Morgunblaðið - 13.02.1990, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1990
17
Stjórnmálaályktun flokksráðsfundar Sjálfstæðisflokksins:
Sjálfstæðisflokkurinn lýsir yfir
stuðningi við kjarasamningana
FUNDUR flokksráðs og formanna flokkssamtaka og sveitarstjórnar-
manna Sjálfstæðisflokksins var haldinn á föstudag og laugardag.
Hér á eftir fer stjórnmálaályktun fundarins:
I.
„Síðan sjálfstæðismenn komu
saman til landsfundar í október-
mánuði sl. hafa miklar hræringar
orðið á sviði stjórnmála innan lands
og utan. Söguleg tímamót eru að
eiga sér stað í Evrópu. Þjóðir Aust-
ur-Evrópu hafa hver af annarri
varpað af sér oki kommúnismans
og virðast stefna í átt til frelsis og
mannréttinda, lýðræðislegra stjórn-
arhátta og markaðsbúskapar að
vestrænni fyrirmynd. Þessari þróun
fagna allir fijálshuga ménn.
I Vestur-Evrópu stefna lýðræð-
isríkin markvisst að aukinni efna-
hagslegri og pólitískri samvinnu á
grundveili viðskiptafrelsis. Vegna
frumkvæðis og staðfestu Atlants-
hafsbandalagsríkjanna og nýrra
viðhorfa í Austur-Evrópu eru fram-
undan víðtækir samningar um sam-
drátt herafla í álfunni sem gera
kleift að beina kröftunum að brýnni
verkefnum. Um Evrópu alla berast
nú nýir straumar bjartsýni og fram-
fara sem vart eiga sinn líka á þess-
ari öld.
Stokkseyri:
Bjartari tím-
ar framundan
Stokkseyri.
ATVINNUÁSTAND á Stokkseyri
hefur verið í. öldudal frá áramót-
um og má þar aðallega um kenna
megnustu ótíð til sjávarins og
fjárhagsörðugleikum Hraðfrysti-
hússins, sem nú er þó að leysast
fyrir miliigöngu Hlutafjársjóðs
og Atvinnutryggingasjóðs, svo
að bjartari tímar virðast nú fram-
undan.
Nú hafa þrír bátar af fjórum, sem
eru í eigu Hraðfrystihússins, hafið
róðra. Afli hefur verið heldur rýr,
þetta frá þremur upp í átta tonn í
róðri. Uppistaða afians er ufsi sem
unninn er í flök og þau söltuð.
Eins og er eru hér 46 manns á
atvinnuleysisskrá og mest af þeim
konur.
Tekist hefur að tryggja fé í end-
urbyggingu sjóvarnargarðanna og
þeirra vegaskemmda sem urðu
vegna hins mikla sjávarflóðs sem
varð hér 9. janúar síðastliðinn og
verður verkið boðið út núna í mán-
uðinum og ætlað er að hefja fram-
kvæmdir við verkið um mánaðamót-
in febrúar, mars.
Stgr.
II.
Á meðan þessi sögulega fram-
vinda í nálægum löndum er í deigl-
unni situr við völd á íslandi aftur-
haldssöm vinstri stjóm. Að henni
standa m.a. þau stjórnmálaöfl sem
helst hafa fundið til skyldleika með
því kerfí sem nú er að hrynja í
Austur-Evrópu. Innan stjórnmála-
flokkanna eru einnig öfl sem vilja
koma í veg fyrir að íslendingar
taki fullan þátt í fijálsræðisþróun-
inni í Vestur-Evrópu og gera fyrir-
vara á alþjóðavettvangi við sérhvert
skref sem stigið er í þá átt.
