Morgunblaðið - 26.01.1990, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990
Framsóknarfélag Reykjavíkur:
Samþykktar viðræður um
sameiginlegt vinstra framboð
Kvennalistinn hafiiar viðræðum
STJÓRN Framsóknarfélags Reykjavíkur hefur samþykkt að ganga til
viðræðna við aðra minnihlutflokka í borgarstjórn um sameiginlegt
framboð þeirra í borgarstjórnarkosningunum næsta vor að uppfylltum
skilyrðuni. Stjórn fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjavík verð-
ur að sainþykkja viðræðurnar áður en af þeim getur orðið. Framsókn-
arfélagið gerir það að skilyrði að ákvörðun um sameiginlegt fram-
boði liggi fyrir ekki síðar en 15. febrúar næstkomandi. Kvennalistinn
hefur hafnað slíkum viðræðum.
Erindi Alþýðubandalagsins var
tekið fyrir á félagsfundi Kvennalist-
ans á miðvikudagskvöld. Að sögn
Ingibjargar Hafstað hafa samtökin
Tvær umferðir eru eftir á mótinu
og í dag stýrir Margeir svörtu mönn-
unum gegn Dokhoian sem er í 8.-9.
löngu tekið þá ákvörðun að bjóða
fram sérlista í Reykjavík og engar
nýjar forsendur hefðu komið fram
sem breyttu þeirri ákvörðun. Því
sæti með 5’A vinning. í síðustu
umferð mótsins teflir Margeir við
Kuijf sem er í næstneðsta sæti.
hefðu samþykkir fyrri félagsfunda
verið ítrekaðar.
Stjórn Framsóknarfélagsins setur
þau skilyrði fyrir viðræðunum að
allir minnihlutaflokkarnir taki þátt
í þeim. Aðspurður um hvort forsend-
ur fyrir þessum viðræðum væru ekki
brostnar með afstöðu Kvennalistans
sem hefur ákveðið að bjóða fram
sérstaklega, sagði Alfreð Þorsteins-
son, formaður' Framsóknarfélags
Reykjavíkur: „Haldi Kvennalistinn
fast við þá ákvörðun sína að bjóða
fram sérstaklega tel ég það sjálfgef-
ið að við munum ekki taka þátt í
sameiginlegu framboði. Nú mun
Kvennalistinn hugsanlega endur-
skoða sína ákvörðun en það mun
ekki standa á okkur að bjóða fram
sameiginlega."
Framsóknarfélagið gerir það
einnig að skilyrði að auk málefna-
samnings verði eðlileg hlutdeild
flokkanna tryggð á sameiginlegum
framboðslista og samkomulag verði
um borgarstjóraefni.
Tíunda jafhtefli Margeirs
MARGEIR Pétursson gerði jafntefli við Hollendinginn Piket í 11.
umferð alþjóðlega skákmótsins í Wijk aan Zee í Hollandi í gær. Mar-
geir er í 6.-7. sæti á mótinu með 6 vinninga en Kortschnoi er efstur
ásamt Nunn, Dlugy og Andersson með 6 'A vinning.
VEÐURHORFUR í DAG, 26. JANÚAR.
YFIRLIT í GÆR: Norðaustanátt um allt land, 6-8 vindstig á Vest-
fjörðum og við Breiðafjörð en annars heldur hægari. Hiti var ná-
lægt frostmarki.
SPÁ: Norðaustanátt, allhvöss vestanlands en hægari annars stað-
ar. Sunnanlands úrkomulaust en annars staðar él.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Norðaustanátt víða él norðan- og norö-
austanlands, en úrkomulaust í öðrum landshlutum. Frost 2-3 stig.
HORFUR Á SUNNUDAG: Allhvöss suðaustanátt, slydda sunnan-
og austanlands, en að mestu úrkomulaust annars staðar. Hiti um
frostmark sunnanlands, en 1-3 stiga frost í öðrum landshlutum.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
SBk Alskýjað
a Noröan, 4 vinastig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og flaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / r
r / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
r * f
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■j o Hitastig:
10 gráður á Celsius
y Skúrir
= Þoka
Þokumóða
> , ’ Súld
OO Mistur
—j. Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hltl veöur
Akureyri 1 snjóél
Reykjavik 2 úrkoma
Bergen 2 skýjað
Helsinki 1 snjókoma
Kaupmannah. 4 skýjað
Narssarssuaq +18 heiðskírt
Nuuk vantar
Osló 1 léttskýjað
Stokkhólmur 2súld
Þórshöfn 5 léttskýjað
Algarve 16 léttskýjað
Amsterdam 11 rigning
Barcelona 15 mistur
Berlfn 6 rigning
Chicago 3 skúr
Feneyjar 5 þokumóða
Frankfurt 8 rigning
Glasgow 2 slydda
Hamborg S rigning
Las Palmas 20 léttskýjað
London 10 skúr
Los Angeles 11 heiðskírt
Lúxemborg 9 rigning
Madrid 11 alskýjað
Malaga 18 léttskýjað
Malloica vantar
Montreal 2 skýjað
New York vantar
Orlando vantar
París vantar
Róm vantar
Vín 9 skýjað
Washington vantar
Winnipeg +10 snjókoma
Morgunblaðið/Ragnheiður Gunnarsdóttir
Lögreglustöðin í Grundarfirði þykir ekki stór, en þangað er m.a.
fyrirhugað að flytja fanga frá Stykkishólmi.
