Morgunblaðið - 13.02.1990, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 13.02.1990, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1990 -F 38 ♦ Kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands Félagskonur Hádegisverðarfundur verður í Hallargarðinum, Húsi verslunarinnar, miðvikudaginn 14. febrúar kl. 12.00. PENTAX Það er ekki á hverjum degi, sem þú færð Ijósmyndavél Á ÚTSÖLU. Nú rýmum við til fyrir nýjum vörum og bjóðum eftirfarandi AÐEINS NÆSTU 3 DAGA! „COMPACT” Ijósmyndavélar Rétt verð Útsöluverð PENTAX PC35AF 17.570,- 11.900,- PENTAX PC333 12.945,- 9.990,- PENTAX PC333 m/dagsetningu 14.520,- 11.990,- PENTAX PC555 16.230,- 12.385,- PENTAX ZOOM-70 24.654,- 17.265,- PENTAX ZOOM-70S 26.220,- 18.360,- PENTAX SPORT 16.648,- 11.430,- PENTAX PINO 4.536,- 2.990,- PENTAX ZOOM-60 19.250,- 13.499,- „REFLEX” Ijósmyndavélar: PENTAX SF7 án llnsu (autofókus) 29.585,- 23.460,- PENTAX ZOOM-linsa 35-70 mm 16.990,- 10.990,- ATHUGIÐ! Aðeins örfáar myndavélar af hverri tegund. ALDREI ÁÐUR HEFUR SLÍKT VERÐ VERIÐ í BOÐI Á ÍSLANDI! SKIPHOLTI31 Vlð auðveldum flelrum að taka betrl myndir fyrlr mlnnl pening. NÁMSKEIÐ QD ÍGERÐ KVIKMYNDA HANDRITA ATRIÐI TIL UMFJÖLLUNAR: FJÖLMIÐLASKÓLI ÍSLANDS BORGARTUNI24 105 REYKJAVlK SlMI 626655 FAX 624990 ■ Kvikmynd sem miðill. ■ Hvar fæðast hug- myndir að kvikmynd? ■ Saga kvikmyndagerð- ar. ■ Handrit. Leiktexti. ■ Uppbygging texta. ■ Samspil handritshöfundar, leikstjóra og upp- tökustjóra. TÍMI: Priðjudagskvöld frá 27. febr. -17. apríl. Aðalleiðbeinandi fylgir nemendum í gegnum allt námskeiðið. KENNARAR: ■ Ari Kristinsson, kvikmyndagerðarmaður, aðalleiðbeinandi. ■ Guðný Halldórsdóttir, kvikmyndagerðarmaður. ■ Sigurður Grímsson, kvikmyndagerðarmaður. ■ Lárus Ýmir Óskarsson, kvikmyndageröarmaður. ■ Þórunn Siguröardóttir, leikstjóri og handrita- höfundur. Upplýsingar og skráning í síma 626655 AF INNLENDUM VETTVANGI PÉTUR GUNNARSSON Kurr iiman RLR vegna breytts starfeskipulags Rannsóknarlögreglustjóri segir að verið sé að hagræða í rekstri og að til kjaraskerðingar muni ekki koma DEILUR hafa risið innanhúss í Rannsóknarlögreglu ríkisins í kjölfar þess að yfirstjórn stofnunarinnar hefur ákveðið að gera breytingar á starfsskipulagi, sem taka eiga gildi 1. maí næstkomandi. Að sögn Boga Nilssonar rannsóknarlögreglustjóra eru breytingarnar gerðar í sam- ráði við nánustu samstarfsmenn hans í því skyni að ná fram bættri nýtingu á þeim aukavinnustundum sem embættið hefur úr að spila á fjárlöguin. Hér sé á ferðinni breyting á áherslum en ekki skerðing á kjörum. Bjarnþór Aðalsteinsson, trúnaðarmaður lögreglumanna hjá RLR, segir að verið sé að breyta, án nokkurs samráðs við starfsmenn, rótgrónu skipulagi sem tekið hafi gildi 1982 og hafi þá þróast í sam- vinnu starfsmanna og stjórnenda. Hann segir að hið nýja skipulag muni leiða til 15% skerðingar á heildaryfirvinnu starfsmanna sem komi ofan á 25% skerðingu sem orðið hafi hjá embættinu siðustu þrjú ár. Að ósk