Morgunblaðið - 28.01.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.01.1990, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR/INIMLEIUT Akureyri: EFNI MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1990 Kvíknaði í íbúð ELDUR kom upp í íbúð á jarð- hæð í fjölbýlishúsi við Smárahlíð á Akureyri í fyrri- nótt og náði hann að læsa sig upp eftir vegg hússins og inn um glugga á íbúð á annarri hæð. Töluverðar skemmdir urðu á báðum íbúðunum af völd- Grindavíkur- málið upplýst Igærmorgun upplýstist við yfir- heyrslur hjá lögreglunni í Grindavík að saga 11 ára stúlku um líkamsárás, sem hún kærði til iögreglu nú í vikunni og greint hef- ur verið frá, átti ekki við rök að styðjast. um eldsins og einnig urðu skemmdir af völdum reyks í öðrum íbúðum hússins. Einn maður var fluttur á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun. Að sögn lögreglunnar á Akur- eyri.var slökkvilið kallað að Smárahlíð 1 kl. 03.40. Greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins og ná fólki út úr húsinu og var slökkvistarfi lokið um einni og hálfri klukkustund síðar. Einn maður var fluttur á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun, en hann var í herbergi því sem talið er að kviknað hafi í. Að sögn lögreglunnar þurftu allir íbúar hússins að flytjá úr því, þar sem það var talið óíbúðar- hæft um sinn. Eldsupptök voru ókunn í gær. Morgunblaðið/Rúnar Þór Einar Jóhannsson, Mltrúi húsameistara Akureyrarbæjar, kannar verksummerki af völdum eldsvoðans í gærmorgun. Hætt við alþjóðlega óperu- uppsetningu á Listahátíð Heimsfrægir listamenn höfðu samþykkt að taka þátt í sýningunni Mafían er líka hér ►Kristján Jóhannsson, óperu- söngvari segir frá sigrum erlendis og ósigrum heima fyrir/10 Konur fjárfesta í konum ►Helga Thorberg ræðir um undir- búning að stofnun kvennabanka á íslandi og greint frá skiptum skoð- unum á slíkri stofnun/12 Víxlararnir í helgi- dómnum ►Um eyrnamerkta og lífseiga skattheimtu/16 HEIMILI/ FASTEIGNIR ► 1-24 Smiójan ►Gömul húsgögn „antik” III/2 Fasteigna- markaðurinn ►Uppbygging að hefjast á nýju íbúðarsvæði í Garðabæ /10 Hýbýli/Garður ►Lýsing og lagnir/18 HÆTT var við alþjóðlega uppsetningu á óperunni Manon Lescaut eftir Puccini á Listahátíð í vor. Heimsþekktir óperusöngvarar höfðu samþykkt að taka þátt í sýningunni, fyrir milligöngu Kristjáns Jó- hannssonar óperusöngvara sem einnig ætlaði að syngja í óperunni. Kristján Jóhannsson segir í sam- tali við Morgunblaðið að óskað hafi verið eftir því við hann að finna listamenn í þessa sýningu og hefði hann haft samband við ýmsa sem samþykktu að vera með. Þar á meðal voru óperusöngkonumar Renata Scotto og Natalia Rom og stjórnandi Scala-óperunnar, Alfieri. Kristján segir, að allir þessir listamenn hefðu verið búnir að fá staðfest frá Listahátíð að af þessu yrði, en síðan hafi verið hætt við allt saman. Hann segist ekki vita nákvæmlega hvað hafi gerst, en segist hafa lúmskan grun um að verkið hafi verið stöðvað vegna þess að ýmsir aðilar hafi hreinlega ekki viljað að svona alþjóðleg sýn- ing væri flutt á íslandi. Valgarður