Morgunblaðið - 26.01.1990, Side 39
39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990
KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILD
Meistaramir
höfðu betur
KEFLVÍKINGAR sýndu meist-
aratakta þegar þeir unnu ná-
granna sína frá Njarðvík í
Keflavík í gærkvöldi 108:96.
Njarðvíkingar náðu aðeins að
veita þeim keppni framan af í
fyrri hálfleik, en eftir það varð
leikurinn að mestu eign
Keflvíkinga sem léku mun bet-
ur og enginn þó eins og Guðjón
Skúlason. Hann var í strangri
gæslu allan leikinn en náði þó
að skora 29 stig, flest úr ákaf-
lega erfiðum stöðum og þar
af voru fimm 3ja stiga körf ur.
Leikurinn einkenndist af mikilli
baráttu eins og allir leikir þess-
ara liða og áður en yfir lauk
ÚRSLIT
Þór-Reynir 107:59
íþróttahöllin á Akureyri, úrvalsdeildin í
körfuknattleik, fimmtudaginn 25. janúar
1990.
Gangur leiksins: 6:0, 18:6, 31:11, 45:25,
64:36, 78:48, 82:54, 107:59.
Stig Þórs: Konráð Óskarsson 31, Dan
Kennard 22, Eiríkur Sigurðsson 12, Björn
Sveinsson 12, Stefán Friðleifsson 8, Jón
Orn Guðmundsson 8, Jóhann Sigurðsson
5, Guðmundur Bjömsson 5, Davíð Hreiðars-
son 4.
Stig Reynis: David Grissom 27, Einar Þór
Skarphéðinsson 10, Jón Ben Einarsson 7,
Sveinn Hans Gíslason 7, Anthony Stissi 2,
Jón Guðbrandsson 2, Helgi Sigurðsson 2.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og Helgi
Bragason og dæmdu sæmilega.
Áhorfendur: 97.
ÍR-Haukar 65:83
íþróttahúsið Seljarskóla. Úrvalsdeildin í
körfuknattleik, fímmtudagur 25. febrúar
1990.
Gangur leiksins: 8:2, 8:10, 16:16, 22:29,
29:40. 33:49, 53:56, 56:69, 65:83.
Stig ÍR: Jóhannes Sveinsson 23, Thomas
Lee 19, Björn Steffensen 14, Lárús Amars-
son 3, Sigurður Einarsson 2, Kristján Ein-
arsson 2, Eggert Garðarsson 2.
Stig Hauka: ívar Webster 19, Jónathan
Bow 19, Jón A. Ingvarsson 18, ívar Ás-
grímsson 11, Pálmar Sigurðsson 5, Henning
Henningsson 4, Reynir Kristjánsson 4, Ingi-
mar Jónsson 3.
Áhorfendur: 30 (Fjórtán börn og sextán
fuljofðnir).
Dómarar: Pálmi Sighvatsson og Guðmund-
ur S. Maríasson, sem dæmdu þokkalega.
ÍBK-UMFN 108:96
íþróttahúsið í Keflavík, úrvalsdeildin í
körfuknattleik, fimmtudaginn 25. janúar
voru 8 leikmenn komnir af
leikvelli með 5 villur - fjórir úr
hvoru liði.
Njarðvíkingar urðu að kalla til
Helga Rafnsson enn eina ferð-
ina þar sem tveir leikmanna þeirra
voru meiddir, þeir Friðrik Ragnars-
son sem brákaðist á
hendi í síðasta leik
og Kristinn Einars-
son sem meiddist á
æfingu fyrir leikinn.
Þetta veikti lið þeirra greinilega og
náði Helgi sem lítið hefur æft körfu-
bolta í vetur engan vegin að fylla
skarð þeirra.
Njarðvíkingar byijuðu þó betur
og um miðjan fyrri hálfleik leit út
fyrir að Keflvíkingar væru komnir
í villuvandræði. Þeir létu sér samt
hvergi bregða og skiptu nýjum
mönnum inná sem stóðu hinum í
byrjunarliðnu lítt að baki. Smám
saman komu yfirburðir Islands-
meistaranna í ljós, leikur þeirra var
mun öruggari og ekki hvað síst
markvissari. Undir lok hálfleiksins
náðu þeir upp 10 stiga forskoti sem
þeir héldu af öryggi allan leikinn.
