Morgunblaðið - 26.01.1990, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990
Leikfélag Akureyrar:
Góð aðsókn á Eyrna-
langa og annað fólk
Á MILLI 15-1600 manns hafa séð barna- og fjölskylduleikritið Eyrna-
langa og annað fólk eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur
sem sýnt er lyá Leikfélagi Akureyrar.
Leikritið hefur verið sýnt að jafn-
aði þrisvar í viku, um helgar og þá
hefur ein sýning verið á f immtudög-
um einkum fyrir skólafólk úr ná-
grannabyggðarlögunum. Ragna
Garðarsdóttir, miðasölustjóri hjá
LA, sagði að aðsókn á sýningarnar
hefði verið góð, en ellefta sýning
var í gær og hana sáu m.a. börn
úr Hafralækjarskóla og barnaskó-
lanum á Laugum. Ragna sagði að
skólabörn framan úr Eyjafirði
hefðu þegar séð sýninguna og börn
úr utanverðum firðinum væru
væntanleg. Þá væri einnig væntan-
legur hópur úr Húnavallaskóla í
Húnavatnssýslu.
Næsta verk sem sýnt verður hjá
LA er Heill sé þér þorskur eftir
Guðrúnu Ásmundsdóttur og verður
það frumsýnt 10. febrúar næstkom-
andi og verða þá báðar sýningarnar
í gangi samhliða, en fyrirhugað er
að sýna Eyrnalanga eitthvað fram
í febrúar.
Nýsmíðaskipið:
Byggðastofiiun greiði
fyrir sölusamningimi
Á FUNDI atvinnumálane&idar Akureyrar í vikunni var samþykkt álykt-
un þar sem því var beint til stjórnar Byggðastofhunar að hún greiði
fyrir samningi um sölu á nýsmíðaskipi Slippstöðvarinnar.
„Atvinnumálanefnd beinir þeim
tilmælum til stjórnar Byggðastofn-
unar að stofnunin greiði fyrir samn-
"^hgi milli Slippstöðvarinnar hf. og
Meleyrar hf. um kaup á nýsmíða-
verkefninu B-70. Samningur þessi
er mjög mikilvægur til að tryggja
áframhaldandi störf í skipasmíðaiðn-
aði á Akureyri," segir í ályktuninni.
Ályktun þessi var send Guðmundi
Malmquist, forstjóra Byggðastofn-
unar.
Morgunbláðið/Rúnar Þór
Hópurinn sem að uppbyggingu salhaðarstarfsins stendur.
Dögun ’90:
Hugmyndir um að reisa or-
lofshúsabyggð í Búðargili
Vélsleðamaður hylltur
Vélasleðamenn efndu til hópferðar að heimili Tómasar Eyþórs-
sonar í tilelhi af fhnmtugsafmæli hans í fyrradag, 24 janúar.
Tómas er kunnur vélsleðamaður og einn stærsti innflytjandi
vélsleða hér á landi. Vélsleðamenn umkringdu heimili hans,
tendruðu blys og sungu aímælissöng. Að lokum færðu vélsleða-
menn aftnælisbarninu viðurkenningarskjöld í tilefhi dagsins.
Samkomur í
Glerárkirkju
RAÐSAMKOMUR verða haldn-
ar í Glerárkirkju um helgina og
eru þær liður í saíhaðarátaki
sem nú stendur yfir í sókninni
og kallast Dögun ’90.
Sérstakur
gestur á samko-
munum verður
Hollendingurinn
Teo Van der
Weele, en hann
er menntaður í
sálar- og félags-
fræðum og er
sérgrein hans
sálgæsla. Á Teo Van der Weele.
samkomunum mun hann halda
fyrirlestra, sungnir verða léttir
söngvar og í lokin verður boðið upp
á fyrirbæn.
Samkomurnar hefjast kl. 20.30
á föstudags- og laugardagskvöld,
en kl. 14.00 á sunnudag. Fjögur
næstu föstudagskvöld verða síðan
samkomur í kirkjunni og hefjast
þær kl. 20.30.
Samstarfsnefhd skipuð fhlltrúum úr skipulagsnefnd annars veg-
ar og atvinnumálanefnd hins vegar, sem hafði það hlutverk að
fjalla um staðsetningu orlofshúsabyggðar á eða í námunda við
Akureyri, hefur komist að þeirri niðurstöðu að ofanvert Búðargil
gæti komið til greina fyrir slíka byggð. Málinu hefur verið vísað
til neftidanna til frekari umfjöllunar, en atvinnumálaneftid hefur
þegar fallist á þessa niðurstöðu. Þessar hugmyndir hafa verið
kynntar í skipulagsnefhd.
Umræður um sérstaka orlofs-
húsabyggð á eða í námunda við
Akureyri hafa verið í gangi um
nokkurra ára skeið og um tíma
var rætt um að reisa slíka byggð
í Hamraborgum ofan Akureyrar.
Þá var hugmyndin sú að þar yrði
reistur þjónustukjarni, jafnvel
sundlaug og fleira sem tilheyrir
orlofshúsabyggðum.
Frá slíkum hugmyndum hefur
nú verið fallið og er nú rætt um
að tengja orlofshúsabyggðina nú-
verandi byggð og þjónustu í bæn-
um.
Arkitektastofunni við Ráðhús-
torg var falið að vinna frumdrög
að orlofshúsabyggð í Búðargili og
í þeim er gert ráð fyrir tveimur
möguleikum, annars vegar stökum
húsum og hins vegar raðhúsum
og yrðu íbúðirnar á bilinu 18-40
eftir því hvor kosturinn yrði valinn.
