Morgunblaðið - 26.01.1990, Síða 38
3«
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990
FOLX
■ HANS Guðmundsson, sem
hefur leikið með spænska 2. deild-
arliðinu Puerto Cruz Tenerife, er
nú á heimleið. Hans hefur ekki
fengið greidd laun í þrjá mánuði.
■ ÞORBERGUR Aðalsteinsson
mun ekki leika með Saab í sænsku
úrvalsdeildinni í handknattleik
næstu vikur. Vöðvi í læri rifnaði.
Saab er í þriðja sæti.
H ÞORVALDUR Örlygsson,
sem hefur staðið sig vel með Nott-
ingham Forest að undanfornu, er
kominn heim í stutt frí. Hann valdi
frekar snjóinn á Akureyri, heldur
en að flatmaga með félögum sínum
á sólarströnd á Tenerife.
■ GUÐRÍÐUR Guðjónsdóttir og
Sigrún Blomsterberg skoruðu sín
átta mörkin hvor þegar Fram vann
KR, 29:11, í 1. deildarkeppni
kvenna í handknattleik í fyrrakvöld.
■ HALLDÓR Áskelsson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu úr Val, er
á leiðinni ti! Lokeren í Belgiu.
Hann fer utan 3. feþrúar, dvelur
þ'ar í tíu daga, æfír og tekur þátt
í æfíngaleik með liðinu. „Liðið er
um miðja deild og er enn með í
bikarkeppninni. Sló stórliðið KV
Mechelen út. Mér skilst að liðið sé
ungt og hafí staðið sig mun betur
í vetur en vonir stóðu til,“ sagði
Halldór í samtali við Morgunblaðið.
■ BJARNI Guðmundsson og
samheþar hans í Wanne Eickel
fengu stóran skell í botnslag v-
þýsku úrvalsdeildarinnar í hand-
_J^iattleik í fyrrakvöld. Þeir töpuðu
þá fyrir Weiche Handewitt á úti-
velli, 12:20. Lið Wanne Eickel er
því í neðsta sæti.'tveimur stigum á
eftir Handewitt.
HANDKNATTLEIKUR / HM 1995
Morgunblaðiö/Þorkell
Garðar Pétursson tekur við 300.000 króna verðlaunum sínum. Valur Arnþórsson, t.v.,_ afhenti honum peningana.
Á myndinni má sjá Ólaf Jónsson, formann dómnefndar, Jón H. Magnússon, formann HSÍ, Þorgils Óttar Mathiesen,
fyrirliða landsliðsins sem átti sæti í dómnefnd, og Héðin Gilsson landsliðsmann.
Fléttar skemmtilega saman
ártalid, handknattleiks-
mann í sókn og kraft leiksins
- sagði Ólafur Jónsson formaður dómnefndar um
merkiHM ’95sem kynntvarígær
NIÐURSTAÐA dómnefndar,
sem valdi merki heimsmeist-
arakeppninnar í handknattleik
á íslandi 1995, var kynnt í gær.
Fyrir valinu varð merki Garðars
Péturssonar, auglýsingateikn-
ara á Auglýsingastofu Kristín-
ar, og hlaut hann 300.000 krón-
uríverðlaun.
Alls bárust 124 tillögur í keppn-
ina. „Tillögurnar voru mjög
fjölbreyttar að gerð og báru með
sér að höfundar höfðu lagt mikla
alúð við gerð þeirra og flestar voru
fagmannlega unnar, áhugaverðar
og hugmyndaríkar," sagði Ólafur
Jónsson, formaður dómnefndar,
m.a. er hann kynnti niðurstöðuna
í aðalbanka Landsbanka íslands í
gær. Um verðlaunamerkið sagði
Olafur: „Þetta er einfalt, myndrænt
tákn og fléttar skemmtilega saman
ártalið 1995, handknattleiksmann í
FRAMTIB
ATLANTSHAFS-
BANDALAGSINS
Hver verður framtíð Atlantshafsbandalagsins
í Ijósi atburðanna í Austur-Evrópu
og Sovétríkjunum að undanförnu?
Um þetta verður rætt á opnum fundi sem
tímaritið Frelsið efnir til á Gauki á Stöng
laugardaginn 27. janúar kl. 14.00.
Gunnar Jóhann Birgisson lögfræðingur,
flytur inngangsorð.
Ræðumenn: Kjartan Gunnarsson, formaður
Samtaka um vestræna samvinnu og
Magnús Þórðarson framkvæmdastjóri.
Fundarstjóri: Sigrún Traustadóttir.
Allir velkomnir.
