Morgunblaðið - 26.01.1990, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990
19
Þingkosningar í Ungverjalandi:
Forsætisráðherrann
ætlar í óháð framboð
Búdapest. Reuter.
MIKLOS Nemeth, forsætisráð-
herra Ungverjalands, ætlar að
■ BÚDAPEST - Nú þegar Vest-
urlönd veija miklum fjármunum til
efnahagsaðstoðar við Austur-Evr-
ópuríki er farið að bera á þeim ugg
að þróunarríki beri skarðan hlut frá
borði. Ali Alatas, utanríkisráðherra
Indónesíu, sagði í gær að nú þegar
þyrftu að fara fram viðræður til
að tryggja að lýðræðisþróunin í
Austur-Evrópu leiddi ekki til þess
að fjárfestingar og verslun við fá-
tækari ríki heims drægjust saman.
Alatas sagði á fundi með kaupsýslu-
mönnum og stjórnarerindrekum í
Jakarta í gær að á meðan austrið
og vestrið færðust nær hvort öðru
ykist bilið milli ríkra og fátækra
þjóða. Þótt efnahagur ríkja væri
hver öðrum háður í vaxandi mæli
væru það einkum ríku þjóðirnar sem
græddu. Alatas minnti á að tæki-
færi gæfist til að ræða málið
23.-27. apríl næstkomandi á fundi
Sameinuðu þjóðanna um alþjóða-
efnahagssamstarf.
bjóða sig fram utan flokka í
þingkosningunum 25. mars
næstkomandi, að sögn ung-
versku fréttastofunnar MTI.
Nemeth hefiir átt í nokkrum
útistöðum við flokksforystu só-
síalistaflokksins sem reis úr
rústum kommmúnistaflokks
landsins í október síðastliðnum.
Ekki er ljóst hvort Nemeth ætl-
ar að segja sig úr sósíalistaflokkn-
um. Nemeth hefur sætt gagnrýni
flokksmanna fyrir aðhaldsaðgerð-
ir í efnahagsmálum.
Svo virðist sem margir félagar
í flokknum ætli að bjóða sig sjálf-
stætt fram til þess að eiga meiri
möguleika á kjöri. Samkvæmt
skoðanakönnun sem birt var á
miðvikudag styðja einungis 16%
kjósenda flokkinn. Lýðræðisvett-
vangur nýtur fylgis 23% kjósenda
samkvæmt könnuninnni og Fijáls-
ir demókratar 14%. Um það bil
fimmtíu aðrir flokkar bítast um
afgang kjörfylgisins.
Vaclav Havel, forseti Tékkóslóvakíu, sótti Pólverja heim í gær og
þaðan fór hann tif Ungverjalands. Hér sjást þeir Havel (t.h.) og
Tadeusz Mazowiecki, forsætisráðherra Póllands.
Walesa sagður móðg-
aður við Havel
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir PÁL ÞÓRHALLSSON
Lafontaine stefiiir ótrauð-
ur á kanslaraembættið
Kosningar í Saarlandi fyrsti prófsteinninn
Jafnaðarmenn í Saarlandi í Vestur-Þýskalandi eru taldir eiga
góða möguleika á sigri í fylkiskosningunum á sunnudag. Náið
er fylgst með kosningunum því það veltur á úrslitunum hvort
Oskar Lafontaine verður kanslaraefiii jafiiaðarmanna í þing-
kosningunum í Vestur-Þýskalandi í desember.
Jafnaðarmenn með Lafontaine
í fararbroddi hafa nú hreinan
meirihluta á fylkisþinginu í Saar-
brúcken. Skoðanakannanir benda
til þess að þeim takist að halda
sínu þrátt fyrir fremur lélegt
gengi á landsvísu og vinsældir
leiðtoga kristilegra demókrata í
Saarlandi, Klaus Töpfers, ráð-
herra umhverfismála í ríkisstjórn
Helmuts Kohls. Það sem helst
gæti ógnað meirihluta Oskars
Lafontaines væri að kjó'sendur
gerðd sér grein.fyrir að hann sit-
ur ekki langdvölum í Saarbrúcken
nema hann tapi kosningunum.
Tapi Lafontaine eru jafnaðar-
menn í miklum vandræðum. Þá
má telja útilokað að hann verði
kanslaraefni þeirra. Bæði flokks-
formaðurinn Hans-Jochen Vogel
og Johannes Rau, flokksleiðtogi
í Rheinland-Pfalz, hafa lýst því
yfir að þeir hafi ekki áhuga á að
etja kappi við Kohl öðru sinni en
þeir fengu að spreyta sig 1983
og 1987 án árangurs. Aðrir sem
kæmu til greina væru Björn Eng-
holm, flokksleiðtogi í Slésvík-
Holtsetalandi, og Walter Momper,
borgarstjóri Berlínar.
