Morgunblaðið - 26.01.1990, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990
5
Skákþing
Reykjavíkur:
Hannes er
með forystu
Hannes Hlífar Stefánsson er
efstur á Skákþingi Reykjavíkur
eftir 8 umferðir með 7 'h vinning.
I öðru sæti er Þröstur Þórhalls-
son með 7 vinninga og þriðji er
Þröstur Arnason með 6 'h vinn-
ing.
Helstu úrslit í 8. umferð sem
tefld var á miðvikudag urðu þau
að Hannes Hlífar vann Héðin
Steingn'msson og Þröstur Árnason
vann Jón G. Viðarsson. Níunda
umferð verður tefld í kvöld í hinu
nýja félagsheimili Taflfélags
Reykjavíkur að Faxafeni 12 og
hefst hún klukkan 19.30. Þá eigast
við tveir af efstu mönnum þeir
Hannes og Þröstur Árnason. Þátt-
takendur á Skákþingi Reykjavíkur
eru 106. Tíunda umferð verður tefld
Hannes Hlífar Stefánsson.
á sunnudag og sú ellefta og síðasta
á miðvikudag.
í unglingaflokki eru þátttakend-
ur 46. Tefldar hafa verið 6 um-
ferðir af 9 og er Helgi Áss Grétars-
son efstur með 6 vinninga.
Húsbréfadeild Húsnæðisstofitiunar:
Um tíu kauptil-
boð berast á viku
Biskup á heimsþing 1 Brasilíu
BISKUP íslands, herra Ólafur Skúlason, verður formaður íslensku
sendinefiidarinnar, sem sækir 8. heimsþing hins rúmlega 40 ára Lút-
erska heimssambands í Curitiba í Brasilíu dagana 29. janúar til 9.
febrúar n.k. Þetta verður í fyrsta sinn, sem kirkjulegt heimsþing er
haldið í Brasilíu.
Aðrir fulltrúar íslensku kirkjunn-
ar verða séra Dalla Þórðardóttir,
sem verður einn af umræðustjórum
þingsins, og séra Bernharður Guð-
mundsson, fræðslustjóri kirkjunnar,
sem annast utanríkismál af hálfu
Biskupsstofu. Að auki verða Ebba
Sigurðardóttir, biskupsfrú, og séra
Þorbjörn Hlynur Árnason, stjórnar-
maður Hjálparstofnunar kirkjunnar
og nýráðinn aðstoðarmaður bisk-
ups, gestir á þinginu. Þá verður
Gunnbjörg Óladóttir, guðfræði-
nemi, í hópi æskufólks, sem annast
þjónustustörf á þinginu sem sjálf-
boðaliðar.
Um 1.000 manns frá hinum 105
aðildarríkjum heimssambandsins
munu sækja þingið. Meginmál þess
fjalla um frið, réttlæti og umhverf-
isvernd, en Gro Harlem Brundtland,
fyrrum forsætisráðherra Noregs,
verður aðalræðumaður í umhverfis-
málum. Margs konar skipulagsmál
liggja fyrir þinginu og þá verða
málefni Austur-Evrópu til umræðu.
HÚSBRÉFADEILD Húsnæðisstofiiunar ríkisins hefúr afgreitt 52
kauptilboð þar sem húsbréf fjármagna íbúðakaup að einhverju
leyti. Alls hafa 220 umsóknir borist um húsbréfalán. Sigurður Geirs-
son deildarstjóri húsbréfadeildar segir húsbréfakerfið vera að kom-
ast á skrið og að nú berist um það bil tíu kauptilboð vikulega til
deildarinnar.
Húsbréfakerfið fór hægt af stað
og segir Sigurður það vera eðlilegt
og í samræmi við væntingar
manna hjá Húsnæðisstofnun.
Kerfið er ekki opið öðrum en þeim
sem sótt höfðu um húsnæðislán
fyrir 15. mars 1989 og hyggjast
kaupa notaðar íbúðir. Þann 15.
maí næstkomandi verður það hins
vegar opið öllum sem kaupa notað
íbúðarhúsnæði.
