Morgunblaðið - 28.01.1990, Side 6

Morgunblaðið - 28.01.1990, Side 6
6 FRETTIR/INNLENT MORGUNBIlAÐIÐ SUNNUDAGUR|28. JANÚAR 11990 . Sjálfstæðismenn í Kópavogi: Vilja samninga um Vatnsenda BÆJARFULLTRÚAR Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi hafa lagt til að bæjarráð samþykki að óska eftir viðræðum við borgaryfirvöld í Reykjavík nú þegar um sameiginleg kaup beggja sveitarfélaganna á Vatnsendalandi. Náist ekki samkomulag eigi Kópavogur að nýta sér forkaupsrétt að landinu, sem umboðsmaður Magnúar Hjaltested Vatnsendabónda hafí boðið Kópavogsbæ 8. janúar. Spánveijarnir kynntu sér dælustöðina í Laugarnesi í gærmorgun. Morgunblaðið/ÞorkeN Reykjavíkurborg: Embættísmenn frá Valencia skoða skólpdælustöðvar Richard Björgvinsson oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi sagði við Morgunblaðið, að sjálf- stæðismenn teldu langskynsamleg- ast að semja utn skiptingu landsins milli sveitarfélaganna, miðað við hvaða hlutar landsins falli best að byggð hjá hvoru um sig. Tillögunni hefur verið vísað til afgreiðslu á fundi bæjarstjómar 30. janúar, þar sem Vatnsendamálið er eina málið á dagskrá. I tillögunni segir að náist ekki viðunandi sam- komulag telji bæjarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins rétt að Kópavogur yfirtaki réttindi og skyldur Reykjavíkurborgar samkvæmt samkomulaginu frá 5. janúar sl. til þess að tryggja framtíðarréttindi Kópavogs til nýtingar á landinu, enda þótt þar sé ekki um kaupsamn- ing að ræða, samanber álit Lága- stofnunar Háskóla íslands frá 22. janúar. Fundur með Sleipni BOÐAÐ var til fundar Sleipnis, félags langferðabílstjóra, og við- semjenda þeirra hjá ríkissátta- senyara í gærmorgun klukkan 10. Sleipnir hefur boðað fjögurra daga verkfall frá 1. febrúar og annað fimm daga frá 10. febrúar. Þá voru félagsmenn í þriggja daga verkfalli frá 15. janúar. Nokkuð er um liðið frá síðasta fundi aðila, en samningaviðræður hafa ekki skilað neinum árangri til þessa. HÓPUR af stjórnmála- og emb- I ættismönnum frá Valencia-borg og nágrannabyggðum á Spáni er I nú staddur hér á landi ásamt I fulltrúum spænsks verktakafyr- irtækis og þýzkum tæknimönn- | um. Erindi hópsins er að kynna sér hið nýja skólpdælukerfí Reykjavíkurborgar, en til stend- ur að koma upp svipuðu kerfí í Valencia. Að sögn Sigurðar Skarphéðins- sonar, aðstoðargatnamála- stjóra, eru skólpdælustöðvarnar, sem dæla skólpi Reykvíkinga út frá ströndinni, af mjög sérstakri gerð og þær einu sinnar tegundar í Evr- ópu. „Það er til þess að gera sjald- gæft að skólpi, sem er þynnt með regnvatni, sé dælt. Menn hafa ekki gert það fram að þessu, en Spán- veijarnir eru með mjög svipaðar aðstæður og við,“ sagði Sigurður. Sigurður sagði að miðað við teikningar, sem hann hefði séð af fyrirhuguðum skólpdælustöðvum Spánveijanna, væru þær nánast nákvæmlega eins og stöðvarnar í Reykjavík. „Þeir þvælast því end- anna á milii í Evrópu til þess að sjá hvernig svona stöðvar virka og líta út,“ sagði Sigurður. Stöð 2: Áskrift hækk- arí 2.110 kr. Áskrift að Stöð 2 hækkar um 45 krónur um næstu mánaðamót, eða úr 2.065 krónum í 2.110 krón- ur. Þetta er rúmlega 2,1% hækk- un, í samræmi við hækkun fram- færsluvísitölu í