Morgunblaðið - 27.01.1990, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.01.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1990 29 Skákmótið í Wijk aan Zee: Margeir skammt frá hópi efstu manna Skák Karl Þorsteins Hið árlega skákmót í Wijk aan Zee í Hollandi hefur fyrir löngu skapað sér fastan sess í skákmóta- haldi. Nær allir sterkustu skákmenn heims hafa þar einhverju sinni ver- ið á meðal keppenda. IViðrik Ólafs- son átti mikilli velgengni að fagna á skákmótum í Wijk aan Zee og sigraði m.a. á mótinu árið 1976. Það er hollenska fyrirtækið Hoog- ovens, sem er styrktaraðili mótsins. Á íslandi er fyrirtækið líklega betur þekkt sökum viðræðna um bygg- ingu álvers hér á landi. Mótið er mjög sterkt einsog keppendalistinn ber með sér. Tólf stórmeistarar eru á meðal keppenda ásamt tveimur holienskum alþjóð- legum meisturum. Á undanförnum árum hafa mótshaldarar í Wijk aan Zee lagt ríka áherslu að fá tii leiks baráttuglaða skákmenn sem sól- unda ekki tímanum við hvimleið jafnteflisboð og uppskorið ríkulega með skemmtilegum mótum. Mótið er mjög jafnt. Engum keppenda hefur tekist að ná afger- andi forystu þegar þetta er ritað. Nigel Short hóf mótið af miklum krafti og lagði af velli Gurevich og Andersson í fyrstu umferðunum. Um miðbik mótsins kom óvænt bakslag og þijár tapskákir í röð bókuðust hjá Short. Kortsjnoj náði þá forystu á mótinu en skammt á hæla hans fylgja Nunn, Dlugy og Andersson. Margeir Pétursson er á meðal þátttakenda og hefur staðið sig prýðilega. Öryg;gið hefur að þessu sinni ráðið ríkjum í viðureignum hans. Margeir vann neðsta mann mótsins en hefur gert jafntefli í öðrum skákum. Engin lognmolla hefur þó ríkt í skákunum þrátt fyr- ir jafnteflin. Margeir tefldi eins og kunnugt er á skákmóti í Reggio Emilia skömmu fyrir mótið í Wijk aan Zee. Þá sigraði hann og tapaði í skákum sínum nokkurn veginn á víxl, öfugt við það sem nú gerist. Kannski á skákþreyta sök á fjöl- mörgum jafnteflum núna, sem eru harla óvenjuleg þegar Margeir á í hlut. Hér sjáum við sýnishorn af taf 1- mennskunni á mótinu. Með hvatvís- um peðsleikjum leggur Kortsjnoj til atlögu á miðborðinu gegn hollensk- um andstæðingi sínum. Kuijf metur stöðuna rangt, sólundar tíma við að staðsetja riddara sinn á e6 reitn- um, þaðan sem hann hröklast frá örfáum leikjum síðar. Með snjallri skiptamunsfórn nær Kortsjnoj yfir- höndinni og með kröftugri tafl- mennsku í áframhaldinu þvingar Kortsjnoj Kuijf til uppgjafar eftir 32 leiki. Hvítt: Kuijf Svart: Viktor Kortsjnoj Spánskur leikur 1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, Bb5 - a6, 4. Ba4 - Rf6, 5. 0-0 - Be7. Það eru ekki einungis íslenskir stjórnmálamenn sem kvarta undan slæmu minni. Kortsjnoj segist aldr- ei geta munað leikjaraðirnar sem byijunarsérfræðingar mæla með þó í sumum tilfella sé hann sjálfur höfundur þeirra! Kannski hefur hann einungis „gleymt" að tefla opna afbrigðið svokallaða með 5. — Rxe4 eins og hann er vanur. 6. Hel - b5, 7. Bb3 - d6, 8. c3 - 0-0, 9. h3 - Ra5, 10. Bc2 - c5, 11. d4 - Dc7, 12. Rbd2 - cxd4, 13. cxd4 — Bb7, 14. d5 — Hac8, 15. Bd3 - Rd7, 16. Rfl - f5?! Eðlilegra var að leika 18. — Rc5. Með peðsleiknum leggur svartur til atlögu gegn miðborðspeðum hvíts en veikir um leið eigin kóngsstöðu. Það hefði hvítur getað hagnýtt sér með því að leika 17. exf5!. Eftir 17. — Bxd5, 8. Rg5 hefur hvítur greinilega betra tafl. En hvítum bregst bogalistin. Leikur hans er máttlaus og brátt nær svartur frumkvæðinu. 17. Bg5? - Rc5,18. Bxe7 - Dxe7, 19. exf5 — Rc4! 