Egilsson, formaður framkvæmdastjómar Listahátíðar, sagði við Morgunblaðið að sl. sumar hafi verið gengið frá því að Kristján Jóhannsson flytti 4. þátt Manon Lescaut á lokatónleikum Listahátíð- ar. Upp úr því hefði sprottið sú hugmynd að færa þessa ópera upp í heild og í október hefðu ýmsar menningarstofnanir tekið þátt í að skoða þá hugmynd að þær tækju höndum saman um verkefnið. Valgarður sagði að menn hefðu verið orðnir vongóðir um að þetta tækist. Kannað hefði verið hjá erl- endum umboðsmönnum hvort ákveðnir listamenn væm tiltækir, og Listahátíð hefði verið búin að senda umboðsmönnum þriggja skeyti til til staðfestingar á því að óperan yrði sett upp. Það hefðu þó ekki liðið nema 3-4 dagar þar til sömu aðilum var tilkynnt að af f lutningi óperunnar gæti ekki orðið. Valgarður sagði að ástæðan hefði verið sú að þegar á átti að herða sáu nokkrar stofnanir sér ekki fært að taka þátt. Þá hafi verið fyrirsjá- anlegt að mikil hleðsla yrði á sviði Borgarleikhússins á þessum tíma og ljóst að óperuuppfærslan hefði orðið mjög erfjð. Kristján Jóhannsson segist vera bæði sár og reiður vegna þessa. Þetta mál hafi gert honum mikinn óleik gagnvart þeim listamönnum sem hann hafi verið búinn að út- vega, og þetta sé í síðasta skipti sem hann taki svona verkefni að sér fyrir íslendinga. Valgarður Egilsson sagði að hafi þetta valdið Kristjáni óþægindum erlendis sé það auðvitað mjög leitt. En eftir standi upphaflega áætlunin um að Kristján syngi lokatónleika Listahátíðar. Sjá viðtal við Kristján Jóhanns- son óperusöngvara bls. 10-11. Hafiiarfjarðarkirkja í messutilkynningum í gær féll niður nafn Hafnaríjarðarjcirkju. Þar verður sunnudagaskóli kl. 11 og messa og altarisganga kl. 14. Prest- ur er sr. Gunnþór Ingason. Það kostar 2.350 til 3.650 kr. að láta skoða fjölskyldubílinn 74 verkstæði g-eta séð um endurskoðun ÞEGAR farið er með bíla undir fimm tonna eigin þunga í skoðun þarf að greiða 2.350 króna skoðunargjald samkvæmt gjaldskrá Bifreiðaskoðunar íslands hf. fyrir þetta ár. Reykvíkingar og aðrir sem láta skoða bílinn í skoðunarstöðinni við Hestháls greiða að auki 350 króna gjald fyrir mengunarmælingu. Standist bíllinn ekki skoðun, er gefínn frestur til að lagfæra það sem aflaga fer og koma innan þess tima með hann í endurskoðun, hún kostar 950 krónur. Oftar á ekki að þurfa að skoða hvern bíl að öllu jöftiu og getur gjaldið fyrir skoðunina því verið á bilinu 2.350 króíiur til 3.650 að meðtöldu mengunargjaldi og endurskoðunar- gjaldi. Endurskoðunin þarf ekki að _fara fram hjá Bifreiðaskoð un íslands. 74 verkstæði víðs vegar um landið hafa heimild til að endurskoða bíla. Bíl, sem ekki fær skoðun í skoðunarstöð, getur eigandinn því farið með á eitt- hvert þessara verkstæða, látið þar gera við, fengið endur- skoðun á sama stað og er þá um leið með lögleg- an og skoðaðan bíl, laus allra mála þar til að ári liðnu, komi ekkert fyrir bílinn. Verkstæðin eiga ef til vill eftir að verða fleiri, en þau þurfa að hafa ákveðinn lágmarks tækja- búnað og mannskapurinn þarf að uppfylla kröfur um hæfni, til að verkstæðið