Morgunblaðið - 13.02.1990, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1990
19
MANDELA FÆR FRELSl
Lausn Mandela fagnað víða um heim:
Ekki talið tímabært að af-
létta viðskiptaþvingunum
London. Reuter.
RÍKISSTJÓRNIR um allan heim hafa lýst yfír fögnuði vegna frelsun-
ar Nelsons Mandela. En almennt virtust menn á einu máli um að
ekki væri tímabært að aflétta viðskiptaþvingunum sem beitt hefur
verið gegn stjórn hvítra í Suður-Afríku.
Genrge Rush Bandaríkjaforseti
ræddi símleiðis ,við Mandela á
sunnudag nokkrum klukkustundum
eftir að hann var látinn laus. Bush
sagði við fréttamenn að hann væri
ekki reiðubúinn að tjá sig um við-
skiptaþvinganir og sagðist þurfa
að ráðfæra sig við samstarfsmenn
sína. Gennadij Gerasímov, talsmað-
ur sovéska utanríkisráðuneytisins,
lét svo ummælt að það hefði átt
að láta Mandela lausan fyrir löngu.
Hann sagðist vonast til að nú væri
kynþáttaaðskilnaðarstefnan brátt á
enda.
Manuel Marin, sem fer með mál-
efni þróunarlanda í framkvæmda-
nefnd EvrópubandalagsinB, sagði
að ekki ætti að afiétta refsiaðgerð-
um gegn Suður-Afríku fyrr en horf-
ið hefði verið frá kynþáttaaðskiln-
aðarstefnunni. Marin sagðist telja
að refsiaðgerðimar, einkum af
hálfu Bandaríkjanna, hefðu ráðið
úrslitum um að knýja fram umbæt-
ur í Suður-Afríku. Margaret Thatc-
her, forsætisráðherra Bretlands,
sagðist ætla að fá önnur EB-ríki
til að aflétta að minnsta kosti hluta
refsiaðgerðanna til að verðlauna
suður-afrísk stjórnvöld. Líklegt
þykir að Thatcher heimsæki Suð-
ur-Afríku á næstunni. Hún hefur
þegar boðið F.W. de Klerk og Mand-
ela í heimsókn til Bretlands.
Fjölmörg ríki í Asíu og Eyjaálfu
hafa fagnað frelsun Mandela en
segjast ekki ætla að láta af refsiað-
gerðum. „Tilgangurinn með þeim
var ekki að fá Mandela lausan held-
ur tryggja að kynþáttaaðskilnaðar-
stefnan yrði aflögð," sagði Gareth
Evans, utanríkisráðherra Ástralíu.
Sir Shridath Ramphal, fram-
kvæmdastjóri skrifstofu Breska
samveldisins, tók í sama streng.
Kínverska utanríkisráðuneytið
fagnaði frelsun Mandela en sagði
að „ekki væri nóg að gert“.
Frelsun Mandela var fagnað víða
í Bretlandi. Kirkjuklukkum var
hringt víðs vegar um landið af þessu
tilefni og víða á stúdentaknæpum
fékkst bjór á niðursettu verði.
Mandela er heiðursvaraforseti
Bresku stúdentasamtakanna.
■ PEKING - Kínveijar og
Sovétmenn hófu á föstudag viðræð-
ur sem miða að því að draga úr
herafla og vígbúnaði á landamær-
um ríkjanna. Þetta er önnur umferð
viðræðnanna og er áætlað að hún
standi til 22. febrúar. Málið var
slðast á dagskrá í nóvembermánuði
síðastliðnum. Báðir aðiiar hafa látið
f ljós áhuga á að minnka hernaðar-
viðbúnað á landamærasvæðunum
niður í algjört lágmark með tilliti
til vinsamlegs grannskapar
ríkjanna.
■ BÚDAPEST - Ungveija-
land og Vatikanið ákváðu á föstu-
dag að taka upp stjórnmálasam-
band sín á milli að nýju, en því var
slitið fyrir rúmum fjórum áratug-
um. Ungveijaland er annað Var-
sjárbandalagsríkið sem tekur upp
stjórnmálasamband við Páfugarð.
