Morgunblaðið - 28.01.1990, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 28.01.1990, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÚTVARP/SJÓIMVARP SUNNUDAGUR 28 . JANUAR 1990 35 unn Sigurðardóttir. Magdalena ^chram og Sonja B. Jónsdóttir semja spurningarn- ar og skiptast á dómgæslu. Bjarni Feiix- son semur íþróttaspurningar. Umsjón: Sigrún Sigurðardóttir. 21.30 Kvöldtónar. 22.07 Bláar nótur. Pétur Grétarsson kynnir djass og blús. (Úrvali útvarpað aðfara- nótt laugardags að loknum fréttum kl. 5.00.) 00.10 I háttinn. 1.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. Fréttir kl. 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00, 10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00, 17.00, 18.00, 19.00, 22.00 og 24.00. NÆTURÚTVARPIÐ 1.00 Áfram ísland. (slenskir tónlistarmenn flytja dægurtög. 2.00 Fréttir. 2.05 Eftirlætislögin. Svanhildur Jakobs- dóttir spjallar við llluga Jökulsson sem velur eftirlætislögin sín. (Endurtekinn þátt- ur frá þriðjudegi á rás 1.) 3.00 „Blítt og létt. . ." Endurtekinn sjó- mannaþáttur Gyðu Drafnar Tryggvadóttur frá liðnu kvöldi. 4.00 Fréttir. 4.05 Glefsur. Úr dægurmálaútvarpi mánæ dagsins. 4.30 Veðurfregnir. 4.40 Á vettvangi. Umsjón: Páll Heiðar Jónsson og Bjarni Sigtryggsson. (Endur- tekinn þáttur frá deginum áður á rás 1.) 5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 5.01 Lísa var það, heillin Lísa Pálsdóttir fjallar um konur í tónlist. (Endurtekið úr- val frá miðvikudagskvöldi á Rás 2.) 6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 6.01 Á gallabuxum og gúmmískóm. Leikin lög frá sjötta og sjöunda áratugnum. LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2 Útvarp Norðurland kl. 8.10-8.30 og 18.03-19.00. BYLGJAN FM 98,9 7.00 Sigursteinn Másson. Heilsuvika Bylgjunnar að hefjast. Mataræði, leikfimi og heilbrigði númer eitt tvö og þrjú í til- efni dagsins. 9.00 Páll Þorsteinsson í íþróttagallanum. Vinír og vandamenn kl. 9.30 og tekið á móti Skúla Johnsen borgarlækni. Létt spjall í tilefni heilsuviku. Uppskrift dagsins valin og verður hún heilsusamleg í tilefni dagsins. Þorraveisla fyrir fimm manns í verðlaun beint heim á borð. 12.00 Hádegisfréttir. 12.15 Valdís Gunnarsdóttir á skokkskón um. Heilsuvika og allir með, heilsuhópur Bylgjunnar kemur við í hljóöstofu og fær vinnustaðanudd í tilefni dagsins. 15.00 Ágúst Héöinsson með lóðin á lofti. Heilsusamlegt mataræði og boðið í leik- fimi, keilu og squash. 17.00 Haraldur Gíslason. Góð ráð, megrun og fleira skemmtilegt. 19.00 Snjólfur Teitsson útbýr salat i tilefni heilsuviku. 20.00 Ólafur Már Björnsson á kvöldvakt- inni. 22.00 Stjörnuspeki. Gunnlaugur Guð- mundsson og Pétur Steinn fara yfir stjörnumerkin. Stjörnumerki mánaðarins tekið fyrir, góður gestur kemur í heim- sókn. Óllum merkjum gerð einhver skil, 24.00 Freymóður T. Sigurðsson fylgir hlust- endum inn i nóttina. STJARNAN FM102/104 7.00 Snorri Sturluson. Lifandi morgun þáttur með nauðsynlegum morgunupp- lýsingum. Síminn hjá Snorra er 622939. 