Morgunblaðið - 28.01.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.01.1990, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT MOROONBLAÐIÐ' SONNUDAGUR 28. JANÚAK 1990 ERLEIMT INNLENT Samningar sagðir geta strandað á ríkinu Guðmundur J. Guðmunds- son, formaður Verkamannasam- bandsins, segir að kjarasamning- ar geti strandað ef ríkið er ekki tilbúið að leggja sitt af mörkum til þeirra. í viðræðum ASÍ og VSÍ hefur verið hart deilt um kaup- tryggingu og endurskoðunará- kvæði. Fiskveiðiárinu breytt Samstarfsnefnd um stjómun fiskveiða hefur náð samkomulagi um að leggja beri niður veiðar eftir sóknarmarki og að fiskveið- iárið verði frá 1. september og til loka ágúst. Með þessu á að draga úr árstíðabundnu atvinnuleysi er líða fer að jólum og draga úr líkum á mikilli veiði yfir sumarmánuð- ina. Bretinn fannst látinn Stephen Reader, brezki fjall- göngumaðurinn, sem leitað hafði verið í marga daga, fannst látinn um 400 metra frá bænum Hof- garði. Hann hafði orðið úti á leið til bæjarins, en hafði ætlað sér að ganga á Hvannadalshnúk. Skárra atvinnuástand Útlit er fyrir að atvinnuástand sé skárra það sem af er janúar- mánuði en spáð hafði verið. Þjóð- hagsstofnun hafði spáð 4-5% at- vinnuleysi, en það virðist talsvert minna. Sal Þjóðleikhússins verður breytt Ákveðið hefur verið að breyta ERLENT Vopnahlé í Kákasus- löndunum Armenar og Azerar sem borist hafa á banaspjót að undanfömu sömdu um vopnahlé á fimmtudag en óvíst er hversu lengi það end- ist. Einn af forystumönnum Þjóð- fylkingar Azera hótaði Míkhaíl Gorbatsjov ástandi eins og í Afg- anistan yrði sovéski herinn ekki á brott. Valdaeinokun kommúnista afinumin Flokksþing júgóslavneska komm- únistaflokksins samþykkti á mánudag að breyta landslögum á þann veg að numið yrði úr gildi ákvæði um valdaeinokun flokks- ins. Slóvenskir kommúnistar vildu ganga enn lengra og leggja f lokk- inn niður í núverandi mynd. Þegar tillaga þeirra fékkst ekki sam- þykkt gengu þeir af fundi og mfu síðan formleg tengsl við skoðana- Baráttan gegn hungri í Þriðja heiminum: Fjárhagsstuðningur oft áhrifaríkari en matvæli UNDANFARNA tvo áratugi hefur hungursneyð orðið 2 — 3 millj- ónum manna að fjörtjóni í heiminum og nú eru blikur á lofti í Eþíópíu og Súdan. Árið 1973 týndu nær 200 þúsund manns lífi í Wollo-héraði í Eþíópíu og hálf milljón dó úr hungri á Sahel- svæðinu við suðurjaðar Sahara-eyðimerkurinnar í nokkrum ríkjum Norður-Afi-íku. 1974 féll 'ein milljón í hungursneyð í Bangladesh og 1985 hálf til ein milljón í Eþíópiu og Súdan. Ríkis- sljórnir og alþjóðlegar hjálparstofiianir reyndu að koma í veg fyrir mannfall með matarsendingum. Því er nú haldið firam að í mörgum tilvikum hefði verið hægt að bjarga fleiri mannslífum með því að senda nauðstöddum peninga í stað matar. Ljóst er að matvæli koma yfir- leitt of seint á staðinn til að komið verði alveg í veg fyrir dauðsföll. Matvælagjafimar skaða oft þá bændur í viðkomandi löndum sem eru aflögufærir; þeir geta ekkert selt af afurðum sínum því að markað- urinn er mett- aður. Sumir þeirra fara á vonarvöl og landið verður enn háðara vestrænni aðstoð en fyrr. Amartya Sen við Harvard- háskólann bandaríska og Jean Dreze við London School of Ec- onomics leggja til í nýrri bók, „Hunger and Public Action,“ að meiri áhersla verði lögð á að gefa hungruðu fólki reiðufé. Það myndi hækka verð á matvælum í landinu, hvetja til meiri innflutn- ings á þeim og aukinnar innan- landsframleiðslu. Mun auðveldara sé að dreifa fjármunum en mat og slíkur stuðningur valdi minni röskun á efnahag þjóðarinnar en matvælasendingar. Fjárstuðning- ur komi þó aðeins að notum þeg- ar til sé nóg af mat í umræddu landi, utan sjálfra hungursvæð- anna, og hægt sé að kaupa hann og selja á sæmilega fijálsum markaði. Markaðsviðskipti séu heppilegasta