Morgunblaðið - 28.01.1990, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJAA/EÐUR, UDAGUR 28. JANÚAR 1990
9
Fyrirgefhing og friður
eftir HERRA ÓLAF
SKÚLASON
Það er talað um að sofa eins
og bam. Þá er svefninn svo vær,
að ekkert truflar, engar áhyggjur
hnykla brún, enginn kvíði rífur
úr draumaheimi. Hvíldin er al-
gjör. Svefninn er því manninum
ekki minni nauðsyn en næring.
Það em ekki aðeins baugar undir
augum, sem sýna svefnvana
ásjónu, heldur túlkar hegðun hið
sama. Því grípur margur maður-
inn eftir lausn vegna vanda svefn-
leysisins. Svefnlyf gefur nokkra
hvíld, en hættan er sú, að opnað
sé fyrir undanbrögð við vanda í
því að skoða ætíð lausn utan síns
sjálfs.
Guðspjall hins fjórða sunnu-
dags eftir þrettánda (Matteus 8.
kafli) sýnir, hve auðveldlega Jesús
þáði þá fró, sem svefninn færir.
Margt gekk á. Fáir þurftu meiri
vanda að leysa, án þess þó að
hafa tiltæk þau hjálpartæki, sem
nútíminn færir önnum köfnu fólki.
En hann bjó yfir því, sem er lyk-
ill alls annars: Hann var að öðlast
sífellt meiri skilning á sjálfum
sér. Sú þekking færði honum full-
vissu, sem veitti ró. Hann þekkti
svar við spurningunum áleitnu,
sem títt beija að hugardyrum
fólks og hljóða einfaldlega á þessa
leið: Hvaðan, til hvers og hvert?
Hvaðan kemur möguleikinn til
þess að lifa svo lífi sínu, að kinn-
roði túlki ekki smám, og allt sé í
samræmi við spurningarnar um
til hvers við fáum hér ár og tæki-
færi, og hvert allt stefni og við
þá með.
Hvert, spyijum við. Og þá er
ekki farið eftir síðustu könnun
byggðastofnunar né tekið mið af
auglýsingum fe'rðaskrifstofanna,
heldur er sjónum beint að lokaf-
erðinni.' Og hlýtur reyndar svarið
við henni að fela í sér vísbendingu
um það, hvemig standa beri að
því að finna svör við hinum tveim-
ur.
Ég leita í hinn mikla sjóð, sem
guðspjöllin færa okkur og kenna,
hvað við getum lært af Jesú og
þar með um okkur sjálf. En það
er sagt frá því, að skömmu fyrir
þau lok ævi, sem krossinn trónar
yfir, hafi Jesús safnað lærisvein-
um sínum í kringum sig til undir-
búnings hinni helgu páskamáltíð.
Og guðspjallamaðurinn lýsir at-
burði eitthvað á þessa leið: Og
af því að Jesús vissi, hvaðan hann
kom og hvert hann færi, gyrti
hann sig líndúk, þ.e.a.s. tók hann
handklæði, og hóf að þvo fætur
lærisveina sinna. Af því Jesús
vissi, að hann hafði ákveðnu hlut-
verki að gegna og mundi senn
hverfa aftur til þess ríkis, sem við
kennum við himin, þá innti hann
af hendi þá þjónustu, sem ekki
þótti sæma þeim, sem gegndu
háum stöðum og litu stórt á sig.
Og í þessari einföldu frásögn
er fólginn lykillinn að þvi, hvers
vegna Jesús átti svona auðvelt
með að sækja þrótt og ró yfir í
ríki svefnsins og guðspjall dagsins
af honum sofandi í bátnum, með-
an lærisveinar hræddust ofsa
storms og háar öldur, sannar svo
vel. Fullvissa Jesú um köllun sína
og ætlunarverk leiddu hann til
þess að styrkja hugarró og safna
þrótti vegna amsturs daganna
með því að fara afsíðis hvem
morgun og hvert kvöld og vera
einn í bænagjörð sinni og til-
beiðslu. Lærisveinar sáu, hversu
mikils virði þessar stundir voru
honum og báðu um hjálp, að þeir
mættu ausa af sömu uppsprettu,
og hann kenndi þeim Faðir vorið.