„Á sínum tíma vissu menn ekk-
ert hvernig viðbrögð við húsbréf-
unum yrðu,“ segir Sigurður. „Þró-
unin er hins vegar í samræmi við
það sem við vonuðum, að fólk fari
sér hægt og kynni sér málin vel,
að kerfið fari sígandi af stað. Það
virðist ætla að ganga nákvæmlega
eins og að var stefnt, að það ein-
faldi fjármögnun á þann hátt að
óhagstæðari lánum er létt af íbúð-
unum og eftir standa einungis
húsbréfalán og eldri húsnæðislán."
Sigurður Var spurður hvort ein-
hver áhrif húsbréfakerfisins væru
merkjanleg á íbúðaverð. „Mín til-
finning er sú, að húsbréfin hafi
ekki leitt til hækkunar kaupverðs
og ég veit um dæmi þess að keypt
hafi verið, með húsbréfum, á lægra
verði en sett var upp fyrir íbúðirn-
ar,“ segir hann.
Húsbréf, sem seljandi fær í
hendurnar, getur hann selt sam-
dægurs á skráðu gengi bréfanna
á Verðbréfaþingi íslands. Hins veg-
ar segir Sigurður að það geVi ekki
allir. Sumir noti bréfin sem gjald-
miðil í áframhaldandi íbúðavið-
skiptum og einhverjir ætli að eiga
þau. „Eg veit með vissu um tvo
sem ætla að geyma bréfin og einn
aðili óskaði eftir að fá þau í
smærri einingum, því að hann
ætlaði að nota þau til gjafa. Sum-
ir ætla að geyma þau tímabundið
og nota þau síðar,“ segir Sigurður
Geirsson.
Garðabær:
Lóðir undir
103 íbúðir til
úthlutunar
Á NÆSTU mánuðum verð-
ur úthlutað lóðum undir 103
íbúðir í Garðabæ. Að sögn
Ingimundar Sigurpálssonar
bæjarstjóra, hefur þá verið
úthlutað lóðum undir sam-
tals 223 íbúðir á yfirstand-
andi kjörtímabili eða tæp-
lega 60 íbúðum á ári að
meðaltali.
Um síðustu áramót hafði
verið úthluta lóðum undir 120
íbúðir á kjörtímabilinu og voru
flestar í fjölbýlishúsum. Lóð-
irnar 103, sem úthlutað verður
á næstunni, eru í Hæðarhverfi
og í Bæjargili. Um er að ræða
lóðir undir einbýlis-, raðhús og
fjölbýlishús og verða lóðirnar
byggingarhæfar í sumar. Um-
sóknarfrestur rennur út 2.
mars, en rúmlega 20 umsóknir
hafa þegar borist.
Eldey og Atlantslax fá
lengda greiðslustöðvun
GREIÐSLUSTÖÐVUN Atlantslax, sem er að byggja upp stóra strand-
eldisstöð vestan Grindavíkur og er með seiðaeldi í Sandgerði, hefúr
verið framlengd um einn mánuð frá miðvikudeginum að telja.
Útgerðarfélaginu Eldey hefur frá
sama tíma verið veitt eins mánað
framlenging á sinni greiðslustöðv-
un, sem áður hafði staðið í þijá
mánuði. Það fyrirtæki var stofnað
af ýmsum aðilum á Suðurnesjum
til að hamla gegn samdrætti í út-
gerð á svæðinu.
Bæði félögin sóttu um framleng-
ingu til tveggja mánaða en skipta-
ráðandi veitti eins mánaðar fram-
lengingu.
Aðeins þetta eina sinn fyrir aöeins 2.500 krónur í Glym 2. febrúar nk.
Upplifiö íslenskt þorrablót meÖ RÍÓ allt kvöldið, Reyni Jónassyni,
harmónikuleikara, söngkvartettinum BARKABRÆÐRUM ogfélög-
um úr kvœöamannafélaginu IÐUNNI.
TakiÖ þátt í vísnasamkeppni.
BorÖi hver eins og hann getur isig látiö.
Hinfrábœra hljómsveit UPPLYFTINGleikurfyrirdansi.
Allt þetta og meira tilfyrir aðeins 2.500 kr.
Hinn landsþekktiþorramaturfrá Múlakaffi á boðstólnum!
Borðapantanir í sima 77500 milli kl. 13-16
Húsið opnað kl. 19.
Athugið: Aðeins þetta eina sinn!
Hópar og smáir vinnustaðir
- þetta er ykkar mál!