Morgunblaðið - 28.01.1990, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.01.1990, Blaðsíða 13
f" MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANUAR 1990 eru, og eru skráðar fyrir 1% af eign- um. Þetta eru dapurlegar tölur. Konur sem vilja stofna fyrirtæki og vantar lán, verða fyrst að sann- færa bankann um að hér geti verið um arðvænlegt fyrirtæki að ræða. Bankinn veitir konunni ráðgjöf, og aðstoðar hana og undirbýr jarðveg- inn ef hugmyndir konunnar eru góðar. Lánasamningur er síðan þríþætt- ur, aðalbankinn í New York tekur 50% áhættu, staðarbankinn 25% og iánþegi 25%. Stundum tekur bank- inn alfarið áhættuna, því unnið er út frá þeirri staðreynd að konur eru eignalausar.“ — Koma karlmenn hvergi ná- lægt? „í aðalbankanum sitja karlmenn í sjóðsstjóm, en það eru konurnar í staðarbönkunum sem taka ákvörð- un um lán.“ — Hvað um almenn viðskipti, gæti ég t.d. ekki lagt inn á bók og fengið síðan lán hjá kvennabankan- um þótt ég hefði ekki stofnun fyrir- tækis í huga? „Þannig hefur það ekki verið, en við stofnun nýs banka er alltaf tek- ið mið af aðstæðum í hveiju landi fyrir sig. Undirbúningur að stofnun hvers banka getur tekið tvö ár. Hér á landi hefur nú tólf manna áhuga- hópur unnið að undirbúningi og öflun upplýsinga í tvo mánuði. að búast frá körlum. Eflaust sitja margar konur og bíða þess að ein- hverjum karlmanni detti í hug að fá lán til að endurlífga þessi fyrir- tæki. En því gera þær það ekki sjálfar? Þær hljóta að geta fram- leitt seljanlega vöru. Konur þurfa að geta stjórnað atvinnu sinni og ekki síst eignast ágóðann af vinnu sinni. Þær hafa reynt margar leiðir til að bæta kjör sin, hafa alltaf verið jákvæðar og reiðubúnar til að auka menntun sína. Ágætt dæmi um það er Fósturskólinn sem lengdi námið í 4 ár að loknu stúdentsprófi, og konur tóku því sem sjálfsögðum hlut, meðan Lögregluskólinn sem hefur nú lengi verið dæmigerður „karlaskóli“ hefur lítið lengt náms- tímann, og heldur ekki gert meiri námskröfur. Aukin menntun hefur ekki skilað konum hærri launum. Bættur efna- hagur þjóða hefur ekki gert konur auðugri. Þá bendir ekkert til þess að konur muni hagnast á samein- ingu hinna stóru efnahagssvæða EFTA og Evrópubandalagsins. Ég held að konur hafi ekkert val lengur. Þær verða að taka efna- hagsmálin í sínar hendur. í öllum löndum var sagt, að það væri ekki hægt að stofna kvennabanka, en alls staðar gekk það og ætti að verða enn auðveldara í framtíðinni, Helga Thorberg á ráðstefnu hjá „Women’s World Banking“ sem haldin var á Bahamaeyjum í október sl. þar sem nú er að losna um allar hömlur á sviði efnahagsmála.“ Ég spyr Helgu nánar út í það hvernig undirbúningi að stofnun kvennabanka sé háttað og hver staðan sé um þessar mundir. „í fyrsta lagi þurfum við að kanna hvers konar bankastarfsemi hentar okkur best, og síðan að safna lágmarkshlutafé, sem er ekki stór upphæð. Það er ekki neitt stórmál að tengjast aðalbankanum og miklu fjármagni. Til dæmis upplýsti for- seti „Womens’s World Banking", að þær væru að leita að konum sem gætu þegið fjárhagslegan styrk. Hér var um 10 milljónir dala að ræða sem átti að skipta á 5 staði. Þær voru komnar með tvo lánþega, og auglýstu eftir þremur sem gætu þegið 2 milljónir dala, eða 120 millj ónir íslenskar. Bankakerfið á íslandi er dýrt og fólk er ekki ánægt með starfsemi bankanna. En það er nú svo undar legt að f lestir starfsmenn bankanna eru konur, eða 80 til 90 prósent. Það hefur orðið hljóðlát bylting í bönkunum eins og í skólunum, kon- ur eiga bara eftir að taka efri hæð- ina.“ Michaela Walsh forseti „Women’s World Banking“. Þetta eru allt konur úr hinum ýmsu atvinnustéttum, m.a. er ein ráðgjafi um stofnun fyrirtækja, önnur lög- fræðingur, káupkonur, konur í inn- flutningi, og'svo mætti lengi telja. Þessa stundina er verið að vinna úr upplýsingum og gögnum frá Svíþjóð, en þar mun sennilega fyrsti kvennabankinn á Norðurlöndum taka til starfa. Við viljum fá til liðs við okkur konur sem áhuga hafa á að efla efnahag og atvinnulíf kvenna.