Morgunblaðið - 13.02.1990, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1990
Svavar Gestsson á miðstjórnarfundi:
Alvarlegri ásakanir en
ég hef áður orðið fyrir
Adda Bára Sigfusdóttir vill ræða við
Alþýðuflokkinn um j afnaðar stefnuna
Atkvæðaseðlum dreift á félagsfundi Dagsbrúnar í gær.
Morgunblaðið/Þorkell
Dagsbrún og Sókn sam-
þykktu kjarasamningana
Dagsbrúnarmenn samþykktu með aðeins 37 atkvæða meirihluta
Verkamannafélagið Dags-
brún í Reylqavík og Starfs-
mannafélagið Sókn samþykktu
nýgerða lgarasamninga Al-
þýðusambandsins og vinnuveit-
enda á félagsfundum í gær.
Aðsókn var dræm á báðum stöð-
um. Mikill meirihluti samþykkti
samningana hjá Sókn, en mjótt
var á mununum hjá Dagsbrún,
216 sögðu já en 179 nei.
Fjörugar umræður voru um
samningana hjá Dagsbrún eftir að
Sigurður Bessason starfsmaður fé-
lagsins hafði skýrt efni þeirra. Allir
voru sammála um að launin væru
of lág, en andstaða við samninginn
var áberandi. Þeir, sem voru á
móti, létu mun meira í sér heyra
og féllu þung orð. „Við verðum að
sýna það hér á þessum fundi að við
þorum að takast á við atvinnurek-
endur í þessu þjóðfélagi. Við skulum
sameinast um það að fella þennan
samning og taka á í baráttunni
fyrir bættum kjörum,“ sagði Jó-
hannes Sigursveinsson m.a. Ýmsir
aðrir ræðumenn tóku i sama streng,
en Gunnar Halldórsson sagði að
vissulega væri auðvelt að fella
samninginn, en illskárra væri að
halda atvinnunni en vera á atvinnu-
leysisskrá. „Okkartími erekki kom-
inn.“-
Guðmundur J. Guðmundsson for-
maður Dagsbrúnar hvatti menn til
að samþykkja samningana og fylgja
þeim síðan eftir. í skriflegri at-
kvæðagreiðslu sögðu 216 já, 179
nei, en auðir og ógildir seðlar voru
10.
Guðmundur sagði að niðurstaðan
hefði ekki komið sér á óvart, en
andstaða manna væri skiljanleg.
„Nú tekur við hörkueftirlit með
ríkisstjórninni, genginu og verðlag-
inu og guð hjálpi þeim ef þeir standa
sig ekki.“
Samningarnir voru samþykktir í
gær hjá Starfsmannafélaginu Sókn
í Reykjavík. 106 sögðu já, 19 voru
á móti og einn seðill var ógildur.
„Það er greinilegt að fólk vill reyna
Bandaríkin:
Perriervatn
úr verslunum
ÁKVEÐIÐ hefur verið í Banda-
ríkjunum að taka ölkelduvatnið
Perrier úr búðum í 2-3 mánuði.
Ákvörðunin var tekin þar sem í
vatninu var aukaefnið benzene, sem
notað er m.a. við framleiðslu piasts,
þvottaefna, ilmvatns og málningar.
Reyndist magnið þrefalt meira en
bandaríska matvælastofnunin leyfir.
Perrier fæst í verslunum hér á landi.
Guðmundur J. Guðmundsson for-
maður Dagsbrúnar talar til fé-
iagsmanna á fundinum.
nýja leið,“ sagði Þórunn Svein-
björnsdóttir formaður Sóknar.
Ákveðið hefur verið að allsherjar-
atkvæðagreiðsla fari fram í Versl-
unarmannafélagi Reykjavíkur um
kjarasamningana í dag og á morg-
un.
Allsheijaratkvæðagreiðsla verð-
ur einnig í verkalýðsfélaginu í Borg-
amesi og í verkalýðsfélaginu Ein-
ingu á Akureyri.
Þá verða atkvæðagreiðslur í að-
ildarfélögum Rafiðnaðarsambands
íslands á miðvikudag og fimmtudag
og gert er ráð fyrir að verkalýðs-
félögin í Vestmannaeyjum verði
með sameiginlegan fund einnig
annan hvorn daginn.
Atkvæðagreiðsla fór fram hjá
Verkakvennaféiaginu Framtíðinni í
Hafnarfirði í gær, en henni lýkur á
morgun og þá verða niðurstöðurnar
birtar.
