Morgunblaðið - 26.01.1990, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990
Tugir manna bíða
bana í fárviðri sem
gengnr yfír Evrópu
Hvalveiðiráðstefiian í Árósum:
Vilja hvalveiðiráð
fyrir N-Atlantshaf
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
A lokadögum hvalveiðiráðstefnunnar í Arósum hafa bæði Græn-
lendingar og Færeyingar látið í ljós óskir um að sett verði á laggirn-
ar sérstakt Norður-Atlantshafsráð sem taki við hlutverki Alþjóða
hvalveiðiráðsins (IWC) á þessu svæði, meðal annars að því er varðar
hvalveiðimál.
London. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 29 manns,
þar af þrjár stúlkur, biðu bana í
Bretlandi í gær þegar fárviðri
gekk yfir landið. Minnst sex
týndu lífí í Hollandi, jafn margir
í Frakklandi og þar var þriggja
saknað. Tré féllu í óveðrinu, þök
Búlgaría:
Bandamenn
kommúnista
vilja bráða-
birgðastjóm
Soflu. Reuter.
Bændaflokkurinn í Búlgariu,
sem var eitt sinn stærsti sljórn-
málaflokkur landsins, lagði til
í gær að mynduð yrði þegar í
stað bráðabirgðastjóm, sem
skipuð yrði fulltrúum sem
flestra stjórnmálahreyfínga
landsins. Þannig batt flokkur-
inn enda á rúmlega fjörutíu ára
undirgefni sína við kommúnista.
Bændaflokkurinn hefur verið í
stjóm með kojnmúnistaflokknum
frá því sá síðamefndi braust til
valda árið 1947. Leiðtogar hans
hyggjast leggja fram frumvarp á
þingi landsins um að bráðabirgða-
stjóm sem flestra stjómmálaafla
fari með völdin fram að fijálsum
kosningum, sem kommúnistar
vilja að fari fram í maí. Flokkurinn
ætlar einnig að leggja tillöguna
fram í viðræðum samninganefndar
stjómarflokkanna og Samtaka
lýðræðisaflanna, sem em regn-
hlífarsamtök þrettán stjómarand-
stöðuflokka.
Stjómarandstöðuflokkamir
vilja að kosningunum verði frestað
til að þeim gefist nægjanlegt tóm
til að skipuleggja starfsemi sína.
Þeir segjast ekki ætla að halda
viðræðunum við stjórnarflokkana
áfram fyrr en stjómarandstaðan
fái eigið dagblað, húsnæði og að-
gang að útvarpi og sjónvarpi.
hrundu og breiðþota fauk af flug-
braut á Heathrow-flugvelli.
Rafmagnslaust varð í 300.000
íbúðum í suðvesturhluta Englands
þegar rafmagnslinur slitnuðu vegna
fárviðrisins. Vegir, brýr og járn-
brautir lokuðust í Suður-Englandi,
meðal annars í London. Vindhrað-
inn var allt að 195 km á klukku-
stund og veðurfræðingar spáðu
versnandi veðri.
„Vörubílar lyftust upp og köstuð-
ust til á veginum," sagði lögreglu-
maður í Gloucester-skíri. Mannlaus
Boeing 747-þota fauk af flugbraut
á Heathrow-flugvelii og festist í
aur. Flestir þeirra er biðu bana í
Bretlandi urðu fyrir tijám. sem féllu
á vegi frá Comwall-héraði í suð-
vesturhluta landsins til Hertford-
skíris norður af London. Að minnsta
kosti fjórir týndu lífi þegar veggir
féllu og tvær stúlkur létust í skólum
sínum er þök þeirra hrundu.
Skip áttu í erfiðleikum í Ermar-
sundi og komust ekki til hafnar.
Þá urðu átta manns innlyksa í hót-
eli í Bretlandi er þak þess hrundi
og björgunarsveitir gátu ekki bjarg-
að þeim vegna þess að tré sem
hafði fallið lokaði innganginum.
14 ára gamall nemandi lést þeg-
ar veggur í skólahúsi í Frakklandi
hrundi og ungabam beið bana eftir
að glerbrot hafði fokið á það.
Ava Gardn-
er látin
Los Angeles. Reuter.
BANDARÍSKA leikkonan Ava
Gardner, sem þekkt var fyrir
leik sinn i Hollywood-myndum á
sjötta áratugnum, lést í gær í
London, 67 ára að aldri.