10.00 Bjarni Haukur Þórsson. Markaðurinn kl. 10.30. (þróttafréttir kl. 11.00. Hádegis verðarleikurinn kl. 11.45. 13.00 Sigurður Helgi Hlöðversson. (þróttaf- • réttir kl. 16.00. Síminn er 622939. 17.00 Ólöf Marín Úlfarsdóttir. Þægileg tón list í síðdeginu. 19.00 Richard Scobie. Eldhress að vanda er hann mættur með besta rokksafn landsins. 22.00 Kristófer Helgason. Þægileg tónlist rétt fyrir svefninn. 1.00 Björn Sigurðsson. Næturvakt Stjörnunni. AÐALSTOÐIN FM 90,9 7.00 Nýr dagur. Eiríkur Jónsson. Morgun- maður Aðalstöðvarinnar með fréttir, viðtöl Rás 1: Af manna- Lesið verður úr 30 fyrstu bók Álfrúnar -l” Gunnarsdóttur „Af mannavöldum" á Rás 1 í dag en bókin kom út árið 1982. I henni eru stuttar nafnlausar smásögur, sem flestar eru til- brigði við stefið sem nafn bók- arinnar gefur til kynna. Guð- laug María Bjarnadóttir leik- kona velur sögurnar og les. og fróðleik í bland við tónlist. 9.00 Árdegi Aðalstöðvarinnar. Anna Björk Birgisdóttir. Ljúfir tónar í dagsins önn með fróðleiksmolum um færð veður og flug. 12.00 Hádegisútvarp Aðalstöðvarinnar. Dagbók dagsins. Umsjónarmenn Ásgeir Tómasson, Þorgeir Ástvaldsson og Eirík- ur Jónsson. Ljúfir tónar. Dagskrárgerð annast Margrét Hrafnsdóttir. 13.00 Lögin við vinnuna. Fróðleikur í bland við Ijúfa tóna og allt sem þú þarft að vita um í dagsins önn. Umsjón Þorgeir Ást- valdsson. 16.00 I dag í kvöld með Asgeiri Tómas- syni. Fréttir og fréttatengt efni um mál- efni líðandi stundar. 18.00 Á rökstólum. Flest allt í mannlegu samfélagi látum við okkur varða. Flest allt er rætt um og það gerum við á rök- stólum. Siminn er 626060. Umsjón Bjarni Dagur Jónsson. 19.00 Ljúfir ókynntir tónar í anda Aðalstöðv- arinnar. 22.00 Draumasmiðjan. Draumar hlustenda ráðnir í beinni útsendingu. Allt sem við- kemur draumum getur þú fræðst um á Aðalstöðinni. Síminn 626060. 1: Hemaðar- bandalög ■■■■ í þættinum Samantekt um hernaðarbandalög á tíunda ára- OO 30 tugnum á Rás 1 í kvöld verður fjallað um áhrif þeirra breytinga sem orðið hafa í Mið- og Austur-Evrópu að und- anförnu og áhrifin sem þau kunna að hafa á Atlandshafsbandalagið og Varsjárbandalagið. I þættinum verður sérstaklega fjallað um mikilvægi íslands í varnarbandalagi vestrænna þjóða og hugsanlegar breytingar á starfsemi herstöðvarinnar hér á landi. Heilsa og heilsurækt er á dagskrá hjá Bylgjunni og Sljörnunni Bylgjan-Stjaman: Heilsuvika ■■■ Heilsuvika varður á Bylgjunni og Stjörnunni frá mánudeginum 000 29. janúar til föstudagsins 2. febrúar. Þessa vikuna verður ” fjallað um allt sem við kemur heilsu og heilsurækt. Sérstakur heilsuhópur sem samanstendur af dagskrárgerðarfólki stöðvanna og fleirum’ mun koma saman daglega að Snorrabraut 54 og taka þátt í heilsusamlegu sporti í beinni útsendingu. Fjallað verur um margt sem við kemur heilsu, mataræði, reykingum, útiveru o. fl. Sjónvarpið: Kvikmyndagerð í 10 ár ■H Kvikmyndagerð telst ekki gömul listgrein hér á landi enda OA 35 jafnan nokkuð fjárfrek og því lítt á færi nýsköpunarsam- félags hinnar