Morgunblaðið - 28.01.1990, Síða 14
Í4
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANUAR 1990
KONUR
MUNU
cJ
IKONUM
lega hér á heimilinu, t.d. þegar
kosningar eru í aðsigi, en ég er það
umburðarlynd manneskja að ég
leyfi honum að hafa aðrar skoðan-
ir.“
Efnahagslegt frelsi kvenna er
eina frelsið," segir Helga. „Hvað
heldur þú að mörg hjónabönd
lafi einungis vegna þess að konur
treysta sér ekki til að sjá einar um
framfærsluna? Og hverjir hafa sam-
ið um laun kvenna?
Konur alls staðar á landinu eru
að hugsa það sama, að breyta og
bæta kjör kvenna. íslenskar konur
standa upp yfir haus í að reyna að
finna leiðir. Okkur hættir til að
setjast niður, krossleggja hendurn-
ar og hugsa: Þær redda þessu.
Þetta eru svo fínar konur og klárar
sem birtast á sjónvarpsskerminum,
litla ég get bara þagað það sem
eftir er.
Það er kannski átak að setja sig
inn í málin, en bankamál eru ekk-
ert flóknari en hvað annað. Að ráða
yf ir fjármagni er ein Ieið af mörgum
sem konur verða að fara og von-
andi skilar hún okkur lengra.
Heimurinn er að minnka. Friðar-
hreyfingar eru að sameinast. Al-
þjóðlegt fjárhagslegt net kvenna
er staðreynd, og konur munu fjár-
festa í konum.“
Það verður smáþögn eftir þessa
ræðu.
— En Helga, verður þú banka-
stjóri?
„Elskan mín, þegar ég er búin
að sauma út sessuna í bankastjóra-
stólinn fer ég örugglega að gera
eitthvað annað.“
NICOLITH
NIRO
KORZILIUS
KCH
GROHN
INDUS
OMEGA
EMIL CERAMICA
CEMAR
ATLAS
CARRARA
GUSTAVSBERG
ARABIA
DURAVIT
ROYAL SPHINX
HANSA
ECHELBERG
MORA
BREIDDIN ER OTRULEG
í HREINLÆTISTÆKJADEILDINNI
Á rúmlega 1000 m2 gólfplássi í hreinlætistækjadeild okkar,
á neöri hæö verslunarinnar, getur þú valið úr 100 tegundum vandaöra
hreinlætistækja frá Svíþjóö, Finnlandi og Frakklandi, um 150 tegundum
blöndunartækja frá Þýskalandi, um 20 tegundum baðinnréttinga frá Svíþjóð
úrvali sturtuklefa frá Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi, fjölda stálvaska frá
Danmörku og Sviss og síðast en ekki síst geturðu valið úr rúmlega
200 tegundum vegg- og gólfflísa frá Ítalíu, Þýskalandi, Danmörku,
Sviss, Hollandi og jafnvel frá Brasilíu og Uruguay.
Við byggjum á
breiddinni
MJÓDDIN
KVENNA-
BARÁTTAN
KOMIN ÚT
1ÖFGAR
- segir Guðrún Lárus-
dóttir útgerðarmaður
„ÉG HEF bara aldrei heyrt ann-
að eins. Nú er þessi kvennabar-
átta komin út í öfgar. Ég myndi
ekki skipta við svona banka og
sé enga ástæðu til að vera með
einhveija sérhæfða bankastarf-
semi íyrir kvenfólk," sagði Guð-
rún Lárusdóttir, útgerðarmaður
hjá Stálskip hf. í Hafnarfirði.
Við erum ein þjóð í sama landi
og bankar, eins og aðrar stofn-
anir, eiga að þjóna öllum jafnt. Ég
hef ekki orðið vör við að konur eigi
undir högg að sækja í bankakerf-
inu. Mér hefur verið tekið ljómandi
vel í öllum bönkum sem ég hef
skipt við og hef ekkert út á þjón-
ustu þeirra að setja. Þess vegna
finnst mér það algjör óþarfi að setja
á stofn sérstakan banka fyrir kven-
fólk,“ sagði Guðrún Lárusdóttir.
FAGNA ÞESSARI
HUGMYND
- segir Bára Magn-
úsdóttir danskennari
„Ég fagna þessari hugmynd
þótt almennt sé ég hlynnt því
að konur og karlar sitji við
sama borð. En svona banki
myndi vekja athygli á konum
í viðskiptalífinu og stundum
er nauðsynlegt að grípa til rót-
tækra ráðstafana þegar vekja
þarf athygli á baráttumálum
kvenna,“ sagði Bára Magnús-
dóttir danskennari.
Konur eru vissulega minnihluta-
hópur í viðskiptalífinu og ég
tel mig hafa orðið vara við að
stundum örlar á vantrú á að þær
spjari sig til jafns við karla og
þetta vantraust kemur fram í
bankakerfinu eins og annars
staðar. Líklega er þetta vantraust
í garð kvenna þó ómeðvitað. En
ég man eftir því að góður vinur
minn í bankakerfinu varaði mig
við, þegar ég viðraði þær hug-
myndir að stækka skólann og
hann spurði varfærnislega hvort
þetta væri nú ekki orðið alveg
nógu umsvifamikið hjá mér. Mér
er sem ég sæi þannig komið fram
við karlmann, sem hygðist auka
umsvif sín. En þetta var ekki illa
meint hjá viðkomandi. Ég er því
fylgjandi þessari hugmynd um
kvennabanka og þájsérstaklega
vegna þess áróðursgildis sem
hann hefði í þágu kvenna í við-
skiptalífinu. Ég myndi því áreið-
anlega skipta við hann, kannski
ekki eingöngu, en alla vega að
einhveiju marki,“ sagði Bára
Magnúsdóttir danskennari.