Morgunblaðið - 28.01.1990, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRfc I l-UM ð¥NftUQAftpÆf28. JANÚAR1990
3Ap
____________________ Morgunblaðið/Þorkell
LÆKNINGATÆKI
Elín Ingi-
mundardóttir
við tækið
umrædda.
Fólk velur þægilegasta litinn
o g horfír svo í 20 mínútur
ÞETTA ER kallað „Luminator" og er nýtt tæki. Það eru aðeins tvö
ár síðan að farið var að nota það vestur í Bandaríkjunum og þetta tæki
er það fyrsta sinnar tegundar sem tekið er í notkun hérlendis," sagði
Elín Ingimundardóttir sjúkraliði í Heilsustöðinni Skeifunni 17, er hún
lýsti sérkennilegu apparati sem stendur á borði og minnir helst á vask
sem stendur upp á rönd.
En það er eins fjarri raunveruleik-
anum og hugsast getur, því Elín
segir okkur að Luminatorinn sé til
höfuðs ýmsum kvillum og sé árangur
góður. Hún nefnir til dæmis höfuð-
verki og ekki síst hinu alræmda og
illviðráðanlega skammdegisþung-
lyndi. En hvernig virkar tækið? Elín
heldur áfram:
„Það er einfaldlega horft inn í tæk-
ið og heilmikill poki settur yfir höfuð-
ið til að loka úti allt utanaðkomandi
ljós. Fólk situr við borð er horft er
inn í tækið og við sýnum því 20 liti.
Það velur síðan þann litinn sem því
finnst þægilegastur og horfir í hann
í 20 mínútur í senn. Það er ýmist
kyrrð er fólkið horfir í litinn, eða að
við leikum róandi tónlist á lágum
styrk, en sumir vilja gjarnan rabba
á meðan að horfunin stendur yfir.
Það er allur gangur á því. Það sem
gerist er að ljósið fer inn fyrir aug-
að, í sjóntaugina og til heiladinguls-
ins. Þetta er hannað af augnlækni
þannig að heill augnanna er ekki í
hættu.“
En hvað skyldi þurfa að koma oft
til að fá bót meina sinna? Elín svar-
ar því:„Fólk þarf að koma að minnsta
kosti þrisvar í viku og lágmark 10
til 20 skipti til þess að meðferðin
hrífi. Við höfum mælt einstaka sjúkl-
inga og ein sem var hjá okkur fékk
70 prósent bata í hálft ár. Mörg sams
konar dæmi mætti nefna.“ Sækir
fólk í þ'etta? „Það er mesta furða því
við höfum ekkert auglýst þetta, fólk
hefur nánast frétt af þessu fyrir til-
viljun. Þó hefur verið rólegt eftir
áramótin sem er miður, því nú veitir
mörgum ekki af meðferð við skamm-
degissleninu," segir Elín að lokum.
HEMMI
Bogmaðurinn
þarf tilbreytingri
HERMANN Gunnarsson hefiir yljað áhorfendum
með þáttum sínum „ A tali með Ilemma Gunn“
það sem af er vetri eins og síðasta vetur. En
með hækkandi sól tekur hann sér eitthvað annað
fyrir hendur og Morgunblaðið sló á þráðinn og
spurði hann hvað framundan væri, er vetrar-
vertíð dagskrárgerðarmannsins væri liðin.
að er nú heidur óljóst, en ég hef
verið tals-íert starfandi við
ferðamálin síðustu sumur og reikna
með að gera eitthvað á þeim línum
á komandi sumri. Maður er heldur
tómur eftir veturinn og bogmaðurinn
þarf tilbreytingu. Ég hef aldrei haft
þolinmæði í veiðiskap eða þess háttar
og hef því tekið upp á því að yfir-
gefa klakann og skoða mig um úti
í hinum stóra heimi. Það hefur aftur
orðið til þess að ég er orðinn alger
sjúklingur að skoða heiminn. Síðast
fór ég um Austurlönd. Ég veit ekki
hvað tekur við, en eitthvað verður
það,“ sagði Hemmi. Og meira sagði
hann.
„Maður á nú kannski ekki að vera
að skoða enn lengra fram í tímann,
sérstaklega þar sem ég hef engar
áhyggjur af því hvað þá tekur við.