tuttugustu aldar. Rétt er þó og skylt að minnast brautryðjandans Óskars Gíslasonar er framleiddi myndir á árunum eftir styrjöldina af miklum stórhug og litlum efnum. Saga samfelldrar kvikmyndagerðar hérlendis spannar ekki nema einn áratug og markast hún af frumsýningu kvikmyndar Ágústar Guðmundssonar, Land og synir, fyrir réttum tíu árum. í tilefni þessara tímamóta mun Sjónvarpið sýna fjörutíu mínútna þátt, er gerður er af þeim hjónum Guðnýju Halldórsdóttur og Halldóri Þorgeirssyni. Þau hjón eru allvel heima í sagnfræði kvikmyndalistar- innar, enda hafa þau sjálf markað spor sín í hana, einkum þó með myndunum Skilaboð til Söndru (1983), Stella í orlofi (1986) og Krístnihaid undir Jökli (1989). í þættinum verða rifjaðir upp helstu punktar úr ferli siðasta áratugs, minnst þeirra mynda er gerðar hafa verið og brugðið upp sýnishornum úr þeim helstu. Þulur er Magnús Bjarnfreðsson. GARUR eftir Elínu Pálmadóttur Hver gerði - í Hveragerði? Og hérna sjáið þið fyrir neðan litla bæinn „Who’s done it“, sagði íslenski leiðsögumaðurínn við enskumælandi ferðamenn í rútubílnum, sem hafði stansað á Kambabrún svo þeir mættu líta yfir Suðurlandsundirlendið. Að sjálfsögðu þýddi hann líka yfir á tungu Engilsaxa nafnið Hvera- gerði. Já, hver gerði það? Það er spurningin. Hver dró túrista í ára- tugi til Hveragerðis? Spurningunni skaut upp í hug- ann í nýja stóra gróðurhúsinu suður í Nissa, sem á að opna 15. febrúar næstkomandi og draga að 500 þúsund ferðamenn árlega fyrst um sinn og tugi milljóna þegar fram í sækir. Þessa ferða- menn, sem allur heimurinn er að keppast um að ná til sín og láta borga. Við líka hér á íslandi. Ferðamenn að verða helsta von okkar um skyndigróða, eftir brostnar stórgróðavonir í refarækt og laxeldi. Þarna undir 25 metra hárri glerhvelf- ingu gróður- hússins í Pho- enix-garðinum í Nissa var ég alltaf að missa þráðinn í skýr- ingum arki- tektsins og tæknisérfræð- inganna á hinni flóknu nútíma- tækni þessa mikla fyrirtækis, sem þeir voru að útskýra með líkönum og tölvuskjám, því við hlið mér var franskur blaðamaður sífellt að hvísla. Rifja upp fyrir nær- stöddum hvernig hann fyrir mörg- um árum hafði setið í gróðurhúsi á íslandi, þar sem voru meira að segja ræktaðir bananar og þar sem hafði verið komið upp veit- ingahúsi fyrir ferðamenn. Sama hugmyndin þá þegar. Og hver hafði gert það? Það var hann Bragi í Eden. Hægt og sígandi og hjálparlaust hafði hann ekki aðeins farið af stað með draum- inn, heldur haldið áfram að stækka og færa út kvíarnar við erfiðar aðstæður og gífurlega ójafna aðsókn ferðamanna. Það fara ekki margir hugmyndaríkir íslendingar í fötin hans Braga. Nú eru þeir í glerpíramídanum, sem á að opna almenningi í Nissa við upphaf hins fræga karnevals í febrúar, að skýra frá því að borgin muni standa undir hugsan- legu rekstrartapi fyrstu sex árin. Þetta sé svo óskaplegt fyrirtæki, stofnkostnaður eitthvað um 2,7 milljarðar i íslenskum krónum. Megi búast við byijunarörðugleik- um, áður en fyrirtækið fer að skila