Lífið krefst ævinlega mikils,
margháttuð störf taka sinn toll
af hugarró og orku. Jesús kennir
okkur enn leiðina til að varðveita
okkur sjálf, leið bænarinnar. Að
vera í samfélagi Guðs við upphaf
dags og kveðja að kvöldi á þann
sama hátt er að veita honum að-
gang að huga okkar og svo lífi.
Og þá verða líka spurningamar
þijár, sem ég vitnaði til áðan,
hvaðan, hvert og til hvers ekki
eins ógnandi. En á hitt ber líka
að líta, að þeim verður naumast
svarað án þess að Guð opni leið.
Án Guðs verða þær þvingandi
eyða og hrópandi angistarvein,
sem rænir ró og sviftir friði.
Og gott er að hafa það í huga,
að enginn gengur svo lífsins leið,
að hann uppfylli allar kröfur.
Enginn vinnur sér að heldur þegn-
rétt í ríki himna í krafti eigin
ágætis, hvað þá nokkur búi yfir
fullkomnuninni sjálfri. Sá þegn-
réttur er gjöf Guðs fyrir frelsara
manna. Það kallast fyrirgefning
og án hennar öðlumst við ekki
frið. En við fullvissu fyrirgefning-
arinnar kemur friður í sálu, friður
í samfélag. Þessi friður færði Jesú
ró, svo að hann svaf, þótt aðrir
óttuðst ofsa náttúruaflanna.
Bænarefni okkar er því slíkur frið-
ur í leit okkar að Guði, í iðkun
bænalífs og göfgun samfélags.
Og óróafull sál mun komast að
því, að friður Guðs, sem er æðri
öllum skilningi mun styrkja til
þess að slíkrar rósemdar né notið
og af spretti betri dagar í fylgd
rórra nótta.
VEÐURHORFUR í DAG, 28. JANÚAR
Rigning við suðurströndina
YFIRLIT kl. 10:10 í GÆR: Við NV-strönd Skotlands er 975 mb
lægð sem þokast A en 1020 mb hæð yfir Grænlandi. Um 400 km
VSV af Hvarfi er vaxandi 977 millibara lægð á leið A.
HORFUR á SUNNUDAG: Austan- og norðaustanátt á landinu með
minnkandi éljum við norður- og austurströndína en fer að rigna við
suðurströndina síðdegis. Hiti við frostmark sunnanlands en víðast
vægt frost norðanlands fram eftir degi en svo smám saman hlýnandi.
HORFUR á MÁNUDAG og ÞRIÐJUDAG: Stíf austan- og norðaust-
anátt um allt land. Úrkomulítið vestanlands, rigning eða slydda og
allt að 4 stiga frost sunnanlands og austan en snjókoma og hiti
nálægt frostmarki á norðurlandi og á Vestfjörðum.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 6:00 í gær að ísl. tíma
Staður hiti veður Staður hiti veður
Akureyri 0 snjóél Glasgow 4 skúr
Reykjavík 0 skýjað Hamborg 4 skýjað
Bergen 2 skúr London 3 léttskýjað
Helsinki 1 slydda LosAngeles 13 skýjað
Kaupmannah. 3 skýjað Lúxemborg 3 skýjað
Narssarssuaq -15 alskýjað Madrid vantar
Nuuk -11 alskýjað Malaga vantar
Osló -2 alskýjað Mallorca 11 léttskýjað
Stokkhólmur -5 snjókoma Montreal vantar
Þórshöfn 0 heiðskírt NewYork 3 skýjað
Algarve 15 alskýjað Orlando 7 heiðskírt
Amsterdam 4 hálfskýjað París 5 skýjað
Barcelona vantar Róm 7 þoka
Chicago 3 heiðskírt Vín 2 skýjað
Feneyjar 5 þoka Washington 7 heiðskírt
Frankfurt 5 skúr Winnipeg vantar
Ó Heiðskfrt r r r r r r r r r r Rigning V Skúrír A Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrimar
á Lóttskýjaö * r * Slydda # Slydduól vindstyrk, heil fjöður er tvö vindstig.