Það hefur togað í mig að fara aftur
á útvarp, en einhver dagskrárgerð
fyrir ríkissjónvarpið kæmi einnig vel
til greina af minni hálfu, því sá
starfsandi sem ég hef kynnst í kring
um þáttinn minn er slíkur að maður
hlýtur að sækja í slíkt. Manni verður
jú að líða vel.“
VERKEFNASTJÓRNUN
Kynningarfundur
29. janúar 1990
kl. 17.30 í húsakynnum Bifreiðaskoðunar íslands, Hest-
hálsi 6-8.
Málefni
Notkun verkefnastjórnunar við breytingu á Bifreiðaeftir-
liti ríkisins í Bifreiðaskoðun íslands.
Karl Ragnars, forstjóri Bifreiðaskoðunar íslands fjallar
um markmið með breytingunum og lýsir aðstöðu við
skoðunina.
Ágúst Þór Jónsson verkefnisstjóri ræðir almennt um
hvernig staðið var að skipulagsbreytingunum.
Allir velkomnir.
NORÐURLANDASTOFNUNIN
Á GRÆNLANDI (N.A.P.A.) jpF W///,
óskar eftir WM
forstjóra
Norðurlandastofnuninni á Grænlandi var komið á fót 1986
í samvinnu við heimastjórn'Grænlands. Starfsemi stofnun-
arinnar er fjármögnuð af ráðherranefnd Norðurlanda.
N.A.P.A. er í NUUK og markmið hennar er að styrkja
grænlenska menningu og efla samskipti Grænlands við hin
Norðurlöndin á sviði alhliða menningar, rannsókna og
kennslu, jafnframt þvi að koma á fót samböndum og miðla
upplýsingum og kynna norrænt samstarf á Grænlandi.
Auglýst er eftir forstjóra til þess að stjórna þessu starfi og
er hann núna ásamt ritara eina fasta starfslið stofnunarinn-
ar. Æskilegt er að hann hafi reynslu við störf að menningar-
málum og stjórnun. Kunnátta í dönsku, norsku og sænsku
er skilyrði og þekking og skilningur á grænlenskri tungu,
menningu og nútíma grænlensku þjóðfélagi væri kostur.
Forstjórinn er ráðinn til 4 ára og hefur störf 1. ágúst 1990
eða eftir samkomulagi. Laun og aðrir ráðningarskilmálar
eru ákveðin samkvæmt reglum um starfsmenn norrænna
stofnana og eftir hæfni umsækjanda. Staðan er launuð sam-
kvæmt grænlenskum launaflokki 35 (p.t. 239.121 DKK á
ári). Sérstakar viðbætur geta komið til:
Heimast jórnin hefur til ráðstöfunar leiguhúsnæði handa
forstjóranum samkvæmt gildandi reglum á Grænlandi.
Ríkisstarfsmenn eiga rétt á fríi frá störfum meðan þeir
starfa við norrænar stofnanir og starfstíminn reiknast með
eins og ef þeir störfuðu f heimalandi.
Umsókn sendist til Nordens Institut i Grönland, Box’770,
3900 Nuuk, og verður að senda i síðasta lagi 20. febrúar
1990.
Frekari upplýsingar fást hjá Nordens Institut, kst. institut-
chef Janne Jervin tlf. +229-24733 telefax +229-25733 eða
stjórnarformanni Olov Isaksson, Kungsholms Torg 8,
S-11221 Stockholm, sími +46-8-533195.
Hörkutóliö Formula Mach I
Sími: 91-686644
SKI-DOO 1990 VÉLSLEDA RNIR ERU
FREMSTIR Í SÍNUM FLOKKI
Nýju Ski-doo vélsleðarnir eru svo sann-
arlega athyglisverðir. í ár getur að líta
nýjar gerðir og nýtt útlit jafnframt því
að enn hafa bæst við tækninýjungar
sem skipa Ski-doo vélsleðunum
sess fremst í sínum flokki. Ef þig
er farið að klæja af löngun eftir
alvöru vélsleða þá skaltu kynna
þér kostina hjá öflugasta vél-
sleðaframleiðanda heims. Allar
upplýsingar veitir Gísli Jónsson
& Co.
plus