“ Ifyrstu fannst mér ekki þörf á kvennabanka hér, allar konur geta fengið lán, hugsaði ég. En í ljósi alvarlegs atvinnuleysis sem hér ríkir meðal kvenna, og má í því sambandi t.d. nefna konur á sauma- og pijónastofum, sem hafa verið atvinnulausar mánuðum saman, fór ég að endurskoða afstöðu mína. Atvinnuástand kvenna hér á landi er mjög alvarlegt og það er við litlu Mestum tíma sínum hefur Helga varið í að beijast fyrir málefn um kvenna, og ég spyr hana hvernig standi á þessum brennandi áhuga? „I forsetakosningunum þegar Vigdís var kosin vorum við konur brýndar til hins ýtrasta. Þegar hin nýja kvennahreyfing kom fram: sem sagði að við konur værum góðar eins og við værum, þá var það eins og orðað fýrir mig. Við þyrftum ekki að vera múrarar eða trésmiðir til að vera gjaldgengar. Við höfðum rekið heimili og þurft að huga að öllum mannlegum sam skiptum í gegnum tíðina. Ég féll VISSULEGA ÞORF FYRIR SVOHA SIOFNUH - segir Guðný Guðmundsdóttir kaupkona „ÉG ER mjög fylgjandi hug- myndinni og myndi að sjálf- sögðu skipta við kvennabanka, eða hvern þann banka þar sem kona væri bankastjóri," sagði Guðný Guðmundsdóttir kaup- kona. Það er vissulega þörf fyrir svona stofnun hér á landi, ekki vegna þess að konur geti ekki fengið lán í bankakerfinu eins og það er, heldur fyrst og fremst til að efla áhrif þeirra í viðskiptalífinu. Áhrif kvenna á fjármögnun og fjár- magnsstreymi eru hverfandi og ég vil leggja mitt að mörkum til að konur hafi meira að segja um hreyfingu fjármagns og notkun á fjármagni og hvemig það er skipu- lagt. Það hafa þær ekki eins og málin standa í dag, hvergi í heimin- um. Hugmyndafræðin á bak við þennan banka virðist vera allt önn: ur en í hefðböndnum bönkum. í kvennabankanum dreifist ábyrgð- in en lántaki verður að sýna fram á að hugmyndin hafi hagnýtt gildi. Eins og bankakerfið hjá okkur er nú er eina skilyrðið fyrir láni að menn leggi fram veð. Samkvæmt opinberum skýrslum eiga konur aðeins 1% af skráðum eignum í heiminum þannig að þeim em aug- ljóslega skorður settar hvað veðin varðar. Þær þurfa því líklega að fá veð í eignum karla til að taka lán og fara síðan til karlbanka- stjóra til að fá lánið. Þetta er auð- vitað óeðlilegt því konur em nú þegar orðnar virkir þátttakendur í viðskiptalífinu og þar af leiðandi ættu þær að hafa meiri áhrif á notkun peninga. Þetta em meðal annars rökin fyrir þvf að ég er ákaf lega spennt fyrir hugmyndinni um sérstakan kvennabanka. Eins og málin standa í dag verða konur hreinlega að gerast karlar til að komast áfram í viðskiptalífinu og ég vil stuðla að því að forða þeim frá því, enda hafa karlar gert svo margar -vitleysur í stjómun pen- ingamála. Konumar þurfa hins vegar að hafa áhrif sem víðast á eigin forsendum,“ sagði Guðný Guðmundsdóttir. SVONA HUGMYNDIR ERII NIDRANDi FYRIR KONUR - segir Hjördís Gissurardóttir kaupmaður „ÉG ER hlynnt jafiirétti kynj- anna og er því andvíg slikum huginyndum um sérstakan banka fyrir konur. Það væri kannski þörf að setja upp sér- stakar deildir fyrir þroskahefta í bönkunum, en ég held að kon- ur almennt séu fullfærar um að bjarga sér í bankakerfinu eins og það er nú,“ sagði Hjördís Gissurardóttir, kaupmaður í Benetton. Eg flutti eitt sinn fyrirlestur á ráðstefnu hjá Atvinnumála- nefnd Reykjavíkurborgar þar sem bankastarfsmaður sat fyrir svömm og þar bar ein konan fram þá fyrir- spurn hvort ekki væri hægt að setja á stofn deildir í bönkunum sem sérhæfðu sig í þjónustu við konur. Mér fannst þetta og finnst enn alveg út í hött. Svona hug- myndir eru bara niðrandi fyrir konur. Hvort sem konur ætla sér út í pólitík eða viðskipti þá verða þær að geta staðið sig til jafns við karlmenn án þess að njóta ein- hverrar sérstakrar fyrirgreiðslu eða aðstoðar fram yfir þá. Ég myndi ekki skipta við svona kvennabanka enda hef ég ekkert út á bankann minn að setja. Ég skipti við Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis og hef aldrei orðið að gjalda þess þar að ég er kona,“ sagði Hjördís Gissurardóttir. einnig fyrir þeirri hugmynd að kon- ur byðu fram sjálfar.