Morgunblaðið - 13.02.1990, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 13.02.1990, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRUAR 1990 - KYOLIC DAGLEGA - ÞaO gerir gæfumuninn KYOLIC fæst í heilsuvöru- og lyfja- verslunum og víðar. Heildsölubirgðir KYOLIC Eini alveg lyktarlausi hvítlaukurinn. 2ja ára kælitæknivinnsla (20 mán. + 4 mán.) sem á engan sinn líka í veröldinni. Hefur meiri áhrif en hrár hvítlaukur. Er gæðaprófaður 250 sinnum á framleiðslutímanum. Á að baki 35 ára stöðugar rann- sóknirjapanskravísindamanna. Lífrænt ræktaður í ómenguðum jarövegi án tilbúins áburðar eða skordýraeiturs. Öll önnur hvítlauksframleiösla notar hitameðferð. Hiti eyðileggur hvata og virk efna- sambönd í hvítlauk og ónýtir heilsubætandi áhrif hans. Ferðamálanám er svarið eftir Jón Baldvin Hannibalsson Það tókst. Samningar launafólks og atvinnurekenda eru í réttri höfn. Gárungarnir kalla þá „núllsamn- inga“, en í raun er í fyrsta sinn alls ekki verið að semja um núllið. í áratugi hafa aðilar vinnumarkað- arins boðið þjóðinni upp á samninga um kaup og kjör, sem allir hafa vitað að rykju út í veður og vind í verðbólgubáli. í þetta sinn var skynsemin látin ráða. Fyrir ári var fúlsað yfir því, þegar Guðmundur J, Karl Steinar, Pétur Sigurðsson á Vestfjörðum og Snær á Húsavík létu sér detta í hug að hægt væri að komast að samkomulagi um að koma verðlagi niður á mannsæm- andi stig og renna stoðum undir atvinnulíf, sem gæti bætt lífskjör í framtíðinni. Þá hlógu vinnuveitend- ur að bröltinu í verkalýðsforingjun- um, og margir félaga þeirra í verka- lýðshreyfingunni kölluðu þá svikara við málstaðinn. Nú hefur bjargvætt- urinn að vestan tekið við stjórn atvinnurekenda og Ásmundur og Ögmundur hafa bæst í hóp þeirra skynsömu. Með samningunum vinnst margt í senn. Mestur er hagnaður þjóð- félagsins af því að koma verðlagi og vöxtum niður undir það stig sem gerist meðal okkar helstu við- skiptaþjóða. Venjulegt fólk getur í fyrsta sinn gert áætlanir um framtíð fjölskyldunnar til lengri tíma. Launahækkanir á næstu 20 mánuðum ná ekki tveggja stafa tölu og því verður alls ekki hægt að kenna þeim um, ef verðlag hækkar úr hófi. Gert er ráð fyrir að verðbólga hlammist niður og verði komin í tvö prósent um jólin. Á pappírnum mun kaupmáttur rétt standa í stað, en auðvitað er hann enginn mælikvarði á gæði samning- anna. Með stórfelldri vaxtalækkun í kjölfarið vinnst margfalt meira en nemur einhverri prósentu til eða frá í kaupmætti. Fyrirtæki sem skulda milljónatugi hafa á undanf- örnum árum átt þann eina kost að Ef þú hefur áhuga á störfum tengdum ferðamannaþjónustu hér heima eða erlendis, getur ferðamálanám opnað þér nýjar leiðir. Nú lýkur þessum sjónleik von- andi. Fólk og fyrirtæki eiga að geta treyst því að grunnur efnahags og mannlífs verði með allt öðrum hætti. Þökk sé skynseminni við samningaborðið. Það er vissulega rétt sem haft er eftir Ásmundi formanni í Þjóðviljanum fyrir helg- ina að ekkert má bresta eigi samn- ingar að standast. En þá verður líka hver einasti aðili sem tengist sam- komulaginu að axla sína ábyrgð: * Fyrirtæki ættu að geta lækkað verðlag í kjölfar stórkostlegrar lækkunar á vöxtum. „Nú lýkur þessum sjón- leik vonandi. Fólk og fyrirtæki eiga að geta treyst því að grunnur eftiahags og mannlífs verði með allt öðrum hætti. Þökk sé skyn- seminni við samninga- borðið.“ velta kostnaði út í verðlagið og hafa spennt upp laun í kjölfarið. Og ijölskyldur hafa lent í va- xtavöxtum sem ekki sá fyrir endann á. * Laun á vinnumarkaði mega ekki undir neinum kringumstæðum fara upp fyrir það sem um hefur verið samið. Brjóti einhver sig út úr rammanum, er voðinn vís. * Ríkisstjórnin tók á sig að greiða niður landbúnaðai’vörur til þess að verð þeirra hækkaði ekki. Til þess að mæta þeim útgjöldum verður að draga úr öðrum út- gjöldum. í fyrsta sinn var ekki samið um að fjölga núllum. Það var samið um raunveruleg verðmæti. Látum þau verðmæti ekki verða að engu — að núlli — i nýrri verðbólguskriðu. Höfundur er utanrikisráðherra. Ferðamálanám gefur möguleika á fjölbreyttum störf- um, þar sem þú færð svalað ævin- týraþrá og kynnist nýju fólki á hverj- um degi. Meðal námsgreina: Starfsemi ferða- skrifstofa, erlendir og innlendir ferða- mannastaðir, tungumál, rekstur fyrirtækja í ferða- mannaþjónustu, flugmálasvið og heimsóknir í fyrirtæki. Námið erl56klst. og stendur yfir í 13 vikur. Kenn- arar á námskeiðinu hafa allir mikla reynslu á sviði ferða- mála. Láttu drauminn rætast. Hafðu samband við okkur hjá Málaskólanum og fáðu sendan bækling. 5',r! Málaskólinn Jón Baldvin Hannibalsson * Sveitarfélög gætu þegar í stað lækkað útsvarsprósentu um t.d. 0,2%. Þau hafa gert ráð fyrir 20-22% hækkun launa miili ára, en þar sem séð er að launahækk- anir verða einungis 5-6% ættu þau tafarlaust að lækka tekju- stofna sína. Peytirjóminn skiptir um ham, og heitir nú... G-RJOMI G-rjóminn geymist mánuðum saman utan kælis en með því að kæla hann vel fyrir þeytingu nærðu fram þeytihæfni og bragðgæðum ferska rjómans. G-rjóminn er sannkallaður veislufélagi á ferðalögum - auðvelt að kæl’ann, auðvelt að þeyt’ann - hvar sem er. Leggðu nýja útlitið á minnið. nms~ G-riómi 14 litri Innritun stendur yfir Það var ekki samið um núllið AUK/SlA k3d74-768

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.