Gardner var þekktust fyrir leik
sinn í myndum eins og „Barefoot
Contessa“ (Berfætta greifynjan),
„Night of the Iguana (Nótt græn-
eðlunnar) og „Mogambo". Hjóna-
band hennar og söngvarans Franks
Sinatra og ástarævintýri hennar
með ýmsum frægum mönnum
vöktu einnig mikla athygli um heim
allan.
Bæði grænlensku fulltrúarnir,
Hans Pavia Rosing, þingmaður á
danska Þjóðþinginu, og Pavia Niels-
en, fulltrúi sjómanna og veiði-
manna, og fulltrúi Færeyinga,
Kjartan Hoydal fiskimálastjóri,
lögðu þó áherslu á að æskilegast
væri að koma á fót „auðlindaráði“
fyrir Norður-Atlantshaf. Það skyldi
fara með úthlutunar- og eftirlits-
vald yfir öllum auðæfum hafsins.
Auk þeirra tóku til máls Milton
Freeman frá Edmonton í Kanada,
Sture Irberger, forseti IWC, Martyn
Ibbotson frá Bretlandi, og Henrik
Fischer sem fer með hvalveiðimál
fyrir hönd dönsku ríkisstjórnarinn-
ar.
Sture Irberger, forseti IWC,
sagði í samtali við Ritzau-frétta-
stofuna að næsti fundur ráðsins
sem haldinn verður í Hollandi í júlí-
mánuði næstkomandi mundi ráða
örlögum samtakanna. Hann sagði
að til greina kæmi að leyfa hvalveið-
ar í atvinnuskyni á nýjan leik. Þar
yrðu staðreyndir um líffræðilegt
ástand hvalastofnanna látnar ráða
ferðinni.
Milton Freeman sagði um þetta
Albanía:
Að sögn ATA, hinnar opinberu
fréttastofu Albaníu, sagði Alia í
að áframhaldandi bann við veiðum
á stórum hvölum stríddi gegn anda
Brundtland-skýrslunnar. Hann tel-
ur að margar þjóðir séu að þessu
leyti í mótsögn við sjálfar sig með
því að styðja áframhaldandi hval-
veiðibann, en vera jafnframt fylgj-
andi því meginmarkmiði Brundt-
Iand-skýrslunnar að nýta beri auð-
lindir náttúrunnar svo framarlega
sem þess sé gætt að ganga ekki
of nærri þeim.
ræðu á mánudag að minnka ætti
miðstýringu í valdakerfinu og lét
að því liggja að vera kynni að kosn-
ingar yrðu leyfðar í landinu. Hét
hann því og að matvælaframboð
yrði aukið í Albaníu.
Alia sagði að hrun kommún-
ismans í Austur-Evrópu væri
„harmleikur“ en hvatti menn til að
örvænta ekki. Stöðugleiki væri á
hinn bóginn ríkjandi í Albaníu þótt
menn þyrftu ávallt að vera á varð-
bergi. Lagði hann áherslu á að al-
banskir kommúnistar hygðust ekki
afsala sér forystuhlutverki sínu og
kvað ' flokkinn einn geta tryggt
framtíð sósíalismans og sjálfstæði
landsins.
■ NUUK — Innan skamms verður
lögð fram á grænlenska landsþing-
inu tillaga um þjóðaratkvæða-
greiðslu um áfengisskömmtun.
Flutningsmaður tillögunnar verður
Hendrik Nielsen, éinn af oddvitum
Siumut-flokksins, og nýtur hún
meðal annars stuðnings Hendriks
Lunds, borgarstjóra í Quaqortog
(Julianeháb) og þingmanns Siumut.
Ekki er eining innan landstjórnar-
innar um markmið og leiðir í áfeng-
ismálunum. Emil Abelsen, sem fer
með efnahagsmál, segir að óhjá-
kvæmilegt sé að grípa til skömmt-
unar. Jonathan Motzfeldt, formað-
ur landstjórnarinnar, hefur verið
þeirrar skoðunar að þessi vandamál
verði ekki Ieyst með boðum eða
bönnum. Grænlendingar verði að
læra að lifa í nábýli við áfengi og
þau vandamál sem það hefur í för
með sér.