arði og verða borginni til blessunar í auknum ferðamanna- straumi allt árið. Ferðafólk verður nefnilega að hafa eitthvað skemmtilegt að gera, dugar ekki blítt veður eitt og góð hótel. Sér- stætt gróðurhús í Nissa eða í Hveragerði er það sem dregur að forvitna ferðamenn. Á því byrjaði hann Bragi í Hveragerði fyrir ára- tugum. Hefur verið næstum það eina sem stendur til boða fyrir ferðafólk allan ársins hring síðan. Því skaut nafninu hans — með aðdáun — upp í hugann í gróður- húsinu í Nissa, þegar þeir voru að lýsa öllum erfiðleikunum, sem leýstir hafa verið með nútíma- tækni þar. Ekki dugar bara að hafa þarna undir gleri sjö tegundir af hita- beltisgörðum með gróðri úr öllum heimsálfum, úr raka hitabeltinu og því þurra, frá Suður- Afríku, Saheleyðimörkinni, frumskógum Suður-Ameríku og úr tempraða beltinu. Alltaf verður að vera eitt- hvað nýtt að sjá til að draga fólk oftar en einu sinni á staðinn. Til þess er þarna gert ráð fyrir 3-4 stórum sýningum á ári. Byijað með sýningu á japönskum görð- um, þá kemur sýning frá tímum risaeðlanna, svo sýning helguð skordýrum og í árlok á að verða þarna glæsisýning á jötunni og fæðingu frelsarans. Þá ótaldir tónleikar og dagskrár í stóra saln- um, sem er undir sama þaki. Svona staður þarf líka að draga að heimafólk til að jafna aðsókn. Með allan þennan mismunandi gróður, sem þarfnast ólíks raka, hita og Ijóss undir sama glerþaki, lenda menn auðvitað í mesta basli með stjórnun á svo mismunandi rakastigi, hitastigi og birtu, enda mikill munur á þörfum frumskóg- arplöntu úr hitabeltinu og gesti sem vill láta fara notalega um sig í tónleikasal. Auk þess sem hita- sveiflurnar í Nissa yfir árið hlaupa úr 4 stiga frosti og upp í 40 stiga hita. Með nútímatækni er þó hægt að leysa þetta allt með tölvustýringu. Enda er „Græni demanturinn“, eins og þeir kalla þennan 63 þúsund rúm- metra hjálm, tækniundur. Tölvur mæla birtu og hitageisla sem koma inn í gegn um tvöfalt þykkt glerið, sem krafist er í reglugerð- um vegna jarðskjálftahættu, og skjóta sjálfvirkt fyrir skermum eftir þörfum, utan á kúplinum að ofan og inni í húsinu að neðan, til að loka ekki útsýninu inn í húsið. Tölvur stýra allan sólar- hringinn raka og hita á hveijum stað, enda skiptir máli að eyða aldrei dýrri óþarfa orku eða vatni. Þar sem garðurinn með gróð- urpíramídanum var byggður í nánd við flugvöllinn, geta tölvur magnað niðinn í stóra fossinum þar inni eða suð í skordýrum til að kæfa flugvéladyninn þegar vélar fara yfir. Ekki ætla ég að reyna að lýsa þessu mikla tækni- undri nútímans. En í allri dýrðinni reikaði hugurinn til hans Braga í Eden, sem leysti það endur fyrir löngu að koma upp gi'óðurhúsi á íslandi með veitingahúsi fyrir stóra hópa þessara eftirsóttu ferðamanna í Hveragerði — og það sem meira er, hann hefur haldið það út einn og sér og hjálp- arlaust. Stundum þarf maður samanburð til að átta sig á „who’s done it“, hver vann afrekið. Hver gerði það í Hveragerði?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.