Reynslan sýnir að ríkisstjórnin
megnar ekki að veita þá forystu sem
þjóðin þarfnast. Atvinnuvegunum
hafa ekki verið búin eðlileg Og al-
menn starfsskilyrði heldur hefur
ríkisstjórnin beitt miðstýringu og
mismunun. Slíkir stjórnarhættir
skapa jarðveg fyrir þjóðnýtingu. Æ
dýpra er seilst í vasa einstaklinga
og fyrirtækja með því að leggja
skatt á skatt ofan í þeim tilgangi
að fjármagna sífellda útþenslu
ríkiskerfisins. Ríkissjóður er engu
að síður rekinn með hrikalegum
halla. Raunvextir hafa á undanförn-
um mánuðum hækkað þrátt fyrir
yfirlýsingar ráðherra um hið gagn-
stæða. Allt eykur þetta á samdrátt-
inn í efnahagskerfinu.
Afleiðingarnar blasa við með ör-
yggisleysi í atvinnumálum, vaxandi
atvinnuleysi, byggðaröskun og
versnandi lífskjörum. Allt er í óvissu
varðandi nýja samninga um stóriðju
og uppbyggingu virkjana. Ekkert
bólar á ákvörðunm um forkönnun
á nýjum alþjóðlegum varaflugvelli.
Hrossakaup stjórnarflokkanna með
hina mikilvægu löggjöf um Stjórn-
arráð íslands hafa enn rýrt það litla
traust sem þeir njóta.
Launþegar, vinnuveitendur og
bændur hafa nú með afgerandi og
ábyrgum hætti tekið fram fyrir
hendur ríkisstjórnarinnar með
sögulegum kjarasamningum. Þeir
eru hugsaðir sem vörn gegn frekari
kjararýrnun og atvinnuleysi. Sjálf-
stæðisflokkurinn lýsir stuðningi við
þessa samninga. Þeir sýna að
verkalýðshreyfingin og forystu-
menn í atvinnulífi skilja betur en
ríkisstjórnin nauðsyn þess að gera
þjóðarbúskapinn samkeppnishæfan
og laga íslenskt efnahagslíf að
breytingum í viðskiptalöndum okk-
ar.
Það er nú ekki síst á valdi ríkis-
stjórnarinnar hvort markmið samn-
inganna nást. Það mun verða próf-
steinn á vilja og getu stjórnarinnar
hvort henni tekst að draga úr
ríkisútgjöldum í samræmi við for-
sendur samninganna.
III.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur enn
sem fyrr áherslu á að standa vörð
um frelsi og sjálfstæði þjóðarinnar,
tungu hennar og menningu. Flokk-
urinn telur að virða beri rétt ein-
staklingsins til athafna og tryggja
svigrúm fyrir framtak og atorku,
en um leið að gætt verði þeirra
mannlegu sjónarmiða að leggja
þeim lið sem höllum fæti standa í
lífsbaráttunni. Hið' sígilda kjörorð
flokksins „stétt með stétt“ er enn
í fullu gildi.
Sjálfstæðisflokkurinn ítrekar
andstöðu sína við ríkisstjórnina og
hvetur til þess að gengið verði til
alþingiskosninga hið fyrsta. Flokk-
urinn telur að brýnustu verkefni
nýrrar ríkisstjórnar verði:
Að búa atvinnuvegunum skilyrði
til að blómgast að nýju.
Að stöðva útþenslu ríkiskerfisins
og ná tökum á ríkisbúskapnum sem
farið hefur gjörsamlega úr böndun-
um í tíð núverandi valdhafa.
Þetta eru frumskilyrði þess að
hægt verði að hverfa frá samdrætti
til nýrrar hagsældar en jafnframt
að snúa frá forsjárhyggju, skatta-
áþján og miðstýringu núverandi
ríkisstjórnar.
IV.
Framundan eru mikilvægar
kosningar til sveitarstjórna. Sveit-
arfélögin og stjórnir þeirra standa
íbúum sínum nær en önnur stjórn-
völd. Hlutverk þeirra er að þjóna
íbúunum og standa vörð um hags-
muni þeirra. Nauðsynlegt er að
tryggja sjálfstæði sveitarfélaga og
að þau þurfi ekki að keppa við ríkis-
valdið í skattlagningu. Grunntónn-
inn í stefnu Sjálfstæðisflokksins um
frelsi þjóðar og einstaklinga á
hvergi betur við. Sjálfstæði sveitar-
félaganna dregur úr miðstýringu í
landinu og stuðlar þannig að far-
sæld heimilanna. Sjálfstæðisflokk-
urinn mótmælir áformum ríkis-
stjórnarinnar um nýja skattlagn-
ingu á sveitarfélögin og fyrirtæki
þeirra.