Pólland gerði það í júlímánuði
síðastliðnum. Ríkin munu skiptast
á sendimönnum eftir kosningarnar
í Ungverjalandi 25. mars og 8. apríl
næstkomandi.
■ WINDHOEK - Þingið í
Namibíu samþykkti nýja stjórnar-
skrá á föstudag. Þar með er rutt
úr vegi síðustu hindruninni fyrir að
landið hljóti sjálfstæði frá Suður-
Afríku 21. mars næstkomandi.
Stjómarskráin var samþykkt ein-
róma í þinginu. Hún kveður á um
fjölflokka lýðveldisskipan, mann-
réttindi, óháð dómsvald og forseta
sem sitja má tvö fimm ára kjörtíma-
bil hið mesta. Þingið kemur saman
öðru sinni 20. mars til að kjósa
forseta þessa nýjasta rfkis heims,
en nærri fullvíst er talið að Sam
Nujoma, leiðtogi SWAPO, hliótí
embættið.
SVÆMMEBFERDMSKÓU (SLANDS
auglýsir:
Nemendur Svæðameðferðarskóla ís-
lands taka að sér nudd í skólanum mánu-
daga, þriðjudaga, miðvikudaga og
fimmtudaga frá kl. 13-18.
Fyrirhugað er
svæðanuddi.
kynningarnámskeið
Nánari upplýsingar í síma 687566.
Þeir hvítu vilja réttlæti án
þess að glata velmeguninni
- segir Hilmar Kristjánsson sem búsettur er í Suður-Afríku
HILMAR Kristjánsson, ræðismaður íslands í Suður-Afríku, sagði
í símaviðtali við Morgunblaðið í gær að stórkostlegar breytingar
hefðu orðið í Suður-Afríku undanfarið. Hann óttaðist þó að erfið-
lega kynni þó að ganga að koma á varanlegu lýðræði í landinu.
Hilmar Kristjánsson hefur búið
í 26 ár í Suður-Afríku þar sem
hann starfrækir gluggaverk-
smiðju. Hilmar vildi geta þess þar
sem hann er ræðismaður íslands
að það sem hann segði um málið
væru persónulegar skoðanir en á
engan hátt afstaða íslenska ríkis-
ins.
Stórkostlegar breytingar
„Það hafa orðið stórkostlegar
breytingar í Suður-Afríku síðan
P.W. Botha komst til valda sem
ágerðust þegar de Klerk tók við.
Stefnubreytingu Þjóðarflokksins
undir forsæti Botha mætti líkja
við það að Sjálfstæðisflokkurinn
gerðist kommúnistaflokkur. Það
má segja að flokkurinn hafi færst
inn að miðjunni. Um leið hefur
hann misst fylgi yfir til íhalds-
flokksins en unnið fylgi af demó-
krataflokknum sem er á vinstri
vængnum. íhaldsflokkurinn vill
halda fast í þá stefnu að hafa
heimalönd fyrir svarta og hann
fékk 32% fylgi í síðustu kosning-
um. Kjördæmaskipunin þar sem
er um einmenningskjördæmi að
ræða veldur því að íhaldsflokkur-
inn hefur færri þingmenn en fylg-
ið segir til um. Þjóðarflokkurinn
græðir hins vegar á kjördæma-
skipuninni. íhaldsflokkurinn sakar
Þjóðarflokkinn um að hafa kúvent
án þess að ráðfæra sig við kjósend-
ur. Svo mikil er reiðin innan
flokksins að jafnvel eru uppi radd-
ir um að þingmenn hans segi af
sér til að knýja á um kosningar.
Ágreiningurinn er því mikill meðal
hvítra.
Erjur milli ættbálka
En hann er einnig meðal
svartra. Hér eru sjö til átta ætt-
bálkar. Það er mikill rígur milli
xhosa frá Transkei en Mandela
er af þeim þjóðflokkí og Zúlú-
manna en foringi þeirra heitir
Mangosuthu Buthelesi. Eitt erfið-
asta verkefnið í suður-afrískum
stjórnmálum er að stilla til friðar
milli þessara þjóða. Stríðið milli
þeirra hefur geisað í u.þ.b. tvö ár.