Kanadamenn skera upp herör
gegn ofveiði og smáfískadrápi
Leita leiða til að verjast yfirgangi EB-ríkjanna utan 200 mílnanna
Financial Times
UM langan aldur hafa stórir flotar útlendra fískiskipa farið sínu
fram utan 200 mílnanna við austurströnd Kanada og eru enda
langt komnir með að eyðileggja fískstofnana og lífsafkomu tug-
þúsunda manna á Nýfundnalandi og Nýja Skotlandi. Kanadísk
stjórnvöld hafa horft upp á þessar aðferir með vaxandi gremju
en nú hafa þau loks ákveðið að grípa til harðra aðgerða.
Búist er við, að á næstu dögum
verði skýrt frá nýjum veiðita-
kmörkunum og eiga þær annars
vegar að taka til útlendra togara,
sem sakaðir eru um skefjalausa
rányrkju utan 200 mílnanna, og
hins vegar til kanadískra fiski-
manna og útgerðarfélaga. Er þess-
um aðgerðum ekki síst beint gegn
Spánveijum og Portúgölum, sem
stunda jafnt ofveiði sem smáfiska-
dráp á helstu uppeldissvæðunum,
á þeim hluta Miklagrunns (Grand
Banks), sem er utan 200 mílna
lögsögunnar.
Spánveijar og Portúgalar gengu
í Evrópubandalagið árið 1986 og
síðan hefur EB ekkert tillit tekið
til kvótaákvarðana Norðvestur-
Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar.
Á þeim tíma, sem liðinn er, hafa
togarar EB-ríkjanna veitt fimm
sinnum meira en nefndin lagði til
og nú fyrir skemmstu úthlutaði
EB sér sjálft sínum kvóta á
Kanadamiðum, 50.000 tonnum í
stað 15.000, sem nefndin ákvað,
Hingað til hafa Kanadamenn
reynt að vekja athygli á rányrkj-
unni eftir diplómatískum leiðum en
með litlum árangri og þar kom
seint á síðasta ári, að þeim fannst
mælirinn fullur. Þá var ákveðið,
að Alan Beesley, kunnur starfs-
maður utanríkisþjónustunnar og
lagasérfræðingur, skyldi taka við
nýju sendiherraembætti, sem hefði
það eina verksvið að vinna að auk-
inni fiskvernd.
Beesley hefur að undanfömu
verið að kanna með hvaða ráðum
stjómin í Ottawa getur látið til sín
taka utan 200 mílnanna án þess
þó að færa lögsögumörkin út og
hafa ráðherramir tillögur hans til
athugunar nú þessa dagana. Hefur
því verið fleygt, að Spánveijar og
Portúgalar verði beittir efnahags-
legum refsiaðgerðum að því marki,
sem það er á valdi Kanadamanna,
en heldur þykir þó ólíklegt, að svo
langt verði gengið.
Kanadastjóm hefur einnig gert
menn út af örkinni til að kynna
ríkisstjómum innan EB eyðilegg-
inguna, sem spánskir og portúg-
alskir togarar hafa valdið, og
kannski með þeim árangri, að kvót-
inn, sem EB skammtaði sér sjálft
á þessu ári, er „aðeins" rúmlega
þrisvar sinnum meiri en fiskveiði-
nefndin gerði tillögu um.
Meðal þeirra ráðstafana, sem
Kanadastjórn ætlar að grípa til, er
að auka möskvastærðina og banna
veiðar á smáfiski en auk þess á
að setja skorður við vexti fiskiðnað-
arins í landi, takmarka stærð nýrra
skipaog herða verulega eftirlit með
útgáfu veiðileyfa. Þá á að stór-
strönd Kanada.
hækka sektir við brotum á fisk-
veiðilöggjöfinni.
Þessar aðgerðir munu að sjálf-
sögðu koma hart niður á kanadísk-
um sjómönnum en samt njóta þær
mikils stuðnings í austurstrand-
arríkjunum. Sjómennimir vita, að
framtíðin er fólgin í því að bjarga
fiskstofnunum og gera sér um leið
grein fyrir, að það verður ekki
gert á einu ári eða tveimur.
Takmarkaðar um-
bætur boðaðar
Vínarborg. Reuter.
RAMIZ Alia, leiðtogi albanska kommúnistaflokksins, hefúr boðað
hægfæra breytingar í umbótaátt í landinu. Þykir þetta sýna að leið-
togar landsins hafí áhyggjur af þróun mála í Austur-Evrópu en í
Albaníu er að fínna síðasta vígi stalínismans.