Tímaritið Frelsið.
sókn og kraft leiksins. Auk þess
er merkið auðvelt í notkun.“
Það var Valur Amþórsson, einn
bankastjóra Landsbankans, sem
afhenti Garðari verðlaunin. Tvær
tillögur að auki fengu sérstaka við-
urkenningu; merki Lofts Ólafs
Leifssonar og Bjöms H. Jónssonar.
Hlaut hvor 50.000 krónur.
í dómnefnd voru Ólafur Jónsson,
upplýsingafulltrúi Reykjavíkur-
borgar og varaformaður HSÍ,
Brynjólfur Helgason, aðstoðar-
bankastjóri Landsbankans, Þorgils
Óttar Mathiesen, viðskiptafræðing-
ur og fyrirliði landsliðsins í hand-
knattleik, Ólöf Árnadóttir, auglýs-
ingateiknari og Ottó K. Ólafsson,
auglýsingateiknari. Trúnarmaður
og ritari nefndarinnar var Ólafur
Jensson, framkvæmdastjóri Bygg-
ingaþjónustunnar.
Öll merkin sem send voru inn í
samkeppnina hanga uppi í aðal-
banka Landsbankans í Áusturstæti.
Þau verða þar til sýnis þar til 2.
febrúar nk., þann tíma dagsins sem
bankinn er opinn.
Þess má geta að Landsbankinn
gefur verðlaunaféð, en bankinn er
aðalstuðningsaðili Handknattleiks-
sambandsins vegna HM 1995.
KNATTSPYRNA
Merki heimsmeistarakeppninnar í
handknattleik 1995 á íslandi.
Opið hús í
Laugardal
mr
Íþróttasamband íslands verð-
ur 78 ára á sunnudaginn. ÍSÍ
var stofnað 28. janúar 1912.
Af þessu tilefni verður opið hús
f íþróttamiðstöðinni í Laugardal
á sunnudaginn kl. 15-17. Þang-
að eru velkomnir félagsmenn og
velunnarar sambandsins í kaffí
og meðlæti.
Ufám
FOLK
■ STEFFI Graf leikur til úrslita
gegn bandarísku stulkunni Mary
Joe Fernandez á opna ástralska
meistaramótinu í tennis. Graf vann
Helenu Sukova frá Tékkósló-
vakíu, 6:3, 3:6, 6:4, í undanúrslit-
um. Graf tapaði sinni fyrstu lotu á
ástralska í sex ár, eða síðan hún
tapaði, þá 14 ára, fyrir Wendy
Turnbull 1984. Fermamdez vann
v-þýsku stúlkuna Claudia Porwik,
6:2, 6:1, í hinum undanúrslitaleikn-
um.
■ ADRIAN Moorhouse frá Eng-
landi jafnaði heimsmet sitt í 100 m
bringusundi á móti í Auckland.
Tími hans var 1:01.49 mín.
■ JOHN Sillett, framkvæmda-
stjóri Coventry, snaraði peninga-
buddunni á borðið í gær og keypti
skoska landsliðsmanninn Kevin
Gallacher frá Dundee United fyr-
ir 900.000 pund, sem er metupphæð
sem Coventry hefur borgað fyrir
leikmann.
Stefán ráðinn fram-
kvæmdastjóri KSÍ
STEFÁN Snær Konráðsson var
í gær ráðinn framkvæmdastjóri
Knattspyrnusambands ís-
lands. Sökum starfs síns sem
framkvæmdastjóri íþrótta-
hátíðar ÍSÍ í sumar getur hann
ekki hafið störf fyrr en henni
lýkur, eða 1. júlí.
Stefán Snær er 31 árs, giftur
Valgerði Gunnarsdóttur og
eiga þau tvö börn. Hann er kunnur
landsliðsmaður í borðtennis og
margfaldur íslandsmeistari. Stefán
lauk námi í Osló sem íþróttastjóm-
unarfræðingur og samtímis því
stundaði hann nám í skrifstofu-
stjómunarfræði.
„Þetta er spennandi starf og jafn-
framt erfítt. Knattspyrnusamband-
ið er langstærsta sérsambandið inn-
an ÍSÍ. Það tekur örugglega góðan
tíma að aðlagast þessu starfí. Ég
mun Ieggja mesta áherslu á að efla
samskipti við félögin og endur-
skipuleggja skrifstofustarfíð,"
sagði Stefán Snær í stuttu spjalli
við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Stefán sagði að hann gæti ekki
hugsað mikið um starf sitt hjá KSI
fyrr en Íþróttahátíð ÍSÍ lýkur. „Þá
mun ég yfirgefa mjög góðan vinnu-
stað. Það hefur verið mér mikil
reynsla að starfa hjá íþróttasam-
bandi Islands," sagði Stefán Snær
Konráðsson.