Morgunblaðið - 28.01.1990, Blaðsíða 24
24
MORQUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1990
ATVIN WMMMAUGL YSINGAR
Bílstjóri og
byggingaverkamenn
Viljum ráða bílstjóra á lítinn vörubíl og bygg-
ingaverkamenn á Reykjavíkursvæði.
Upplýsingar gefa Haukur eða Júlíus í síma
689506.
Loftorka, Borgarnesi hf.
Menningarstofnun
Bandaríkjanna
óskar að ráða starfskraft í fjölbreytt skrif-
stofustarf. Um fullt starf er að ræða. Góð
ensku- og íslenskukunnátta áskilin. Reynsla
í ritvinnslu og skjalavörslu nauðsynleg ásamt
bókhaldsþekkingu.
Umsóknareyðublöð fást í Bandaríska sendi-
ráðinu, Laufásvegi 21. Umsóknarfrestur er
til 15. februar.
LANDSPITALINN
Hjúkrunardeildar-
stjóri
Staða hjúkrunardeildarstjóra við handlækn-
ingadeild 1 (12-A) er laus til umsóknar. Starf-
ið býður upp á mikla fjölbreytni bæði hvað
varðar þróun hjúkrunar og nýjungar í starfs-
mannahaldi. Ákveðið hefur verið að deildin
verði í 1. áfanga tölvuvæðingar vinnuskýrslu
hjúkrunarfólks.
Umsækjandi skal hafa að minnsta kosti
þriggja ára starfsaldur við hjúkrun og reynslu
í stjórnun. Umsókn fylgi upplýsingar um nám
og fyrri störf.
Umsóknarfrestur er til 18. febrúar nk., en
staðan verður veitt frá 18. mars nk. Upplýs-
ingar veitir Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, símar 601366 og 601300.
Reykjavík 28. janúar 1990.
Innkaupastjóri
erlendra bóka
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar
vill ráða innkaupastjóra erlendra bóka.
Starfið er laust samkvæmt nánara samkomulagi.
Innkaupastjóri ber ábyrgð á öllum erlendum
bókainnkaupum til allra verslana Eymunds-
sonar og annarra útsölustaða.
Meginverkefni innkaupastjóra eru eftirtalin:
- Pöntun bóka erlendis frá í tölvuvæddu
pantanakerfi.
- Verðlagning.
- Dreifing.
- Endursendingar.
- Eftirlit með lagerstöðu útibúa.
Mikil tölvuvinnsla fylgir starfinu.
Leitað er að aðila, sem hefur þekkingu og
áhuga á bókum, reynslu af tölvuvinnslu og
áræði til að takast á við mjög spennandi
verkefni. Laun samningsatriði.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
um starfið fást á skrifstofu okkar, Tjarnar-
götu 14. Umsóknarfrestur er til 5. febrúar nk.
Crl TÐNT ÍÓNSSON
RÁÐCJÖF & RÁÐNI NCARhJÓNLlSTA
TIARNARGÖTU 14, ÍOI REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Atvinna óskast
strax
36 ára múrari, ósérhlífinn og stundvís, óskar
eftir atvinnu strax. Margt kemur til greina.
Áhugasamir hafi samband í síma 82409.
Gag nf ræðaskól i n n
í Mosfellsbæ
óskar eftir skólasafnverði frá og með 1.
febrúar 1990, 15 stundir á viku.
Upplýsingar gefa Gylfi Pálsson, skólastjóri
og Helgi Einarsson, yfirkennari, í símum
666186 og 666586.
1|l
DAGVI8T BARIVA
Fóstrur, þroska-
þjálfar eða annað
uppeldismenntað
starfsfólk!
Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir starfs-
fólki f gefandi störf á góðum vinnustöðum.
Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og eftir
hádegi.
Upplýsingar veita forstöðumenn eftirtalinna
dagvistarheimila og skrifstofa Dagvistar
barna, sími 27277:
HEIMAR
Sunnuborg, Sólheimum19,
s. 36385.