starfsmanna hefur komið til milligöngu dómsmálaráðuneytisins í málinu. Ráðuneytið hlutaðist til um að rannsóknarlögreglustjóri frest- aði upphafiegri gildistöku skipulagsins um áramót og síðan hafa starfs- menn þess haldið tvo viðræðufúndi með aðilum, að sögn Ola Þ. Guð- bjartssonar, dómsmálaráðherra, þar sem fram hefði komið hjá starfs- mönnum að ekki hefði verið haft samráð við þá. Ráðherra sagði enga frekari fúndi á vegum ráðuneytisins á döfinni og að aldrei hefði verið efast um heimildir rannsóknarlögreglusljóra til að breyta starfsskipu- lagi. Hinar umdeildu breytingar fela það annars vegar í sér að föst yfirvinna, sem fallið hefur til frá klukkan 16-19 þá daga sem viðkom- andi rannsóknarlögreglumaður sinnir útköllum utan skrifstofutíma — eða frá klukkan fjögur síðdegis til átta að morgni, alla virka daga — fellur niður. Þess í stað eiga hinar hinar eiginlegu útkallsvaktir að hefj- ast klukkan 16 og standa til 8 að morgni. Á þeim tíma verða eins og áður þrír lögreglumenn á útkallsvakt á hveijum degi. Þeir verða ekki á vinnustað en ganga með „friðþjófa" á sér og þannig næst við þá sam- band þegar útkall berst. Fyrir þetta verður greitt bakvaktarálag og að lágmarki tvær aukavinnustundir fyr- ir hvert útkall sem sinna þarf. Þess- ar vaktir hefur hver rai>nsóknarlög- reglumaður og lögreglufulltrúi staðið að meðaltali 13-14 sinnum á ári. Hitt atriðið sem breytingin tekur til er að yfirvinna fellur niður sem rann- sóknarlögreglumönnum hefur verið greidd fyrir að manna síma stofnun- arinnar frá klukkan 16-22 virka daga og frá kl. 9-22 um helgar. Þess í stað er ætlunin að þetta verði unnið með sama hætti og nú er gert á tíma- bilinu frá 22-8, það er segja af sér- stökum vaktmönnum. Rannsóknarlögreglustjóri til- kynnti breytingamar í nóvember en áður höfðu starfsmenn vitað að þær væru í undirbúningi. Stefnt var að því að ný tilhögun tæki gildi um áramót en áður höfðu lögreglumenn gengið á fund dómsmálaráðherra og síðasta vinnudag áður en breyting- arnar áttu að taka gildi barst rann- sóknarlögreglustjóra bréf þar sem sagði að gildistöku væri frestað til fyrsta mars. Á fundi með starfs- mönnum tilkynnti rannsóknarlög- reglustjóri að fyrirætluninni hefði verið frestað til 1. maí. Síðan þá hafa starfsmenn ráðuneytisins eins og fyrr sagði átt tvo fundi með Boga Nilssyni og þremur fulltrúum lög- reglumanna. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er almenn samstaða meðal rannsóknarlögreglumanna um að mótmæla þessum breytingum og reyna í lengstu lög að hindra gildi- stöku þeirra. Hagræðing en ekki kjaraskerðing Bogi Nilsson rannsóknarlögreglu- stjóri segist líta á þessa misklíð sem innanhúsmál, sem hann hafi ekki hugsað sér að ræða í fjölmiðlum. Hins vegar hafí málið verið afflutt með þeim hætti opinberlega að hann sjái sig knúinn til svara. Hann segir að núgildandi starfsskipulag vinni gegn því að unnt sé að veija heimil- um yfirvinnutíma með sem hag- kvæmustum hætti og segir það