“ - Hvað er það sem rekur þig áfram? Hún horfir íhugul á mig og basl- ar við að koma kambi í ljósa hárið: „Sennilega það að ég fæ ekki áhuga á neinu öðru.“ — Þú notar oft sterkasta vopnið? „Hláturinn? Þú nærð betur til fólks ef þú ert skemmtileg. Senni- lega skrifa ekki allir karlay undir það að ég sé skemmtileg. Ég man eftir ágætu dæmi úr.fyrstu kosn- ingabaráttu Kvennaframboðsins. Þá stóð ég nálægt Hlemmi og var að selja kosningablað fyrir smá- pening, ætlaði að vera_ ákaflega settleg og pen eins og eg hélt að konur í framboði ættu að vera. Gengur þá karl framhjá mér og ég býð honum glaðlega blaðið, en hann hreytir í mig: Þið þessar kerlingar! Mikið er ég orðinn þreyttur á þessu kerlingakjaftæði! Við þessar móttökur gleymdi frambjóðandinn fyrri ásetningi, elti karlinn yfir götuna og hrópaði á eftir honum: Þú orðinn þreyttur! Hvað mættum við þá segja, búnar að hlusta á þetta karlaraus stilltar og prúðar öldum saman, búnar að lesa eftir þá heilu veggjasamstæð- urnar, og svo væri hann þreyttur! Við værum rétt að byija að tala! Hann forðaði sér upp í næsta strætó. Þú sérð að ég get ekki ver- ið í framboði.“ Helga skráir sig sem nema í símaskránni og ég spyr hana hvern- ig standi á því? „Jú. Ég hef oft spurt sjálfa mig, ertu nú ekki orðin stór, Helga mín? Hvað ætlarðu að verða? Ætlarðu að skrifa bækur, leikstýra, eða læra að vinna fyrir sjónvarp? En ég hef látið markaðinn ráða því, og er alltaf komin á kaf í verk- efni áður en ég er búin að gera þetta upp við mig. Sem dæmi, þá var ég eitt sinn beðin um að gera útvarpsþætti um konur á breytinga- aldri. Ég ætlaði fyrst að hafna þessu, fánnst ég ekki vita nóg um efnið. En þegar fram kom að konur á miðjum aldri ættu erfitt með að fá vinnu, þá gaus upp reiðin og ég ákvað að gera þættina. Ég fresta alltaf þessari spurn- ingu um það hvað ég ætla að verða.“ Svo hlær hún hátt og mikið: „Nú, svo gæti ég orðið bankastjóri!“ Helga segist oft hafa lent í há- værum deilum út af kvennabar- áttu og það hafi komið sér á óvart hversu málstaður kvenna mætti mikilli mótspyrnu. Ég hefði haldið að karlamir myndu slá sér á lær og segja: Dugnaðurinn í þessu kvenfólki! Oft hef ég spurt sjálfa mig hvort ég ætti ekki að fara að skipta yfir, hætta þessu „kerlingakjaftæði“, þetta væri nú orðið ágætt hjá mér. Eitt sinn sátum við Sigurður Páls- son, góðvinur minn sem starfar hjá sjónvarpinu, yfir kaffibolla og ég skellti þessu fram bæði í gríni og alvöru. Þá sagði hann: Nei, Helga mín, allir þessir stóru listamenn hafa verið að glíma við sama efnið í verkum sínum, haltu þessu bara áfram! Og ég fór að hugsa. Hvað eru þeir að fást við? Er það ekki lífið og tilgangur þess, ástin, — því ekki konur? Ekki er það verra þema.“ Þar sem við sitjum í stofunni sjáum við inn í hið fræga eldhús sælkerans Sigmars B. Haukssonar, eiginmanns Helgu, og ég hef nú svona orð á því að varla mæti hún mótspyrnu hér heima hjá sér, mér skiljist að það sé alltaf eldað ofan í hana? Helga hristir bara höfuðið: „Eldamennska hefur ekkert með kvennabaráttu að gera og ekki heldur það hver strýkur yfir gólfin. Fólk heldur að ég hafi Sigmar bara í kvenveskinu mínu, en ég get full- vissað þig um það að hann er hin „besta karlremba" og ekki er ég með hann í snyrtibuddunni minni, svo mikið er víst. Enda væri hann afbrigðilegur, maður af hans kyn- slóð, ef hann væri öðruvísi. En auðvitað blæs oft skemmti-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.