Morgunblaðið - 13.02.1990, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.02.1990, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1990 Útibú KEA á Grenivík: Yfír 60 gráðu hiti í kæliklefanum Mikið af matvöru eyðilagðist Ökumenn lentu í miklum vandræðum vegna ófærðar á götum Akureyrar. Morgunblaðið/Rúnar Þór Erill hjá lögreglu, hjálparsveitar- og flugbjörgnnarsveitarmönnum: 50 útköll á 6 stundum vegna aðstoðar í óveðrinu MIKIÐ tjón varð er afhríming i kæliklefa útibús Kaupfélags Ey- firðinga á Grenivik sló ekki út og var því orðið býsna heitt í Straumur á skattstofuna TÖLUVERÐUR straumur fólks var á skattstofuna á Akureyri fyrir hádegi í gær. Frestur til að skila skattframtali rann út um miðnætti á laugardag, en skatt- stofan á Akureyri gaf fólki tæki- færi á að skila inn framtölum til hádegis í gær. Gunnar Rafn Einarsson skatt- stjóri á Norðurlandi eystra sagði að margir hefðu skilað framtali sínu á laugardag, en einnig hefðu marg- ir nýtt sér helgina til að vinna í skattskýrslunni því töluverður straumur var á skattstofuna fram til hádegis í gær. Gunnar Rafn sagði of snemmt að segja til um skil, en taldi þó sennilegt að betri skil væru nú en oft áður hjá fólki í sveitum. kælinum er að var komið á sunnudagsmorgun. í kælinum var mikið af matvöru sem gjör- eyðilagðist. Vegna ófærðar kom- ust viðgerðarmenn ekki til Grenivíkur fyrr en seinnipart dags í gær og hafði tjón því ekki verið metið. Pétur Axelsson útibússtjóri sagði að aðkoman hefði verið vægast sagt leiðinleg. Afhríming í kæliklefanum sló ekki út á laugardagskvöld eða aðfaranótt sunnudags og var því orðið allheitt í kæliklefanum. Er verslunin var opnuð kl. 10 á sunnu- dagsmorgun mætti starfsfólki mikil hitalykt sem rakin var til kæliklef- ans. Kom þá í ljós að mælar í klefan- um höfðu sprungið, en það gera þeir við 60 gráðu hita. Hitinn í klef- anum var því orðinn töluvert hærri en 60 gráður. Kæliklefinn er um 9 fermetrar að stærð og þar var mikið af mat- vöru, kjöti, ís, brauði og ýmsu öðru. Allt sem í klefanum var er gjör- ónýtt, en Pétur sagði ekki ljóst hvort klefinn sjálfur hafi sloppið. Hann sagði Ijóst að tjónið væri mikið, en það hafði ekki verið met- ið. I gær var unnið við hreinsun kæliklefans. NORÐAN stórhríð geisaði í Eyja- firði á sunnudag og urðu flestir vegir ófærir. Hjá lögreglunni á Akureyri voru skráð yfir 50 út- köll á tímabilinu frá kl. 18 til 24, en Hjálparsveit skáta og Flug- björgunarsveit Akureyrar voru lögreglu til aðstoðar. BHndbylur var einnig á Dalvík og í Ólafsflrði og urðu Ólafsfirðingar mjólkur- lausir í annað sinn frá áramótum. Snjómokstur á Akureyri hófst kl. 4 aðfaranótt mánudags. Þá voru helstu leiðir á þjóðvegum mokað- aðar í gær, en víða var enn ófært í sveitum. Lögreglan á Akureyri hafði í nógu að snúast á sunnudaginn, en hún naut aðstoðar Hjálparsveitar skáta og Flugbjörgunarsveitarinnar. Að sögn varðstjóra lögreglunnar var óvenju mikil umferð um götur bæjar- ins, en versta veðrið skall á seinni- part dags og voru þá margir farnir að heiman og lentu síðan í vandræð- um við að komast heim. Bílar voru fastir í sköflum víða^um bæinn og beindist aðstoð lögreglu, skáta og björgunarsveitarmanna mjög að því að losa fasta bíla eða færa til yfir- gefnar bifreiðir. Þá sáu þessir aðilar einnig um að koma starfsfólki heil- brigðisþjónustunnartil og frá vinnu. „Það var mikill erill hér á sunnu- daginn. Helsta vandamálið var hversu margir