Morgunblaðið - 28.01.1990, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.01.1990, Blaðsíða 36
 FLUGLEIDIR MORGUNBLADIÐ, ADALSTRÆTl 6. 101 REYKJAVÍK -------17,PÓS-------- ------------- TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, )LF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 28. JANUAR 1990 VERÐ I LAUSASOLU 90 KR. SKÓLABÍLL Morgunblaðið/RAX A leið heim íhelgarfrí ÞAU brugðu á leik, krakkarnir í Mosfellsbæ, á föstudaginn enda ástæða til. Þau voru á leið heim í helgarfrí með skólabílnum. Snjóflóð féll á snjóruðningsbíl á Hnífsdalsvegi í gærmorgun: Vissi ekki fyrr en bíllinn valt og stöðvaðist úti í sjó - segir ökumaðurinn, Jakob Þorsteinsson ÖKUMAÐUR snjóruðningsbíls bjargaðist við illan leik þegar snjóflóð féll á Hnífsdalsveg á Eyrarhlíð í gærmorgun og hreif bílinn með sér út í sjó, Bíllinn lenti á hliðinni á kafi í krapa og sjó. Ökumaðurinn, Jakob Þorsteinsson, braut hliðarrúðu með höfðinu og komst upp úr bílnum, skreið eftir hlið hans og dekkjum og þurfti að sæta lagi við að stökkva upp í fjör- una. Hann sökk upp undir hendur í krapa og gekk á sokkaleistunum og skyrtunni til Hnífsdals, rúmlega tveggja kilómetra leið, og var að niðurlotum kominn þegar hann komst í frystihúsið í Hnífsdal. Jakob Þorstcinsson Jakob Þorsteinsson er starfsmað- ur Vegagerðarinnar og var á dráttarbíl með snjótönn að skafa veginn á milli Hnífsdals og ísafjarð- ar. Hann var í þriðju ferðinni rétt fyrir klukkan níu þegar um 200 metra breitt snjóflóð féll á bílinn á Eyrarhlið, skammt frá svokallaðri Kvíabryggju. „Ég vissi ekki af neinu fyrr en bíllinn fór að velta og stöðv- aðist síðan eftir tvær veltur á hlið- inni úti í sjó,“ sagði Jakob í sam- tali við Morgunblaðið í gærmorgun. „Bíllinn fylltist strax af krapi. Hann liggur á vinstri hliðinni með aftur- hlutann nær landi. Ég gat strax losað mig og komst upp undir hlið- arrúðuna farþegamegin og fékk þar tíma til að jafna mig. Ég braut rúðuna með því að stanga í gegn um hana með höfðinu og komst upp á bílinn. Ég skreið eftir hliðinni og dekkjunum aftur á bílinn og þurfti að sæta lagi til að stökkva^ í land því sjórinn gekk yfir bílinn. í fjöru- borðinu sökk ég í krapa upp undir hendur en náði að krafla mig upp og komast af stað til Hnífsdals," sagði Jakob. Jakob sagði að hann hefði ekki verið með bílbeltið spennt vegna þess að hann hefði nýlega verið búinn að klæða sig til hálfs úr sam- festingi og ekki verið búinn að setja beltið á sig aftur. Telur hann líklegt að það hafi bjargað lífi sínu að hafa ekki verið með beltið. Bílhúsið fylltist strax og það hefði tekið of langan tíma að losa beltin. Jakob losaði sig úr samfestingnum þegar hann lenti í flóðinu og missti líka skóna af sér. Hann gekk síðan til Hnífsdals rennblautur í þunnri skyrtu og á sokkaleistunum. Hann hafði rok og snjókomu á móti sér alla leiðina og var orðinn aðframkominn af kulda þegar hann kom að fyrsta húsinu í Hnífsdal, sem er hraðfrystihúsið. Hann hafði séð mann fara þangað inn fyrr um morguninn og hann bankaði þar uppá. „Þegar ég nálg- aðist Hnífsdal var ég illa haldinn, hættur að sjá nokkuð og fannst ég raunar v'era farinn að hitna aftur sem þýðir að maður hefur verið orðinn helkaldur. Þegar frystihúsið var opnað hneig ég niður í dyrun- um,“ sagði Jakob. I frystihúsinu var hann strax klæddur í þurr föt, gef- ið sjóðandi kakó og nuddaður þang- að til snjóbíll kom frá ísafirði með lækni. Jakob