í Reykjavík og fleiri sveitarfélög-
um stendur val kjósenda á milli
styrks meirihluta sjálfstæðismanna
og sundurleitra vinstri flokka.
Framboðsbrölt þeirra og misheppn-
aðar tilraunir til sameiningar sýna
að þeim er ekki treystandi. Reynsl-
an sýnir að þeim sveitarfélögum
sem sjálfstæðimenn ráða er betur
stjórnað.
Sjálfstæðismenn ganga bjartsýn-
ir til komandi sveitarstjórnarkosn-
NORDMENDE
■
Nú er engin ástæöa fyrir þig a& missa af
skemmtiiegu sjónvarpsefni.
Nordmende V-1005 myndbandstækið
kemur í‘veg fyrir það.
Þú getur tekiö upp 8 mismunandi þætti
allt aö ár fram í tímann. Tækið er með
þráblausri fjarstýringu, barnaiæsingu og
'msu fieira.
llboðsverb frá aöeins 44.950,- eba
ým
Tilfc
39.980,-
stgr.
E Æ7
EURQCARD HHHHi Samkort
Við
tökum
vel á
móti þér!
greiðslukjör til allt að 12 mán. eða 3 ára greiðslukjör
inga á traustum grunni sjálfstæðis-
stefnunnar. Sjálfstæðisflokkurinn
hvetur kjósendur til þess að fylkja
sér um framboðslista flokksins um
land allt. Þannig tryggja kjósendur
sér trausta stjórn á málefnum sveit-
arfélaga sinna og veita jafnframt
ríkisstjórnarflokkunum verðuga
ráðningu.
Góður árangur Sjálfstæðis-
flokksins í kosningunum í vor mun
gefa þjóðinni nýja von um bjartari
framtíð."
B JÓN Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra, sækir upphaf
Ráðstefnunnar um opnun lofthelgi,
sem fram fer í Ottawa í Kanada
í boði þaríendra stjórnvalda dagana
12.—28. febrúar. Til ráðstefnunnar
er boðið aðildarríkjum Atlantshafs-
bandalagsins og Varsjárbanda-
lagsins og munu utanríkisráðherrar
fyrrgreindra ríkja sækja ráðstefn-
una. Tilgangur hennar er að hefja
samningaviðræður um samkomulag
um opnun lofthelgi (Opsen Skies
Regime), en fyrirhugað er að ljúka
samningaviðræðum á framhaldsr-
áðstefnu síðar á yfírstandandi ári
hog hefur ríkisstjórn Ungverja-
lands boðist til að halda ráðstefn-
una. Samkomulagið un opnun loft-
helgi á meðal annars að miða að
því, að þau ríki, sem undirrita sam-
komulagið, leyfi á gagnkvæman
hátt eftirlit úr lofti með heijum og
hernaðarmannvirkjum í því skyni
að auka öryggi og traust milli ríkja.
SKIPHOLT119
SÍMI29800
Vinningstölur laugardaginn
10. feb. ’90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 2 6.485.342
O PU6|SfiíHÍ £. 4af5^pUÁ 12 104.352
3. 4af 5 289 7.474
4. 3af 5 10.168 495
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
21.416.054 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
08/2
Muniö sýningu IBM á
hugbúnaði fyrir OS/2 stýrikerfið.
Þverskurður af hugbúnaði
sem nýtir sér
yfirburði OS/2 stýrikerfisins.
Sýningin er opin miðvikudaginn 14.2.
og fimmtudaginn 15.2.
kl. 13-18.
FYRST OG FREMST
SKAFTAHLlÐ 24 105 REVKJAVlK SlMI 697700