir Haraldur Haraldsson einn eigenda Andra
STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum
ákváðu í gær, að Andra I BA
yrði ekki veittur sérstakur
þorskvinnslukvóti undan strönd-
um Alaska á þessu ári. Hins veg-
ar væri skipinu heimilt að stunda
vinnslu á kola. Sljórnendur
ÍSÚF, útgerðar Andra, íhuga nú
verð á dilkakjöti frá afurðastöðv-
um um 7-9%. Hámarksverð á
dilkakjöti í heilum og hálfum
skrokkum hækkaði um 6% í bytjun
desember, en sú hækkun fór hins
vegar ekki að hafa áhrif í verslun-
um fyrr en eftir áramót, þar sem
verslanir kappkostuðu að vera með
óbreytt verð á kjöti í desember.
Þetta veldur því að verðlækkun
vegna endurgreiðslu virðisauka-
skatts á dilkakjöti kemur fram
með öðrum hætti en áætlað var,
eða sem nemur 2-3% í smásölu-
verði. Nokkrar verslanir voru ein-
göngu með dilkakjöt frá haust-
slátrun 1988 til sölu í desember-
mánuði. í janúar hafa þessar versl-
anir hins vegar hafið sölu á kjöti
frá síðastliðnu hausti, sem er dýr-
ara en það fyrmefnda, en verð-
lækkun frá afurðasölu endurspegl-
ast hins vegar í smásöluverðinu.
Verðlagsstofnun varð þess vör í
einstaka verslunum að 2-3% verð-
lækkun sem verða átti frá því verði
sem í gildi var fyrir 1. desember
síðastliðinn kom ekki fram, en í
þeim tilvikum hefur í raun orðið
2-3% hækkun smásöluálagningar
á dilkakjöti.
Fyrstu daga janúarmánaðar
hækkaði fiskur í verði á fiskmörk-
uðunum, og Ieiddi það til allnokk-
urrar hækkunar á fiski í verslun-
um. Talið er að endurgreiðsla á
virðisaukaskatti hafi komið fram
í minni hækkun en ella hefði orð-
ið, en þar sem innkaupsverð fisk-
verslana er misjafnt, auk þess sem
það er breytilegt frá degi til dags,
telur Verðlagsstofnun erfitt að
meta áhrifin af endurgreiðslu virð-
isaukaskattsins á smásöluverðið.
Verð á fiskmörkuðum fer nú lækk-
andi og mun Verðlagsstofnun
fylgjast með áhrifum þess á smá-
söluverðið.
Verð á innlendu grænmeti og
kartöflum lækkaði um 9% hjá
heildsölufyrirtækjum í byijun jan-
úar, og einnig lækkaði verð á þess-
um vörum í flestum verslunum.
Þess eru dæmi að verð á kartöf lum
frá einstökum framleiðendum hafi
ekki lækkað, og hafa viðkomandi
framleiðendur, sem hafa verið með
lágt verð fyrir, hækkað verðið um
síðastliðin áramót.
Niðurfelling söluskatts hjá
likams- og heilsuræktarstöðvum
átti að lækka verð þeirra um 20%,
og munu þær allar hafa lækkað
verðið, en mismikið þó. Algengt
mun hafa verið að stofurnar hækk-
uðu ekki verðið að fullu þegar
söluskattur var lagður á í upphafi
ársins 1988, og hafi þær því ekki
lækkað að fullu nú.
Guðmundur Sigurðsson sagði
að Verðlagsstofnun mundi áfram
fylgjast með verðlagi á vöru og
þjónustu, og kanna hvort virðis-
aukaskattur komi til með að hafa
önnur áhrif en honum er ætlað..
framhaldið, hvort mögulegt
verði að halda skipinu út með
vinnslu á flatfiskinum. „Þessi
niðurstaða veldur mér meiri von-
brigðum en orð fá lýst,“ segir
Haraldur Haraldsson, einn eig-
enda Andra. Hann segir útgerð-
ina þó ekki enn hafa lagt árar í
bát og reynt verði til þrautar að
halda útgerðinni á floti. Málið
var rætt utan dagskrár i samein-
uði þingi í gær. Kom þar meðal
annars frarn sú skoðun að ríkis-
stjórnin hafi blekkt Alþingi til
að samþykkja skráningu skipsins
hér heima og að hugsanlega ættu
stjórnvöld bótakröfii yfir höfði
sér vegna þessa. Þá var farið
fram á skýrslu um gang þessara
mála hvað varðar afskipti hins
opinbera.