Auk ofangreindra hafa eftirtalin
félög samþykkt samningana sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins: Verkalýðsfélögin á Höfn,
Stöðvarfirði, Eskifirði, Húsavík,
Keflavík, Neskaupstað, Austur-
Húnavatnssýslu, Þórshöfn, Hellis-
sandi, Grundarfirði, verkakvenna-
félagið Framsókn í Reykjavík, Tré-
smiðafélag Reykjavíkur, Félag
járniðnaðarmanna í Reykjavík, Fé-
lag netagerðarmanna, Verslunar-
mannafélag Árnessýslu, Iðja, félag
verksmiðjufólks í Reykjavík og
Verkamannafélagið Hlíf í Hafnar-
fírði.
MÖRÐUR Árnason, fréttafulltrúi
í fjármálaráðuneytinu og félagi í
Birtingu, sagði á fúndi miðstjórn-
ar Alþýðubandalagsins um helg-
ina að sumir forystumenn flokks-
ins teldu sig enn vera í tengslum
við rúmenska kommúnistaflokk-
inn. Svavar Gestsson mennta-
málaráðherra, sem var í sendi-
nefiid flokksins er fór til Rúm-
eníu 1972, brást hart við og gaf
í skyn að reynt væri að bola sér
og öðrum út úr flokknum. Sagði
ráðherrann ásakanir Marðar þær
alvarlegustu sem hann hefði orð-
ið fyrir á 20 ára sfjórnmálaferli
af hendi samflokksmanns.
„Því er haldið fram,“ sagði Svav-
ar, „að í Alþýðubandalaginu þurfí
að fara fram hreinsanir, það þurfi
að koma okkur út, þessu dóti, þessu
dóti, sem hefur unnið í þessum
flokki um áratuga skeið og er nú
fyrir hinum nýju framsæknu öfl-
um.“ Hann spurði hvort í raun og
veru væri nokkur áhugi á því að
halda flokknum saman.
Adda Bára Sigfúsdóttir sagði fólk
hafa reynt að halda í trúna á Sov-
étríkin í lengstu lög í von um að
ástandið batnaði. Hún sagðist ekki
vilja koma fram „eins og vitnandi
herkelling“ og skýra frá syndum
sínum. Hún sagðist ekki vita lengur
Þakplata fór
inn um glugg-
ann í skólanum
Flateyri.
MINNSTU munaði að stórslys yrði
í grunnskólanum í gærmorgun
þegar hleri úr glugga íþróttahúss-
ins fauk á stóran glugga á gangi
skólans með þeim afleiðingum að
rúðan splundraðist inn um allan
gang.
Að sögn Vigfúsar Geirdal skóla-
stjóra vildi til að kennsla var nýhafin
þannig að engin börn voru á gangin-
um. Það gekk á með hvössum vestan-
éljum í gærmorgun þegar atburður-
inn átti sér stað en hægði þegar leið
á daginn þótt áfram snjóaði.
- Magnea
hvemig koma skyldi á samfélagi
jafnaðar og réttlætis. Rétt væri að
ræða við aðra, ekki síst við Al-
þýðuflokkinn, koma á formlegum
vinnuhóp með þeim um söguna, en
fyrst og fremst um nútíðina og
framtíðina.
Sjá frásögn á bls. 16.
Pjóla afúrða-
mesta kýrin
FJÓLA 286 á Hvanneyri í
Andakíl var afurðamesta kýrin
á síðasta ári, en hún mjólkaði
8.743 kg og í öðru sæti varð
Himna 121 á Böðmóðsstöðum
í Laugardal, sem mjólkaði
8.742 kg.
Afurðahæsta kúabúið á
síðasta ári var Dýrastaðir í Norð-
urárdal, hjá Klemens Halldórs-
syni, en kýr hans mjólkuðu að
meðaltali 5.940 kg. I öðm sæti
varð Búrfell í Ytra-Torfastaða-
hreppi, en kýrnar þar mjólkuðu
að meðaltali 5.936 kg.
Að sögn Jóns Viðars Jón-
mundssonar, ráðunautar hjá
Búnaðarfélagi íslands, gerðist
það í fyrsta sinn á síðasta ári
að hjá nautgriparæktarfélögun-
um fór meðalafurð eftir kú yfír
fjögur þúsund kíló, en meðalaf-
urðin var 4.005 kg. „Að öðm
leyti eru niðurstöður afurða-
skýrslna í algjöm samræmi við
það sem hefur verið að gerast í
mjólkurframleiðslunni á árinu.