Á því svæði sem um er að ræða
eru nú gripahús og samkvæmt
deildiskipulagi Innbæjarins, sem í
gildi er, er umrætt svæði svokallað
grænt svæði eða útivistarsvæði,
en kveðið er á um að húsin megi
standa þarna til bráðabirgða, en
nánari tímasetning er ekki til-
greind. Ef um það verður tekin
ákvörðun að reisa skuli á þessu
svæði orlofshúsabyggð verður að
breyta skipulagi og hanna svæðið
að nýju.
Þorleifur Þór Jónsson, ferða-
málafulltrúi Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar, sagði að engar
ákvarðanir hefðu verið teknar um
á hvern hátt staðið yrði að fram-
kvæmdum, en ef skipulagsnefnd
tæki jákvætt í þessar hugmyndir
yrði væntanlega farið að vinna
meira í málinu, m.a. skipulags-
og sölumálum.
Hvar er
þjónustan
keypt?
Atvinnumálanefhd Akureyrar
hefúr falið starfsmönnum Iðnþró-
unarfélags Eyjafjarðar að gera
könnun á meðal fyrirtækja í bæn-
um á því hvar þau kaupa þjón-
ustu af ýmsu tagi, þ.e. hvort þjón-
ustan er keypt í bænum, í
Reykjavík, eða annars staðar.
Yfirskrift könnunarinnar er:
Hvar er þjónustan keypt?
Átak til uppbyggingar safiiaðar-
starfs við Glerárkirkju að hefjast
DOGUN ’90 er yfirskrift átaks sem er að hefjast í sa&iaðarupp-
byggingu við Glerárkirkju. Það er um 20 manna hópur nemenda
og starfsmanna Biblíuskólans á Eyjólfsstöðum á Fljótsdalshéraði sem
hafa staðið að undirbúningi átaksins, en hópurinn verður á Akureyri
í 6 vikur. Höfúðáhersla verður lögð á innra starf kirkjunnar.
Þorsteinn Kristiansen, leiðtogi
átaksins, sagði að séra Pálmi Matt-
híasson, fyrrverandi sóknarprestur
í Gierárkirkju, hefði haft á því
áhuga að auka og efla safnaðar-
starfið og óskað eftir að Biblíuskól-
inn tæki verkefnið að sér. Þráðurinn
hefði síðan verið tekin upp við séra
Pétur Þórarinsson er hann tók við
störfum sóknarprests. Hópurinn
kom til Akureyrar í byijun janúar
og hefur síðan verið unnið að undir-
búningi átaksins.
„Það er ósk okkar að sjá kirkjuna
sinna öllum aldurshópum og að hún
komi til móts við mismunandi þarf-
ir fólks í nútímasamfélagi," sagði
Þorsteinn. Um helgina verður boðið
upp á samkomur með nokkuð
breyttu sniði í Glerárkirkju og
næstu föstudagskvöld verða einnig
samkomur í kirkjunni og sagði Þor-
steinn að þar yrði boðið upp á létt-
ari tónlist en áður hefur tíðkast í
kirkjum og frjálsari tilbeiðslu.
Þá verður gefið út safnaðarbiað
sem dreift verður í öll hús í sókn-
inni og hópurinn mun einnig gera
skoðanakönnun meðal 320 sóknar-
barna þar sem viðhorf þeirra til
kirkjunnar og trúarlífs verður kann-
að. Hugmyndin er að niðurstöður
könnunarinnar nýtist til safnaðar-
uppbyggingar í framtíðinni.
Það eru samtökin Ungt fólk með
hlutverk sem standa að Biblíuskól-
anum á Eyjólfsstöðum og sögðu
tveir nemenda hans, þau Guðrún
S. Gísladóttir og Magnús Jónsson,
að starfið við safnaðaruppbygging-
una í Glerárkirkju væri liður í
starfsþjálfun þeirra. „Ég hef alltaf
haft áhuga á þessum málum og fór
í skólann til að læra meira úr Biblí-
unni. Þetta nám er góður undirbún-
ingur fyrir starf með æskulýðs-
félögum eða í sunnudagaskólum,"
sagði Magnús. Guðrún sagði að hún
hefði verið óráðin hvað gera skyldi
eftir að hún lauk stúdentsprófi frá
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
„Mér þótti þetta gott tækifæri til
að kynnast Biblíunni betur og því
ákvað ég að fara i þennan skóla.
Þetta hefur verið dýrmætur tími,“
sagði Guðrún.
Sú þjónusta sem um verður spurt
í könnuninni er lögfræðiþjónusta,
rekstrarráðgjöf, bókhald, endur-
skoðun, tækniþjónusta, verkfræði-
þjónusta, tölvuþjónusta, auglýs-
ingagerð og prentun.
Athugað verður í hversu miklum
mæli fyrirtæki í bænum kaupa þjón-
ustu utan Akureyrar og segir Hólm-
steinn Hólmsteinsson, formaður at-
vinnumálanefndar, að einnig verði
athugað hvers vegna fyrirtæki leiti
út fyrir bæinn með kaup á þjónustu
af þessu tagi. Komi í ljós að for-
svarsmenn fyrirtækja séu óánægðir
með þá þjónustu sem í boði er í
bænum sé nefndin tilbúin til að
koma því á framfæri við viðkom-
andi aðila og athuga hvort ekki
megi ráða þar á einhverja bót, þann-
ig að fyrirtæki beini viðskiptum
sínum til aðila í heimabyggð.
Hólmsteinn sagði að með svörin
yrði farið sem trúnaðarmál og að
nöfn fyrirtækjanna sem þátt tækju
í könnuninni kæmu hvergi fram.
„Við vonum að sem flest fyrirtæki
svari þannig að könnunin verði
marktæk,“ sagði Hólmsteinn.