& ' r * V
Hilfskýjað r * r •J 0" HHastig:
Skýjað * * # # # * * * * * Snjókoma V Él 10 gráður á Celsíus = Þoka
Sk Alskýjað 5 ? 5 Súld oo Mlstur = Þokumóða
Kvöld-, nætur- og helgarþjónusta apótekanna í
Reykjavík dagana 26. janúar til 1. febrúar, að báðum
dögum meðtöldum, er í Lyfjabergi. Auk þess er Ingólfs
Apótek opið til kl. 22 alla daga vaktvikunnar nema sunnu-
dag.
Læknastofur eru lokaðar laugardaga og helgidaga.
Nesapótek: Virka daga 9-19. Laugard. 10-12.
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarnarnes og Kópavog
í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur við Barónsstíg frá kl. 17
til kl. 08 virka daga. Allan sólarhringinn, laugardaga og
helgidaga. Nánari uppl. í s. 21230.
Borgarspítalinn: Vakt 8-17 virka daga fyrir fólk sem ekki
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans s. 696600).
Slysa- og sjúkravakt allan sólarhringinn sami sími. Uppl.
um lyfjabúðir og læknaþjón. í símsvara 18888.
Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt fara fram
í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur á þriðjudögum kl.
16.30-17.30 Fólk hafi með sér ónæmisskírteini.
Tannlæknafél. Símsvari 18888 gefur upplýsingar.
Alnæmi: Uppl.sími um alnæmi: Símaviðtalstími fram-
vegis á miðvikud. kl. 18-19, s. 622280. Læknir eða hjúkr-
unarfræðingur munu svara. Uppl. í ráðgjafasíma Samtaka
'78; mánud. og fimmtud. kl. 21-23: 28539. Símsvarar
eru þess á milli tengdir þessum símnúmerum.
Alnæmisvandinn: Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann vilja styöja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra,
s. 22400.
Krabbamein. Uppl. og ráðgjöf. Krabbameinsfél. Virka
daga 9-11 s. 21122, Félagsmálafulltr. miðviku- og
fimmtud. 11-12 s. 621414.
Ónæmistæring: Upplýsingar veittar varðandi ónæmis-
tæringu (alnæmi) í s. 622280. Milliliðalaust samband við
lækni. Fyrirspyrjendur þurfa ekki að gefa upp nafn. Við-
talstímar miðvikudag kl. 18-19. Þess á milli er símsvari
tengdur við númerið. Upplýsinga- og ráðgjafasími Sam-
taka '78 mánudags- og fimmtudagskvöld kl. 21-23. S.
91-28539 — símevari á öðrum tímum.
Samhjálp kvenna: Konur sem fengið hafa brjóstakrabba-
mein, hafa viðtalstíma á þriðjudögum kl. 13-17 í húsi
Krabbameinsfélagsins Skógarhlíö 8, s.621414.
Akureyri: Uppl. um lækna og apótek 22444 og 23718.
Seltjarnarnes: Heilsugæslustöð, s. 612070: Virka daga
8-17 og 20-21. Laugardaga 10-11.
Apótek Kópavogs: virka daga 9-19 laugard. 9-12.
Garðabær: Heilsugæslustöð: Læknavakt s. 51100. Apó-,
tekið: Virka daga kl. 9-18.30. Laugardaga kl. 11-14.
Hafnarfjarðarapótek: Opið virka daga 9-19. Laugardög-
um kl. 10-14. Apótek Norðurbæjar: Opið mánudaga —
fimmtudaga kl. 9-18.30, föstudaga 9-19 laugardögum
10 til 14. Apótekin opin til skiptis sunnudaga 10-14.
Uppl. vaktþjónustu í s. 51600.
Læknavakt fyrir bæinn og Álftanes s. 51100.
Keflavík: Apótekið er opið kl. 9-19 mánudag til föstu-
dag. Laugardaga, helgidaga og almenna frídaga kl. 10-12.
Heilsugæslustöð, símþjónusta 4000.
Selfoss: Selfoss Apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á
laugardögum og sunnudögum kl. 10-12. Uppl. um lækna-
vakt fást í símsvara 1300 eftir kl. 17.