leiðin til að dreifa matnum. Tekið er dæmi af neyðinni í Eþíópíu 1973. Matvælaframleiðsl- an í landinu í heild var nokkurn veginn hin sama og næstu ár á undan. í Wollo-héraði snarminnk- aði hún á hinn bóginn og þar var neyðin langmest. Flest fóm- arlömbin voru smábændur og skyldulið þeirra. Þeir gátu yfir- leitt rétt hjarað á eigin fram- leiðslu en þegar framleiðslan minnkaði skyndilega áttu þeir enga peninga til að kaupa sér mat. Það var nóg til af komi í öðrum hémðum og vegir til og frá Wollo vom opnir. Nokkrir bændur í Wollo vom meira að segja aflögufærir og seldu dálítið til annarra héraða. 1974 var matvælaframleiðslan í Bangladesh meiri en hún var að jafnaði næstu fjögur ár á undan. MikiL flóð að loknum upp- skemtímanum ollu hins vegar atvinnuleysi og tekjur dag- launamanna á búgörðum Iækkuðu. Hræðslan við lélega uppskeru næsta ár varð til þess að hækka verð á hrísgrjón- um. Hungursneyð reið yfir vegna þess að fjöldi fólks hafði einfald- lega ekki efni á að kaupa sér mat. Höfundar viðurkenna að borg- arastyijöld, spilling embættis- manna o. fl. geti að sjálfsögðu hindrað viðskipti milli héraða og þá geti fjárstuðningur orðið til einskis. Þar sem spilling er alls ráðandi hefur aðferðin einnig ákveðinn galla; það er enn auð- veldara fyrir gráðuga embættis- menn að stela fé en matarsending- um. Á Indlandi hefur að mestu tek- ist að komast hjá stórfelldri hung- ursneyð frá því ríkið varð sjálf- stætt fyrir fjómm áratugum. Þar er þurfandi fólki mjög oft rétt hjálparhönd með því að greiða því laun fyrir störf við opinberar framkvæmdir þegar matarskortur er yfirvofandi. Komuppskera minnkaði um 60% eitt árið í sam- bandsríkinu Maharashtra, mun meira en á Sahel-svæðinu 1973. Fimm milljónum manna í ríkinu var útveguð vinna og fólkið gat þá keypt matvæli frá nærliggjandi ríkjum; matvælaneysla í Maharashtra minnkaði aðeins um 10% og lítið var um hungur. Svip- uðum aðferðum var beitt með góðum árangri er þurrkar heijuðu í Afríkuríkinu Botswana 1983 — 1984 og framleiðsla minnkaði um Kát móðir í Eþíópíu með soninn á handleggnum. Myndu fleiri halda lífl og heilsu í Þriðja heiminum ef ríkar þjóðir sendu þurfandi fólki fremur reiðufé en mat? 17%, einnig á Grænhöfðaeyjum við vesturströnd Afríku síðustu 15 árin. I síðarnefnda landinu féll fimmtungur þjóðarinnar úr hungri árið 1948. Hannes Hauksson, fram- kvæmdastjóri Rauða krossins á íslandi, segir að menn hjá hjálpar- stofnunum séu meðvitaðir um þann vanda, sem Dreze og Sen benda á, þegar skipulögð sé neyð- araðstoð. „Reynt er að koma í veg fyrir að birgðir hrúgist upp í lönd- unum þar sem neyðin ríkir, reynt að kaupa allt sem hægt er að fá í viðkomandi landi til að eyði- leggja ekki heimamarkaðinn. Hins vegar er töluverður munur á því hvemig stofnanir eins og Rauði krossinn starfa annars vegar og hins vegar ýmsar ríkisstjórnir þegar þær aðstoða yfirvöld í þurf- andi löndum. Það er allt annar handleggur, við höfum auðvitað engin áhrif á slíkt,“ sagði Hann- es. Sigríður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Hjálparstofn- unar kirkjunnar, segir ljóst að oft séu samgöngutæki og vegir í þró- unarlöndunum í svo lélegu ástandi að verslun milli landshluta verði naumast komið við. Peníngaað- stoð geti haft þær slæmu auka- verkanir að verðbólga vaxi í landinu og því megi ekki gleyma að víða séu peningaviðskipti lítt tíðkuð; vöruskipti séu reglan. (Heimild: The Economist). BAKSVIÐ eftir Kristján Jónssott Evrópubandalagið: Nemendaskipti og þjálfun fyrir Pólverja og Ungverja Miðstöð starfsþjálfunarnámskeiða verður í Berlín Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópubandalagsins (EB) samþykkti á flmmtudag tillögur um að setja á fót stofnanir til að skipuleggja ánnars vegar þátttöku háskólanema og kennara frá Ungverjalandi og