Morgunblaðið - 28.01.1990, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1990
3
UM ÞESSAR HENDUR FÓRU
966.000 TONN Á SÍÐASTA ÁRI
UPPLÝSINGAR ERU VERÐ-
MÆTISEM SKIPTA MÁLI
Nútímaflutningaþjónusta byggist ekki
síst á nákvæmum upplýsingum víðs vegar
að úr heiminum.
Víðtækt tölvunet EIMSKIPS gerir fært
að skipuleggja á skömmum tíma hag-
kvæmustu leið hverrar vöru og finna þá
áætlun sem hentar þörfum viðskiptavinar-
ins. Honum eru síðan tryggðar greiðar
upplýsingar um stöðu og staðsetningu
vörunnar í flutningsferlinu - hvort sem
sendingin er að fara um borð í Brúarfoss í
Rotterdam, er á leiðinni milli Hamborgar
og Tokyó eða geymist á tiltekinni hillu í
vöruhúsum Sundahafnar.
RÉTTVARA Á RÉTTUM STAÐ
......Á RÉTTUM TÍMA
Nákvæm vitneskja um vörusendingar,
ásamt tíðum siglingum og öruggum
flutningaáætlunum, er viðskiptavinum
EIMSKIPS ómetanleg við að halda vöru-
birgðum í lágmarki en tryggja jafnframt
rekstraröryggi.
Þannig lækkar kostnaður við birgðahald
og heildardreifingarkostnaður minnkar en
veltuhraði og arðsemi aukast.
AÐGANGURAÐ
ALÞTÓÐLEGRIÞEKKINGU
EIMSKIP hefur öðlast haldgóða þekk-
ingu á markaðsaðstæðum erlendis gegnum
eigin skrifstofur og umboðsaðila og gætir
þar hagsmuna viðskiptamanna sinna.
Allt bendir til að þessi þjónusta reynist
enn mikilvægari á næstu misserum þegar
íslensk fyrirtæki hasla sér traustari völl á
erlendum vettvangi.
VANDVIRKNIOG TRAUST
Gott upplýsingakerfi og góð flutninga-
tæki nægja aldrei ein sér til að skapa góða
flutningaþjónustu. Þar þarf að koma til
alúð og árvekni starfsmanna.
Um leið og fyrirtæki velur EIMSKIP í
þjónustu sína fær það til liðs við sig 670
kunnáttumenn sem eru alltaf til taks þegar
reynir á greiðan og öruggan flutning.
Heildarflutningar EIMSKIPS voru um
966.000 tonn á síðasta ári. Þetta magn sýn-
ir sterka stöðu EIMSKIPS á íslenska flutn-
ingamarkaðinum og speglar jafnframt
traust viðskipti.
Það er okkur kappsmál að njóta þess
trausts áfram með því að vera vakandi yfir
þörfum viðskiptavina okkar.
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