Akranes: Uppl. um læknavakt 2358. — Apótekið opið virka
daga til kl. 18.30. Laugardaga 10-13. Sunnudaga 13-14.
Heimsóknartími Sjúkrahússins 15.30-16 og 19-19.30.
Rauðakrosshúsið, Tjarnarg. 35. Ætlað börnum og ungl-
ingum í vanda t.d. vegna vímuefnaneyslu, erfiðra heimilis-
aðstæðna, samskiptaerfiðleika, einangrunar eða persón-
ul. vandamála. S. 622266. Barna og unglingasími 622260.
LAUF Landssamtök áhugafólks um flogaveiki. Skrifstofa
Ármúla 5. Opin miðvikudaga og föstudaga 13.00-17.00.
s. 82833.
Samb. ísl. berkla- og brjóstholssjúklinga, S.Í.B.S. Suður-
götu 10.
G-samtökin: Samtök gjaldþrota greiðsluerfiðleikafólks.
Uppl. veittar í Rvík í símum 75659, 31022 og 652715. í
Keflavík 92-15826.
Foreldrasamtökin Vímulaus æska Borgartúni 28, s.
622217, veitir foreldrum og foreldrafél. upplýsingar.
Opin mánud. 13-16. Þriðjud., miðvikud. og föstud. 9-12.
Fimmtud. 9-10.
Kvennaathvarf: Allan sólarhringinn, s. 21205. Húsaskjól
og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi í
heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun.
MS-félag íslands: Dagvist og skrifstofa Álandi 13, s.
688620.
Lífsvon — landssamtök til verndar ófæddum börnum.
S. 15111 eða 15111/22723.
Kvennaráðgjöfin: Sími 21500. Opin þriðjud. kl. 20-22.
Fimmtud. 13.30 og 20-22. Sjálfshjálparhópar þeirra sem
orðið hafa fyrir sifjaspellum, s. 21260.
SÁÁ Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið, Síðu-
múla 3-5, s. 82399 kl. 9-17.
Skrifstofa AL-ANON, aöstandenda alkohólista, Hafn-
arstr. 5 (Tryggvagötumegin 2. hæð). Opin mánud.—
föstud. kl. 9—12. Símaþjónusta laugardaga kl. 10—12,
s. 19282.
AA-samtökin. Eigir þú við áfengisvandamál að stríða,
þá er s. samtakanna 16373, kl. 17-20 daglega.
Fréttasendingar Ríkisútvarpsins til útlanda daglega á
stuttbylgju til Norðurlanda, Betlands og meginlands Evr-
ópu: Daglega kl. 12.15-12.45 á 15767, 15790, 13855
og 11418 kHz. kl. 18.55-19.30 á 15767, 13855, 11418,
9268, 7870 og 3295 kHz.
Hlustendum á Norðurlöndum er bent á 15790, 11418
og 7870 kHz og á 15767 kHz kl. 14.10, 13855 kHz kl.
19.35 og 9268 kHz kl. 23.00.
Kanada og Bandaríkin: Daglega: kl. 14.10-14.40 á 13855,
13830, 15767,og kHz.
Kl. 19.35-20.10 á 15767, 15780 og 13855 kHz.
23.00-23.35 á 13855, 11418 og 9268 kHz.
Hlustendur geta einnig oft nýtt sé sendingar kl. 12.15
og kl. 18.55 og hlustendum í mið- og vesturríkjum Banda-
ríkjanna og Kanada er bent á 15780, 13830 og 11418
kHz.
Að loknum lestri hádegisfrótta á laugardögum og sunnu-
dögum er lesið fréttayfirlit liðinnar viku.
ísl. tími, sem er sami og GMT.
SJÚKRAHÚS - Heimsóknartímar
Landspítalinn: alla dagá kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl.
20.00. kvennadeildin. kl. 19.30-20. Sængurkvennadeild.
Alla daga vikunnar kl. 15-16. Heimsóknartími fyrir feður
kl. 19.30-20.30. Barnaspítali Hringsins: Kl. 13-19 alla
daga. Öldrunarlækningadeild Landspítalans Hátúni
10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. — Landakotsspít-
ali: Alla daga kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19. Barna-
deild : Heimsóknartími annarra en foreldra er kl. 16-17.