Lögregluvarðstofunni
í Stykkishólmi lokað
VINNUEFTIRLITIÐ lokaði lögregluvarðstofunni í Stykkishólmi um
hádegið í gær, fimmtudag, að sögn Sturlu Böðvarssonar bæjarstjóra
í Stykkishólmi. Sturla sagði í samtali við Morgunblaðið að lögreglan
í Stykkishólmi hefði fengið aðstöðu í sýsluskrifstofunni þar. „Eg tel
að hún sé að engu leyti betri kostur en það sem fyrir var, þar sem
skrifstofa sýslumanns er í mjög þröngu húsnæði og öll starfsaðstaða
þar hin versta. Það er furðulegt af dómsmálaráðuneytinu að gera
þessar ráðstafanir."
Sturla Böðvarsson sagði að flytja
þyrfti fanga frá Stykkishólmi í
fangaklefa í öðrum byggðarlögum.
Fyrirhugað er að flytja þá m.a. til
Grundarfjarðar sem er um 50 km
frá Stykkishólmi. Hann sagði að
Stykkishólmsbær hefði boðið hús-
næði fyrir lögregluna í kjallara
undir bæjarskrifstofunum en
Vinnueftirlitið hefði talið húsnæðið
ófullnægjandi.
„Hér þarf að byggja nýja lög-
reglustöð og hús fyrir sýsluskrif-
stofumar og ég veit að dómsmála-
ráðherra hefur fullan hug á því,“
sagði Sturia. „Það er búið að gera
frumdrög að húsi og við erum
óformlega búnir að úthluta lóð und-
ir það. Oskað var eftir fjárveiting-
um til þessa verkefnis í ár en þær
fengust ekki. Við erum mjög
óánægðir með þessa framvindu og
þingmenn hefðu átt að átta sig á
þessari stöðu við afgreiðslu fjárlaga
í stað þess að ijúka upp til handa
og fóta núna,“ sagði Sturla
Böðvarsson.
Málfiindur um framtíð
Atlantshafsbandalagsins
TÍMARITIÐ Frelsið, sem verið hefur einn öflugasti málsvari
frjálshyggju á íslandi, og Kallinn á kassanum, málfundur um
frjálslyndar hugmyndir, halda fund undir yfírskriftinni: Framtíð
Atlantshafsbandalagsins, laugardaginn 27. janúar kl. 14. Fundur-
inn verður haldinn á Gauk á Stöng við Tryggvagötu.
Framsögumenn verða: Gunnar
Jóhann Birgisson lögfræðingur,
Kjartan Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri og Magnús Þórðar-
son framkvæmdastjóri.
Atburðarásin í Austur-Evrópu
hefur verið ótrúlega hröð og eiga
menn erfitt með að átta sig á
þýðingu hennar. Fjörbrot sósíalis-
mans er staðreynd, en það rangl-
áta hugmyndakerfi virðist vera
að líða undir lok. Ef Austur-
Evrópuríkin taka upp lýðræðis-
lega stjómarhætti og fjölflokka-
kerfi verður þar staðreynd mun
þá ekki valdajafnvægið í Evrópu
breytast? Hvert verður hlutverk
Atlantshafsbandalagsins í framt-
íðinni? Mun Evrópubandalagið sjá
um að tryggja öryggishagsmuni
lýðræðisríkjanna í framtíðinni?
Hefur þörfin fyrir öflugt varnar-
bandalag aldrei verið meiri en nú?
Þessum spurningum og ýmsum
öðrum verður reynt að svara á
fundinum.
Boðið verður upp á ódýrar
kaffiveitingar. Fundarmenn eru
hvattir til þess að mæta tíman-
lega til að tryggja sér sæti.
Rætt um samruna
samvinnuverslunar
BREYTT fyrirkomulag samvinnuverslunar í Reykjavík hefur verið
rætt undanfarið með það fyrir augum að ná fram meiri hag-
kvæmni. Meðal annars hafa verið skoðaðir möguleikar á nánari sam-
vinnu eða jafiivel samruna verslunardeildar Sambandsins, Kaup-
félags Reykjavíkur og nágrennis og Miklagarðs.
Þröstur Ólafsson stjórnarformað-
ur KRON sagði að þessar viðræður
hefðu verið í gangi síðan í haust
og ýmsu verið velt upp. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins hefur
m.a. verið rætt um að stofna sér-
stakt hlutafélag um KRON, versl-
unardeild Sambandsins og Mikla-
garð, en Þröstur sagðist ekki geta
staðfest að þetta yrði líkleg niður-
staða.
Þegar Þröstur var spurður hvort
slæm fjárhagsstaða KRON þrýsti
ekki á að niðurstaða næðist fljót-
lega, sagði hann að staða beggja
fyrirtækjanna ýtti undir athugun á
því hvort þeim famist ekki betur í
nánari samvinnu.
Ólafur Friðriksson framkvæmda-
stjóri verslunardeildar Sambandsins
sagði að verið væri að ræða um
breytt fyrirkomulag samvinnuversl-
unar í Reykjavík með það fyrir
augum að ná fram meiri hag-
kvæmni.
Ólafur sagði að aðilar hefðu rætt
saman í gær og myndu halda því
áfram, en engin niðurstaða væri
sjáanleg í þeim viðræðum.