desember. Samkvæmt upplýsingum frá Stöð 2 eru áskriftargjöld nú hækkuð mánaðarlega í samræmi við framfærsluvísitölu. Fyrir ári kostaði áskriftin 1.450 krónur en það verð gilti frá júní 1988 til apríl 1989, m.a. vegna verðstöðvunar. Áskriftargjald að Stöð 2 hækkaði íapríl 1989 í 1.795 krónur og hækk- aði næst í ágúst í 1.955 krónur. Síðan hefur gjaldið hækkað mánað- arlega. Hækkunin undanfarið ár er nokkuð umfram framfærsluvísitölu og er það skýrt af hálfu stöðvarinn- ar með gengishækkunum og hærri kostnaði erlendis. • Áskrift að ríkissjónvarpinu kost- ar nú 1.575 krónur á mánuði. Áskriftin hækkaði í 1.500 krónur í apríl 1989 og í 1.575 krónur í des- ember. Leiðrétting Slæm villa var í frétt í miðopnu í gær. Kvíabryggja, sem er í við- gerð, er í Grindavík en ekki Þorláks- höfn eins og stóð. Hetj udýrkunin gengnr út í ö%ar •• - segir Þorvaldur Orlygsson knattspyrnumaður hjá Nottingham Forest sem valdi snjóinn meðan fé- lagarnir flatmaga á sólarströndu VIKUAFSLÖPPUN á sólarströnd Spánar eða álíka löng dvöl í fóður- húsum í snævi þöktum Akureyrarbæ? Þorvaldur Örlygsson var aldr- ei I vafa. Félagar hans í enska knattspyrnuliðinu Nottingham For- est sleikja nú sólina suður við Miðjarðarhaf en leikmaður síðasta íslandsmóts, sem kom til landsins á fímmtudaginn, komst loks norð- ur í gærmorgun ásamt unnustu sinni, Ólöfu Ellertsdóttur. að hvarflaði aldrei að mér að fara með strákunum til Spán- ar. Ég var búinn að vera einn úti í rúman mánuð og vildi því komast heim til að hitta kærustuna og fjöl- skylduna," sagði Þorvaldur er blaðamaður hitti þau Ólöfu að máli á Reykjavíkurflugvelli í gær- morgun. „Clough [þjálfari liðsins] ráðlagði mér líka að fara heim; ég hefði gott af því. Enda er ég þreytt- ur. Ég kom út þegar mótið þar var um það bil hálfnað, er búinn að spila tíu leiki, sem er rúmlega hálft íslandsmót og samt er mikið eftir!“ Bikarkeppnin var á dagskrá í Eng- landi í gær, Forest er ekki lengur í keppninni og því var fríið gefið. Skjótur frami Þorvalds í ensku knattspyrnunni hefur vakið undrun margra, bæði á Englandi og hér heima á Fróni, en jafnframt ánægju. Menn spyija sig hvort þetta sé allt saman satt. Að dreng- urinn hafi komið héðan að heiman og gengið beint inn í lið Forest, sem er í toppbaráttu ensku 1. deildar- innar. Ó, já — ekki er um það að villast, þeir sem vilja geta flett upp í ensku blöðunum og séð nafnið Toddy Orlygsson . . . Þorvaldur sló svo sannarlega í gegn í sumar, var aðalmaðurinn í liði KA sem varð íslandsmeistari í fyrsta sinn og fór utan fljótlega eftir að íslandsmótinu lauk. Síðan leið og beið, umsókn um atvinnu- leyfi var lengi í skoðun hjá breskum yfirvöldum en eftir að leyfið fékkst snérust hjólin hratt. Leikmaðurinn skrifaði undir samning við Notting- ham Forest á Akureyri í desember og þá sagði aðstoðarmaður þjálfara liðsins í samtali við Morgunblaðið að þriggja mánaða aðlögunartími væri ekki óeðlilegur þegar nýir leik- menn kæmu til félags eins og For- est. Hann tók hins vegar fram að vel gæti farið svo að Þorvaldur yrði hafður á varamannabekknum í einhveijum jólaleikjanna og fengi að spreyta sig hálfan leik eða svo. En jólakalkúnar Englendinga voru sko aldeilis ekki komnir í