Morgunblaðið - 13.02.1990, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.02.1990, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ VlDSKZPTI/flDVlNNUlÍF ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1990 A MARKAÐI Bjarni Sigtryggsson Lútur, vax, sápur, lakk og bón u/tre Viðskiptavinur eða bara kaupandi? ÁRMÚLA38-108 REYKJAVÍK - SÍMI681818 Úttekt Atla Arasonar á tölvu- væðingu ríkisstofnana leiddi í ljós að margar þeirra hafa þegar fjár- Skil á staðgreiðslufé EINDAGINN ER 15. HVERS MÁNAÐAR Launagreiðendum ber að skila afdreg- inni staðgreiðslu af launum og reikn- uðu endurgjaldi mánaðarlega. Skilin skulu gerð eigi síðar en 15. hvers mán- aðar. Með skilunum skal fylgja greinar- gerð á sérstökum eyðublöðum, „skila- greinum11, blátt eyðublað fyrir greidd laun og rautt fyrir reiknað endurgjald. Skilagrein ber ávallt að skila einnig þó svo að engin staðgreiðsla hafi verið dregin af í mánuðinum. Allar fjárhæðir skulu vera í heil- um krónum. Gerið skil tímanlega RSK RlKISSKATTSTJÓRI fest í þremur tölvukynslóðum á ör- skömmum tíma og tölvubúnaður fyrir milljónir hefur ient á haugun- um. Ein af ástæðunum er sú að í tölvumálum leiðir haltur blindan. Flestir tölvusalar eru tæknisinn- aðir trúboðar sem hafa umboð. Þeir eru uppteknir af nýrri tækni en hafa ekki ræktað með sér það viðhorf markaðsmannsins að líta á hlutverk sitt sem það að leysa vandamál viðskiptavinarins. Einn flytur inn vélbúnað, annar selur hugbúnað og pakkalausnir þekkjast varla nema hjá IBM. Notandinn er því háður ráðgjöf frá einum seljandanum um tölvu, öðrum um prentara, hann leitar tii hins þriðja um ritvinnslu og sá fjórði sér honum fyrir samskiptamögu- leikum við umheiminn. Þegar árekstrar verða svo í tölvunni milli óskyldra kerfa, eða milli tölvu og prentara, þá þvo allir hendur sínar og píslarganga tölvunotandans milli þjónustusanauðra innflytjenda hefst. Að skilja er að selja Fyrir skemmstu kom út í Banda- ríkjunum bókin „Conceptual Sell- ing“ eftir Robert Miller og Stephen Heiman. Bókartitillinn gæti í íslenskri þýðingu heitið „Að skilja er að selja“ en boðskapur hennar er sá að hlutverk seljandans sé að leysa vandamál kaupandans. Það gera menn með því að hlusta á kaupandann og skilja þarfir hans. Að mati höfundanna gera sölu- menn of mikið af því að tala. Þeir veija miklum meirihluta samveru- stundar sinnar með væntanlegum kaupanda í það að lýsa fjálglega ágætum vöru sinnar. Þeir ræða um að sölumennirnir tali 80% sam- verustundarinnar en hlusti ekki all- an þann skamma tíma sem kaup- andinn væntanlegi tjáir sig. Þetta er kannski orðum aukið en í því er fólginn mikill sannleikur. Allt of margir seljendur hlusta ekki á kaupandann. Þeir hugsa um það sem þeir eru að reyna að selja og hafa mestan áhuga á að leysa sín eigin vandamál. Þess vegna hafa svo margir tölvuseljendur hér á landi selt vélbúnað eða hugbúnað einu sinni, en ekki öðlast trúnað kaupenda. Þeir hafa ekki náð að gera kaupanda að viðskiptavini. Orðið viðskiptavinur hefur nefni- lega dýpri merkingu en kaupandi. Kaupandi er sá sem kaupir af þér einu sinni. Sé hann ánægður og komi aftur er hann orðinn viðskipta- vinur. Hlustað á gestina Barátta hinna fjölþjóðlegu hótel- hringa hefur á síðustu 10 árum að miklu leyti snúist um það að ná til sín erindrekum fyrirtækja, þeim sem ferðast mikið vinnu sinnar vegna. Þetta hafa hótelin meðal annars gert með alls kyns gylliboð- um. Nú hefur hins vegar baráttan færst aftur inn á hótelin og snýst nú fremur um bætta þjónustu og persónulegra viðhorf starfsfólks. „í viðskiptum gildir sama regla og í mannlegum samskiptum, að sá er vinur er í raun reyn- ist. . .“ Þetta er árangur þess að hlusta eftir skoðunum og reynslu gestanna sjálfra. Það er áberandi hér á landi hve mörg fyrirtæki beijast nú um at- hyglina. Þau auglýsa í klisjukennd- um slagorðastíl en búa ekki til inni- hald að baki orðanna. Þau tala hástöfum í auglýsingum, en hlusta ekki að sama skapi þegar gesturinn eða kaupandinn mætir til leiks. Þessi fyrirtæki hafa ekki áhuga á því að eignast (viðskipta)vini, en reyna þess í_ stað að fá sem flesta kaupendur. í verslun gildir þó hið sama og í mannlegum samskiptum, að vinur er sá er í raun reynist. Sá sem hlustar og finnur með. Vin- skap þarf að rækta og hann verður ekki keyptur. Ekki einu sinni með sjónvarpsauglýsingum. Við höldum sýningu í húsnæði okkar að Ármúla 8 (2. hæð), fimmtudaginn 15. febrúar og föstudaginn 16. febrúar n.k. Við sýnum: LTOSRTrUNARVELAR Fjölbreytt úrval, frá þeim minnstu upp í afar fullkomnar og afkastamiklar ljósritunarvélar. 9 EI islhnuia T jEFAX Frá litlum upp í afar fullkomin telefaxtæki. OPTÍMA ÁRMÚLA 8 - SÍMAR 84900, 688271

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.