voru á ferli, umferðin var ótrúlega mikil miðað við að úti var iðulaus stórhríð. Það er vissulega alvarlegt mál þegar fólk fer út í veð- ur sem þetta á fólksbílum og er jafn- vel með ung böm,“ sagði varðstjóri lögreglunnar á Akureyri. Frá því kl. 18 á sunnudag og fram að miðnætti vom 52 útköll hjá lögreglunni. Félagar úr Hjálparsveit skáta fóru á sunnudagsmorgun upp í skálann Gamla, sem er í eigu skáta á Akur- eyri, en hann er ofan Kjamaskógar. Þar vom nokkrir skátar í útilegu um helgina, en er hjálparsveitarmenn komu í skálann vora skátarnir komn- ir til byggða. Hjálparsveit og Flug- björgunarsveit aðstoðuðu ökumenn bifreiða til kl. 2 aðfaranótt mánudags og var í nógu að snúast. Snjóbíll frá sveitinni hélt af stað til Stómtjarna í Ljósavatnsskarði á sunnudaginn, en komst ekki á áfangastað þar sem margir bílar sátu fastir í sköflum á Svalbarðsströndinni og veittu hjálp- arsveitarmenn ökumönnum aðstoð. Þá fór snjóbíllinn með hóp fólks til vinnu á Kristnesi og einnig var fólk sótt á Laugaland á snjóbílnum. Fáir vora á ferli á Dalvík, að sögn lögreglunnar þar, en götur bæjarins urður ófærar í óveðrinu á sunnudag. Hafíst var handa um hreinsun gatna í gærmorgun og var færð orðin þokkaleg um bæinn í gær. Ófært var hins vegar víða um Svarfaðardal. Björgunarsveit Slysavarnafélagsins aðstoðaði fólk úr og í vinnu. „Það var alveg kolvitlaust veður Ekki létu allir ofankomuna á sig fá. hérna og ófært um bæinn,“ sagði lögreglumaður í Ólafsfirði. Búið var að hreinsa helstu götur og víða era raðningar mjög háir og líkjast göt- umar helst göngum. Um miðnætti á sunnudag var fólk sem vinnur á dval- arheimilinu Hornbrekku sótt á snjó- troðara í vinnuna. Ólafsfjarðarmúli varð ófær á laugardagskvöld og að sögn vegaeftirlitsmanns átti ekki að moka hann í gær. Mjólkurlaust varð í bænum í annað sinn frá áramótum, en að sögn lögreglu var búist við að Mánabergið, sem var inni á Akur- eyri kæmi með varninginn heim. Haukur Ingólfsson fréttaritari Morgunblaðsins á Grenivík sagði að óvenju mikill snjór væri í þorpinu, en veðrið hefði ekki verið sérlega slæmt. Hann sagði að snjórinn væri erfiður viðureignar þar sem hann væri blautur og þungur og því gengi illa að blása hann af götum. Um helgina fór hópur manna á nokkrum jeppum út í Fjörður. Þeir lögðu af stað til Grenivíkur um kl. 8 á sunnu- dagsmorgun og komu til byggða um kl. 21.30 um kvöldið, en leiðin er um 15 kflómetrar. Vegurinn til Grenivík- ur var mokaður í gær og var orðið fært þangað um hádegi. Frammi í Eyjafirði var mikill snjór og vegurinn ófær á köflum, en í gær var litli hringurinn svokallaði mokað- ur. „Maður kemst ekki einu sinni um á traktor hvað þá meir,“ sagði Benj- amín Baldursson fréttaritari í Eyja- fírði. Háir ruðningar eru meðfram öllum vegum í firðinum og víða er- fitt að komast um. Benjamín sagði að veðrið hefði verið ansi slæmt seinnipart sunnudags og átti hann í erfiðleikum með að komast í fjós. Ekki sá út úr augum á leið í íjósið og þó svo stefnan hafi verið tekin þangað villtist hann af leið og lenti upp á vegi. Kerfi 1 Likamsrækt og megrun fyrir konur ó öilum aldri Kerfi 2 Framhaldsflokkar 1 og 2 - Lokaðir flokkar Kerfi 3 Róleglr timar Fyrir eldri konur og þær sem þurfa að fara rólega Kerfi 4 Nýi kúrinn 28 + 7 fyrir þær sem vilja fó aðstoð undir sérstakri stjórn Bóru Kerfi 5 Fyrir ungar og hrossar - teygja, þrek - eldfjörugir tímar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.