— Borgarspítalinn í Fossvogi: Mánudaga til föstudaga
kl. 18.30 til kl. 19.30 og eftir samkomulagi. á laugardög-
um og sunnudögum kl. 15-18. Hafnarbúðir: Alla daga
kl. 14-17. — Hvítabandið, hjúkrunardeild og Skjól hjúk-
runarheimili. Heimsóknartími frjáls alla daga. Grensás-
deild: Mánudaga til föstudaga kl. 16-19.30 — Laugar-
daga og sunnudaga kl. 14-19.30. — Heilsuverndarstöð-
in: Kl. 14 til kl. 19. — Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. — Kleppsspítali: Alla daga
kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. - Flóka-
deild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. — Kópavogshælið:
Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á helgidögum. — Vífilsstað-
asprtali: Heimsóknartími daglega kl. 15-16 og kl.
19.30-20. — St. Jósefsspítali Hafn.: Alla daga kl. 15-16
og 19-19.30. Sunnuhlíð hjúkrunarheimili í Kópavogi:
Heimsóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkra-
hús Keflavíkurlæknishéraðs og heilsugæslustöðvar:
Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á Heilsugæslustöð
Suðurnesja. S. 14000. Keflavík - sjúkrahúsið: Heimsókn-
artími virka daga kl. 18.30—19.30. Um helgar og á hátíð-
um: Kl. 15.00—16.00 og 19.00-19.30. Akureyri — sjúkra-
húsið: Heimsóknartími alla daga kl. 15.30 -16.00 og
19.00-20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra
Sel 1: kl. 14.00-19.00. Slysavarðstofusími frá kl. 22.00-
8.00, s. 22209.
BILANAVAKT
Vaktþjónusta. Vegna bilana á veitukerfi vatns og hita-
veitu, s. 27311, kl. 17 til kl. 8. Sami sími á helgidögum.
Rafmagnsveitan bilanavakt 686230.
SÖFN
Landsbókasafn íslands: Aðal lestrarsalur opinn mánud.
— föstudags kl. 9-19. Laugardaga kl. 9—12. Útlánssalur
(vegna heimlána) mánud. — föstudags 13-16.
Háskólabókasafn: Aðalbyggingu Háskóla íslands. Opið*
mánudaga til föstudaga kl. 9-19. Upplýsingar um útibú
veittar í aðalsafni, s. 694326.
Árnagarður: handritasýning StofnunarÁrna Magnússon-
ar, þriðjud., fimmtud.- og laugardögum kl. 14-16.
Þjóðminjasafnið: Opið þriöjudaga, fimmtudaga, laugar-
daga og sunnudaga frá kl. kl. 11-16.
Þjóðminjasafnið: Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugar-
daga og sunnudaga frá kl. kl. 11-16.
Árbæjarsafn: Opið eftir samkomulagi s. 671280.
Akureyri: Amtsbókásafnið: Mánud.—föstud. kl. 13-19.
Nonnahús alla daga 14-16.30.
Náttúrugripasafn Akureyrar: Opið sunnudaga kl. 13-15.
Borgarbókasafn Reykjavíkur: Aðalsafn, Þingholtsstræti
29a, s. 27155. Borgarbókasafnið í Gerðubergi 3-5, s.
79122 og 79138. Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270.
Sólheimasafn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind
söfn eru opin sem hér segir: mánud. — fimmtud. kl. 9-21,
föstud. kl. 9-19, laugard. kl. 13-16. Aðalsafn — Lestrarsal-
ur, s. 27029. Opinn mánud. — laugard. kl. 13-19. Hof-
svallasafn, Hofsvallagötu 16, s. 27640. Opið mánud. —
föstud. kl. 16-19. Bókabílar, s. 36270. Viðkomustaðir
víðsvegar um borgina. Sögustundir fyrir börn: Aðalsafn
þriðjud. kl. 14-15. Borgarbókasafnið í Gerðubergi
fimmtud. kl. 14-15. Bústaðasafn miðvikud. kl. 10-11.