Það er ofurlítil afurðaaukning á
Norðurlandi, sérstaklega í Eyja-
fírði, en lækkun sunnan- og vest-
anlands. Þetta em ekki stórar
sveiflur og á landsvísu slær þetta
út til hækkunar vegna þess hve
hlutfallsleg þátttaka í skýrslu-
haldinu er miklu meiri á Norður-
landi en Suður- og Vesturlandi,
og skýrir það hækkun á þessum
tölum; þó mjólkurinnleggið í
landinu sé aðeins lægra. Þá má
geta þess að munurinn á hæstu
kúnum og hæstu búunum er
miklu minni nú en við höfum
dæmi um áður.“
Vetrarveður selja samgöngur úr skorðum um allt land:
Vestfirðir eru einangraðir -
íbúðarhús yfirgefin á Flatevri
VEGIR á Vestfjörðum eru ófærir, utan Óshlíð, sem rudd var síðdegis
í gær. Ekki hefúr verið flogið til Vestfjarða síðan á fostudag en þar
hefúr verið iðulaus stórhríð og eru snjóþyngsli þar meiri en menn
minnast undanfarin ár. Almannavarnaneftid Flateyrar lýsti yfir hættu-
ástandi vegna snjóflóðahættu um hádegið í gær. íbúar níu húsa við
Ólafstún, alls um 30 manns, voru beðnir að yfirgefa heimili sín. Eitt
snjóflóð hefúr fallið á svipuðum stað og fyrir hálfúm mánuði við innan-
vert Ólafstún. Utan Vestfjarða eru flestir vegir orðnir færir. Flogið var
á aðra áfangastaði en innan Vestfjarða í gær og er flug komið í eðli-
legt horf eftir mikla röskun á sunnudag. Víða um land varð fólk á
ferðalögum fyrir truflunum og töfum vegna veðursins. Björgunarsveit-
ir, hjálparsveitir og lögregla aðstoðuðu marga.
Björgunarsveitin Berserkir í
Stykkishólmi kom nauðstöddu fólki
á bflum til aðstoðar í blindhríð í
Kerlingarskarði aðfaranótt sunnu-
dags. Ekki var hægt að ná í börn
spm þurftu að komast í Laugagerð-
isskóla í gærmorgun. Síðdegis í gær
átti að reyna að ná í börn í
Breiðuvík, Staðarsveit og á Skógar-
strönd en þau búa á heimavist í
skólanum. Björgunarsveitin Fiska-
klettur í Hafnarfirði var kölluð út
á sunnudag til að liðsinna starfs-
manni fískeldisfyrirtækis í
Straumsvík. Sá hafði verið að gefa
fiski í kvíum en misst frá sér bát
sinn. Honum var bjargað heilum á
húfi. Menn úr björgunarsveitinni
Ingólfi sóttu félaga sína sem verið
höfðu í vélsleðaferð við Hlöðufell á
sunnudagskvöld. Þeir höfðu grafið
sig í fönn og ætluðu að láta þar
fyrirberast uns lægði en voru sóttir
í snjóbíl. Björgunarsveitir á Selfossi
aðstoðuðu ferðafólk sem átti í vand-
ræðum vegna ófærðar og veðurs á
vegum í Árnessýslu. 20 manns, sem
lögðu ekki á Hellisheiði, gistu í
húsi Slysavarnafélagsins á Selfossi
aðfaranótt mánudags. Víða á há-
lendinu var vitað um fólk sem teppst
hafði vegna veðurs en ekki var vit-
að til að neitt amaði þar að. Vitað
var um ferðalanga sem létu fyrir-
berast á Hveravöllum meðan veður
gekk yfir. i gær komust vélsleða-
menn, sem verið höfðu á ferð við
Búrfell, til byggða.
Ekki flogið til
Suðureyrar í 34 daga
Gengið hefur á með hvössum élj-
um á Vestfjörðum undanfarna
daga. í gær lægði heldur þótt áfram
snjóaði og tókst þá að ryðja Óshlíð.
Aðrir fjallvegir eru ófærir. Helstu
umferðaræðar innan ísafjarðar-
kaupstaðar eru opnar.
Ekki hefur verið flogið til Suður-
eyrar í 34 daga og Botnsheiði hefur
verið ófær í 18 daga vegna snjóa.
Súgfirðingar segja mörg ár frá
því að þeir hafi átt jafnharðan vet-
ur. Síðustu 18 daga hefur aðeins
verið fært þangað á snjóbílum og
skipum. Bændur hafa átt í erfiðleik-
um með að koma frá sér mjólk.
Að sögn Ólafs Torfasonar hjá
Vegagerð ríkisins var víðast utan
Vestfjarða orðið fært um fjallvegi
í gær en viða mátti lítið út af bregða
hvað veður snerti. Aðeins var fært
jeppum og stórum bílum frá Vík í
Mýrdal og austur á firði en til stóð
að moka þá leið í dag. Búið er að