í fréttatilkynningu bandarískra
stjórnvalda segir meðal annars að
íslendingum, eins og öðrum erlend-
um þátttakendum í samvinnuverk-
efnum, hafi bæði árið 1988 og 1989
verið úthlutað kvóta til vinnslu á
Kyrrahafsþorski. Hins vegar hafi
útgerðin ekki náð að nýta sér þann
möguleika. Engum erlendum aðil-
um samvinnuverkefna hafi verið
úthlutað vinnslukvóta á bolfiski á
þessu ári. Hins vegar sé þessum
aðilum mögulegt að vinna kola. Þar
segir ennfremur að árið 1990 sé
heildaraflakvóti í Beringshafi tvær
milljónir tonna. Megnið af því sé
Alaskaufsi eða 1,2 milljónir tonna.
Fiskveiðiráð Kyrrahafsins hafi
ákveðið að þorskkvótinn á árinu
verði 227.000 tonn, en því hafi
borizt umsóknir frá innlendum fyr-
irtækjum um veiði upp á samtals
343.000 tonn. Því hafi verið ákveð-
ið að úthluta aðeins til bandarískra
fyrirtækja, engu til eriendra sam-
starfsaðilja.
„Þessi niðurstaða veldur okkur
meiri vonbrigðum en orð fá lýst,“
segir Haraldur Haraldsson, stjórn-
arformaður ÍSÚF, útgerðar Andra
I BA. „Við höfum þó ekki lagt árar
í bát. Okkur stendur opinn mögu-
leiki á kolavinnslu, en með kolanum
fylgir ætíð svokallaður aukaafli,
sem verður væntanlega að miklu
leyti þorskur. Fyrir okkur liggnr
nú að reikna út mögulega arðsemi
kolavinnslu. Við myndum þá heil-
frysta hann að miklu leyti en hand-
flaka líka svo ekki þarf að skipta
um vinnsluvélar um borð. Þær nýt-
ast við þorskvinnsluna. Við höfum
heldur ekki gefið upp vonina um
þorskvinnslukvóta síðar á árinu.
Geti þetta haldið okkur á f loti, höld-
um við áfram þarna fyrir vestan.
Væntanlega höldum við stjórnar-
fund strax í dag, föstudag, til að
ræða málin nánar," sagði Haraldur.
Haraldur sagði það ákaf lega leið-
inlegt að svo skyldi fara um fyrstu
tilraun til samvinnu íslendinga og
Bandaríkjamanna á sviði sjávarút-
vegs, samvinnu sem fæli í sér miðl-
un þekkingar til bandarísku sam-
starfsaðiljanna. Stuðningur
íslenzkra stjórnvalda við útgerðina
hefði verið mikill og góður og yrði
svo vonandi áfram. Verkefni af
þessu tagi væru mikilvæg fyrir
þjóðina, að færa út kvíarnar með
nýtingu þekkingar okkar á fjarlæg-
um slóðum. Aðspurður hvers vegna
svo væri komið málum, sagðist
hann ekkert um það vilja segja.
„Leit að sökudólgi bætir ekkert,“
sagði Haraldur.
Guðmundur H. Garðarsson,
Sjálfstæðisflokki, lét svo ummælt í
utandagskrárumræðu í sameinuðu
þingi í gær, að mistök íslenskra
stjórnvalda varðandi veiði- og
vinnsluheimildir Andra BA gætu
hugsanlega leitt til bótaábyrgðar
islenskra stjórnvalda. Skúli Alex-
andersson, Álþýðubandalagi, sagði
í sömu umræðu að ríkisstjórnin
hefði blekkt Alþingi til þess að sam-
þykkja kaupin á skipinu. Það kom
og fram hjá utanríkisráðherra, að
samningur íslands og Banda-
ríkjanna frá 1984 veiti íslendingum
aðeins heimild til að sækja um kvóta
í bandarískri landhelgi.
Sjá frásögn af umræðum á
Alþingi, bls. 25.
Arnarflug:
Rætt við erlenda aðila
um fjárhagsvandann
Forsvarsmenn Arnarflugs hafa undanfarið átt í viðræðum við
ýmsa erlenda aðila í tengslum við fjárhagsvanda fyrirtækisins. Stefiit
er að því að finna raunhæfan rekstrargrundvöll undir fyrirtækið í
síðasta lagi fyrir 1. apríl næstkomandi.
Hörður Einarsson stjórnarfor-
maður Arnarflugs er í Amsterdam,
þar sem hann hefur meðal annars
rætt við hollenska f lugfélagið KLM
um samstarf félaganna. Hörður
sagði við Morgunblaðið, að lítið
væri að frétta af þeim viðræðum
að svo stöddu.
Kristinn Sigtryggsson fram-
kvæmdastjóri Arnarflugs kom í
gær frá Bandaríkjunum. Þar hefur
hann átt viðræður við Aviation Sal-
es um að losa Arnarflug undan
leigusamningi um Boeing-þotu, þótt
2 ár séu eftir af samningstímanum.
Kristinn sagði við Morgunblaðið,
að viðræðum um þetta væri ekki
lokið. Til greina kæmi að Arnarflug
leigði aðra þotu, með öflugri vél,
af Aviation Sales.