Morgunblaðið - 26.01.1990, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990
Jórunn Ámadóttir
Karlsson - Minning
Fædd 22. febrúar 1944
Dáin 13. janúar 1990
Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og besta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótt þér aðrir bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar, - Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
(Sig. Kr. Pétursson)
Að kvöldi 13. janúar sl. barst
okkur sú fregn frá Svíþjóð að Jór-
unn, systurdóttir okkar, hefði látist
þá um kvöldið á heimili sínu að
Blomstergatan 7 í Kungshamn.
Hetjulegri baráttu við illvígan sjúk-
dóm er lokið, baráttu sem hófst
fyrir tæpum þremur árum.
Jórunn fæddist á Dalvík 22. febr-
úar 1944, elst fimm barna hjónanna
Áma Arngrímssonar og Báru Elías-
dóttur. Hún var fyrsta barnabarnið
í fjölskyldum foreldranna og sólar-
geisli sem fagnað var af öllum.
Jórunn ólst upp við leiki og störf á
ástriku heimili og eftir þá skóla-
göngu sem hægt var að njóta í
heimabyggð lá leið hennar í Héraðs-
skólann á Laugarvatni og einnig
var hún einn vetur við nám í Hús-
mæðraskólanum Ósk á ísafirði. Þar
kom í ljós eðlislæg vandvirkni henn-
ar og alúð við öll störf og sem ætíð
einkenndi alla hiuti sem hún skap-
aði, bæði til að fegra- heimili sitt
og til að gleðja aðra með.
Jórunn vann m.a. við skrifstofu-
og verslunarstörf á Dalvík þar til
haustið 1962 að hún átti þess kost
að fara til starfa í Gravarne í
Svíþjóð, sem nú heitir Kungshamn.
Henni fannst það kærkomið tæki-
færi til að sjá og kynnast þessu
fallega landi og fólkinu sem þar
býr. Þar kynntist hún eiginmanni
sínum, öðlingsmanninum Sture
Karlsson, sem starfar nú sem um-
sjónarmaður íþróttamannvirkja í
Kungshamn. Þau gengu í hjóna-
band á vordögum 1964 og byggðu
sér heimili að Blomstergatan 7. Þau
áttu sér fagurt heimili með gróður-
sælum garði, sem ber glöggt vitni
um samhug þeirra og samheldni,
smekkvísi og dugnað.
Sture reyndist einstök stoð og
stytta Jórunnar í öllum hennar veik-
indum og kom þá vel í ljós að hann
var ,einn af þeim sem vaxa með
hverjum vanda og sýna best hvem
mann þeir hafá að geyma þegar
mest á reynir.
Þau eignuðust tvo syni, Jan Arne,
sem fæddur er 27. september 1964,
og Bjöm Gunnar, sem fæddur er
28. ágúst 1967. Jan Arne lauk námi
í efnaverkfræði á liðnu ári og vinn-
ur í Gautaborg, en Björn Gunnar
er tæknifræðingur hjá Saab-verk-
smiðjunum í Trollháttan. Báðir em
synir þeirra miklir efnismenn-og
góðir drengir og bera foreldrum
sínum og heimili gott vitni í öllu
dagfari.
Það er margs að minnast frá liðn-
um ámm, því oft kom fjölskyldan
til íslands og það var sannarlega
ánægjulegt að koma í heimsókn á
Blomstergatan 7. Þar mætti gest-
um ómæld gestrisni og hjartahlýja
t
Faðir okkar og sonur,
BJARNI ÞÓR KJARTANSSON,
lést í Landakotsspítala 25. janúar.
Kjartan Þór Bjarnason, Birgir Bjarnason,
Geir Bjarnason, Baldur Bjarnason,
Ásta Bjarnadóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
BJARNI SVEINN ÞÓRÐARSON
trésmíðameistari,
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á (safirði 24. janúar. Jarðarförin-
verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda.
Guðriður Guðmundsdóttir.
t
Ástkær eíginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
VALDHEIÐUR M. (HEIÐA) VALDIMARSDÓTTIR,
Vesturbrún 10,
Reykjavík,
lést í Landakotsspítala 23. janúar.