Póllandi í háskólastarfi aðildarríkja EB og hins vegar starfs- þjálfun í bandalagsríkjunum. sal Þjóðleikhússins eins og tillaga byggingamefndar gerði ráð fyrir og verða efri svalimar fjarlægðar. Ólafiir Ragmar líkir sjálfstæðismönnum við stjórn Ceaucescus Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráð- herra líkti Davíð Odds- syni við aust- ur-evrópskan kommúnista- foringja og meirihluta sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík kallaði hann „ceaucescuískt valdakerfi Sjálf- stæðisflokksins". Davíð Oddsson borgarstjóri segir að tungan í fjár- málaráðherra hlaupi mflur á und- an heilabúinu. Orkuskattur myndi hækka orkuverð um 30% Forráðamenn orkufyrirtækja segja að frumvarp fjármálaráð- herra um tekjuskatt á fyrirtækin geti valdið allt að 30% hækkun á raforkuverði til almennings, verði það að lögum óbreytt. Bæði fjár- málaráðherra og viðskiptaráð- herra telja eðlilegt að fmmvarpið verði endurskoðað. AJdrei meiri mengun Um miðjan desember mældist meiri mengun en nokkru sinni fyrr við Miklatorg í Reykjavík. Andri fær engan kvóta Andri I, skip ÍSÚF, fær ekki þorskvinnslukvóta undan strönd- um Alaska á þessu ári. Útgerð skipsins hyggst reyna að vinna kola í staðinn. bræður í öðrum lýðveldum Júgó- slavíu. Þjóðarráðið býður fram Þjóðarráðið í Rúmeníu sem far- ið hefur með völd síðan Nicolae Ceausescu var steypt tilkynnti á þriðjudag að því yrði breytt í f lokk sem býður fram í kosningunum í maí. Stjómarandstæðingar brugðust ókvæða við þessari yfir- lýsingu og sögðust efast um að kosningamar yrðu fijálsar. Þegar Þjóðarráðið tók við völdum var því lýst yfir að það starfaði ein- ungis til bráðabirgða og yrði leyst upp eftir kosningamar. Einn kunnasti andófsmaður landsins, Doina Cornea, sagði sig úr ráð- inu og sakaði kommúnista um að reyna að ná völdum þar á ný. Neitunarvaldi Bush ekki hnekkt Við atkvæðagreiðslu í öldunga- deild Bandaríkjaþings á fimmtu- dag vantaði fjögur atkvæði til að hnekkja neitunarvaldi George Bush Bandaríkjaforseta er hann beitti gegn fmmvarpi um land- vistarleyfi kínverskra náms- manna. Daginn áður hafði full- trúadeildin samþykkt að ómerkja neitunarvaldið. Bush hefur beitt sér fyrir bættum samskiptum Kína og Bandaríkjanna og hann óttaðist að sú viðleitni væri gagns- laus yrði frumvarpið samþykkt. Niðurstaðan í atkvæðagreiðslunni í öldungadeildinni þykir vemlegur sigur fyrir Bush. Samkvæmt samþykktunum á að veija sem svarar einum og hálfum milljarði íslenskra króna í þessu skyni á þessu ári. Samþykkt- in gerir ráð fyrir því að þeim 24 ríkjum Efnahags- og framfara- stofnunarinnar (OECD) sem tekið hafa þátt í matvælaaðstoð við Pól- veija og Ungveija verði boðin aðild að verkefnunum en íslendingar telj- ast á meðal þeirra. Nemendaskiptaáætlunin (TEMP- (US) verður rekin í tengslum við sams konar áætlanir innan EB s.s. BRASMUS og COMMETT. Höfuð- stöðvar TEMPUS verða í Brussel en reiknað er með því að stofnunin taki til starfa í haust þannig að verkefnið verði hafið strax á næsta skólaári. Gert er ráð fyrir að á því skólaári geti rúmlega 3.000 nem- endur og kennarar notið góðs af áætluninni um lengri eða skemmri tíma. Hlutverk Evrópsku þjálfunarmið- stöðvarinnar verður fyrst og fremst að koma á samskiptum á milli fyrir- tækja og einstaklinga sem hafa hug á starfsþjálfun innan EB og þeirra ríkja annarra sem taka þátt í áætl- uninni. Samtök atvinnu- og iðnrek- enda í Evrópu, UNICB, sem íslend- ingar eiga aðild að (VSÍ og FÍI) hafa fyrir hönd aðildarsambanda sinna lýst sig reiðubúin til sam- starfs um starfsþjálfunina. Miðstöð- in mun hafa aðsetur í Berlín og starfa í nánum tengslum við sam- bærilegar stofnanir þar. Reiknað er með því að ráðherraráð EB og Evrópuþingið afgreiði tillögurnar- fyrir vorið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.