Morgunblaðið - 27.01.1990, Blaðsíða 34
^QfiGUNBLAÐIÐ LAUGAKDAGUR 27:, JANUAR 1990
H
Reuter
David Bowie tekur lagið fyrir blaðamenn
með tilheyrandi sveiflum í Rainbow-
leikhúsinu í Lundúnum.
TÓNLIST
Bowie í hljóm-
leikaferð
ÍÞROTTIR/STJORNMAL
Tennisleikarinn Jeltsín í Japan
Sovéski umbótasinninn Borís
Jeltsín hefur verið í ellefu daga
heimsókn í Japan. Japanir komust
fljótlega að því að Jeltsín er ýmis-
legt til lista lagt, til að mynda
þykir hann bráðefnilegur tennisleik-
ari. A myndinni má sjá þennan 58
ára gamla íþróttamann ræða við
Shozo Harada, sem fer með bygg-
ingarmál í japönsku stjórninni, er
þeir gerðu hlé á tennisleiknum.
Jeltsín heimsótti meðal annars
borgina Hírósíma og lýsti því yfir
að hann vildi að öli Asía yrði kjarn-
orkulaust svæði.
Hvassnefjaða bítilmennið David
Bowie boðaði blaðamenn og
aðra þá sem við fjölmiðlun fást á
fund sinn í Rainbow-leikhúsinu í
Lundúnum á dögunum. Tilgangur-
inn var sá að skýra frá mikilli tón-
leikaferð sem hefst í marsmánuði.
Bowie hyggst víða drepa niður
fæti en fyrstu tónleikarnir verða í
Kanada. Bowie hefur sem kunnugt
er verið mikill áhrifavaldur í rokk-
sögunni og þannig hafa margir hald-
ið því fram að hann hafi verið guð-
faðir pönk-tónlistarinnar sem reið
yfir vestræn menningarsamfélög á
sínum tíma. Nokkuð hefur hallað
undan fæti hjá Bowie. Þær fréttir
bárust á síðasta ári að hann hefði
gengið til liðs við hljómsveit eina en
fram til þess hafði hann ætíð starfað
sjálfstætt.
Elton John
á Wembley
með Wat-
ford 1984,
er félagið
tapaði úr-
slitaleik
fyrir Ever-
ton.
KNATTSPYRNA
Elton John selur Watford
Popparinn Elton John er ekki
einungis þekktur fyrir söng
feril sinn, heldur einnig ákafan
knattspyrnuáhuga og hefur hann
árum saman verið stjórnarformaður
og einn aðaleigandr enska knatt-
spyrnufélagsins Watford. Afskipti
hans af féiaginu hófust árið 1976
og fylgdi þeim mikil velgengni.
Félagið ruddist upp úr fjórðu deild
og í þá fyrstu og komst meira að
segja í úrslitaleikinn um Knatt-
spyrnusambandsbikarinn (FA cup)
1984, en tapaði að vísu 0-2 fyrir
Everton frá Liverpool. En nú er
komið að krossgötum, Elton John
er að selja hiut sinn í Watford.
Sagt er að söngvarinn fái 3 millj-
ónir punda fyrir söluna á félaginu
sem leikur sem stendur í 2. deild.
Kaupandinn er félag auðugra
áhugamanna undir forystu Nicholas
Wrighton og Charles Lissaek. Það
eru nokkur ár síðan John gerði
heyrinkunnugt að hlutur hans í
Watford væri til sölu. Það hefur
gengið saman núna fyrst. Er hann
hnýtti lausa enda saman í desem-
ber, sagði hann að hann hefði átt
13 frábær ár sem stjóri hjá Wat-
ford og er hann afsalaði sér félag-
inu væri honum efst í huga gleði
yfir að hafa tryggt fjárhagslega
framtíð þess.
ORÐUR
Hulgaard fékk fálkaorðu
Washington Frá Ivari Guðmundssyni, fréttaritara Morguublaðsins.
Forseti íslands hefur sæmt
Erling Hulgaard, ræðismann
og fiskimálafulltrúa Danmerkur í
New York, riddarakrossi Hinnar
íslensku fálkaorðu. Benedikt
Gröndal sendiherra afhenti
Hulgaard orðuna í eftirmiðdags-
boði á heimili sendiherrahjónanna
nýlega.
Sendiherrann minnti á, að
Hulgaard, sem átti 25 ára
starfsafmæli þennan sama dag
sem fiskimálafulltrúi ræðisskrif-
stofunnar í New York, hefði verið
sérstaklega hjálpsamur íslenskum
útgerðarmönnum og fiskkaup-
mönnum í Bandaríkjunum og
öruggur stuðningsmaður þeirra,
t.d. við samningagerðir miili ís-
lendinga og Færeyja og annarra
norænna hagsmunahópa í fisk-
verslunarmálum. Hulgaard hefur
unnið m.a. ötullega að málefnum
hagsmunasambands útgerðar- og
fiskikaupmanna á Norður-Atl-
antshafi, NASA. Á mýndinni er
Hulgaard með íslensku sendi-
herrahjónunum. Myndina tók
Edda Borna Kjartanson sem vinn-
ur á ræðismannsskrifstofunni í
New York.
1 HÉí
fcr