Morgunblaðið - 13.02.1990, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.02.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRUAR 1990 15 ■ NÆSTA myndakvöld Ferðafé- lagsins verður miðvikudaginn 14. febrúar í Sóknarsalnum, Skipholti 50a og hefst stundvíslega kl. 20.30. Grétar Eiríksson hefur umsjón með fyrri hluta sýningarfnnar. Fyrst verða sýndar myndir sem tengjast efni árbókar F.I. 1990 og eru þær frá fjalllendinu út með Eyjafirði og norðan Öxnadals- heiðar. Bjarni Guðleifsson á Möðruvöllum mun skýra þessar myndir. Þar á eftir fer Grétar þjóð- leiðina frá Siglufirði í suðurátt um Skagafjörð, leggur lykkju á leið sína og fer út á Snæfellsnes, síðan aftur í suðurátt um Borgarfjörð til Reykjavíkur. Á þessari löngu leið vekur Grétar athygli á nokkrum merkum stöðum í máli og myndum. Eftir kaffihlé verða sýndar myndir teknar í dagsferðum það sem af er þessu ári. Fjölmenni hefur verið í þessum ferðum og veður hagstætt til myndatöku. ■ MENNTAMÁLARÁÐHERRA hefur sett reglugerð um landverði. Byggist hún á breytingu sem Al- þingi samþykkti síðastliðið vor á lögum nr. 47/1971 um náttúru- vernd. Reglugerðin snýr fyrst og fremst að eftirliti og fræðslu land- varða í þjóðgörðum og friðlýstum svæðum sem eru í umsjá Náttúru- verndarráðs. Hlutverk landvarð- anna er að gæta þess að ákvæði friðlýsingar og náttúruvemdarlaga séu virt, auk þess sem þeir koma á framfæri upplýsingum og fræðslu til ferðafólks um náttúm og sögu þeirra svæða sem þeir vinna á. Kveðið er á um það í reglugerðinni að Náttúruverndarráð skuli standa fyrir opnum námsskeiðum fyrir alla þá sem hafa í hyggju að vinna við landvörslu. Þar er megináhersla lögð á náttúmfar og þjóðlíf á ís- landi, náttúmvernd og umhverfis- rétt, umhverfisfræðslu og dagleg störf við landvörslu. Náttúruvernd- arráð hefur samþykkt að þessi nám- skeið skuli haldin á tveggja ára fresti, og verður væntanlega aug- lýst eftir þátttöku í næsta nám- skeiði í lok þessa árs. Landverðir starfa nú á vegum Náttúruverndar- ráðs í þjóðgörðunum í Skaftafelli og Jökulsárgljúíri og í friðlöndum að Fjallabaki og á Hornströndum. Þá hefur Náttúruverndarráð sam- starf við ferðafélög um landvörslu í Herðubreiðarlindum, Hvanna- lindum á Hveravöllum og í Land- mannalaugum. ■ STÉTTARSAMBAND bænda gengst fyrir kynningarfundum um nýgert samkomulag Stéttarsam- bandsins og aðila vinnumarkaðar- ins um kjaramál dagana 14,—17. febrúar næstkomandi. Haldnir verða 15 fundir á Suðurlandi, Vesturlandi og Norðurlandi þar sem stjórnarmenn og starfsmenn Stéttarsambandsins munu kynna og skýra hið nýgerða samkomulag. Á Austurlandi verða haldnir fundir í lok febrúar og á Vestfjörðum svo fljótt sem aðstæður leyfa. Fundirnir verða sem hér segir: Miðvikudaginn 14. febrúar kl. 13.30. Að Fólk- vangi á Kjalarnesi, í Dalabúð, Búðardal, í Safnahúsinu á Sauð- árkróki, á Hótel Selfossi og í Hlíðarenda á Hvolsvelli kl. 21. Fimmtudaginn 15. febrúar kl. 13.30. Á Hótel Borgarnesi, í Fé- lagsheimilinu á Reykhólum, í Ásbyrgi, Miðfirði, í Tunguseli, V.-Skaftafellssýslu og á Hótel KEA kl. 21. Föstudaginn 16. febrú- ar kl. 13. í Breiðabliki, Snæfells- nesi, í Sævangi, Strandasýslu, á Hótel Blönduósi að ídölum, S.- Þingeyjarsýslu. Laugardaginn 17. febrúar kl. 13.30 Á Kópaskeri. ■ SAMNORRÆNT framhalds- nám fyrir starfsmenntakennara í framhaldsskólum hefst með nám- skeiði í Svíþjóð í ágúst n.k. Um er að ræða 30 eininga nám, sem tekið er á tveimur árum. Gauta- borgarháskóli veitir verkefninu forstöðu, en Kennaraháskóli Is- lands sér um framkvæmd námsins hér á landi. Gert er ráð fyrir allt að fimm þátttakendum frá hvetju landi. Námið er ætlað starfsmenn- takennurum í framhaldsskólum, þeim er starfa við skipulagningu eða stjórnun starfsmenntunar á framhaldsskólastigi, eða þeim er starfa við kennaramenntun fyrir starfsmenntakennara á því skóla- stigi. Kristrún ísaksdóttir í menntamálaráðuneytinu og Gunn- ar Finnbogason í KÍ veita nánari upplýsingar um námið, en umsókn'- ir skal senda menntamálaráðuneyt- inu fyrir 1. mars n.k. NÁMSKEIÐ jynx nemendur • grunnskóla • framhaldsskóla • háskóla Nanaidafjónustansf. Þangbakka 10. Mjódd. BILL SEM BER AF ÖDRUM VegnŒ íoxmíeguxöai akstuxseiginleika þœginda spaxneytni ZINKHUÐUÐ YFIRBYGGING Vöm gegn veðmn og ryði 1350 milljónir á lausu frá 1. febrúar 1990 LANDSBREF veita einstaklingum og samtökum holl ráð við innlausn/kaup Spariskírteina ríkissjóðs Hvers konar endurfjárfestingar fyrir alla sem hyggja aó öruggri íramtíð í fjármálum. 9 LANDSBRÉF LANDSBANKINN STENDUR MEÐ 0KKUR SUÐURLANDSBRAUT 24, SÍMI 606080.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.