Sigfús Jónsson,
Margrét Sigfúsdóttir,
Sigrún Sigfúsdóttir,
Jón Sigfússon, Birna Jónsdóttir,
Valdimar Sigfússon, Valgerður Hannesdóttir,
Kristinn Sigfússon
og barnabörn.
t
» Mððir_okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
STEINUNN BERGÞÓRStJÓTTIR
. frá Hvdmmstánga,
Vesturgötu 16,
Keflavik,
lést. á H1évangi 23. janúar.
Alda Magnúsdóttir,
Ingibjörg Magnúsdóttir,
Ólöf Magnúsdóttir,
Þórir Magnússon,
Hólmar Magnússon,
Alexander Jóhannesson,
Hermann Nfelsson,
Stefán Þórarinsson,
Jensína M. Leó,
Guðrún R. Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
hjónanna sem allt vildu gera til að
gera gestum dvölina sem ánægju-
legasta. Þau kunnu að gleðjast með
glöðum, en líka tóku þau ríkan þátt
í því mótdræga hjá vinum sínum.
Það kom vel í ljós í veikindum Jór-
unnar að hún átti marga góða vini,
sem studdu hana og glöddu á marg-
an hátt. Þegar hún heimsótti æsku-
stöðvarnar á liðnu sumri bar hún í
veskinu sínu fallega kveðju frá vin-
um sínum í Kungshamn, sem birtist
í bæjarblaðinu áður en hún kom
hingað. Það duldist engum hvað
þetta var henni mikils virði.
Ferðin til íslands í sumar var
mikill sigur fyrir Jórunni. Hún var
búin að gangast undir stóra upp-
skurði á miðju ári 1988, þar sem
tvívegis var skipt um lifur, og sýna
frábært þrek og æðruleysi í erfiðri
læknismeðferð.
í þau tuttugu og sjö ár sem hún
bjó erlendis hafði hún aldrei þráð
jafn heitt að koma heim eins og sl.
sumar. Henni tókst það með dygg-
um stuðningi fjölskyldu sinnar og
lækna. Og heima var henni fagnað
sem aldrei fyrr af foreldrum, ætt-
ingjum og vinum. Foreldrum sem
dvöldu hjá henni síðasta mánuðinn
og gátu notið jólahelgarinnar og
áramótanna með henni og fjölskyld-
unni. Við vitum að fyrir þennan
tíma eru þau öll þakklát.
Læknum og hjúkrunarfólki á
Sahlgránska sjúkrahúsinu í Gauta-
borg, serru stunduðu hana af kost-
gæfni, svo og öllum þeim sem sýndu
henni kærleika og vináttu {veikind-
um hennar var hún innilega þakklát
og forsjóninni fyrir þann tíma sem
hún fékk eftir aðgerðimar.
Fjölskyldur okkar og háöldruð
amma kveðja öll Jórunni með sökn-
uði að leiðarlokum og þakka henni
alla elskusemi og tryggð. Og víst
hefðum við viljað fylgja henni
síðasta spölinn, en hugur okkar
allra verður hjá henni í dag.
Ástríkum eiginmanni hennar,
sonum, foreldrum, systkinum og
öðrum vandamönnum, vottum við
innilega samúð og biðjum þeim
blessunar Guðs.
Minningu elskulegrar frænku
geymum við í hugum okkar alla tíð.
Bjarki Elíasson,
Björn Elíasson,
Þórunn Elíasdóttir.
Ásgeir Ásgeirsson,
Haiharfírði — Miiming
Fæddur 23. nóvember 1910
Dáinn 18. janúar 1990
Tengdafaðir minn, Ásgeir Ás-
geirsson, er til grafar borinn í dag.
Ásgeir fæddist á ísafirði 23. nóvem-
ber 1910 og ólst_ þar upp í hópi
systkina. Foreldrar hans voru Re-
bekka Hjaltadóttir og Ásgeir Jóns-
son. Leiðir okkar Ásgeirs lágu sam-
an er konuefnið mitt leiddi mig inn
á heimili foreldra sinna, þeirra Ás-
geirs og Jónu Pétursdóttur, fyrir
nær þrjátíu árum. Allt frá þeim
degi bundumst við vináttuböndum
sem aldrei rofnuðu.
