Morgunblaðið - 28.01.1990, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.01.1990, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1990 KONUR MUNU stöðvar eru í New York, en útibú eru nú starfrækt í 41 landi, og margir hópar víðsvegar um heiminn vinna nú að undirbúningi að stofnun útibús í heimalandi sínu. Alþjóðabanki kvenna starfar eftir þeim lögum og reglum sem gilda um banka í yiðkomandi landi, en starfsaðferðir hans eru aðrar en þær sem menn eiga að venjast. Til- gangurinn er ekki sá að þjóna sjálf- um sér með því að eignast t.d. stórt og dýrt húsnæði heldur er tekjum aðallega varið í ráðgjöf; ekki það að lána sem til flestra, heldur að lánið nýtist bæði fyrir lántakann og bankann. Hér er um hagsmuni beggja að ræða. Það gilda ekki sömu reglur og hér, þar sem það skiptir bankann engu máli hvort lánin framlengi aðeins skuldaólina og gjaldþrot verði stærri. Hjá þeim kvennabönkum sem nú þegar eru starfandi hafa skil á lán- um verið mjög góð, því konur vita að standi þær ekki í skilum eru þær að rýra sjóðinn sem aðrar konur hafa aðgang að.“ IKONUM Markmið bankans er að gera konur efnaðri," segir Helga. „Því má skjóta hér inn í, að konur inna af hendi 65% af þeirri vinnu sem unnin er í heiminum, þær fá 10% af þeim launum sem greidd eftir Kristínu Marju Boldursdóttur og Svein Guðjónsson/Mynd Árni Sæberg KONA ÚTI á landi kom til bankastjóra og bað um lán, því hún hafði í hyggju að kaupa hárgreiðslustofú af starfsfélaga sínum sem var að hætta rekstri. En bankastjórinn bað hana í öllum bænum að ráðast ekki í slíka vitleysu, hún yrði bara hrukkótt og fengi bauga undir augun. Var málið þar með afgreitt. „Þetta var örugglega ekki illa meint,“ segir Helga Thorberg, „en hún hefði fengið aðra afgreiðslu í Alþjóðabanka kvenna, eða „Women’s World Banking“, sem byggir lánaviðskipti sín á öðrum grundvelli en þeim sem almennt tíðkast.“ I tvo mánuði hafa Helga Thorberg og hópur kvenna kannað möguleika á að gerast aðilar að þessari alþjóðlegu bankastarf- semi kvenna, sem einkum mundi þjóna þeim konum sem hygðust heQa atvinnurekstur eða stunda hann nú þegar. H „KONUR HAFA EKKERT VAL LENGUR, ÞJER VERDA AO TAKA EFNA- HAGSMÁLIN í SÍNAR HENDUR," SEGIR HEL6A THORBERG SEM HEFUR ÁSAMT HÓPIKVEHNA KANNAB MÖGULEIKA Á AD GERAST AOILAR AB ALÞJÓÐLEGRIBANKA- STARFSEMIKVENNA elgu Thorberg hefur aldrei skort hugmyndir þegar baráttumál kvenna eru annars vegar. Frá því hún útskrifaðist úr Leiklistarskóla íslands árið 1978 hefur hún skrifað leikþætti, bæði fyrir útvarp og sjón- varp, leikstýrt, gert sjónvarpsþætti, skrifað bækur, tekið þátt í kosn- ingabaráttu — allt með það fyrir augum að skapa umræðu og beij- ast fyrir málum kvenna. Hún hefur aldrei gefist upp þrátt fyrir mót- spymu, og eru störf hennar hjá Hlaðvarpanum, félags- og menn- ingarmiðstöð kvenna á Vesturgötu 3, gott dæmi um það. Þar er hún nú stjórnarformaður og vill ekki hætta fyrr en vel er farið að ganga. Hún tekur á móti mér ária morg- uns með morgunmatinn sinn í hend- inni, hálfan banana, og ég rétt gef henni kost á að koma honum niður áður en bankaumræður hefjast. Eg hafði lengi hugsað um kvenna- banka, en það var fyrir stuttu sem ég komst að því að slíkar bankastofnanir væru reknar erlend- is,“ segir Helga. Hún segir mér, að fyrir sextíu árum þégar óalgengt var að konur störfuðu utan heimilis, var stofnað- ur félagsskapur í Bandaríkjunum sem heitir „Business and Profess- ional Women“. Tilgangur hans var að styrkja stöðu kvenna sem fóru út á atvinnumarkaðinn. Hér á landi starfa nú 60 konur í þessum félags- skap og hefur Helga verið formaður hans síðustu tvö árin. Á aðalfundi sem haldinn er á tveggja ára fresti með konum frá 76 Iöndum, sá Helga auglýstan fund með Michaelu Walsh, forseta „Women’s Werld Banking", eða Alþjóðabanka kvenna, sem er með höfuðstöðvar sínar í New York. „Ég flaug til Bahamaeyja í októ- ber sl. og sótti fundinn til að kynna mér starfsemi bankans og ræddi við forseta hans,“ segir Helga. „Women’s World Banking" var stofnaður fyrir tíu árum, í kjölfar kvennaáratugarins, og naut fjár- hagslegrar aðstoðar bandarísku ríkisstjómarinnar í þijú ár. Höfuð-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.