Þótt Mandela sé laus er þetta
vandamál óleyst. Buthelesi vill
kapítalisma en Nelson Mandela er
kommúnisti og hann vill þjóðnýt-
ingu.
Auðvitað er mikill fögnuður á
götum úti vegna lausnar Mandela
en sjálfur hef ég talað við íjölda
blökkumanna sem eru ekkert mjög
hrifnir vegna róttækra skoðana
hans.
Það sem hvítir íbúar landsins
óttast er ekki réttlætið eins og
ætla mætti heldur að það glatist
sem áunnist hefur. Suður-Afríka
er eina ríkið í álfunni þar sem er
veruleg velmegun. Þeir vilja koma
á lýðræðisríki sem er varanlegt.
Sjálfur efast ég talsvert um að
þetta takist því það hefur hvergi
heppnast í Afríku. Ég óttast kerfi
eins og á íslandi þar sem er fjöldi
flokka með tilheyrandi öngþveiti.
Hvítir íbúar landsins vilja ekki að
það verði bara haldnar fijálsar
kosningar einu sinni eins og í öllum
öðrum Afríkuríkjum. Fái Afríska
þjóðarráðið, sem er samtvinnað
kommúnistaflokknum, sinni
stefnu framgengt um að hver
maður fái eitt atkvæði þá verður
ekki kosið nema einu sinni.
Ég held að Þjóðarflokkurinn
sjái fyrir sér lausn sem er á þann
veg að Suður-Afríka verði gerð
að ríkjasambandi líkt og Banda-
ríkin. Þá gæti hver þjóð ráðið
sínum málum á eigin landsvæði.
Þá væri hægt að hafa jafnan kosn-
ingarétt innan hvers sambandsrík-
is,“ sagði Hilmar Kristjánsson.
Viðbrögð íslendinga í
S-Afríku
Um það bil 25 íslendingar búa
í Suður-Afríku. Hildur Lárusdóttir
von Schilling, sem búsett er í Suð-
ur-AfríkUj hafði samband við
nokkra Islendinga sem búa í
landinu og bað þá álits á frelsun
Hilmar Kristjánsson
Nelsons Mandela. Hún sendi
Morgunblaðinu frásögn af við-
brögðum þeirra. Lísa og Pétur
Erlendsson sem búið hafa í 22 ár
í Suður-Afríku segja þessi tíðindi
skref í rétta átt því kerfið verði
að breytast og vonandi gerist það
á friðsamlegan hátt. Einnig séu
líkur á því að þvingunum gegn
Suður-Afríku verði aflétt að hluta.
Þórarinn Guðmundsson, sem
búið hefur í tvo áratugi í Suður-
Afríku, segir að allt of mikið hafi
verið gert úr þessum atburði. Ein-
kennilegt sé að íslensk hreppa-
pólitík, afskiptasemi og öfund,
skuli koma fram um allan heim
þegar Mandela sé látinn laus.
Snæbjörn Samúelsson, se,m búið
hefur í S-Afríku í 33 ár, segist
ánægður með tíðindin og þau gefí
fyrirheit um bjartari framtíð, ár-
angursríkar viðræður og stjórn
landsins þar sem allir kynþættir
eigi sæti.
Héðinn Erlendinusson, sem ver-
ið hefur 23 ár í S-Afríku, segir
frelsun Mandela stórt skref í rétta
átt en býst við stjórn svartra í
framtíðinni.
HY
PHILCO.
ÞVOTTAVEL
MEÐ1300 SN.
W135, 5 kg þvottavél. Vindur allt að 1300 snúninga
• Fjöldi þvottakerfa eftir þínu vali • Heitt og kalt eða eingöngu kalt vatn
• Hitastillir að þinni ósk • Flæðivari
• Ullarþvottakerfi • Yfirhitunaröryggi
• Ryðfrítt stál í tromlu og ytri belg • Nýr mótor
(ö»
SI Heímilistaeki hf
| Sætúni 8 Sími 691515 -Krinaunni Simi 691520 g
■■■■ Zcd&iutoSve^%&^Lsa»oui<gMiK, ■■■■