öfninn þegar Þorvaldur fékk fyrst að spreyta sig í búningi stórliðsins. Sunnudaginn 17. desember var hann sendur inn á Dell-leikvanginn í Southampton í peysu númer 8 — fékk að vita það klukkutíma fyrir leik. „Mig hefur líklega dreymt um það, já, að komast fljótlega inn í liðið. En ég var alls ekki viss um að draumurinn myndi rætast,“ svaraði Þorvaldur fyrstu spurning- unni. „Ég vonaðist til að verða varamaður í einhveijum jólaleikj- anna, til dæmis í Southampton. Mér fannst ég ekki vera í nægilega góðri æfingu þá en gat ekki neitað því að spila fyrst Clough sagði mér að ég ætti að vera með! En ég hef hugsað um það seinna að ég hefði sennilega neitað ef einhver annar en hann hefði sagt mér að fara inn á.“ Þorvaldur sagði Iiðinu ekki hafa gengið sérlega vel í leikjunum á undan og Clough hefði ef til vill viljað fá hina til að reyna meira á sig með því að láta hann spila. „Með því að hafa einhvern kálf inn á milli!“ Ef svo var hefur herbragð Cloughs heppnast — eins og svo mörg önnur í gegnum tíðina — því Forest vann 2:0 og hefur reyndar enn ekki tapað deildarleik sem Þorvaldur hefur tekið þátt í. „Ég var rosalega þreyttur eftir þennan fyrsta leik. Það má segja að ég hafi legið í heitu baði í heila viku til að jafna mig!“ Unnusta Þorvalds er að ljúka hárgreiðslunámi í Reykjavík þann- ig að hann er einn síns liðs ytra. Ætli hann sé ekki einmana? „Sjón- varpið er ágætur félagi, sérstak- lega á kvöldin," segir hann. „Ég æfi á morgnana og reyni að slæp- ast með strákunum í liðinu á dag- inn. Annars hefur verið nóg að gera við að koma sér fyrir undan- farið. Ég var að flytja af hóteli í íbúð nálægt vellinum. Og svo er ég að læra á vinstri umferðina. Þegar ég kom út hentu þeir hjá Forest mér strax inn í bíl og sögðu mér að keyra af stað! Það gengur ágætlega. Ég hef ekki enn lent í neinum óhöppum." Þorvaldur fylgdist með ensku knattspyrnunni í gegnum fjölmiðla hér heima meðan hann var enn áhugamaður í faginu. Horfði e.t.v. á hlutina í einhvers konar hilling- um, en þegar í baráttuna er komið segir hann leikmennina úti ,jafn mikla félaga“ og strákana sem hann lék með í KA: „Þeir eru ekk- ert öðruvísi. Mannlegir og góðir félagar. En um leið og maður hef- ur skrifað undir samning við svona lið er maður að vissu leyti einn á báti og getur ekki treyst á neinn nema sjálfan sig.“ Þorvaldi hefur einnig verið vel tekið af áhangendum liðsins og blaðamönnum en segir sig svo sem ekki umsetinn fólki, það eigi aðal- lega við um „stjörnurnar" í liðinu. „Mér finnst hetjudýrkunin oft ganga út í öfgar hjá almenningi og blaðamönnum. Ég hef ekki ver- ið þarna nema í mánuð og á ekki skilið allt sem um mig hefur verið sagt. Það er ekkert mál að standa sig þegar vel gengur hjá liðinu, ég held að það sé ekki fyrr en á móti blæs sem maður kynnist atvinnu- mennskunni í raun og veru. Þá kemur í ljós hveijir eru raunveru- legir vinir manns. Ég veit að bak- slag getur alltaf komið í seglin, og hlýtur að gera það einhvern tímann. Ég er því við öllu bú- inn . . .“ Morgunblaðið/Þorkell Þorvaldur Örlygsson og unnusta hans, Ólöf Ellertsdóttir, bíða eflir flugi FI 1056 til Akureyrar í gærmorgun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.