Allir vildu Lilju kveðið
hafa
Þessir þykja þó vart eiga eins
mikla möguleika á að leiða flokk-
inn til sigurs í desember eins og
Lafontaine. Ljóst er að aðalkosn-
ingamálið verða samskipti þýsku
ríkjanna. Á þeim vettvangi hefur
Lafontaine þegar kvatt sér eftir-
minnilega hljóðs. Nokkrum vikum
eftir að Berlínarmúrinn var rof-
inn, á meðan flestir vestur-þýskir
stjórnmálamenn voru enn í sam-
einingarvímu, lagði Lafontaine til
að Austur-Þjóðveijum yrði gert
erfiðara fyrir að notfæra sér þjón-
ustu sem Vestur-Þjóðveijum njóta
eins og atvinnuleysisbóta og ellil-
ífeyris. Hann sagði að ella héldi
straumurinn vestur á bóginn
áfram með ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum í báðum þýsku ríkjun-
um. Þessar hugmyndir þóttu í
fyrstu fáheyrð ósvífni og ókurteisi
við Austur-Þjóðveija. Nú nokkr-
um vikum síðar vildu allir Lilju
kveðið hafa; ríkisstjórn Kohls er
farin að huga að ráðstöfunum til
að draga úr f lóttamannastraumn-
um og vaxandi óánægju gætir
meðal almennings með húsnæðis-
vanda og atvinnuleysi sem af hon-
um hlýst.
Tekist á um framtíð
Þýskalands
Kosningarnar í Saarlandi á
sunnudag er upphafið að miklu
kosningaári í Þýskalandi þar sem
tekist verður á um framtíð þess.
Fari svo að Lafontaine vinni kosn-
ingarnar á heimavelli á sunnudag
blasir við þrautin þyngri, að
hnekkja veldi Helmuts Kohls.
Efnahagur Vestur-Þýskalands
hefur aldrei verið blómlegri og
Lafontaine hefur skorað nokk-
ur mörk í Þýskalandsmálinu.
Kohl þykir hafa staðið sig vel í
embætti eftir að skriðan fór af
stað í Austur-Þýskalandi. Stefna
Kohls og Lafontaines í Þýska-
landsmálum er gerólík. Kohl hefur
reynt að höfða til kjósenda sem
dreymir um sameinað Stór-Þýska-
land og ekki viljað gefa afdráttar-
lausar yfirlýsingar um vestur-
landamæri Póllands. Lafontaine
er hallur undir alþjóðahyggju og
hefur með semingi tekið undir í
sameiningarsöngnum. Athyglis-
vert er að hinn mikli Evrópusinni
Hans-Dietrich Genscher, utanrík-
isráðherra úr flokki Fijálsra
demókrata, hefur gefið til kynna
að tímabært kunni að vera fyrir
flokkinn að segja skilið við kristi-
lega demókrata og hefja stjórnar-
samstarf með jafnaðarmönnum í
upphafi næsta árs eftir átta ára
hlé.
Varsjá. Reuter.
ÞAÐ kom nokkuð á óvart að Lech Walesa, leiðtoga Samstöðu, vant-
aði þegar Vaclav Havel, forseti Tékkóslóvakíu, snæddi hádegisverð
með Samstöðumönnum, þ.á.m. Tadeusz Mazowiecki, forsætisráð-
herra, í Varsjá í gær. Heimildarmenn innan Samstöðu segja að
Walesa hafi með þessum hætti viljað láta í ljós óánægju með að
Havel skyldi hafa farið í fyrstu opinberu heimsókn sína til þýsku
ríkjanna í byijun þessa mánaðar en ekki Póllands.
í stað þess að mæta í hádegis-
verðinn fór Walesa til heimaborgar
sinnar Gdansk þar sem hann tók
þátt í útifundi Samstöðu. „Ég vil
ekki trufla forsetann og forsætis-
ráðherrann," var haft eftir Walesa
í Gdansk. Heimildarmenn innan
Samstöðu segja að Walesa sé þeirr-
ar skoðunar að Havel hefði átt að
fara í sínu fyrstu opinberu heim-
sókn til Póllands til að þakka Pól-
veijum fyrir að verða fyrstir austan-
tjaldsþjóða til að hristá af sér hlekki
kommúnistastjórnar. Einnig er sagt
að Walesa hafi viljað að Havel
heimsækti sig í Gdansk en tékk-
neski forsetinn hafi ekki haft tíma
til þess. Þegar Havel fór til Austur-
og Vestur-Þýskalands í byijun mán-
aðarins bar nokkuð á gagnrýni á
pólsk yfirvöld í þarlendum fjölmiðl-
um fyrir að hafa ekki orðið fyrst
til að bjóða Havel í heimsókn.
ÚTSALA
Andrés,
Skólavörðustíg 22a, sími 18250.