Morgunblaðið - 28.01.1990, Side 7
MORGUNBLÁÐIÐ SUNKUÐAGUR 28: ‘JÁNÚAR 1990
tl/l
HKT739
Austurríki:
Lítill snjór á skíðasvæð-
unum en jökullinn paradís
- segir Rudi Knapp, fararstjóri
íslenskra skíðamanna
„ÞAÐ er lítill si\jór á skíðasvæðunum í dalnum, en jökullinn er
paradís," sagði Rudi Knapp, fararstjóri íslenskra skíðamanna á
vegum Flugleiða í Mayerhofen, Zell am Zee og Kitsbiihl í Aust-
urríki, við Morgunblaðið á föstudag.
Að sögn Rudi er snjókoma nú
minni í Austurríki en í mörg
ár, en nægur snjór er fyrir ofan
1000 m hæð og nú snjóar í dalnum.
„Það er nægur snjór til að vera
á skíðum, en hann mætti vera meiri
og snjókoma í tvo daga bjargar
öllu,“ sagði fararstjórinn.
Rudi sagði að vinsælasti tíminn
væri venjulega frá byrjun febrúar
fram í lok mars. Fyrsti hópurinn
með Flugleiðum fór fyrir viku og
eru nú um 100 íslendingar á svæð-
unum, en margir þeirra eru á eigin
vegum. Rudi sagði að algengast
væri að fólk væri í tvær vikur, en
hann gerði ráð fyrir að um 1.000
íslendingar færu á skíði í Aust-
urríki í vetur.
Reiðhöllin:
Samningaviðræður hafin-
ar við Reiðskólann hf.
SAMNINGAVIÐRÆÐUR eru hafiiar milli núverandi eigenda Reið-
hallarinnar og Reiðskólans hf. um leigu þeirra síðarnefiidu á húsinu.
Einn fundur hefur þegar verið
haldinn með þessum aðilum að
sögn Kára Arnórssonar formanns
Landssambands hestama.nnafélaga.
Hann sagði að ef samkomulag
næðist ætti eftir að skipuleggja
kennsluna. Þrír skólar bíða nú eftir
að fá kennslu fyrir þá nemendur
sína sem hafa valið sér hesta-
mennsku. Auk þess er fyrirhugað
að bjóða reiðkennurum að halda
almenn námskeið í Reiðhöllinni.
Togaranum Stapavik lagt
STAPAVÍK SI, togari Þormóðs ramma hf. á Siglufirði, kom úr
sinni síðustu veiðiferð á mánudag, að sögn Róberts Guðfinnssonar
ft’amkvæmdastjóra fyrirtækisins
landi árið 1966.
Róbert Guðfinnson sagði að
Stapavík hefði verið á afla-
marki. Hins vegar væru aðrir togar-
ar Þormóðs ramma, Stálvík SI og
Sigluvík SI, á sóknarmarki. „Sókn-
armarkið verður afnumið eftir þetta
ár og Stálvík og Sigluvík veitir
ekki af aflakvóta Stapavíkur árið
1991. Önnur skip munu hins vegar
veiða kvóta skipsins á þessu ári en
en togarinn var smíðaður í Hol-
ég tel ekki ástæðu til að tíunda
hver þau eru,“ sagði Róbert.
Hann sagði að Stapavík væri
með um 1.900 tonna kvóta í þorsk-
ígildum. „Ef við hefðum sett Stálvík
og Sigluvík á aflamark á þessu
ári, og jafnað kvóta Stapavíkur á
milli skipanna, hefðu þau samt sem
áður getað fiskað lítið meira en á
sóknarmarki," sagði Róbert.
Allar Libero bleiur eru óbleiktar.
Verndum umhverfið.
Nýjar, sérstakar Libero bleiur
fyrir bæði stráka og stelpur.
ER1. FEBRÚAR
HJAÞER?
Nœsti gjalddagi húsnœðislána er 1. febrúar.
Gerðu ráð fyrir honum í fœka tíð.
16. febrúar leggjast dráttarvextir á lán með lánskjaravísitölu.
1. mars leggjast dráttarvextir á lán með byggingarvísitölu.
Gjalddagar húsnœðislána eru:
1. febrúar- 1. maí - 1. ágúst- 1. nóvember.
Sum lán hafa fjóra gjalddaga á ári, önnur aðeins einn.
SPARAÐU ÞÉR ÓÞARFA ÚTGJÖLD AF DRÁTTARVÖXTUM
OG HAFÐU ALLTAF NÆSTU GJALDDAGA INNI í MYNDINNI.
Qtn HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK • SÍMI 696900
w> mmlcf
mÆf íí r*T»í' ? tl W m.;, MTm? W ■ § 'J eitýjf \ mí
''a