Sólheimasafn, miðvikud. kl. 11-12.
Norræna húsið. Bókasafnið. 13-19, sunnud. 14-17. —
Sýningarsajir: 14-19 alla daga.
Listasafn íslands, Fríkirkjuveg. Opiö alla daga nema
mánudaga kl. 12-18. Sýningin Islensk myndlist 1945-’89
stendur yfir.
Safn Ásgríms Jónssonar: Opið alla daga nema mánu-
daga frá kl. 13.30-16.00.
Höggmyndasafn Ásmundar Sveinssonar við Sigtún er
opið alla daga kl. 10-16.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið laugardaga og sunnu-
daga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn dag-
lega kl. 11-17.
Kjarvalsstaðir: Opið alla daga vikunnar kl. 11-18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnesi: Opið laug-
ardaga og sunnudaga kl. 14-17 og á þriðjudagskvöldum
kl. 20-22.
Bókasafn Kópavogs, Fannborg 3-5: Opið mán.—föst. kl.
10-21. Lesstofan kl. 13-19.
Myntsafn Seðlabanka/Þjóðminjasafns, Einholti 4: Opið
sunnudaga milli kl. 14 og 16. S. 699964.
Náttúrugripasafnið, sýningarsalir Hverfisg. 116: Opnir
sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. 13.30-16.
Náttúrufræðistofa Kópavogs: Opið á miðvikudögum og
laugardögum kl. 13.30-16.
Byggðasafn Hafnarfjarðar: Laugardaga og sunnudaga
kl. 14-18. Aðra eftir samkomulagi. Heimasími safnvaröar
52656.
Sjóminjasafn íslands: Laugardaga og sunnudaga kl.
14-18. Sími 52502.
ORÐ DAGSINS Reykjavík sími 10000.
Akureyri s. 96-21840. Siglufjörður 96-71777.
SUNDSTAÐIR
Sundstaðir í Reykjavik: Sundhöllin: Mánud. — föstud.
kl. 7.00-19.00. Lokað í laug kl. 13.30-16.10. Opið í böð
og potta. Laugard. 7.30-17.30. Sunnud. kl. 8.00-15.00.
Laugardalslaug: Mánud. — föstud. frá kl. 7.00-20.30.
Laugard. frá kl. 7.30-17.30. Sunnudaga frá kl. 8.00-17.30.
Vesturbæjarlaug: Mánud. — föstud. frá kl. 7.00-20.30.
Laugard. frá kl. 7.30-17.30. Sunnud. frá kl. 8.00-17.30.
Breiðholtslaug: Mánud. — föstud. frá kl. 7.00-20.30. Laug-
ard. frá 7.30-17.30. Sunnud. frá kl. 8.00-17.30.
Varmárlaug í Mosfellssveit: Opin mánudaga — föstu-
daga kl. 6.30-21.30. Föstudaga kl. 6.30-20.30. Laugar-
daga-kl. 10-18. Sunnudaga kl. 10-16.
Sundhöll Keflavíkur er opin mánudaga — fimmtudaga.
7-9, 12-21. Föstudaga kl. 7-9 og 12-19. Laugardaga 8-10
og 13-18. Sunnudaga 9-12. Kvennatimar þriðjudaga og
fimmtudaga 19.30-21. r
Sundlaug Kópavogs: Opin mánudaga — föstudaga kl.
7-9 og kl. 17.30-19.30. Laugardaga kl. 8-17. Sunnudaga
kl. 9-12. Kvennatímar eru þriðjudaga og miðvikudaga kl.
20-21. Siminn er 41299.
Sundlaug Hafnarfjarðar er opin mánud. — föstud. kl.
7-21. Laugard. frá kl. 8-16 og sunnud. frá kl. 9-11.30.
Sundlaug Akureyrar er opin mánudaga — föstudaga kl.
7-21, laugardaga kl. 8-18, sunnudaga 8-16. Sími 23260.
Sundlaug Seltjamarness: Opin mánud. — föstud. kl.
7.10-20.30. Laugard. kl. 7.10-17.30. Sunnud. kl. 8-17.30.