fái viðurkenningu. Þessi viðurkenndu verkstæði dreifast misjafn- lega um landið og í þessum efnum búa íbúar Suð- vesturhomsins ekki betur en landsbyggðar- menn. Akureyringar eru reyndar best settir allra, með tólf viður- kennd verkstæði, eða eitt af hverj- um_ sex. Á höfuðborgarsvæðinu, að Mosfellsbæ meðtöldum, em tólf verkstæði. Vestlendingar geta leit- að á sjö staði, alla á Akranesi eða í Borgamesi og Borgarfirði. Á Vestfjörðum eru fimm, eitt á Pat- reksfirði, tvö á ísafirði og Bolung- arvík. Húnvetningar og Stranda- menn geta leitað til verkstæða á Borðeyri, Hvammstanga og tvö eru á Blönduósi. Skagfirðingar hafa um að velja Sauðárkrók eða Hofsós, tvö verkstæði á hvorum stað, tvö eru á Siglufirði og eitt á Ölafsfirði. Sem fyn- segir hafa tólf verk- stæði á Akureyri heimild til endur- skoðunar og að auki eru við Eyja- fjörðinn þijú til viðbótar á Ar- skógsströnd og Dalvík. í Þingeyj- arsýslum eru fimm, þar af tvö á Húsavík, á Austurlandi suður að Höfn í Hornafirði eru síðan sjö, þar af tvö á Egilsstöðum og eitt á Höfn. Sjö viðurkennd verkstæði em einnig á Suðurlandi og þijú eru í Vestmannaeyjum. Loks eru tvö á Suðurnesjum, bæði í Keflavík. Af þessari upptalningu má sjá, að víðast hvar á landinu geta menn átt þess kost að fara með bíla sína á viðurkennd verkstæði til endurskoðunar, ef þörf krefur, og ættu því að vera lausir mála að því loknu. Hins vegar getur átt sér stað, ef leitað er til verkstæða sem ekki hafa heimild til endur- skoðunar, að í ljós komi við endur- skoðun í skoðunarstöð að verkið hafi ekki verið unnið sem skyldi og þá getur farið að kárna gama- nið. Sárreiður bíleigandi hafði samband við Morgunblaðið og sagðist hvað eftir annað hafa farið á milli verkstæðis og skoðun- arstöðvar. Skoðunarmenn dæmdu ávallt að viðgerð væri ábótavant, en verkstæðismenn stóðu á því fastar en fótunum að ekki væri hægt að gera betur og neituðu á endanum að gera meira. Kostnað- urinn var orðinn himinhár, að bíleigandanum fannst, og skapið komið í dýpstu lægð. Þegar Karl Ragnars framkvæmdastjóri Bif- reiðaskoðunar var spurður hvort svona gæti átt sér .stað, svaraði hann því til, að í öllu falli ætti slíkt ekki að þurfa, því að ef menn leita endurskoðunar á viðurkenndu verkstæði er viðgerðin þar, og skoðunin, endanleg. BflKSVIP eftir Þórhall Jósepsson í byltingu gleðinnar ►Vilborg Harðardóttir skrifar um jól og áramót í Prag, þar sem Tékkar fögnuðu nýfengnu frelsi og nýjum forseta/1 íslensk leikfímidrottn- ing í Ameríku ►Rætt við Hönnu Ólafsdóttur Porrest/14 Útlönd ► Umdeilt morðmál veldur upp- námil Boston í Bandaríkjunum/16 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Fjölmiðlar 18c Dagbók 8 Minningar 20 Hugvekja 9 Kvikmyndir 22c Leiðari 18 Dægurtónlist 23c Helgispjall 18 Myndasögur 24c Reykjavíkurbréf 18 Brids 24c Fólk í fréttum 30 Skák 24c Karlar 31 Stjömuspá 24c Útvarp/sjónvarp 32 Menningarstr. 25c Gárur 35 Bió/dans 26c Leiklist 7c Velvakandi 28c Mannlífsstr. 8c Samsafnið 30c Minningar 12c Bakþankar 32c INNLENDAR FRÉTTIR: 2—6—BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.