Morgunblaðið - 13.02.1990, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.02.1990, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSHPn/JOVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1990 25 Morgunblaðið/Ámi Sæberg BALTI —■ Úr sýningarsal tölvudeildar Balta hf. f.v. Ólafur Mýrdal,_ deildarstjóri, Hrefna Magnúsdótt- ir, skrifstofustúlka, Bárður Halldórsson framkvæmdastjóri og Sigurður Óli Valdimarsson deildarstjóri. Fyrirtæki Nýtt fyrirtæki með einkaumboð fyrir Compaqtölvur BALTI hf., Armúla 1, er nýstofiiað fyrirtæki sem hefúr fengið einka- umboð á íslandi fyrir COMPAQtölvur og hefiir opnað tölvudeild með COMPAQ sem aðalmerki. Fyrirtækið skiptíst nú í tvær deildir, véla- deild og tölvudeild, en innan hennar eru söludeild og þjónustudeild. Að sögn Ólafs Mýrdal sölusljóra verður þó sérstök áhersla lögð á þjónustudeildina og er væntanlegur í vor til starfa hjá fyrirækinu sérmenntaður maður í COMPAQ tölvubúnaði, Karl Mýrdal, sem mun taka við þeirri deild. Framkvæmdastjóri Balta hf. er Bárður Halldórs- son. Hlutabréf UmsvifHlutabréfamarkaðar- ins hafa margfaldast frá ’85 AFGREIÐSLUR Hlutabréfa- markaðarins hf. hafa margfald- ast á undanförnum árum og voru alls 1527 á liðnu ári. Þetta kom fram í erindi Baldurs Guðlaugs- sonar, hrl, sljórnarformanns Hlutabréfamarkaðarins hf. á fúndi iðnaðarnefndar Sjálfstæðis- flokksins í síðustu viku um al- menningshlutafélög. Umsvif Hlutabréfamarkaðarins hf. sem kaupir og selur hlutabréf á skráðu gengi auk þess sem hann tekur hlutabréf í umboðssölu, hafa aukist jafnt og þétt frá því að félag- ið var stofnað síðarihluta 1985. „Til fróðleiks vil ég upplýsa að af- greiðslur Hlutabréfamarkaðarins þá tæpu 3 mánuði sem hann starf- aði á árinu 1985, urðu alls 48, á árinu 1986 var afgreiðslufjöldinn 134, á árinu 1987, en þá hafði annar viðskiptavaki bætst við, var fjöldi afgreiðslna hjá Hlutabréfa- markaðnum hf. 209, á árinu 1988 379, en hvorki meira né minna en 1527 á nýliðnu ári, þótt viðskipta- vakarnir hafi þá verið orðnir 4,“ sagði Baldur Guðlaugsson í erindi sínu. Hann tók fram að í tölunum fyrir árin 1988 og 1989 væru um- boðsviðskipti með hlutabréf. í erindi Baldurs kom einnig fram að hluthöfum í Hlutabréfasjóðnum hf. fjölgaði um 700 á síðasta ári og voru um áramótin 1100. Kaup- endur hlutabréfa í sjóðnum njóta frádráttar frá tekjuskattsstofni, eins og ríkisskattsstjóri ákveður hveiju sinni. Hlutabréfasjóðurinn kaupir hlutabréf í öðrum fyrirtækj,- um, auk þess sem hann kaupir skuldabréf traustra fyrirtækja. Ólafur Myrdal sölustjóri er yfir- maður tölvudeildar. Hann var við nám í Þýskalandi og sá þar m.a. um tölvubúnað eins og Balti hf. býður upp á, sem er allur hug- búnaður varðandi COMPAQ og ELCAD, þar á meðal CAD/CAE- tækni með Elcad, sem er nýtt kerfi á íslandi, og hefur hæsta iðnaðar- staðal í Evrópu, að sögn Ólafs. Hann segir að til þessa hafi CAD- kerfi (Computer Aided Design), þ.e. teikni- og hönnunarkerfi fýrir raf- magns-, rafeinda- _ og stýritækni verið fáanlegt á íslandi en hafi ekki náð útbreiðslu. Bárður Halldórsson fram- NY NAMSKEIÐ — Nýlega hófust í Reykjavík á vegum Fjármálaskóla fjölskyldunnar námskeið í heimilisbókhaldi. Skólinn hefur það hlutverk að miðla einstaklingum þekkingu á fjármálum og fjármála- stjórn sem nýtist þeim í daglegu lífi. Námskeiðin eru 4 klukkustunda löng og fara fram í húsnæði Stjómun- arfélags íslands en stefnt er að því að bjóða upp á námskeið Fjármálaskólans á landsbyggðinni. Myndin er tekin á námskeiði hjá Raggý Guðjónsdóttur, leiðbeinanda. kvæmdastjóri segir að meðal nýj- unga sé stefnt að því að setja upp forrit fýrir tryggingarfélög, sem unnin séu á þann hátt, að t.d. tjóna- skýrslur séu skannaðar beint inn á tölvur, og auki þannig vinnuafköst. Véladeildin sér um innflutning á alls kyns vélum fyrir jám- og tréiðn- aðinn. Sigurður Óli Valdimarsson er yfirmaður deildarinnar, en hann er vélfræðingur að mennt og hefur starfað 16 ár hjá G. Þorsteinsson og Jónsson. Þá hefur verið opnaður sýningar- salur í tengslum við tölvudeildina og er hann á annarri hæð að Ár- múla 1. Dans- leikfimi, megrunar- leikfími, trimmform. Ný námskeið 12. feb Iml Heilsurœktin Heba Auðbrekku 14. Kópavogi. Siml 642209. " Heba heldur við NÚTÍMA UÓS - FRAMTÍÐAR LÝSING OSRAM HEILDSALA: JÓH. ÓLAFSSON & CO. H/F 43 SUNDABORG 13-104 REYKAJVÍK - SÍMI 688588 alls staðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.