20. Bxc4 — bxc4, 21. Re3 - Rd3, 22. He2 - e4, 23. Rd4 - De5, 24. Re6 Einhver kynni að álíta að e6 reit- urinn væri griðarstaður riddarans sem eftir væri skákarinnar. Slíkt er hinn mesti misskilningur, eins og Kortsjnoj sýnir skemmtilega fram á. Hinn framsækni riddari hrökklast til baka á meðan svartur leggur til atlögu gegn hvíta kóngn- um. 25. Rxf5 — Dxf5, 26. Da4 — Bxd5, 27. Rd4 - Df6, 28. Dxa6 - Hf8, 29. Rc2 - Rf4, 30. Hd2 30. He3 — Dxh2 var engu skárra. 30. - Rxh3+! 31. Khl - Rxf2+, 32. Hxf2 — Dh4+ og hvítur gafst upp. SJÁLF5TÆDISFLOKKURINN F É L A G S S T A R F Mosfellingar Almennur félagsfundur Sjálfstæðisfélags Mosfellinga verður haldinn 30. janúar kl. 20.30 í félagsheimilinu, Urðarholti 4. Fundarefni: Lagður fram framboðslisti til næstkomandi bæjarstjórnarkosninga. Önnur mál. Félags- og stuðningsmenn eru hvattir til að mæta. Stjórnin. Sjálfstæðisfólk á Höfn Almennur félagsfundur verður í Sjálfstæðishúsinu þriðjudaginn 30. janúar kl. 20.30. Fundarefni: Sveitarstjórnakosningar að vori. Ákvörðun tekin um aðferð við röðun á framboðslista flokksins. Stjórnin. Prófkjör Sjálfstæðis- flokksins í Kópavogi Opið prófkjör sjálfstæðismanna vegna væntanlegra bæjarstjórna- kosninga vorið 1990 verður haldið laugardaginn 3. febrúar nk. og hefst kl. 10.00 árdegis í Hamraborg 1, 3. hæð. Kjörfundi lýkur kl. 22.00 sama kvöld. Þátttaka i prófkjörinu er heimil öllum stuðningsmönnum Sjálfstæð- isflokksins sem eiga munu kosningarétt i Kópavogi á kördegi, svo og öllum fullgildum félagsmönnum sjálfstæðisfélaganna í Kópa- vogi, sem búsettir eru í Kópavogi og náð hafa 16 ára aldri á kjördegi. Kosning fer þannig fram, að kjósandi merkir við nöfn hvorki fleiri né færri en 6 manna, með því að setja tölustaf fyrir framan nöfn framþjóðenda á prófkjörsseðlinum og tölusetja þá í þeirri röð, sem óskað er að þeir skipi framboðslistann. Þessir frambjóðendur eru í kjöri: Hannes Sampsted, bifreiðasmiður, Löngubrekku 9, Sigurjón Sigurðsson, læknir, Þinghólsbraut 6, Dr. Gunnar Birgisson, verkfræðingur, Austurgerði 9, Birna Friðriksdóttir, skrifstofumaður, Viðihvammi 22, Steinunn H. Sigurðardóttir, verslunarmaður, Hvannhólma 30, Richard Björgvinsson, viðskiptafræðingur, Grænatúni 16, Helgi Helgason, nemi, Lyngheiði 16, Bragi Michaelsson, framkvæmdastjóri, Birkigrund 46, Jón Kristinn Snæhólm, nemi, Sunnubraut 12, Halla Halldórsdóttir, Ijósmóðir, Austurgerði 5, Arnór L. Pálsson, framkvæmdastjóri, Hlaðbrekku 2, Guðni Stefánsson, járnsmfðameistari, Hrauntungu 79, Jóhanna Thorsteinsson, forstöðukona, Ástúni 2, Hjörleifur Hringsson, sölumaður, Skólagerði 39, Guðrún Stella Gissurardóttir, nemi, Hamraborg 36, Kristín Líndal, kennari, Sunnubraut 50, Stefán H. Stefánsson, framkvæmdastjóri, Lundarbrekku 6, Haraldur Kristjánsson, útvarpsmaður, Kársnesbraut 45, Kristinn Kristinsson, húsasmíðameistari, Reynihvammi 22, Sigurður Helgason, lögfræðingur, Þinghólsbraut 53. Þeir kjósendur, sem verða fjarverandi á kjördegi geta kosið á skrif- stofu Sjálfstæðisflokksins, Hamraborg 1, 3. hæð, eftirtalda daga: 23. janúar kl. 18.00-19.00, 27. janúar kl. 13.00-15.00, 30. janúar kl. 18.00-19.00 og 2. febrúar kl. 18.00-19.00. Kjörstjórn fuiltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna i Kópavogi. Sauðárkrókur - bæjarmálaráð Fundur í bæjarmálaráði Sjálfstæðisflokksins verður mánudaginn 29. janúar í Sæborg kl. 20.30. Bæjarfulltrúarnir ræða gerð fjárhagsáætl- unar. Sjálfstæðisfólk fjölmennum og ræðum málin yfir kaffibolla. Stjórnin. Sjáfstæðisflokkurinn á ísafirði Framboðsfrestur til prófkjörs Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs Sjálfstæðisflokksins á ísafirði vegna bæjarstjórnakosningana í vor. Prófkjörið veröur hald- ið helgina 24.