Með sigri sínum hafa Kef lvíking-
ar nú nánast gulltryggt sér sigurinn
í sínum riðli, en allt bendir nú til
þess að Njarðvíkingar verði að
sætta sig við annað sætið í sínum
riðli á eftir KR-ingum sem virðast
ósigrandi um þessar mundir. Það
bendir því flest til þess að Kef lvík-
ingar fái Njarðvíkinga í heimsókn
til að útkljá hvort iiðið komi til með
að leika til úrslita um íslandsmeist-
aratitilinn.
Þór burstaði Reyni
Reynismenn úr Sandgerði voru
Þórsurum lítil hindrun á Akur-
Björn
Blöndal
skrifar
eyri. Heimamenn unnu stórsigur,
107:59. Þór tók forystu strax á
upphafsmínútunum
Reynir og um miðjan fyrri
Eiríksson hálfleik var munur-
skrifar inn orðinn 20 stig.
Þá var strax ljóst
að sigurinn var ekki í nokkurri
hættu, þrátt fyrir að Þórsarar
leyfðu þeim sem venjulega verma
varamannabekkinn að spreyta sig
talsvert.
ÍR-ingar sprungu þegar
Leefóraf velli
Þegar Thomas Lee fór af
leikvelli með fimm villur
sprungu ÍR-ingar. Þá voru þeir
búnir að saxa á forskot Hauka og
■^■■■1 munurinn aðeins
FrostiB. þrjú stig, 53:56.
Eiösson . Haukar náðu aftur
skrifar góðum tökum á
leiknum og unnu,
65:83, í baráttuleik.
ÍR-ingar byijuðu betur, en Hauk-
ar náðu síðan fljótlega öll völd á
leiknum. Varnaríeikur Hauka var
góður, en ÍR-ingar hittu illa körf-
una.
Morgunblaðið/Einar Falur
Guðjón Skúlason átti stórleik með Keflvíkingum í nágranaslagnum. Hér
er hann að senda knöttinn í körfu Njarðvíkinga.
Stjömuleikur á Sauðárkróki
Stjömuleikur verður á Sauðár-
króki í kvöld í tilefni þess að
25 ár eru liðin frá því að meistara-
flokkur körfuknattleiksdeildar
Tindastóls lék sinn fyrsta leik.
Tindastóll mun leika gegn úrvalsliði
Úrvalsdeildarinnar og þá verður boð-
ið upp á ýmsar skemmtilegar uppá-
komur.
Það voru áhorfendur í íþróttahús-
inu á Sauðárkróki sem völdu úrvals-
liðið sem leikur, en það er þannig
skipað:
Guðmundur Bragason, Grindavík,
Teitur Örlygsson og ísak Tómasson,
Njarðvík, Guðjón Skúlason og Sig-
urður Ingimundarson, Keflavík, Ax-
el Nikulásson og Páll Kolbeinsson,
KR, Pálmar Sigurðsson, Henning
Henningsson og ívar Ásgrímsson,
Haukum.
Liðsstjóri er Einar Bollason. Kol-
beinn Pálsson, formaður KKÍ, verður
heiðursgestur kvöldsins.
Stjörnuleikurinn hefst kl. 20.
BB
KNATTSPYRNA / RUMENIA
Nicu Ceausescu lét brjóta
hendur markvarðar Steaua
- vegna þess að sá, Helmut Ducadam, vildi ekki gefa honum bifreið sem
hann hlaut sem besti maður úrslitaleiks Evrópukeppni meistaraliða 1986
HELMUT Ducadam, markvörður Steaua frá Búkarest og rúm-
enska landsliðsins var á allra vörum miðvikudagskvöldið 7. maí
1986. Eftir markalausan úrslitaleik rúmenska liðsins og Barc-
elona í Evrópukeppni meistaraliða, sem fram fór í Sevilla, gerði
hann sér þá lítið fyrir og varði fjórar vítaspyrnur leikmanna Barc-
elona ívítaspyrnukeppninni, og tryggði liði sínu sigur. Eftir
síðustu fregnirfrá Rúmeníu má reikna með að markvörðurinn
fyrrverandi verði á ný á allra vörum — ekki fyrir frammistöðu
milli stanganna að þessu sinni heldur hroðalega meðferð útsend
ara Nicu Ceausescu, sonar Nicolaes fyrrverandi forseta.