er lítið meiddur, aðeins marinn og ekki var talin ástæða til að leggja hann inn á sjúkrahúsið. Jakob býr í Hnífsdal en hann þurfti að yfirgefa íbúðarhús sitt í fyrradag vegna hættu á snjóflóð- um. í gærmorgun þurfti hann einn- ig að yfirgefa það hús vegna snjó- flóðahættu og býr nú hjá kunn- ingjafólki fjær í bænum. Snjóruðningsmenn á ísafirði eru einir við störf sín og sagði Jakob að það væri skelfilegt að hafa ekki fylgdarmann í sér bíl sem gæti kallað eftir aðstoð og komið til hjálpar þegar svona óhöpp yrðu. Vestfirðir: Varðskip flytur fólk • • og vorur VEGNA ófærðar á landi og í lofti á Vestfjörðum var varðskipið Óðinn fengið í gær til að flytja fólk og vörur, meðal annars injólk, frá Isafirði og Bolung- arvík til Suðureyrar, Flateyrar og Þingeyrar. Stöðug norðan- og norðaustanátt og snjókoma hefur verið á norð- anverðum Vestfjörðum undanfarna daga. Allir vegir út úr bæjunum eru ófærir og þæfingur á götum innan- bæjar. Síðast var flogið til ísafjarð- ar og Þingeyrar síðastliðinn þriðju- dag og bíða nú yfir 300 manns eftirjflugi með Fiugleiðum til eða frá ísafirði. Utlit er fyrir skárra veður í dag, en eftir helgi er aftur spáð norðaustanátt og snjókomu á þessum slóðum. Guðmundur H. Garðarsson: Lífeyrissjóðir elti ekki há- vaxtasteftiuna „LÍFEYRISSJÓÐIRNIR eiga ekki að elta hávaxtasteftiu við- skiptabankanna, sem byggist á skammtímaviðskiptum og verð- bólguaðstæðum," segir Guð- mundur H. Garðarsson, stjórnar- formaður Lífeyrissjóðs verslun- armanna. Vextir hjá lífeyrissjóðum, sem fylgja meðalvöxtum Seðla- bankans hveiju sinni, verða 7,9% 1. febrúar nk. og hafa hækkað um 0,5% á síðustu fjórum mánuðum. Guðmundur sagði að lífeyrissjóð- irnir ættu að hafa lengri tíma sjón- armið, þegar þeir ávöxtuðu fé sitt. „Eins og nú er háttað virðist mér eðlileg viðmiðun vera svokallaðir kjöivextir, sem nú munu vera í kringum sex og hálft prósent.“ Örn Friðriksson, formaður vaxta- nefndar ASÍ segir að krafan væri að lækka alla vexti þar með talda vexti af verðtryggðum skuldabréf- um, og að því væri stefnt í yfir- standandi samningaviðræðum. „Við munum fara í gegn um þetta með vinnunefnd frá samstarfsnefnd bankanna og hafa tal af forsvars- mönnum Sambands almennra lífeyrissjóða og hugsanlega fleir- um.“ Góður gangur í samningaviðræðunum: Fundir með ríkisstjórninni SVO VEL miðaði í viðræðum Alþýðusambandsins og vinnu- veitenda um nýja kjarasamninga í fyrrinótt að ákveðinn var ftind- ur með ríkissljórninni á hádegi í gær til að kynna henni stöðu mála. Segja má að aðiiar hafi í höndunum útlínur varðandi kauptryggingar og launatölur uppsegjanlegs kjarasamnings til haustsins 1991 að því tilskildu að aðrir aðilar sem málið snert- ir, ríkisstjórn, bankar og fleiri, séu tilbúnir til að leggja sitt af mörkum. Samningsaðilar munu meta stöðuna í ljósi viðbragða ríkisstjórnarinnar og gera má ráð fyrir öðrum fundi með henni um helgina. Vaxtanefnd samningsaðila hitti hagfræðinga bankanna klukki an 13 í gær, en samningafundur átti að hefjast klukkan 16 hjá ríkis- sáttasemjara. Síðdegis átti að ræða við fulltrúa bænda. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja var með formannafund í gær- morgun. Hlé var gert á honum á meðan farið var á fund með samn- inganefnd ríkisins. Þá fundaði Launanefnd sveitarfélaga með for- svarsmönnum bæjarstarfsmanna- félaga í BSRB í Hafnarfirði í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.