-25. febrúar nk. Gögn varðandi framboðið fást hjá formanni kjörstjórnar, Jens Kristmannssyni, vs. 3211, hs. 3098. Fram- boðum ásamt tilskyldum meðmælum skal skilað til formanns kjör- stjórnar í síðasta lagi laugardaginn 10. febrúar. Kjörstjórn. Baráttan við báknið Landsmálafélgið Vörður mun halda málþing um ríkisumsvif laugar- daginn 3. febrúar nk., kl. 10.00 til 13.00 í Valhöll v/Háaleitisbraut. 1. Málshefjendur: Friðrik Sophusson, alþingismaður: Baráttan við báknið; hvað hefur áunnist? Geir H. Haarde, alþingismaður: Atvinnulífið og rikisbúskapurinn. Hreinn Loftsson, lögmaður: Hvaða fyrirtæki er hægt að einkavæða? Markús K. Möller, hagfr.: Hvert er hlutverk rikisins? Dr. Vilhjálmur Egilsson, framkvstj.: Ríkissjóður: Af hverju ekki halli? 2. Opnar umræður: Málshefjendur, ásamt Ólafi ísleifssyni, hagfr., Pálma Jónssyni, alþm., og Ólafi G. Einarssyni, alþm. Ráðstefnustjóri: Guðmundur Magnússon, sagnfr. Málþingið er öllu áhugafólki opið. Landsmálafélagið Vörður. Framtíð Atlantshafs- bandalagsins Stjórn. Heimdallar, félags ungra sjálf- stæðismanna í Reykjavík, hvetur sjálfstæöismenn til að sækja fund á Gauk á Stöng í dag, laugardaginn 27. janúar kl. 14.00, þar sem rætt verður um framtíð Atlantshafs- bandalagsins í Ijósi atburðanna í Austur-Evrópu og Sovétríkjunum. Gunnar Jóhann Birgisson flytur inngangsorð. Ræðumenn: Kjartan Gunnarsson og Magnús Þórðarson. Stjórn Heimdallar. Sma auglysingar Wélagslíf □ GIMLI 599029017 = 1 □ Ml'MIR 59901297 - 1 Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Almenn bænasamkoma 20.30. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11798 og 19533. Sunnudagsferðir 28. janúarkl. 13 A. Verferð 1 Hraun - Grindavík - Staðar- hverfi Létt og fróðleg ganga á milli gömlu hverfana; Þórkötlustaða - Járngerðarstaða og Staðar- hverfis. Staðkunnugur heima- maður slæst i hópinn. Áð við Bláa lónið á heimleiö. Verð 1.000 kr., frítt f. börn m. fullorönum. Brottför frá Umferðarmiðstöð- inni, austanmegin (í Hafnarfirði v/kirkjug.). B. Skíðaganga á Hellisheiði Nú er um að gera að dusta ryk- ið af gönguskiöunum og drifa sig með. Hreyfing og útivera með Ferðafélaginu er ein besta heilsubótin. Verð 800 kr. Brott- för frá Umferðarmiöstööinni, austanmegin. Allir með! Ferðafélag íslands, félag fyrir þig. Krossinn Auðbrekku 2,200 Kópavogur Samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir. # Útivist Þórsmerkurgangan Sunnud. 28. janúar. önnur ferð raðgöngunnar Grófin - Básar. Gengin gamla Selja- dalsleiðin frá Arbæ að Miðdal. Farið um fjölbreytilegt vatna- svæði. Brottför kl. 13 frá BSl bensínsölu. Verð kr. 600.- Skíðagöngunámskeið Sunnud. 28. janúar. Einstakt tækifæri til að ná réttu töktunum á gönguskiöum. Vanur skíðakennari. Brottför kl. 13 frá BSl' bensínsölu. Verð kr. 600.- I Útivistarferð eru allir velkomnir! Unglingadeild Útivistar Nú er tækifæriö! Mætum öll á skíöagöngunámskeiðið á sunnu- daginn. Munið, kl. 13 frá BSl. Myndakvöld Fimmtud. 1. febrúar í Fóstbræðraheimilinu, Lang- holtsvegi 109, hefst kl. 20.30. Margrét Margeirsdóttir sýnir myndir úr Hálendisferð 1989: Snæfell - Kverkfjöll. Kaffi og kökur að lyst innifalið i miða- verði. Aðgangseyrir aðeins kr. 450.- Allir velkomnir. Himalaya - Mepal Kynningarfundur fyrir væntan- lega ferð félagsins til Nepal verður þriðjud. 6. febr. kl. 20.30 á skrifstofu Útivistar, Grófinni 1. Sími/símsvari: 14606. Sjáumst. Útivist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.