Helmut Ducadam fagnar sigri Steaua í Evrópukeppni meistaraliða 1986.
Hann var hetja liðsins. Fögnuður hans stóð ekki lengi yfir.
1990.
Gangur leiksins: 0:2, 4:4, 10:11, 17:17,
25:25, 33:32, 43:47, 46:46, 56:46, 62:56.
70:60, 81:70, 88:70, 92:80, 99:85, 103:92,
108:96.
Stig ÍBK: Guðjón Skúlason 29, Sandy
Anderson 20, Magnús Guðfinnsson 16, Sig-
urður Ingimundarson 12, Falur Harðarson
10, Nökkvi M. Jónsson 7, Einar Einarsson
6, Kristinn Friðriksson 6, Ingólfur Haralds-
son 2.
Stig UMFN: Patrick Releford 30, Teitur
Orlygsson 17, Jóhannes Kristbjörnsson 13,
Friðrik Rúnarsson 13, Helgi Rafnsson 11,
Ástþór Ingason 6, Agnar Olsen 4, ísak
Tómasson 2.
Áhorfendur: Um 500.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Leifur S.
Garðarsson sem skiluðu sínu hlutverki af
stakri prýði.
Guðjón Skúlason, ÍBK.
Konráð Óskarsson, Þór. David Grissom,
Reyni. Sandy Andersson, Magnús Guð-
finnsson, IBK, Patrick Releford, UMFN.
Dan Kennard, Jóhann Sigurðsson, Eiríkur
Sigurðsson, Þór._ Jóhannes Sveinsson,
Thomas Lee, ÍR. ívar Webster, Jónathan
Bow, Jón A. Inp'arsson, Haukum. Falur
Harðarson, Sigurður Ingimundarson,
Nökkvi M. Jónsson ÍBK. Teitur Örlygsson
UMFN.
Itveimur v-þýskum dagblöðum
sem gefin eru út í Köln, Staat-
anzeiger og Express, var í gær
greint frá örlögum Ducadams, en
■■■■■■ fljótlega eftir úr-
FráJóni slitaleikinn í Sevilla
Halldóri * hætti hann að leika.
átti hann að hafa fengið einhvers
konar sýkingu í hendurnar og því
orðið að hætta að spila. Skv. frétt-
um þýsku blaðanna, sem reyndar
eru unnar upp úr frásögn tékkneska
íþróttadagblaðsins Czéskosloven-
sky Spórt, var ástæða skyndilegrar
brottfarar Ducadams af sjónarsvið-
inu allt önnur.
Þannig er mál með vexti að rúm-
enski markvörðurinn var valinn
besti maður úrslitaleiksins. Hann
hlaut að launum forláta Mercedez
Benz bifreið og var hún flutt heim
til Rúmeníu. A fyrstu æfingu Ste-
aua liðsins eftir sigurinn í Evrópu-
keppninni mætti sá sem sagður er
öllu hafa ráðið hjá félaginu, sjálfur
Nicu forsetasonur, sem nú situr á
bak við lás og slá sem kunnugt er.
Girntist hann mjög hina nýju bif-
reið, og sagði við markvörðinn að
hann hefði nákvæmlega ekkert með
þesslags tæki að gera. „Þú ert bara
bóndi og hefur ekkert með Benzinn
að gera,“ á hann að hafa sagt við
Ducadam. Markvörðurinn var ekk-
ert á því að láta Benzinn af hendi
og fór Nicu þá leiðar sinnar.
Á næstu æfingu mættu hins veg-
ar útsendarar Nicus, handtóku
Ducadam og fóru með hann á brott.
Mölbrutu þeir síðan báðar hendur
markvarðarins og hefur hann ekki
getað leikið síðan. Hann var 26 ára
þegar þetta gerðist.
Ducadam er nú aðstoðarþjálfari
3. deildarliðs í Búkarest.