Ásgeir var sterkur persónuleiki
með ákveðnar skoðanir sem hann
var ófeiminn að gefa upp þegar það
átti við. Hann var mikill mannkosta-
maður og hafði tamið sér eigin-
leika, sem prýddu hann og hver
maður varð betri af að kynnast.
Ásgeir var dagfarsprúður og heið-
arleiki og snyrtimennska ásamt
reglusemi á öllum sviðum var mjög
einkennandi fyrir hann. Alltaf var
gott að koma til hans, við fjölskylda
mín fundum það ekki síst þegar
við, skömmu eftir lát Jónu, þurftum
að hverfa frá heimili okkar í Vest-
mannaeyjum vegna eldgoss. Þá
opnaði Ásgeir heimili sitt fyrir okk-
ur hjónin og íjögur böm okkar. Þó
að þröngt væri urðum við aldrei vör
við, að honum fyndist að sér þrengt
og ég vissi að þegar við fórum í
okkar eigin íbúð, nokkrum vikum
síðar, þá saknaði hann þess að hafa
börnin ekki lengur á heimilinu.
Sínum bestu árum eyddi Ásgeir
að miklum hluta á sjónum, þar sem
hann var vélstjóri, en eftir að ijöl-
skyldan fluttist frá ísafirði til Hafn-
arfjarðar vann hann daglaunastörf
og sagt hafa mér menn sem með
honum unnu, að þau störf vann
hann af þeirri einstöku samvisku-
semi sem ég kynntist svo vel í fari
hans. Nú allra síðustu ár var Ás-
geir sjúklingur, ekki virtist það
samt há honum við að treysta fjöl-
skylduböndin sem honum var svo
umhugað um að ekki rofnuðu. Ég
sé ekki ástæðu til að fara mörgum
orðum um lífshlaup Ásgeirs, en
hans nánustu ættingjar og við hin,
sem bárum gæfu til þess að kynn-
ast honum, vitum að honum var
ætlað pláss á góðum stað, eins og
hann verðskuldaði, og þar munu
þau sæmdarhjón Jóna og Ásgeir
aftur hafa náð saman.
Halldór Svavarsson
Guðmundur Magnús-
son - Kveðjuorð
Fæddur 28. apríl 1913
Dáinn 19. janúar 1990
Síðastliðinn föstudag bárust okk-
ur þær fregnir hingað til'Noregs
að afí væri dáinn. Þessar fregnir
komu okkur ekki á óvart því að afi
hefur átt við sjúkdómserfiðleika að
stríða síðastliðin ellefu ár. Um jólin
vorum við heima á Islandi og þegar
við kvöddum afa þann 5. janúar
grunaði okkur að það væri hinsta
kveðja. Þrátt fyrir þennan óljósa
grun fyllir söknuður huga okkar
þessar stundir. Hugurinn leitar til
afa okkar sem við áttum svo marg-
ar góðar stundir með og minning-
una um hans jákvæða og hlýja við-
mót varðveitum við um ókomin ár.
„Því lffið er ekki þeir dagamir sem eru liðnir,
heldur dagamir sem við munum.“
(Paulenko.)
t
Maðurinn minn,
ÓSKAR SIGURÐSSON
skipstjóri,
Eyjaseli 1,
Stokkseyri,
andaðist í sjúkrahúsi Suðurlands miðvikudaginn 24. janúar sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Jóna Kristjánsdóttir.
t
GUÐBJARNI SIGMUNDSSON
frá ívarshúsum,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
andaðist að morgni 24. janúar í sjúkrahúsi Akraness. Jarðarförin
auglýst síðar.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Elsku tengdamamma og amma
Svava. Við vildum gjarnan vera hjá
þér á þessari stundu og erum það
í huganum.
Herdís Páldsdóttir og Dóra,
Björg og Svava K.
Þórhallsdætur
CMC
CMC kerfi «r serstaklega hannad Hhngið eftir
fyrir loflplötur frá Armstrong frekan upplysingum.
la^ |sm CrfikMimboá á lilindl
£8 Þ. ÞQRGRÍMSSON & CO
Ármúla 29 - Reykavfk - sími 38640