AUSTURBÆR
Múlaborg Ármúla8a, s. 33617.
BREIÐHOLT
Arnarborg Maríubakka 1, s. 73090.
RÍKISSPITALAR
Aðstoðardeildarstjóri
Staða aðstoðardeildarstjóra á barna- og
unglingageðdeild er laus nú þegar. Starfs-
hlutfall er samkomulagsatriði, morgun- og
kvöldvaktir.
Þroskaþjálfi
Staða þroskaþjálfa á barna- og unglingageð-
deild er laus nú þegar. Starfshlutfall er sam-
komulagsatriði, vinnutími er dagvinna.
Nánari upplýsingar um ofangreindar stöður
veitir Anna Ásmundsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í síma 602550.
Fulltrúi
Fulltrúi óskast til starfa við skrifstofu hjúkr-
unarframkvæmdastjóra geðdeilda. Um
framtíðarstarf er að ræða. 100% dagvinna
sem felst í starfsmannabókhaldi, ritvinnslu
o.fl. Stúdentspróf eða sambærileg menntun
æskileg, góð íslenskukunnátta.
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður S. Jóns-
dóttir, skrifstofustjóri, í síma 602641. Um-
sóknir sendist skrifstofu hjúkrunarforstjóra
að Kleppi.
Reykjavík 28. janúar 1990.
II!
DAGV18T BARNA
Forstaða leikskóla
Dagvist barna auglýsir lausar stöður for-
stöðumanna við tvo nýja leikskóla, Kletta-
borg við Dyrhamra og Heiðarborg við Sel-
ásbraut sem áætlað er að taki til starfa í
apríl næstkomandi. Um er að ræða leikskóla
þar sem byggt verður á nýbreytni í leikskóla-
starfi bæði hvað varðar innra starf og hús-
næði. Fóstrumenntun áskilin.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og
deildarstjóri Dagvistar barna í síma 27277.
Sjúkraþjálfarar
Sjúkrahús Akraness óskar eftir að ráða
sjúkraþjálfara frá 15. febrúar. Gott húsnæði
í boði og barnaheimili á staðnum.
Hafið samband við yfirsjúkraþjálfara í síma
93-12311.
Sjúkrahús Akraness.
Heimahlynning
Óskum eftir aðstoð seinni hluta dags við
eldri hjón í Vesturbænum. Ef um meiri að-
stoð er að ræða getur herbergi fylgt.
Nánari upplýsingar í síma 78851 eða 38927.
Starfskraftur óskast
til innheimtu- og sendistarfa. Þarf að hafa
bíl til umráða. Æskilegur aldur 35-50 ára.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Ármúli -13337“ fyrir 5. febrúar nk.
Rafvirkjar
Þorgeir & Ellert hf. á Akranesi óska eftir að
ráða nokkra rafvirkja til vinnu á Nesjavöllum.
Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu fyrirtæk-
isins í símum 93-11159 og 93-11160 frá kl.
9.30-12.00 og 13.00-16.30.
Þorgeir & Ellert hf.
Öryggisvörður
vika unnin
- vika frí
Securitas, stærsta öryggisgæslufyrirtæki
landsins, bætir stöðugt við sig verkefnum,
sem kalla á fleiri starfsmenn. Ef þú ert á
aldrinum 25-55 ára, hefur hreina sakaskrá
og býrð yfir eiginleikum eins og heiðarleika,
skyldurækni og þjónustuvilja, þá gæti starfið
hentað þér. Algengasti vinnutími okkar eru
vaktir frá kl. 20.00 á kvöldin til 08.00 næsta
morgun og er vika unnin og vika frí. Störf
þau, sem hér um ræðir, er staðbundin örygg-
isvarslá í ákveðin fyrirtæki eða stofnanir.
Starfið hefst með þjálfun: Almenn öryggis-
gæsla, eldvarnir, tækninámskeið, skyndi-
hjálp.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu fyrirtækisins í Síðumúla 23,
Reykjavík.