einn- ig bjóða heim óþarfa hættu á að menn nái ekki þeirri lágmarkshvíld milli vinnudaga, sem löggjöf og kjarasamningar kveði á um, og að það leiði óþarflega oft til þess eftir útkallsvaktir að menn þurfi að taka sér lögmælta hvfld á dagvinnutíma. I því sambandi vísar hann til þess að fjármálaráðuneytið hafi beint sér- stökum tilmælum til dómsmálaráðu- neytisins um að reynt verði að kom- ast hjá aukagreiðslum vegna þessa og því að hvfldartími skarist við dag- vinnu. Bogi Nilsson segir að síma- vaktir lögreglumanna kosti embættið 3.500-4.000 aukavinnustundir á ári. Mun hagkvæmara sé að ráða sér- staka menn til að sinna þessum störf- um en nota yfirvinnutíma rannsókn- arlögreglumanna til starfa sem krefj- ast þjálfunar þeirra; þar séu næg verkefni. Aðdraganda þessara skipulags- breytinga segir Bogi Nilsson hafa staðið innan yfirstjórnar stofnunar- innar allt frá 1987. í apríl á liðnu ári hafi yfirmönnum verið falið. að gera tillögur að breytingum. Úr til- lögum þeirra hafi verið unnin sú út- UdéefcUto! HIGH-DESERT BLÓMAFRJÓKORN high-desebt BEE , OLLEN fRESH RAW CRANULES ‘Rt WElpHT ’/j UB.-227G . IHE C C P0U£N C0HPi'N,r, ^ÝSDALE, AHIZONA 852>>' ^ EGGERT KRISTJANSSON H/F SIMI 685300 Garðar sigldi á Þórsnes Stykkishólmi. VÉLSKIPIÐ Þórsnes II, eign samnefrids hlutafélags hér í bæ, varð fyrir því að vélbáturinn Garðar frá Ólafsvík rakst á hlið þess með þeim afleiðingum, að yfírbygging rifnaði frá á stórum kafla á stjórn- borðshlið þess miðri og lunningin kengbognaði. Er þetta mjög mikil skemmd. Þetta gerðist um kl. 7 þann 10. febrúar síðastliðinn úti á miðum, en þar voru Þórsnesmenn að búa sig undir að draga lóðina eftir að hún hafði legið sinn venjulega tíma. Þeir voru að fá sér kaffisopa áður en byijað var að draga, þegar þessi ósköp dundu á byrðinginn. Þeir brugðu hratt við og þegar upp kom blasti við þeim þessi mikla skemmd. Það var vont í sjó og hríðarél þegar þetta gerðist. Ekki er vitað um orsakir og hafa sjó- próf enn ekki farið fram. Strax var ákveðið að halda til lands og hingað kom svo Þórsnes rétt upp úr hádegi. Aðrir drógu svo lóðirnar. Jónas Sigurðsson er skipstjóri á Þórsnesi II og alls eru skipveijar 6. Þeir hafa stundað línuveiðar héðan frá því um áramót og afli verið mjög sæmilegur þegar á sjó hefir gefið en tíðin frá áramótum hefir verið mjög rysjótt. Hjá Þórsnesi hf. munu vinna í landi um eða yfir 40 manns. Þórs- nes hf. rekur héðan 2 skip, Þórs- nes I og Þórsnes II. Kristinn Ól. Jónsson er skipstjóri á Þórsnesi I. Ekki verður hjá því komist að skip- ið fari sem allra fyrst í viðgerð, hvort sú viðgerð verður til fullnað- ar eða bráðabirgða er ekki enn vitað, en fundur verður haldinn um það í félaginu nú þegar. Viðgerð getur tekið langan tíma og jafnvel mánuð, sem fer eftir mati á skemmdum en rifan sem mynd- aðist er á stórum kafla. Hlýtur þetta að hafa mjög mikil áhrif á atvinnu þá sem þetta fyrirtæki veitir. — Árni 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.